Morgunblaðið - 20.04.1986, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 20.04.1986, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. APRÍL1986 B 11 Á tónleikum í sjónvarpssal. innar. Ef fólk veit hvað það vill þá I á það ekkert að villast af þeirri braut, það á ekki að dreifa kröftun- um heldur gefa sig allt í eitt og láta annað bíða á meðan." — Ertu alinn upp við tónlist? „Það var nú alltaf mikið sungið heima og undantekningarlaust plöt- ur í gangi. Bítlamir em fyrsta tón- listin sem ég man eftir, því systur mínar hlustuðu mikið á þá,“ svarar hann og bætir við, „nú, svo þegar ég eignaðist fyrsta útvarpið mitt, þá setti ég það undir koddann og sofnaði út frá „kananum" á kvöld- in.“ — Núna er tímabil tónlistarinnar hjá þér, á það við um aðra hljóm- ; sveitarmeðlimi? „Já, og mjög margt af því sem ég segi um sjálfan mig á við um okkur félagana alla. Áður en Riks- haw varð til vomm við nokkrir í annarri hljómsveit, æfðum stíft, spiluðum tvisvar og búið. En þegar Rikshaw kom til sögunnar vomm við strax ákveðnir í að fara út í þetta af fullri alvöru. Fyrst unnum við allir annars staðar með, Sigurð- j ur var í bankanum, Dagur í Flens- | borg og við Ingólfur í háskólanum, en svo þegar okkur var ljóst að við vildum halda hópinn varð annað að víkja.“ — Gengur dæmið upp fjárhags- lega? „Núna þurfum við ekki að vinna annars staðar til að halda hljóm- sveitinni gangandi. En allir pening- ar sem hljómsveitin vinnur fyrir fara beint aftur inn í fyrirtækið." Rickshaw á að baki eina hljóm- plötu sem kom út á afmælisdegi viðmælandans, 15. nóvember 1985 — og fylgja engar upplýsingar um hvaða aldri var þá náð. Richard neitar því að önnur sé á leiðinni þrátt fyrir að blaðamaður hafi stað- ið hann að verki í hljóðveri ekki alls fyrir löngu. „Við emm þessa dagana að vinna efni fyrir okkur sjálfa, — önnur plata, það verður bara að koma í ljós með tímanum," segir hann og við víkjum aftur að þeirri fyrstu. „Við ætluðum ekki að gefa út plötu, einfaldiega af því að okkur fannst vanta upptöku- tækni sem passaði fyrir tónlistina og réttan framleiðanda. Það er ekkert sniðugt að gera hluti ef ekki er hægt að gera þá eins vel og maður vill. En það var kominn viss pressa á plötuútgáfu og við áttum eldra efni og höfðum áhuga á að koma því frá okkur. Ákváðum að framleiða plötuna sjálfir og fómm svo til London til að fínpússa upp- tökumar, syngja inn á, bæta við hljóðfæmm og bakröddum." — Þessi fjögurra laga plata vann sér það til frægðar að öll lögin fóm inn á lista tíu vinsælustu laga á rás tvö, ekki rétt? „Jú, og það var alveg ótrúlegt. Annars fylgist ég ekki svo mikið með vinsældalistunum, þeir em þannig byggðir upp. Plötusala skiptir engu máli og hver sem er getur hringt inn, þannig að ýmislegt annað getur ráðið til um vinsældir laga. En auðvitað var þetta mjög gaman, kannski sérstaklega af því að við bjuggumst ekki við svona góðum viðtökum." Ekki „heimsfrægir um allt ísland"! — Endurspeglaði þetta viðtökur almennt við ykkar tónlist? „Fólk sem heyrði í okkur lét okkur oft vita að það væri hrifið af tónlistinni og gerir enn — blöðin vom hins vegar ekki of hrifin í byijun og líktu okkur oft við erlend- ar hljómsveitir með undarlegum vinnubrögðum. Til dæmis líkti einn blaðamaður okkur við hljómsveitina Japan. Seinna hitti ég þennan strák og spurði hann hvað það hefði eiginlega verið sem honum fannst hljómsveitirnar eiga sameiginlegt. Hann var nú ósköp hreinskilinn og sagði: Tja, ég hef nú aldrei hlustað á Japan, en ég heyrði stelpu sem stóð við hliðina á mér á tónleikunum tala um hvað sér fyndist þetta líkt Japan! Svona finnst mér ekki hægt,“ segir