Morgunblaðið - 20.04.1986, Qupperneq 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ; SUNNUDAGUR20. APRÍL1986
Rithöfundahjón í íslandsferð
Annok Sarri og Olav Nordrá eru bæði
afkastamiklir rithöfundar í Noregi
Noregur hefur, á sama hátt og ísland, eignazt
marga sérstæða rithöfunda. En það eru ekki
margir þeirra sem einnig hafa sameinazt í
einkalífinu og sótt sameiginlegan efnivið sinn til nyrztu
sveita Skandinavíuskaga. Annok Sarri Nordrá og Olav
Nordrá hafa frá árinu 1960 verið þesskonar
vinnufélagar. Bæði eru þau mikilsvirtir rithöfundar í
heimalandi sínu, og bæði eru þau nú stödd á íslandi.
Annok Sarri fæddist í Nikalukta í Sænska Lapplandi,
dóttir þjóðsagnapersónunnar og samaleiðtogans Nikka
Sarri og konu hans Mariu, sem ekki var síður litrík
persóna. Annok var næstyngst fjórtán barna þeirra hjóna
og ólst upp í umhverf i þar sem allt byggðist á
hreindýrarækt.
spor etter sig“ birtir hún lifandi
frásögn úr daglegu lífi stórflöl-
skyldu þar sem þijár kynslóðir
búa saman í sátt og samlyndi.
Olav Nordrá fæddist 1911 og
á það sameiginlegt með maka sín-
um að hann er ættaður úr Norður-
héruðunum og sækir þangað efni-
við verka sinna. Hann hóf einnig
feril sinn sem blaðamaður, og
skrifaði til dæmis í mörg ár um
menningarmál í þekkta norska
blaðið „Morgenbladet".
Eins og Annok stefndi hann
að því frá unga aldri að verða
rithöfundur. Hann var þó kominn
á fullorðinsaldur (árið 1951),
Þótt Annok sé fædd í Svíþjóð
hefur hún fullan rétt á að telja
sig norska, því foreldrar hennar
voru bæði ættuð frá Noregi. Það
var aðeins lega landamæra þess-
ara norrænu landa sem gerði íj'öl-
skylduna sænska, fjölskyldu sem
eins og aðrar sama-íjölskyldur í
Norðurhéruðunum fylla þann hóp
sem við í raun eigum við með
hugtakinu Skandinavar.
Móðurmál Annoks er samíska.
Hún var hinsvegar ung að árum
þegar hún lærði hin skandinav-
ísku málin, norsku, sænsku og
fínnsku. Og seinna lærði hún
einnig ensku og þýzku.
Allt frá bemsku hreifst hún af
bókmenntastarfi. Eftir að hafa
stundað margskonar störf sneri
hún sér að blaðamennsku. Hún
lauk námi frá Blaðamannaskólan-
um í Stokkhólmi, og var að því
loknu fastráðinn blaðamaður við
„Norrlandsfolket" í Kiruna.
Seinna starfaði hún sjálfstætt
fyrir ýmis norsk og sænsk blöð
jafnhliða námi við Háskólann í
Osló.
Um tíma starfaði hún við Norsk
Folkemuseum í Osló þar sem hún
meðal annars vann við að þýða
og afrita hljóðupptökur af sam-
ískum mállýzkum. Hún hefur
einnig þýtt bókaflokkinn „natur-
, böker" úr norsku yfír á samísku.
Með fyrstu skáldsögu sinni
„Ravnas vinter" haslaði hún sér
strax völl sem norskur rithöfund-
Annok Sarri og Olav Nordrá
ur. Seinna komu svo tvær bækur
í framhaldi af þeirri fyrstu,
„Fjellvuggen" og „Avskjed með
Saivo". Bækumar vöktu mikla og
verðskuldaða athygli, bæði vegna
málfars og óumdeilanlegs bók-
menntagildis, en einnig vegna
þeirrar ályktunar sem höfundur
dró í mjög umdeildu vandamáli
þjóðemisminnihluta í Noregi:
„Eigi samamir að komast af sem
þjóðemisminnihluti eiga þeir ekki
um annan kost að velja en aðlaga
sig markvisst samfélaginu."
