Morgunblaðið - 18.04.1986, Page 29
MQRGUNBlAÐtD, röSTUDAGUR 18, APR^L 1986
29
Samkór Selfoss við æfingar í Selfosskirkju.
Sameiginlegir tónleikar þriggja kóra
Selfossi:
Samkór Selfoss mun ásamt
tveimur kórum öðrum, Arnes-
ingakórnum og Arneskórnum,
halda tónleika á næstunni, á
Selfossi, í Arnesi og í Reykja-
vík.
Kórar þessir hafa unnið saman
í nokkur ár og haldið árlega tón-
leika saman. Fyrstu tónleikamir
verða haldnir í Safnaðarheimili
Selfosskirkju laugardaginn 19.
apríl kl. 15.30, sama dag í Ámesi
kl. 21.00 og loks í Reykjavík 26.
aprfl.
Kóramir munu syngja hver
fyrir sig og síðan sameiginlega.
Stjómandi Samkórs Selfoss er
Helgi E. Kristjánsson og undir-
leikari Vignir Þór Stefánsson,
Ameskómum stjómar Loftur S.
Loftsson og Ámesingakómum
Hlín Torfadóttir.
Á Selfossi er mikið tónlistarlíf
og nokkrir kórar starfandi og
segja má að það sé ákveðinn
vorboði þegar kóramir bjóða fólki
að njóta afraksturs æfinga vetrar-
ins.
—Sig. Jóns.
Vísitala byggingarkostnaðar:
V er ðbólguhraðinn
mælist 22,5% á ári
HAGSTOFAN hefur reiknað út
visitölu byggingarkostnaðar eft-
ir verðlagi i apríl 1986. Reyndist
hún vera 265,32 stig, eða 0,19%
hærri en í mars. Samsvarandi
Musica Nova:
Wim Hoogewerf
á tónleikum
HOLLENSKI gítarleikarinn Wim
Hoogewerf heldur tónleika á
vegum Musica Nova á Kjarvals-
stöðum Iaugardaginn 19. apríl
vísitala miðuð við eldri grunn er
3.932 stig, segir í frétt frá Hag-
stofu íslands.
Síðastliðna tólf mánuði hefur
vísitala byggingarkostnaðar hækk-
að um 32,4%. Hækkun vísistölunnar
um 0,19% á einum mánuði frá
mars 1986 til apríl 1986 svarar til
2,3% árshækkunar. Undanfama
þijá mánuði hefur vísitalan hækkað
um 5,2% og jafngildir sú hækkun
22,5% verðbólgu á heilu ári.
Allir launaliðir vísitölunnar héld-
ust óbreyttir og flestir efnisliðir
einnig. Örlítil hækkun varð þó á
raflagnaefni, málningarefni og
nokkrum öðmm efnisliðum.
Tekið skal fram að við uppgjör
verðbóta á fjárskuldbindingar sam-
kvæmt samningum þar sem kveðið
er á um, að þær skuli fylgja vísitölu
byggingarkostnaðar, gilda hinar
lögformlegu vísitölur, sem reiknað-
ar em fjórum sinnum á ári eftir
verðlagi í mars, júní, september og
desember og taka gildi fyrsta dag
næsta mánaðar. Vísitölur fyrir aðra
mánuði en hina lögboðnu útreikn-
ingsmánuði gilda hins vegar ekki
nema sérstaklega sé kveðið á um
það í samningum.
Tónlistarfélag Isafjarðar:
Guðný og Catherine
spila á Vestfjörðum
GUÐNÝ Guðmundsdóttir fiðluleikari og konsertmeistari
Sinfóníuhljómsveitar íslands og Catherine Williams píanó-
leikari munu halda hljómleika á Isafirði, Flateyri og í Bolung-
arvík nú um helgina á vegum Tónlistarfélags Isafjarðar.
A efnisskrá tónleikanna
verða verk eftir Árna Björns-
son, J.S. Bach, Ernest Bloch,
Tsjaíkovskí og Sarasate. Einn-
ig mun Guðný flytja einleiks-
verkið Vetrartré eftir Jónas
Tómasson.
Guðný hefur gegnt starfí
konsertmeistara Sinfóníu-
hljómsveitarinnar frá 1974 og
hefur komið fram sem einleik-
ari víða erlendis, auk umfangs-
mikils tónleikahalds hér heima.
Catherine Williams er frá
Englandi en býr nú í Reykjavík.
Hún starfar við Söngskólann í
Reykjavík og við íslensku óper-
una sem óperuþjálfari.
Tónleikarnir á ísafírði eru
þriðju áskriftartónleikar Tón-
listarfélags ísafjarðar á starfs-
árinu og vferða í Alþýðuhúsinu
á morgun, laugardaginn 19.
apríl, kl. 17. Áskriftarkort
gilda, en einnig verður forsala
aðgöngumiða í Bókaverslun
Jónasar Tómassonar og við
innganginn. Tónleikamir í Bol-
ungarvík verða í kvöld, föstu-
dagskvöld, en á Flateyri á
sunnudaginn kemur, 20. apríl.
(Fréttatilkynning.)
Kirkjurá
landsbyggðinni:
Ferming'ar
Fermingarböm í Hábæjar-
kirkju, Rangárvallasýslu,
sunnudaginn 20. aprfl kl. 14.
Prestur er séra Auður Eir
Vilhjálmsdóttir. Fermd verða:
Sigríður Harðardóttir,
Ónnuparti, Þykkvabæ.
