Morgunblaðið - 20.04.1986, Blaðsíða 22
22 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. APRÍL1986
fólk í
fréttum
STÚLKA FORMAÐUR
SKÓLAFÉLAGS MA
ÍANNAÐ SINN
Ákveðið þegar ég var
8 ára að ég færi í MA
- segir Þóra Björg Magnúsdóttir úr Garðinum sem tók við for-
mennskunni í vikunni
Akureyri.
mt óra björg Magnúsdóttir var í
síðustu viku kosin formaður Hug-
ins, skólafélags Menntaskólans á
Akureyri, og er það í annað sinn í
rúmlega 100 ára sögu skólans að
stúlka gegnir því embætti - inspec-
tor scholae. Stjórnarskipti urðu í
Hugin í gær og tók Þóra Björg þá
við formennsku af Eggerti
Tryggvasyni. í fímm manna stjón
félagsins eru nú tvær stúlkur, auk
Þóru er Sigrún Birna Sigtryggs-
dóttir í stjóminni — er forseti
Hagsmunaráðs.
„Nei, þetta var alls ekki kvenna-
framboð. Ég hafði löngun til að
taka við þessu starfi og hvatning
félaga minna varð endanlega til
þess að ég ákvað að bjóða mig
fram,“ sagði Þóra Björg í samtali
við blaðamann Morgunblaðsins eftir
stjómarskiptin í gærmorgun.
Kosningar til stjómar skólafé-
lagsins fóm fram skömmu fyrir
páska. Tveir frambjóðendur vom í
kjöri - drengur auk þóm. Þóra fékk
270 atkvæði en mótframbjóðandi
hennar 189. „Þetta var meiri munur
en ég bjóst við. Fólk bjóst við jafnri
kosningu en ég tel þetta góðan
sigur," sagði hún.
Þóra Björg sagðist hafa farið út
í kosningarnar sem „óháður ein-
staklingur,“ en kosningamar fóm
dálítið út í pólitík þvert
á minn vilja. Ég var
á vinstri vængnum en þó held
ég að ég hafí átt fylgendur í
öllum flokkum." Þóra Björg
er úr Garðinum og er í 3. bekk
náttúmfræðideildar. En hvers
vegna í MA sunnan af landi?
Systir mín, Jóhanna, var héma
í skóla fyrir nokkmm ámm og bar
honum ekki illa söguna! Annars
má eiginlega segja að það hafi verið
ákveðið þegar ég var 8 ára að ég
færi í Menntaskólann á Akureyri -
ég var á Sauðárkróki á sumrin og
yar innrætt í þessu sambandi. Það
kom ekki annað til greina en ég
færi í MA.
Þóra Björg hóf nám í MA haustið
1983 og segist, hvað félagsmálin
varðar, aðallega hafa starfað í ÍMA,
Iþróttafélagi Menntaskólans á
AkureyrL „En ég hef fylgst mjög
vel með í félagsmálum."
Hin nýja stjórn Hugins, skólafé-
lags MA. Strákarnir eru frá
vinstri: Ármann Kr. Ólafsson
ritstjóri Munins (blaðs skólafé-
lagsins), Sigþór Einarsson ritari
og Björn Pétursson gjaldkeri.
Fyrir framan þá sitja Sigrún
Birna Sigtryggsdóttir, forseti
hagsmunaráðs (til vinstri), og
formaður Hugins, Þóra Björg
Magnúsdóttir.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Þóra Björg Magnúsdóttir, formaður Skólafé-
lagsins hugins í MA, var „tekin upp“ í náttúru-
fræðitíma er blaðamann bar að garði. Hér glím-
ir hún við óskiljanlegt verkefni.
Eru einhveijar sérstakar
breytingar sem þú munt beita
þér fyrir?
„Félagslífíð hefur aldrei verið
nógu gott. Það hefur legið svolítið
niðri. Eggert (fráformaður) hefur
reynt að rífa það upp og ég mun'
halda því starfi áfram. Sérstaklega
langar mig til að rífa upp málfunda-
félagið - og einnig að bæta aðstöð-
una fyrir félagsstarfíð. Það er orðið
mjög þröngt um félögin og sumt
af félagsstarfinu er farið að færast
út fyrir skólann, t.d. hluti blaðaút-
gáfunnar."
Nýlega var stúlka kjörin „inspec-
tor scholae“ í Menntaskólanum í
Reykjavík - og nú í MA, en karl-
menn hafa í gegn um árin einokað
embættið. Þóra sagðist telja hugs-
unarhátt fólks vera að breytast
hvað þetta varðar. „I kosningunum
hugsaði fólk ekki um það hvort ég
væri karl eða kona. Ég held að
þetta hljóti að fara eftir hæfíleik-
um.“
Þóra sagði formennskuna leggj-
ast afar vel í sig. „Með mér í stjóm
er sérstaklega gott fólk - ég er
mjög ánægð með hvemig í hana
Og að lokum: „Ég vil skila kveðju
til formannsins í MR. Við
gætum kannski haft eitthvert
samstarf í framtíðinni — við
eigum að minnsta
kosti eitt sameiginlegt!"
Ríkisarfinn, Elísabet ásamt föður sínum, nýkrýndum, móður, ömmu
ogsysturárið 1937.
Elísabet
Englandsdrottning
60ára
E lísabet II, Bretadrottning
verður 60 ára á morgun mánudag-
inn 21. apríl og verður haldið upp
á afmælið með glæsibrag. Faðir
hennar var yngri sonur Georgs V,
Bretakonungs, þannig að ekki lá
Ijóst fyrir frá upphafi að hún yrði
drottning. Er foðurbróðir hennar
sagði af sér konungdómi og faðir
hennar, Georg VI, tók við, breyttist
líf hennar töluvert markviss þjálfun
ríkisarfa tók við. 20. nóvember
1947 giftist hún Philip Mountbatten
og 2. júní 1953 var hún ktýnd
drottning. Elísabet þótti alvörugefið
bam og hefur í gegn um tíðina tekið
hlutverk sitt sem æðsti yfirmaður
breska samveldisins mjög hátíðlega.
Flestir munu sammála um það að
hún hafí reynst farsæll þjóðhöfð-
ingi, sem hafí með störfum sínum
treyst konungdæmið I sessi. Við
birtum nokkrar svipmyndir úr lífi
Elísabetar í tilefhi dagsins.
Koss á nefið
Hundurinn og rádýrið eru góðir vinir eins og sjá má. Þau eru bæði
heimilisdýr hjá enskri fjölskyldu sem tók hið foreldralausa litla rá-
dýr að sér fyrir skömmu. Litli unginn er sagður mjög blíðlyndur
og örlátur á kossa við allt heimilisfólk.