Morgunblaðið - 18.04.1986, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 18.04.1986, Qupperneq 43
ALLTAF Á LAUGARDÖGUM Gódan daginn! MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR18. AJPraL,1986 VELVAKANDI SVARAR f SÍMA 10100 KL. 14—15 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS 43 Vönduð og menningarleg helgarlesning TFCRíff I iinTrMi Úr ösku Ijóðs og hjarta Grein eftir Jóhann Hjálmarsson um Snorra Hjartar- son skáld í tilefni áttræðisafmælis hans. Af sama tilefni hefur Eiríkur Smith málað forsíðumynd af skáldinu. Hverjir voru Fjölnismenn? Sigrún Davíðsdóttir candjnag. raéðir nánar um þá fjóra, sem kenndirvoru við Fjölni og lýsirsérein- kennum þeirra. Uppruni borgarinnar Þórður Ben Sveinsson myndlistarm. í Þýzkalandi skrifar greinaflokk um upphaf og inntak borgarinnar og síöar hvernig fúnksjónalisminn hefurfarið með það inntak. Þúsundþjalasmiður í listum Um blökkumanninn Geoffrey Holder, sem er leik- stjóri, leikari, skemmtikrafturog listmálari. Að kafa í gegn- um reykjarkófið Ég vil þakka Hrund Guðjónsdóttur og Agnari Helgasyni fyrir góð orð í tíma töluð. Um leið og ég lýsi mig sammála þeim, langar mig að gera nokkrar athugasemdir við svar Einars Helgasonar hjá Flugleiðum og tala um aðeins um skemmtistaðamenningu höfuðborgarinnar út frá reykingum og hávaða. Ég flaug til ísafjarðar um páskana eins og fleiri og ætla ég ekki að orð- lengja andrúmsloftið í flughafnar- byggingunum á báðum stöðum, því hefur áður verið réttilega lýst hér á síðunum. Það sem ég hins vegar ætla að tala um núna, er það sem viðkemur svargreininni, þar sem segir: „Bannað er að reykja í biðsal vinstra megin við afgreiðsluborð, jafnframt er óheimilt að reykja við afgreiðsluborðin sjálf. Ekki er bannað að reykja á svæði kaffibarsins og í biðsal við útgöngu- dyr.“ Í fyrsta lagi er þetta illskiljanleg málsgrein. í annan stað man ég ekki eftir að hafa séð neinar merkingar á Reykjavíkurflugvelli varðandi reykingar, eða leiðbeiningar fyrir þá sem ekki reyktu, til að komast á reyklaust svaéði. Hafi þær merkingar verið til staðar hafa þær verið illa staðsettar og lítið farið fyrir þeim. Þess vegna hélt ég í einfeldni minni að bannað væri að reylqa í flughöfn- inni almennt eins og eðlilegast væri. Ég sat því í reykkófinu. Ekki varð égg heldur vör neinna merkinga í flug- höfninni á ísafírði og reyktu þar líka allir allstaðar. f þriðja lagi finnst mér þetta fyrirkomulag sem lýst er í fýrr- nefndri málsgrein fáránlegt. Hvort er eðlilegra að þeir sem ekki reykja kafi gegnum kófið til að sinna farmiðum og farangri og til að komast út í vél, eða að þeir sem reykja leggi það á sig að ganga í gegnum hreint loft á leið sinni? Væri ekki eðlilegra að hafa reykingafólkið afsíðis? Einkennilegast af öllu þykir mér þó, að leyfilegt skuli vera að reykja jrfir kubbaborðunum, þar sem eru böm að leik. Annað hvort er staðsetning kubbaborðanna vitlaus, eða staðsetn- ing reykingamanna. Eftir að hafa fengið þessar upplýs- ingar um hvemig Flugleiðir fullnægja ákvæðum 9. greinar laga um tób- aksvamir, leyfi ég mér að staðhæfa að viljinn til að framfylgja lögunum sé enginn en reynt sé að breiða snyrti- lega yfir það. Þá vík ég að skemmtistöðunum. Þeir eru opinberir staðir þar sem fjöldi fólks