Morgunblaðið - 20.04.1986, Side 6
mprgunblaðip.sunnudagur 20. apríl 1986
MATARÆÐIÐ
Bretinn er
of sólginn
í sykurinn
Brezku læknasamtökin hafa nú
ráðist til atlögu gegn mat-
vælaiðnaðinum með því að hvetja
til þess að neyzla á sykri og mjólk-
urafurðum verði minnkuð verulega.
Samtökin hafa nýlega sent frá
sér skýrslu sem nefnist Mataræði,
næring og heilsa. Þar er talið brýnt
að sykumeyzla minnki um 50% til
að koma í veg fyrir offitu og tann-
skemmdir. Hver Breti neytir að
jafnaði 40 kflóa af sykri árlega.
Ennfremur telja samtökin salt-
neyzlu of mikla en hún er að jafnaði
12 grömm á dag fýrir hvem ein-
stakling en þyrfti að minnka ofan
í 9 grömm. Loks segir í skýrslunni
að brýna nauðsyn beri til að neyzla
á mettaðri fítu minnki um 40%, en
aukist á hinn bóginn á trefjaefnum
úr 20 grömmum upp í 30 grömm
daglega.
Þá segir enn að neyzla á alkóhóli
þurfí að dragast saman um þriðj-
ung, en það jafngildir þvi að hver
Breti ætti að drekka um það bil
fímm lítrum minna af bjór á hverri
viku en hann gerir núna.
Vísindaráð læknasamtakanna
vann að skýrslu þessari en forgöngu
hafði Sir Douglas Black. Þetta er
fyrsta opinbera framtak samtak-
anna gegn sjúkdómum sem taldir
eru stafa af röngu mataræði, eink-
um hjartasjúkdómum. Aðrar að-
gerðir munu fylgja í kjölfarið.
Dr. John Dawson formaður vís-
indadeildar læknasamtakanna segir
að trúlega hafí ekki verið hjá því
komizt að árekstrar yrðu við aðila
í matvælaiðnaðinum.
I skýrslunni segir að knýjandi
þörf sé á að móta stefnu í heilsu-
rækt og koma á þann hátt í veg
fyrir sjúkdóma. Segir þar að heil-
brigðis- og tryggingaráðuneytinu
beri að hafa forgöngu um þetta.
Bent er á að landbúnaðarráðu-
neytið styðji matvæiaiðnaðinn og
atvinnumálaráðuneytið reyni að
hamla gegn því að menn missi
vinnuna, en heilbrigðis- og trygg-
ingaráðuneytinu beri hinsvegar að
stuðla að heilnæmu mataræði og
ríkisstjómin að kappkosta að fá
ráðuneytin til að vinna saman í
þessum efnum.
Sú stefna sem nú er við lýði
stuðlar hinsvegar að neyzlu skað-
legra fæðutegunda svo sem sykurs,
mjólkur og smjörs eða neyzlu mat-
væla sem hafa lítið næringargildi,
svo sem franskbrauðs, segir í
skýrslunni.
Að sögn dr. Dawsons er stefnan
í landbúnaðarmálum framleiðslu-
hvetjandi fyrir smjör, áfengi og
aðrar afurðir sem eru ekki eins
hollar og kommeti og kartöflur.
í títtnefndri skýrslu kemur fram
að rösklega þriðji hver maður á
Bretlandi sé of digur og ósvikin
offíta hijái 6% þjóðarinnar.
— ANDREW VEITCH
REYKINGAR
Fórnarlömbin
þurfa ekki að
svæla sjálf
Það getur verið meira en
óþægilegt að anda að sér tób-
aksreyk og fá hann í augun> Það
getur jafnvel verið lífshættulegt. A
þessa Iund var niðurstaða breskra
sérfræðinga sem héldu fyrir
skömmu ráðstefnu um áhrif svo-
nefndra óbeinna reykinga.
Árlega látast á milli 200 og 1.000
Bretar vegna þess að þeir hafa
andað að sér tóbaksmettuðu lofti
af völdum reykinga annars fólks.
Sérfræðingamir eru á einu máli um
að koma þurfí í veg fyrir slíka
hættu á vinnustöðum.
Green College í Oxford í Bret-
landi hafði veg og vanda af þessari
ráðstefnu. Niðurstöður hennar em
enn vatn á myllu þeirra sem gera
vilja frekari varúðarráðstafanir
vegna tóbaksreyks á opinberum
stöðum og á vinnustöðum. Ofan-
greindar niðurstöður birtust aðeins
tveimur dögum eftir að Fræðsluráð
um heilsuvemd í Bretlandi hóf
mikla herferð til að vara reykinga-
menn við því að þeir gætu valdið
öðrum krabbameini, bronkítis og
lungnabólgu.
