Morgunblaðið - 20.04.1986, Blaðsíða 12
*
m m
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
LÚÐA
Lúðu eru gefin ýmis nöfn eftir stærð. Lok er minnsta
lúða kölluð, stærðin þar fyrir ofan lóa, þá smálúða,
stofnlúða, flakandi lúða, þá stórflyðra og stærst allra
alfiskisflyðra.
Það hefur aldrei verið heiglum hent að róa til fiskjar
við íslandsstrendur, oft var langt á miðin, straumar
stríðir og snögg veðrabrigði. En það koma dagar, þegar
haf og himinn renna saman í einn spegil. Það fyrnist
ekki úr minningunni að vera úti að Sviði og draga
hverja flakandi lúðuna á fætur annarri, þar til komin
er lognhleðsla í skipið og hætta verður drætti, þótt allt
sé vitlaust undir.
Jón Thorarensen skráir eina álíka sjóferð eftir Erlendi
Bjömssyni frá Breiðabólsstað á Álftanesi í bókinni Sjó-
sókn. Við skulum stikla á stóru um það sem Erlendur
segir: „Það var í september 1890, að ég fór á fætur kl.
4, og leit til veðurs. Alheiðskírt var og stafalogn. Við
vomm fjórir karlmennirnir, og vöktum við kvenfólkið
til þess að setja fram með okkur stórt sex manna far.“
Hann heldur áfram: „Varla varð lífs vart er við renndum
á gmnnmiðinu, svo að mér datt í hug af því að blíðviðr-
ið hélst að fara vestur á Svið. Við létum stjórann falla
þar sem Fálkaskarðið var á norðurmiðinu en Lyklafell
um Valhúsahæð á Seltjarnarnesi. Fiskur var þarna sjóð-
vitlaus, svo allt stóð á höndum meðan nokkur beita var
til á önglana. Þetta var þyrsklingur, tveggja til þriggja
stykkja, eins og stundum er sagt. Datt mér þá í hug,
að þar sem svona þrysklingur væri á hrauni, þar mundi
líklega fást lúða. Flatti ég nú þyrskling og beitti honum
og hafði slorið fremst og lifrina alveg á oddinum. Eftir
svo sem tíu mínútur beit hún á. Þessi lúða var flakandi,
sem kallað er, en þó lítil, eitthvað rúm hundrað pund.
Næsta lúða var rétt innan við tvö hundmð pund og
urðum við að halda henni með ífæm og öngli á borð-
stokknum, þar til við náðum að rota hana með einum
hlunninum.
Það er skemmst frá því að segja að í þessum róðri
dró ég 22 flakandi lúður og sú stærsta var 310 pund,
tíu vom yfir 200 pund, sjö 150 pund og fjórar þær
minnstu kringum 100 pund. Það verður mér alltaf
ógleymanleg sjón, þegar búið var að bera allar lúðurnar
upp á tún og leggja þær þar í röð, hveija við aðra og
sneri hvita hliðin upp á þeim öllum.“
Þessi róður út á Sviðið heyrir fortíðinni til og er
gott dæmi um það hvílík gullkista það var áður en
botnvörpurnar og lúðuskip frá Ameríku hófu rányrkju
sína í Faxaflóa um aldamótin.
Lúða með grænmeti
Handa fjórum
Hægt er að nota næstum hvaða
grænmeti sem er í þetta.
1 kg lúða (stór)
Safí úr 'h lítilli sítrónu
IV2 tsk. salt
'A tsk. pipar
2 msk. matarolí
1 græn paprika
1 stór gulrót
1 stór kartafla
1 sellerístöngull (má sleppa)
‘/zblaðlaukur
2 ferskir tómatar eða
'h hálfdós niðursoðnir.
1. Hreinsið fískinn, skafið roðið
en takið það ekki af, skerið
uggana af.