kemur saman og falla því undir lögin um bann við reykingum. Aldrei hefur einu sinni verið gerð tilraun til að banna reykingar þar og ekkert gert til að útbúa annað hvort reykinga- herbergi eða reyklaus herbergi þar sem saklausir þolendur gætu farið inn til að anda að sér hreinu lofti. For- svarsmenn skemmtistaðanna segja að ekki sé hægt að banna reykingar á þessum stöðum og eflaust er það rétt eins og ástandið er í dag, þar sem við líðum reykingamönnum að vaða uppi með frekju nánast hvar sem er. En hvar er réttur okkar hinna? Við meg- um ekki einu sinni að fara út eitt augnablik til þess að anda að okkur lofti og ef við emm svo aðframkomin að við verðum, þá megum við gjöra svo vel að borga okkur inn aftur. í fyrra stóð ég í röð fyrir utan Hollywood þar sem ég varð vitni að því að tvær súlkur báðu dyravörðinn að lofa sér að fara út að fá frískt loft. Hann leyfði það eftir mikið stapp. En meðan stöllurnar vom að anda, skipti um dyravörð í gættinni og þegar þær ætluðu inn aftur sagði vinurinn nei. Stúlkumar vom að vomm ekki hressar með að þurfa frá að hverfa án yfir- hafna sinna og vildu fá að borga sig in. „Allt í lagi,“ sagði dyravörðurinn „farið þá aftast í röðina." Heldur leyst þeim illa á að bíða í marga tíma án yflrhafna og þráuðust enn við. „Jæja þá,“ sagði dyravörðurinn „sýnið þá skilríki.“ Þó vissi hann gjörla að þau vom í vösum yfírhafnanna inni í fata- hengi. Málinu lyktaði þannig að dyra- vörðurinn lét sækja yfirhafnir stúlkn- anna og rétti þeim út, svo þær gætu skondrað heim til sín. Þetta er fram- koman sem þeir mæta sem ekki reykja og vilja hreint loft. Nú veit ég að það tíðkast erlendis að þegar fólk borgar sig inn á skemmtistað er stimplað með sér- stökum stimpli sem sést aðeins i ákveðnu Ijósi, nafn skemmtistaðar- ins og dagsetning á handarbak gestsins, sem síðan er ftjáls ferða sinna allt kvöldið, inn og út af skemmtistaðnum, eins og hugur hans stendur til. Hvers vegna er þetta ekki gert hér? Hvers vegna er ekki hægt að koma til móts við okkur sem ekki reykjum á þennan hátt? En það er fleira slæmt á skemmti- stöðunum er reykurinn. Hávaðinn sem er á öllum skemmtistöðum borgarinn- ar er, fyrir utan að vera langt yfír hávaðamörkum, algerlega óþolandi, því maður fer jú á skemmtistaði annað hvort með vinum sínum eða til að hita fólk og þá væntanlega til að tala við það. Þegar tónlistin er svo há, að maður getur ekki einu sinni yfírgnæft hana með því að öskra, þá er fótunum kippt undan tilganginum með ferðinni á skemmtistaðinn. Tilgangsleysið, þegar fleiri hundr- uð manneskjum vafrandi um í háv- aða og reykkófi, án þess einu sinni að eiga samskipti hver við aðra, er yf irþyrmandi. Hvers vegna er tónlist- in stillt svona hátt? Hvar eru þeir sem eiga að hafa eftirlit með hávaða á vinnustöðum? Með von um að þessi skrif mín hreyfí við einhveijum. Bergdís Linda Kjartansdóttir HEILRÆÐI Ert þú eldklár? Sjómenn! Skýrslur sýna að mikinn meirihluta eldsvoða má rekja til mannlegra mistaka, reykinga, trassaskapar og vanþekkingar. Eldvarnaæfingar skal halda reglulega um borð í skipum. Þær eiga að miða að því að skipveijar verði sem best hæfir til að fyrirbyggja og beijast gegn þessari vá. — Ertþú eldklár?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.