Richard og í framhaldi af því beinist talið að Qölmiðlum. „Við fömm mjög sjaldan í viðtöl núorðið. Gerðum það svolítið í upphafi og brenndum okkur á því. Markmið Rikshaw er heldur ekki að verða „heimsfrægir um allt ís- land“ og alls ekki á prenti. Það sama gildir um fjölmiðla og tón- leika. Ef menn em of mikið á ferð- inni þá verður fólk bara þreytt á þeim. Hlustendahópurinn og les- endahópurinn em ekki það stórir." — En þið félagarnir í Rikshaw, er enginn hætta á að þið fáið leið hver á öðmm. Eða hafíð þið ein- hvern tíma til að leggja rækt við vini utan hljómsveitarinnar? „Ég held að það sé engin hætta á að við fáum leið á hópnum, maður fær ekki leið á sínum bestu vinum. En það fer mikill tími í tónlistina og við emm eiginlega búnir að úti- loka aðra vini. Svo er Rikshaw orðinn einskonar partur af fjöl- skyldunni. Þessir drengir em fyrir A Hljómsveitin Rikshaw eins og hún leit út í upphafi, „þegar við vorum ósköp snyrtilegir og uppá- klæddir ungir menn.“ F.v. Sig- urður Hannesson, Ingólfur Guð- jónsson, Richard Scóbie, Dagur Hilmarsson og Sigurður Gröndal. mér eins og bræður mínir. Samt emm við talsvert ólíkir og allir mjög — hvað á ég að kalla það — „individual characters“,“ segir hann og biður blaðamann um að snara þessum orðum á íslensku fyrir sig. Við verðum sammála um að „sjálf- stæðir persónuleikar" dugi og Ric- hard heldur áfram: „Hver og einn hefur sína skoðun á málunum og við höfum allir frekar ólíkan tónlist- arsmekk, fyrir utan þennan sameig- inlega, sem er tónlist Rikshaw. Þar fyrir utan eigum við margt annað sameiginlegt og innan þessa hóps er vinátta sem ég vil leggja rækt við. Falleg orð,“ segir Richard og bætir við að þessi orð ætli hann að leggja á minnið. „Ég er að reyna að tala fallega íslensku," útskýrir hann. „Mig vantar mikið upp á og fínnst oft erfítt að tjá mig. Beyging- amar vefjast fyrir mér og það hlýt- ur að hljóma undarlega stundum þegar ég er að hugsa á ensku og tala á íslensku. Svo finnst mér stundum að orðaforðinn hafi ekkert þróast síðan ég var 13 ára. En ég er að reyna að bæta úr því.“ Er frekar bandarískur er íslenskur — Ástæðan fyrir því að Richard nefnir þennan aldur og gerir þessar athugasemdir við eigið málfar eru þær að þrettán ára gamall fluttist hann með fjölskyldunni til Banda- ríkjanna og bjó þar í áratug, líkaði vel og lítur frekar á sig sem banda- rískan en íslenskan, „enda er ég bandarískur í aðra ættina". Langar hann kannski að flytjast þangað á nýjan leik? „Til Bandaríkjanna? Nei, ég er búinn að búa þar og það var fínt, en núna vil ég vera hér í Evrópu. London er til dæmis borg sem mér líður vel í, ekki of stór og ekki of lítil. En svona hlutir verða bara að koma í ljós með tímanum," segir hann og brosir við spumingunni um hvort Rikshaw langi að reyna fyrir sér á fleiri vígstöðvum. „Ertu að spyija hvort við ætlum til útlanda að sigra heiminn, eins og sumir íslendingar? Nei, það er ekki á stefnuskránni. Hins vegar hefðum við gott af að spila fyrir nýja áheyr- endur og auðvitað horfum við stundum út fyrir landsteinana. Hérna vantar líka svolitla sam- keppni til að ýta við fólki og gera því ljóst hvar það stendur." — Ertu metnaðargjarn? „Ég vil gera betur og efast í rauninni ekkert um að ég get gert betur en ég hef gert til þessa. Vonandi verða þeir hlutir gerðir með Rikshaw," segir Richard og bætir við að tíminn með hljómsveit- inni hafi breytt sér og sínum hugs- unarhætti mikið. „Maður er alltaf að breytast, alltaf að fara í gegnum ný og ný stig í lífinu, sem vonandi bæta mann hvert á sinn hátt. Samt reyni ég að vera raunsær og halda mér niðri á jörðinni. En auðvitað á ég mína drauma." — Em það stórir draumar? Richard horfir fram fyrir sig nokkra stund og svarar svo spum- ingu með annarri spumingu: „Eiga ekki allir stóra drauma? Ég held að draumar séu nauðsynlegir, sér- staklega ef þeir ýta á fólk að gera góða hluti. Draumlaust líf hlýtur að vera nokkuð vonlaust líf. Fólk verður að hafa eitthvað til að trúa á.