Formaður ráðstefnunnar, Sir
John Walton, sagði meðal annars:
„Reykingar á hvaða stigi sem er
fela í sér áhættu. Ef fólk andar að
sér tóbaksreyk þótt það reyki ekki
sjálft, á það á hættu að anda að
sér krabbameinsvaldandi efnum.
Þótt áhættan sé ekki mikil er hún
þó fyrir hendi og eykst stöðugt eftir
því sem fólk dvelst lengur innan
um þá sem reykja mikið."
Sérfræðingamir vom þó ekki á
einu máli um hversu mikil hætta
steðjaði að fólki vegna óbeinna
reykinga. Töldu þeir að áhætta sú
sem reykingamaður kallaði yfír
annað fólk gæti verið 0,5-10% af
þeirri áhættu sem hann tæki sjálfur,
að reykingar em orsök þriðjungs
dauðsfalla af völdum krabbameins.
Þeir sem tóku til máls sýndu fram
á, að þeirri skoðun vex stöðugt
fylgi, að vinnuveitendur eigi að
banna reykingar á sérstökum svæð-
um á vinnustöðum, en nýlega hafa
verið birtar niðurstöður neytenda-
könnunar sem leiða í ljós að 58%
almennings em því meðmælt að
vinnuveitendur grípi til slíkra ráð-
- ANNABEL FERRIMAN
ÞARNA ER ÞAÐ — Hluti af stórhýsinu sem nú liggur undir
skemmdum i Moskvu. Fremst er inngangur í neðanjarðarbraut-
ímar.
NUERÞAÐ SVART
Lenin-safnið
riðar til falls
Leninbókasafnið í Moskvu er
ein kunnasta og mikilfeng-
legasta byggingin í borginni en
sú hætta vofír ný yfír henni, að
hún hrynji saman vegna lestar-
ganga, sem gerð hafa verið undir
hæðina, sem byggingin stendur á.
Bókaverðimir em byijaðir á að
pakka niður öllum 22 milljón bók-
unum í safninu en fmmhandritin,
örfílmurnar og bókaviðgerða-
deildin hafa verið flutt í önnur
húsakynni. Bókasafnið er mikil
bygging, 100 metra löng og 19
hæða há, en þrátt fyrir það ná
sprungumar allt frá gmnni og
upp í þak.
Leninbókasafnið er miðstöð
kommúnískra fræða, bygginga-
samstæða á Vagankov-hæð gegnt
Kreml og fegursta djásnið er
Pashkovhöllin, sem reist var á 18.
öld af auðugum afkomanda eins
af hermönnum Péturs mikla.
Margir glugganna í bókasafns-
byggingunni hafa sprangið út og
hafa starfsmennimir neyðst til að
loka af sumum hlutum hennar
með köðlum til að fólk fari sér
ekki að voða. Kalkið, sem hrynur
af veggjunum, er borið út í stömp-
um dag hvem að því er segir í
harðorðri og gagnrýninni grein í
Literatumaya Gazeta en þar em
borgaryfírvöld, yfirstjóm bóka-
safnsins og gangasmiðimir sökuð
um hvemig komið er og um að
hafa reynt að fela staðreyndir
málsins.
í Sovétríkjunum gilda ströng
lög um varðveislu minnismerkja
og gangagerð og aðrar fram-
kvæmdir undir þeim mega ekki
hefjast fyrr en undirstöðumar
hafa verið styrktar. Eftir þessum
lögum var ekkert farið sagði í
greininni fyrmefndu.
Ráðuneytið, sem fer með varð-
veislu minnismerkja, segir í
skýrslu, að „þrátt fyrir ítrekaðar
kröfur frá ráðuneytinu var engrar
varúðar gætt og það hefur valdið
því, að Pashkov-höllin og aðrar
byggingar bókasafnsins em sem
óðast að hrynja saman. Jarðveg-
urinn undir meginbyggingunni
sígur stöðugt og sigið hefur einnig
náð til nýs stórhýsis þar sem fram
fer vísindaleg rannsóknastarfsemi
á vegum bókasafnsins.
Ríkisstofnunin, sem sér um
gangagerðina, hefur nú sett menn
í það að klastra upp í sprangumar
og talsmenn hennar halda því
fram, að ávallt hafí verið farið
eftir „öllum lögum og reglum við
gangagröftinn".
- MARTIN WALKER
en allir vom þeir þó á einu máli
um að áhættan væri fyrir hendi.
Sýni úr munnvatni, blóði og þvagi
bama reykingafólks hafa leitt í ljós
að þau innihalda 10 sinnum meira
af efnum úr tóbaksreyk en sam-
svarandi sýni úr bömum frá reyk-
Iausum heimilum.