Amdís Þorvaldsdóttir,
Melabraut 52, Seltj.
Heimir Þór ívarsson,
Háteigi, Þykkvabæ.
Magnús Már Ólafsson,
Háfi, Háfshverfi.
Ferming i Marteinstungu-
kirkju í Holtum sunnudaginn
20. apríl kl. 14. Prestur séra
Hannes Guðmundsson. Fermd
verða:
Fanney K. Hermannsdóttir,
Laugalandi.
Hjördís Einarsdóttir,
Götu.
Páll G. Viðarsson,
Saurbæ.
Afmælishátíð í
Breiðagerðisskóla
HALDIÐ verður upp á 200 ára
afmæli Reykjavíkurborgar og 30
ára afmæli Breiðagerðisskóla í
skólanum á morgun, laugardag.
Hátíðin hefst kl. 10.00 með víða-
vangshlaupi nemenda. Kl. 13.00
hefst sýning á vinnu nemenda er
tengist afmælunum. Auk þess verða
skemmtanir í sal kl. 13.00 og 17.00
þar sem nemendur fjalla um lífið í
Reykjavík. Milli kl. 15.00 og 17.00
keppa foreldrar og nemendur í
handbolta og fótbolta á útivelli skól-
ans og á sama tíma mun foreldrafé-
lag skólans selja pylsur og gos-
drykki.
klukkan 17.30.
Wim Hoogewerf stundaði nám í
gítarleik í Amsterdam, París og
Kaupmannahöfn og voru meðal
kennara hans þeir Dick Visser,
Oscar Cáceres, Per-Olof Johnson
og Betho Davezac. Hann hefur
einkum getið sér gott orð fyrir túlk-
un samtímatónlistar og komið fram
í IRCAM í París og víða annars
staðar í Evrópu. Að þessu sinni er
hann á leið til New York.
Á tónleikunum á Kjarvalsstöðum
leikur Wim Hoogewerf tónlist eftir
Ton de Leeuv, Francis Miroglio,
Joaquin Turinam, Michael Tippett,
Chiel Meijering og Tristan Murail.
Ekkert þeirra tónverka sem flutt
verða hefur áður heyrst hérlendis
áður og þau eru flest frá síðustu
árum.
(Fréttatilkynning.)
Wim Hoogewerf
Eigendur H-prents, Halldór Sveinbjörnsson og Sigurjón Sigurðs-
son ásamt Guðmundi MarzelIIussyni skipasmið, sem þeir í daglegu
tali kalla pabba vegna margvíslegrar hjálpar við stofnun og
starfsemi félagsins.
Halldór Sveinbjörnsson, Axel Jóhannsson, Siguijón Sigurðsson,
Haraldur Hansson og Hrafn Snorrason, starfsmenn H-prents.
H-prent færir út kvíarnar
ísafirði, 12. apríl.
PRENTSMIÐJAN og útgáfu-
fyrirtækið H-prent á ísafirði
boðaði fréttamenn á sinn fund
í dag, iaugardag, til að kynna
starfsemi sína. Það voru þeir
Sigurjón Sigurðsson, skrif-
stofumaður og útgefandi Bæj-
arins besta og Halldór Svein-
björnsson, prentari, sem stofn-
uðu til rekstursins fyrir tæpu
ári í gamalli teiknistofu á efri
hæð í skrifstofuhúsi Guðmund-
ar Marzellíussonar í Neðsta-
kaupstað.
Starfsemin hefur gengið vel og
nú eru þeir búnir að leigja af
Guðmundi 230 fermetra pláss sem
áður var gamla tréskipasmiðja
Marzellíusar Bemharðssonar og
eru að hefja þar störf.
10 manns starfa nú hjá fyrir-
tækinu í heilum- og hlutastörfum
og telja þeir sig geta aukið mjög
við starfsemi sína í stærra hús-
næði.
Þeir félagarnir sögðu að margir
hefðu efast um að þeir næðu fót-
festu í samkeppni við jafn gamalt
og gróið fyrirtæki og prentstofuna
ísrún, sem hefur þjónað vestfirð-
ingum vel um áratugaskeið. Það
hefði komið í ljós, að þótt sam-
keppnin setti svip sinn á starfsemi
beggja fyrirtækjanna hefði mikil
aukning á pappírsvinnu með nýj-
um viðskiptaháttum gert það að
verkum að það væri yfírdrifið nóg
að gera á báðum stöðunum.
í ræðu sem Halldór Svein-
bjömsson flutti kom fram að góð-
ur stuðningur Guðmundar Marz-
ellíussonar skipasmiðs og konu
hans, Elínar Benjamínsdóttur,
hefði komið þeim ungum og
óreyndum í atvinnurekstri að
ómetanlegum notum.
En samstarfíð með þessum
fullorðnu hjónum og ungu starfs-
liði H-prents hefur vakið athygli
og í ljós kom að flestir starfs-
mennimir kölluðu þau einfaldlega
pabba og mömmu. Bæjarins
besta, blaðið sem þeir gefa út og
kemur út vikulega, var í upphafi
sjónvarpsdagskrá með auglýsing-
um, en er nú með starfandi blaða-
mann og hefur sett svip sinn á
fjölmiðlalíf bæjarins.
Þeir sem sáu um breytingamar
á húsnæðinu 'ur skipasmiðju í
prentsmiðju vom Grétar Sigurðs-
son, trésmiður, Jósef Vemharðs-
son, rafvirki og starfsmenn Rör-
verks hf., sem sáu um pípulagnir.
— Úlfar