2. Kreistið safann úr sítrónunni,
hellið yfír fískinn, stráið á hann
salti og pipar, Látið bíða þann-
ig meðan þið sjóðið grænmetið.
3. Takið steinana úr paprikunni,
skerið í sneiðar, afhýðið gulrót-
ina eða skafíð og skerið í
þunnar sneiðar. Skerið sellerí-
stöngulinn þvert í litla bita,
afhýðið kartöfluna og skerið í
örþunnar sneiðar, þvoið blað-
laukinn og skerið í þunnar
sneiðar.
4. Hitið matarolíu á pönnu, setjið
allt grænmetið út í, sjóðið í
10—15 mínútur í olíunni, hafíð
vægan hita.
5. Skerið tómatana smátt og
setjið saman við grænmetið.
6. Leggið fískinn ofan á græn-
metið. Það gæti þurft að skera
stykkið í tvennt til þess að það
komist á pönnuna. Setjið lok á
pönnuna og sjóðið þetta við
vægan hita í u.þ.b. 15 mínútur.
Lúða með tómatmauki
og dilli
Handa Qórum
1 kg lúða (stór)
Safí úr '/2 sítrónu
1V2 tsk. salt
'A tsk. pipar
1 msk. matarolía
*/2 lítil dós tómatmauk (puré)
2 msk. gott borðedik
'Adl vatn
Ferskt, þurrkað eða frosið dill
10 ólífur
1. Hreinsið fískinn, skafið roðið,
en takið það ekki af, skerið
uggana af. Skerið fískinn í
tvennt ef hann rúmast ekki á
pönnunni.
2. Kreistið safann úr sítrónunni,
hellið yfir fískinn, stráið yfír
hann salti og pipar og látið bíða
í 10 mínútur.
3. Setjið olíuna á pönnu. Setjið
fískinn á pönnuna, snúið hon-
um við eftir 4 mínútur. Minnk-
ið hitann.
4. Hrærið tómatmaukið út með
ediki og vatni, setjið dillið
saman við. Hellið þessu yfír
fískinn. Setjið lok á pönnuna
ogsjóðið þetta í 10 mínútur.
5. Skerið ólífurnar í sneiðar og
stráið yfír fískinn og látið sjóða
áfram í 5 mínútur.
Meðlæti: Soðnar kartöflur.
Lúðusúpa
1 kg lúða (stór)
1 peli mysa
3 pelar vatn
5 piparkom
l'/z tsk. salt
1 lárviðarlauf
1 tsk. korianderkom (má sleppa)
'A tsk. fenugreek (má sleppa)
‘/2 blaðlaukur
1 stór gulrót
1 meðalstór rófa
Smábiti sellerírót (má sleppa)
Smábiti hvítkál
2 msk. ijómaostur án bragðefna
2 eggjarauður + 1 msk. vatn
1. Hreinsið fiskinn, skafíð roðið
og skerið ugga af. Skerið fisk-
inn síðan í tvennt.
2. Hitið mysu ogvatn.
3. Bindið grisju utan um kryddið
og setjið út í soðið.
4. Þvoið blaðlaukinn, skerið í litl-
ar sneiðar, afhýðið gulrótina,
rófuna og sellerírótina, skerið
í litla bita og setjið út í soðið.
Skerið hvítkálið í sneiðar og
setjið einnig út í. Látið sjóða
við vægan hita í 10 mínútur.
5. Leggið fískinn í soðið og látið
sjóða við vægan hita í 10 mín-
útur.
6. Takið fískinn upp úr soðinu
og leggið í skál. Takið grisju-
pokann upp úr soðinu.
7. Hrærið rjómaost út í súpuna.
8. Sláið eggjarauðurnar út með
vatninu, takið pottinn af hell-
unni og látið suðuna fara alveg
úr. Hrærið þá eggjarauðumar
út í súpuna. Bregðið pottinum
aftur á helluna og hitið að
suðumarki, en þetta má alls
ekki sjóða, þá skilja eggin sig.