í spennandi bamabók sem hún
nefnir „Gutten som ville sette
þegar hann sendi frá sér fyrsta
skáldsögusafn sitt, „Veien til
Seida". Mesta athygli vakti hann
trúlega með skáldsögu sinni „Röd
höst“ (1970) um sama-uppþotin
1852. Af öðrum bókmenntaverk-
um hans má nefna „Herr Petters
trompet" (1961), sem að nokkm
byggir á eigin reynslu höfundar,
skáldsöguna „Jeg hilser jorden"
(1965) og sagnasöfnin „Guds
ulver" (1967) og „Simla" (1969).
Um Olav er sagt í ritverkinu
„Modeme norsk litteratur" að
hann búi yfír fijóu ímyndunarafli
og hafí sérstæðan ritstfl, tjáning-
arform hans sé frumlegt, og hann
beiti ýmist óþvingaðri norð-
norsku eða hugmyndaríkum og
skáldlegum texta þar sem gaman-
semi höfundar skíni alltaf í gegn.
Auðvelt væri að bæta hér við
fleiri lofsyrðum, en margir gagn-
rýnendur hafa réttilega bent á
skyldleika skrifa hans við verk
Nóbelsskáldsins Halldórs Lax-
ness.
Annok og Olav kynntust fyrst
árið 1956. Það var á fjölmennri
sama-ráðstefnu í Karasjok þar
sem hún var fyrir „Norrlands-
folket" og hann fyrir „Morgen-
bladet". Það varð ást við fyrstu
sýn. En þar sem þau vom bæði
fullorðin gáfu þau ástinni tæki-
færi til að þroskast. Og það var
ekki fyrr en fjórum ámm seinna,
árið 1960, að þau héldu brúðkaup
sitt í fæðingarbæ hennar, Nikalu-
okta. En athöfnin taldist til stór-
tíðinda hjá íjölmiðlum, þrátt fyrir
ausandi rigningu, með virðuleg
brúðhjón og íjólmarga ættingja
þeirra í aðalhlutverkum og hundr-
uð aðkominna ferðamanna í auka-
hlutverkum.
Það var talið heillamerki að
regnið helltist niður meðan á
athöfninni stóð. Það veit á gott
bæði fyrir ástina og ritstörfín,
sögðu þeir ættingjar Annoks, sem
lært höfðu að lesa í tákn sólar
og mána, skýjaþynnis og heið-
ríkju. Og árin sem liðin em sanna
að þeir vom sannspáir.
Undanfarin ár hafa hjónin
Sarri/Nordrá verið búsett í nýrri
og fallegri íbúð sinni í miðri Osló-
borg, þaðan sem víðsýnt er yfír
hafíð og höfuðborgina. Hér njóta
þau þess vinnufriðar sem bæði
þarfnast. Og bæði em þau enn
jafn afkastamikil og á yngri ámm
og setjast daglega við ritvélina.
En nú hafa þau þó tekið sér
rúmlega viku frí frá störfum til
að taka þátt í hópferð nörskra
rithöfunda til Islands, lands sem
þeim fínnst báðum þau hafa taug-
ar til.
Oddvar Hellerund
m
Itilbod
leðurskór
Verð kr.
499
st. 37-41.
Póstsendum
Vegna mikillar eftirspurnar
AUKAFERÐ
fyrir
ELDRI
BORGARA
Brottför 6. maí — 3 vikur. Verð frá kr. 29.600,-
Fararstjóri Rebekka Kristjánsdóttir.
Hjúkrunarfræðingur á staðnum. ____________
OTC<T<VTM<
FERÐASKRIFSTOFA, HALLVEIGARSTIG 1,
SÍMAR 28388 - 28580