“ Kaþólskur en kemst of sjaldan í kirkju — í framhaldi af þessu berst talið að Guðstrúnni, sem Richard segir sér nauðsynlega — með þeim formerlqum að hann hljómi ekki í viðtalinu eins og „Donny Osmond íslands". „Já, ég er kaþólskur og trúin skiptir mig miklu, þó að ég komist ekki eins oft í kirkju og ég vildi. En á hvers valdi er það svosem að segja hver er trúaður og hver ekki? Það er hægt að fara í kirkju á hveijum degi og nýta tímann í hugsanir um allt annað en Guð og það er líka hægt að vera með hugann hjá honum á hveijum degi án þess að fara nokkru sinni í kirkju. Trúin er eitthvað sem er inni í manni og annað hvort finnur fólk hana eða ekki, það getur eng- inn búið hana til fyrir aðra.“ — Stóru draumamir voru til umræðu hér fyrr. Segðu mér, ertu farinn að sjá fyrir endann á þeim? „Nei, ekki endann, en byijunina kannski. Mér fínnst ég bara vera svo lánsamur. Ég á frábæra for- eldra, systkini og vini, hef heilsuna í lagi og fæ að gera nákvæmlega það sem mig langar mest af öllu til. Ef hamingjan finnst ekki í þessu þá veit ég ekki hvar hún er eða í hveiju hún verður mæld. Ekki í peningum. Fólk þarf að taka hvem dag fyrir sig og fínna hamingjuna, peningamir kaupa bara þetta auka- lega. Það er innri friðurinn og innri hamingjan sem skiptir máli.“ — Hvað um ástina? „í dag finnst mér stundum að ástin vilji gleymast hjá fólki, kannski af því að virðingin fyrir henni er ekki næg. Við lifum í þjóð- félagi þar sem öllu má fleygja og allt er hægt að fá einnota. Hættan er sú að fólk fari að hugsa svona um mannleg samskipti, tilfinningar og ástina,“ svarar Richard. Hann hallar sér aftur í stólnum og segir, að hér ætli hann að setja punktinn yfir i-ið um þessi mál, „maður fer að verða væminn með þessu áfram- haldi!" — Skiptir almenningsálitið þig máli? „Ég veit ekki hvað skal segja. Auðvitað er mér ekki sama um hvemig ég kem fyrir, ég held að það sé eng^um sama um slíkt. En það er ekki eitthvað sem ég lifi samkvæmt og ef þú ert að tala um Rikshaw þá finn ég að ég er svona meira undir smásjá hjá fólki og er alltaf að heyra einhveijar sögur um mig sem ég kannast kannski ekkert við. Auðvitað verður maður meðvit- aðri um umhverfíð.“ — Hvemig tilfínning er það að fólk þekki þig fyrir þína tónlist? „Hún er svolítið skrýtin. En það er mjög yndisleg tilfinning að hafa átt þátt í að skapa eitthvað og fínna að einhveiju fólki sem maður kannski þekkir ekki fínnst það gott. Það hefur sína kosti og galla.“ — Hvernig galla? „Svona sögur eins og ég minnti á áðan og svo hef ég stundum samviskubit af því að ég bý heima hjá foreldrum mínum, að þau em oft eins og símsvarar. Mér dettur ekki í hug að neita því að það er mjög gott ef einhver er ánægður með það sem Rikshaw er að gera og slær á þráðinn til að segja það, en það verður mjög þreytandi fyrir foreldrana. Þetta hljómar kannski eins og mont, en ég meina það ekki þannig og ég lít ekki á okkur sem „þekkta". En eftir þessa smá- athygli sem við höfum fengið í þessu litla landi ... — aumingja fólkið sem er frægt í alvörunni. En það býr nú líklegast ekki heima hjá foreldrum sínurn!" Og þar með er viðtalinu lokið. Viðtal/Vilborg Einarsdóttir pjðNuSTA BEVN FÁLKINN SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 84670 I I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.