Hrærið stöðugt í.
9. Takið fískinn örlítið í sundur,
fjarlægið roð og bein, hellið
súpunni yfír og berið á borð.
Lúða með sítrónu
og- kavíar
Handa Qómm
1 kg lúða (stór)
IV2 tsk. salt
'h tsk. svartur pipar
V2 msk. smjör + 1 msk. matarolía
1 meðalstór laukur
Rifínn börkur af V* sítrónu
Safí úr 1 sítrónu
1 bikar sýrður ijómi
2 msk. svartur kavíar
1. Þvoið heilagfískið, skafíð roðið
og skerið af ugga.
2. Kreistið safann úr sítrónunni,
hellið helmingi sítrónusafans
yfír fískinn ásamt salti. Látið
standa í 10 mínútur.
3. Hitið smjör og olíu. Afhýðið
og saxið laukinn. Sjóðið í feit-
inni í 7 mínútur.
4. Setjið fískinn á smurt eldfast
fat, malið pipar yfír fiskinn,
setjið síðan laukinn yfír hann.
5. Hitið bakaraofn í 200°C, setjið
fískinn í ofninn og bakið í 10
mínútur.
6. Rífið sítrónubörkinn, setjið
hann ásamt seinni helmingi
sítrónusafans út í sýrða ijóm-
ann. Smyijið yfír fískinn. Setj-
ið aftur í ofninn og bakið í 5
mínútur.
7. Takið fískinn úr ofninum, setj-
ið kavíarinn fallega ofan á
fískinn ásamt sítrónusneiðun-
um og berið fram.
Meðlæti: Soðnar kartöflur og
hrásalat.
í síðasta blaði, 18. apríl sl.,
komu tvær villur. Sú fyrri var í
fyrirsögn á fyrstu uppskriftinni,
en það var Irsk kartöflusúpa,
sem var nefnd írsk kartöflumús.
I sömu uppskrift í 3. lið stóð
„hafíð nægan hita“, en á að vera
hafið vægan bita.
Leigubílastöð vænt-
anleg í Hveragerði
Hveragerði 17. apríl.
Hér í Hveragerði eru nú starf-
andi þrír leigubílstjórar. Þeir
félagar hafa í hyggju að koma á
fót leigubílastöð og eru að leita
eftir hentugu húsnæði fyrir
hana, helst miðsvæðis í þorpinu.
Fyrir skömmu fékk ég tækifæri
til að taka mynd af þeim félögunum
þar sem þeir voru staddir fyrir
framan Hótel Ljósbrá og spurði þá
hvað væri að frétta af þeirra at-
vinnumálum, varð Bragi Guð-
mundsson fyrir svörum og sagði:
„Við lítum björtum augum á fram-
tíðina, sem mun færa okkur Hver-
gerðingum aukinn ferðamanna-
straum með tilkomu nýs hótels, sem
nú er í byggingu og taka mun til
starfa nú í vor.
Við félagarnir erum að horfa eftir
heppilegu húsnæði undir leigubíla-
stöð, en eins og er erum við allir
með afgreiðslu á heimilum okkar.
Með tilkomu stöðvar yrði þjónustan
mun betri. Þá vil ég geta þess að
Þorsteinn Gunnarsson á Kotströnd
í Olfusi hefur verið með leigubíl í
samvinnu við okkur undanfarin ár.“
Hér í Hveragerði eru tvö hæli,
Dvalarheimilið Ás—Ásbyrgi og
Heilsuhæli NLFÍ og þar dvelja
margir sem gjarnan eru slæmir til
gangs, er þvi oft þörf fyrir skjóta
og góða þjónustu og eru þeir félagar
rómaðir fyrir þægilega framkomu
og liðlegheit.
Leigubílstjórar í Hveragerði, frá vinstri Bragi Guðmundsson, Bergur Sigrun.
Sverrisson og Svavar Ólafsson.