Dr. Joy Townsend, sérfræðingur
í faraldsfræðum við rannsóknarráð-
ið í læknisfræði við Harrow sagði,
að vinnuveitendur ættu að sjá sér
hag í að lýsa yfír reyklausum
svæðum í fyrirtækjum sínum og
jafnframt ættu þeir að hvetja
starfsmenn sína . til að hætta
reykingum. Það hefði sýnt sig að
slíkar ráðstafanir bættu andrúms-
loftið á vinnustöðum, stuðluðu að
aukinni framleiðni og leiddu til
minnkandi kostnaðar vegna ræst-
inga og viðhalds.
Sum fyrirtæki í Bandaríkjunum
hafa greitt 21 þúsund krónur í ráð-
gjöf fyrir hvem þann starfsmann
sem hættir reykingum. Enda þótt
hér sé um háa upphæð að ræða er
hún helmingi lægri en árlegur
kostnaður vegna starfsmanna sem
reykja, og er þá miðað við íjarvistir
og ýmsa fylgikvilla reykinganna,
sem bitna á starfshæfni manna.
Richard Peto, kennari í krabba-
meinsfræðum við Oxfordháskóla,
sagði að þeir sem hefðu mestan hag
af því að reykingar væm takmark-
aðar á vinnustöðum, væm einmitt
reykingamennimir sjálfír, því að
það gæti leitt til þess að þeir hættu
reykingum eða drægju vemlega úr
þeim. Það kom fram á ráðstefnunni
STRIÐSGLÆPIR
HVER ER MAÐURINN? — Hinn meinti „ívan grimmi“ í vörslu ísra-
elskra lögregluþjóna.
Er maðurinn ef til vill
alls ekki „Ivan grimmi“?
Iísrael hefur ýmislegt verið að
koma á daginn, sem bendir til,
að John Demjanjuk, sem ísraelar
fengu framseldan frá Bandaríkjun-
um vegna gmns um stríðsglæpi, sé
ef til vill ekki sá alræmdi fanga-
búðavörður, sem kallaður var „ívan
grimmi".
Demjanjuk, 65 ára gamall eftir-
launaþegi af úkraínskum ættum og
fyrrnrn starfsmaður bflaverksmiðj-
anna í Detroit, hefur alltaf haldið
því fram, að málið á hendur honum
sé tilbúningur og að hann hafí
aldrei verið fangavörður í útrýming-
arbúðunum í Treblinka. Ákærend-
umir segja hins vegar, að hann
hafí séð um gasklefana í Treblinka
og borið ábyrgð á dauða meira en
900.000 gyðinga.
Frá því Demjanjuk kom til ísraels
hefur hann verið í fangelsi og beðið
þar réttarhaldanna en á þessum
tíma hafa komið í ljós tvö skjöl, sem
gætu bent til, að fangabúðavörður-
inn ívan grimmi hafí dáið í Tre-
blinkaárið 1943.
Annað skjalið fannst í skjalasafni
Helfararstofnunarinnar við Bar
Ilan-háskólann í Tel Aviv. Er það
yfírlýsing Avrahms Goldfarb, sem
nú er nýlátinn en lifði af hörmung-
amar í Treblinka, um að ívan hafi
verið drepinn í fangauppreisn árið
1943. „Við rifum niður girðinguna
og annar- hópur réðst inn í gasklef-
ana, drap ívan grimma og félaga
hans og kastaði þeim síðan inn í
eldinn," segir Goldfarb.
Hitt skalið er úr skjalasafni
gyðinga í Vín. Þar leggur Elias
Rosenberg, annar maður, sem
komst á lífí frá Treblinka, eið að
því í desember árið 1947, að í ágúst
árið 1943 hafí „nokkrir menn brot-
ist inn í svefnskála úkraínsku
fangavarðanna þar sem fvan
grimmi svaf ásamt öðmm og barið
þá til dauða með skóflum."
fsraelsku saksóknaramir segja á
hinn bóginn, að þrátt fyrir þessar
upplýsingar séu þeir vongóðir um
að geta sannað sitt mál. Þótt
Demjanjuk verði dæmdur sekur er
hins vegar ólíklegt, að hann verði
dæmdur til dauða. Frá því að ísrael
varð sjálfstætt ríki árið 1948 hefur
aðeins einn maður verið dæmdur
þar til lífláts, Adolf Eichmann.
Málið gegn Demjanjuk er höfðað
með stuðningi í ísraelskum lögum
frá árinu 1950 um nasista og
samstarfsmenn þeirra en í þeim er
kveðið á um dauðadóm yfir hvetjum
þeim, sem gerst hefur sekur um
„glæpi gegn gyðingum á tímum
nasista", „glæpi gegn mannkyni",
eða „verknað, sem jafnast á við
stríðsglæpi".
— ROBIN LUSTIG