Morgunblaðið - 18.04.1986, Side 19
19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. APRÍL1986
Stærsta veisla norðan heiða frá upphafi Islandsbyggðar á Akureyn:
700 manna veisla vegna
50 ára afmælis SVS
Akureyri.
Starfsmannafélag verksmiðja
SÍS á Akuryri, SVS, verður 50
ára 23. aprO næstkomandi. í
féttatilkynningu frá félaginu
segir:
„Af. þessu tílefni verður af-
mælisins minnst á veglegan hátt
með voldugri hátíð i íþróttahöll-
inni laugardaginn 19. aprU.“
Heiðursgestur félagsins verður
Albert Guðmundsson, iðnaðar-
ráðhera.
I fréttatilkynningunni segir enn-
fremur: “Altalað er á Akureyri að
þetta verði árshátíð aldarinnar,
bæði sagt í gamni og alvöru.
I gamni vegna þess, að þama
ætla menn að skemmta sér svo að
til tímamóta tilheyrir, en í alvöru
þegar haft er í huga að starfsfólk
fjölmennasta vinnustaðar landsins
er að fara út að skemmta sér. Eru
líkur á 700 manna matarveislu, en
það segja Bautamenn sem sjá um
allar veitingar, að muni verða fjöl-
mennasta veisla norðan heiða frá
upphafí íslandsbyggðar. Verður
hátíðin tekin upp á myndband fyrir
sögusafn félagsins.
Fjölmennir hópar taka að sér að
breyta Höllinni í slíkt undraland,
að eftir á muni minningin rísa undir
nafni um að „þá var kátt í Höllinni".
Þar eiga góðan hlut að máli lista-
mennimir Guðmundur Armann og
Jóhann Ingimarsson.
Hátíðin er sett saman af hefð-
bundnum atriðum eins og veitingu
starfsaldursmerkja, ávörpum,
starfsmannaannái, kórsöng og út-
nefningu heiðursfélaga SVS, en þar
kemur líka til leiksins tískusýning-
arfólk, sem sýnir tískuna 1936 og
1986 og Raggi B. og Bessi með
velvalin staðbundin skemmtiatriði.
Nánast ekkert í þessu efni verður
matreitt eins og venjulega.
Hljómsveit Pálma Stefánssonar
mun halda uppi fjörinu langt inn í
nóttina.
Veislustjóri verður Jón Amþórs-
son.
Af þessu tilefni er nú verið að
skrá sögu SVS af Páli Helgasyni
og kemur hún út á árinu, en á
Keflavík:
Fundur um
fíkniefna-
vandamálið
Keflavfk.
LAUGARDAGINN 19. apríl verð-
ur haldinn almennur fundur um
fíkniefnavandamálið í Félagsbíói
í Keflavík og hefst hann klukkan
14.00. Fundurinn er opinn öllu
áhugafólki um vamir gegn fíkni-
efnum og er ungt fólk sérstak-
lega velkomið.
Fundurinn er haldinn að undir-
lagi Lionsklúbbs Keflavíkur, Lions-
klúbbsins Óðins, Lionessuklúbbs
Keflavíkur og með stuðningi ann-
arra Lionsklúbba á Suðurnesjum.
Nemendur Fjölbrautaskóla Suður-
nesja taka virkan þátt í fundinum
og em sem flestir nemar, bæði
þaðan og úr gmnnskólunum, hvatt-
ir til að mæta ásamt foreldrum og
öðm áhugafólki um þessi mál.
Á fundinum verður sýnd kvik-
mynd um afleiðingar fíkniefna-
neyslu. Birgir Þórarinsson og Garð-
ar Vilhjálmsson, nemar í FS, flytja
ávörp. Einnig talar Guðlaug Hjart-
ardóttir, nemi í 9. bekk Holtaskóla
í Keflavík, Amar Jensson, yfírmað-
ur fíkniefnalögreglunnar í Reykja-
vík, Óttar Guðmundsson, yfirlæknir
á Vogi, og Ómar Ægisson, fræðslu-
fulltrúi SAÁ í Reykjavík.
Keflvíkingar og Suðumesjamenn
em hvattir til að íjölmenna á fund-
inn.
— efi
hátíðinni verða fluttir stuttir þættir
úr sögunni.
Stjóm félagsins með formanninn
Bjama Jónsson í fararbroddi hefír
leitt allt þetta mikla starf.
Þegar litið er til baka verður ljóst
að mjór er mikils vísir og því þótti
við hæfí að skjóta hátíðina inn kl.
12 á miðnætti á föstudaginn kemur
að viðstöddum þeim sem þá verða
á vakt í verksmiðjunum. Verður
þetta í Þorsteinslundi á verksmiðju-
lóðinni, en þar er koparskjöldur,
sem settur var upp á 60 ára afmæli
verksmiðjanna með þessari áletmn:
„íslensk samvinnuhreyfíng þakkar
Þorsteini Davíðssyni og þúsundum
annarra starfsmanna Sambands-
verksmiðjanna fórnfús störf. Á sex
áratugum hafa þeir séð þennan
iðnað vaxa úr mjóum vísi í mikinn
meið.“
Á þessum tímamótum í sögu SVS
er vel við hæfí að minnast þessara
orða og starfs fmmherjanna, sam-
tímis því að horft er með bjartsýni
til framtíðarinnar."
Brugðið á leik í Andakílsskóla
Grund, Skorradal.
NEMENDUR Andakílsskóla héldu fyrir nokkru sína árlegu árs-
hátíð í Brún, Bæjarsveit, undir stjórn skólastjóra síns, Þórunnar
Magnúsdóttur. Fjölmenni var og skemmti fólk sér vel. Nemendur
sungu, dönsuðu, fóru með ýmsa leikþætti, m.a. úr Skugga-Sveini
og Bakkabræðrum, héldu spurningakeppni, þar sem lið frá
foreldrum og nemendum kepptu, og að siðustu fór fram
bögglauppboð. í lokin bauð Kvenfélagið 19. júní öllum hinar
ágætustu veitingar. — DP
Nýir ávextir
og grænmeti:
Úrvaliö er meiriháttar.
Vikulega koma ferskir ávextir og grænmeti
frá meginlandi Evrópu og Bandaríkjunum.
Ferskir, bragðmiklir og framandi.---------------------
Opið á morgun frá kl. 10—
16 í Mjóddinni en til kl. 14 í Austurstræti.
VIÐIR
STÓRMARKAÐUR í MJÓDDINNI
Kjötdeild:
Kunnátta og
fagmannleg ráðgjöf
Kjötdeildin okkar hefur á aö skipa kjötiðnaðar-
og matreiðslumönnum, sem reiðubúnir eru
að gefa þér góð ráð ef þú þarft á að halda.
Danskir og þýzkir kjötiðnaðarmenn hafa skipulagt
framleiðsluna á unnum kjötvörum hjá okkur
og lagt eina og eina uppskrift til
viðbótar þeim sem meistarar okkar leggja
til sjálfir.
Heitur matur
og salatbar:
vöru
Mikið úrval er daglega af heitum tilbúnum
mat til að taka með sér heim.
Með honum er að sjálfsögðu hægt að velja
úr frábærum salatbar, sem býður
uppá margar nýstárlegar uppskriftir.
kynningar:
VÍÐI er alltaf eitthvað að gerast.
Vörur eru kynntar
og boðnar á kynningarverði.
Opið til kl. 20 í Mjóddinni entnki.19
* ** A ncfiircfroi
Austurstræti.
VÍÐIR,