Morgunblaðið - 20.04.1986, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 20.04.1986, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. APRIL1986 Norð-austurhlið Arkarinnar: Til hægri er gistiherbergjaálm- an. Því næst er á jarðhæð ýmis- leg þjónustuaðstaða fyrir hótel- gesti. Á 1. hæð er eldhús o.fl. Þessir gáfu sér rétt aðeins tíma til að stilla sér upp á þriðju hæð þar sem þeir voru að steypa siðustu þakplötuna. Mornunblaðið/Ámijohnscn Hluti af starfsiiðinu sem byggir Hótel Örk. Helgi Þór Jónsson er aftast fyrir miðju og sá með hjálminn hægra megin við hann er Fritz Berndsen verksljóri hjá Mótás sem byggir Hótel Örk fyrir Helga. Suð-austurhlið Arkarinnar: Fremst til vinstri sést í skyndi- bitastaðinn og matsalinn upp af honum. Þar framundan er úti- sundlaugin: í bakgrunni er gisti- herbergjaálman. Húsgögn og allt slíkt er frá Vest- ur-Þýzkalandi, allt á gólfin frá Hollandi, gluggatjöld og dúkar frá Belgíu, en við höfum lagt kapp á að hafa alian búnað af vönduð- ustu gerð. Sími, kæliskápur, út- varp og sjónvarp verða á hverju herbergi og svo er bara að vona að dæmið gangi upp, því það er mikið í lagt og má ekkert bregð- ast.“ Séð yfir hluta af sundlaugunum ofan af þaki hótelsins. Nær er stærri laugin sem er 18 metra löng, en fjær er barnalaugin sem er 12 metra löng. sundlaug og 12 metra löng bama- laug, auk tveggja heitra potta. Sjálfstæð tveggja manna gisti- herbergi verða 59 talsins, góð setustofa verður í hótelinu og uppi á þakinu verða tveir skálar að mestu úr gleri yfir veitingaálm- unni. Annar skálinn verður eins konar aldingarður og einnig þar veður hægt að fá kaffi og mat fram borinn. Aldingarðurinn bætt- ist síðast við á teikningunni." Byrjað var að byggja í lok nóv- ember sl. frá grunni og byggingin á að vera fullbúin í maílok, eða á 6 mánuðum. Verkið hefur gengið mjög vel, en það er fyrirtækið Mótás hf. sem byggir fyrir Helga, en að staðaldri hafa 20—30 menn unnið við framkvæmdir. Fritz Bemdsen hefur verkstýrt bygg- ing^rframkvæmdum, en Þráinn •Karlsson verkfræðingur teiknaði verkfræðiteikingar. Kjartan Sveinsson arkitekt teiknaði húsið eins og fyrr er getið. Nafnið á hótelið, Hótel Örk, kom til vegna þess að annar skálinn uppi á þakinu minnti á hugmyndir um Órkina hans Nóa. „Það hefur gengið frábærlega vel að byggja,“ sagði Helgi, „og við höfum allsstaðar mætt miklum skilningi, allir hafa verið reiðubún- ir að liðka til svo að framkvæmdin gætið gengið hratt og vel fyrir sig. Það hefur til dæmis verið sér- stætt vinnulag við steypuna, því við höfum getað steypt í allt að 15 stiga frosti. Ástæðan er sú að við höfum hér 150 stiga heita gufu sem við notum til þess að hita upp þar sem við erum að steypa í hvert sinn. Gufuaðferðin hefur þýtt það að frá veggjum sem við höfum steypt að kvöldi hefur verið hægt að slá frá að morgni og við höfum getað slegið undan loftum eftir þijá daga í stað þess að láta bíða undir loftunum í eina til tvær vikur eins og tíðkast víð- ast. AUs er búið að flytja um 5000 rúmmetra af steypu til Hveragerð- is frá BM Vallá í Reykjvík í 1000 bílferðum. Eins og fyrr er sagt er áætlað að 35—40 manns sinni þjónustu í Hótel Örk á vöktum og um þessar mundir er verið að fara yfir um- sóknir, en það er mjög mikið af hæfu og góðu fólki sem sækir um og því hinn mesti vandi að velja úr. Hótelstjóri verðu ráðinn alveg á næstunni, en reiknað er með að allt starfsfólkið hefji störf í vor. Lóðin í kring um Örkina verður fullgerð á miðju sumri, en reyndar eigum við von á glaðningi strax í vor því við höfum sett niður tals- vert af trjám og 5000 túlípana settum við niður í haust áður en byijað var að byggja á lóðinni. Jöfnum höndum erum við að vinna í allri lóðinni sem er milli 7 og 8 hektarar að stærð, en á lóðinni verða m.a. hlaupabrautir, tennis- völlur, minniháttar golfaðstaða og svo eitt og annað en lóðin er það stór að stækkunarmöguleikar fyrir hótelið eru miklir ef landið leggst þannig og reyndar þolir þjónustu- kjarninn í hótelinu verulega viðbót í hótelrými. Búið er að panta alit inn í hótel- ið og vörur eru að byija að berast. *SL.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.