Morgunblaðið - 20.04.1986, Síða 14

Morgunblaðið - 20.04.1986, Síða 14
B? Hvað ætli hann Broddi hafi verið að gera þessi ellef u ár síðan hann hætti skólastjórn Kennaraskólans? Gaman að heyra hvað hann hefur verið að skrifa eftir að hann fékk til þess næði, þessi heimspekingur og sálfræðingur með orðgnótt og betra vald á íslensku máli en flestir aðrir sem kostur gafst á að heyra á árum áður í útvarpi og á mannamótum? Maðurinn sem alltaf hafði einhverja speki fram að færa og var svo eftirsóttur fyrirlesari. Eitthvað á þessa leið voru vangaveltur blaðamannsins á leið heim til Brodda Jóhannessonar, sem verður sjötugur á morgun, fæddur 21. apríl 1916 í Litladalskoti í Lýtingsstaðahreppi norður í Skagafirði. Svo sat Broddi þarna, unglegur, hress og afslappaður, jafn notalegur í tali sem fyrr, og fullyrti að hann hefði ekki verið að gera nokkurn skapaðan hlut, alls ekki setið að skriftum eðá staðið í útgáfu á bókum, hvað þá farinn að rita ævisögu, biddu fyrir þér! Hann kvaðst hafa verið í fullkominni lausamennsku frá því hann hætti sem skólastjóri Kennaraskóla íslands 1975, eftir 35 ára starf sem kennari og síðustu 13 árin skólastjóri í stórum skóla í uppbyggingu. Og sé harla ánægður með það. MQ^y}ffil^PlD,;aUNNUp.A^.UI^Q:APkjL,1986, Við erum svo háð pendúlviðbrögðiim Sveiflumst sitt á hvað ViÖtal við Brodda Jóhannesson sjötugan Eftir að ég ákvað að hætta, þegar ég gat samkvæmt 95 ára regl- unni um eftirlaun, þá var ég genginn úr leik. Það voru alveg hreinar línur og mér var fullkomin alvara. Kom ekki nálægt skólanum eftir það,“ útskýrði Broddi þegar haldið var áfram að þýfga hann um það hvort hann hefði ekki haldið áfram að kenna eitthvað í lausamennsku að minnsta kosti, þessi afburða kennari svo sem alkunnugt var. Játaði þó að hann hefði í tvö vor hlaupið í skarðið sem prófdómari, auk þess sem hann lauk starfi í laganefnd skólans. „Ég var búinn að gera það sem ég gat og hætti. Starfið er þess eðlis. Þar þurfti mann með óskert þrek. Þetta hafði verið samfelldur þrældómur í áratug. Ég var búinn að vera skólastjóri frá haustinu 1962. Á þeim árum bar allt að á sama tíma, endurskoðun á löggjöfinni um kennaraskóla, bygging skólahússins, fyrir lá að semja námskrá og reglugerð, miklar breytingar voru á manna- haldi og svo gegndarlaus fjölgun nemenda. Hvorki skólinn né þjóðfélagið réðu við þessa miklu íjölgun. Engin leið að sinna því skap- lega, t.d. að koma kennaraefnunum í verk- lega þjálfun með þeim barnafjölda sem til- tækur var. Þetta leiddi til eilífra bráða- birgðaráðninga kennara og tafir urðu á byggingaframkvæmdum umfram það sem áformað var. Ég var þá búinn að kenna við skólann frá 1941, en þessi mikla fjölgun byzjaði greinilega um 1959. Um það leyti var einhver geigur í ungu fólki um atvinnu- horfur, samfara þeirri almennu skoðun að kennaraþörfín væri óþijótandi. Svo horfði fólk mjögtil löngu sumarleyfanna." Við spjöllum um stund um blessun sumar- leyfa. Þegar Broddi hóf kennslu 1941 höfðu kennarar Kennaraskólans fimm mánaða sumarleyfi án nokkurra kvaða. Þremur árum síðar var árlegur skólatími lengdur í 8 og ári síðar í níu mánuði. Fylgdu dtjúgar kvaðir um kennslu á sumarnámskeiðum. En fyrstu árin sem Broddi var skólastjóri átti hann sjálfur samanlagt 24 sumarleyfís- daga. Kom varla í Skagafjörðinn, segir hann og þótti afleitt. En hann kveðst hafa bætt sér það upp síðan. „Annars var sú skoðun mín ekki ný að menn ættu að starfa takmarkaðan tíma í svo krefjandi starfi," tekur Broddi aftur upp þráðinn. „Tæpum 20 árum áður hafði ég látið í ljós þá skoðun að við einokunarstofn- un, eins og Kennaraskólinn var, ættu skóla- stjórar ekki að vera æviráðnir. Hefi svo staðið að lagasetningu um að ráðningartími sé ekki nema 4-8 ár. Sjálfur var ég búinn að vera svo lengi í skólastjóraembætti að ég gat ekki fylgst að gagni með í mínum eigin fræðum. Slíkur maður er ekki bara útslitinn skólastjóri heldur líka liðónýtur kennari. Það er ekki notaleg tilhugsun eftir að hafa haft gaman af kennslu. Að eigin dómi? Já að vísu, en ekki eru aðrir dómbærari um það.“ Er Broddi þá ánægður með það sem kom út úr öllu þessu striti, nýju lögunum og reglugerðunum og þessu mikla uppbygging- arstarfi í kennslumálum? Var farið rétt í þessa umsköpun? „Já, löggjöfin og reglu- gerðirnar voru í lagi. Það eina sem ég hefi við þetta að athuga er endurskoðunarárátt- an. Það er eins og við séum svo háð pendúl- viðbrögðum, sveiflumst sitt á hvað. Aðsókn að kennaranámi hafði verið nokkuð jöfn fram til 1950. Glíman hófst svo um atgervið og menntaskólanám varð forgangsnám austan hafs og vestan og íslenskir lands- prófsnemendur urðu forréttindastétt og fóru í menntaskólana, en gagnfræðingarnir komu til okkar. Eftir að landsprófsnemar höfðu verið í menntaskólunum sín fjögur ár, fóru stúdentarnir svo að skila sér í kennaraskólann. Svo kom menntaspreng- ingin og stefna stjórnvalda var að hindra engan í neinu námi. Á þessum tíma gerði kennaraskólinn samanburð á landsprófsfólki og gagnfræðingum, sem sýndi að þeir voru líka menn og stóðu hinum ekkert að baki.“ Þegar sauðkind og sál- fræðing greinir á „En eitt er að vera ánægður með lög og reglugerðir og annað er svo framkvæmdin," heldur Broddi áfram eftir nokkra stund. „Það var tenging kenningar og hins verk- lega starfs sem löngum er áfátt í skólum. Eg vildi að kennarar fengju sinn þjálfunar- tíma eins og læknar. Og það hefði líka tengt þá meira við landsbyggðina. Hefi stundum sagt við þá að þegar sauðkindina og sálfræð- inginn greini á, þá sé það alltaf sauðkindin sem hefur rétt fyrir sér. Ef sálfræðingur ætlar að leiðrétta fjárgötu í fjallshlíð, þá fari hann villur vegar. Ekki af því að sauð- kindin sé fortakslaust gáfaðri en hún hefur reynsluna.“ Sveitadrengfurinn stefndi í sálarfræði Hér verður freistingin of mikil að hafa orð á því að nám Brodda sjálfs, sálarfræðin, teljist þó varla til verklegs náms í venjuleg- um skilningi. Hann svarar hlæjandi um hæl: „Ég tel mig vera harðmenntaðan í verklegu, öllu nema sjómennsku, og þykir það snautlegt. í sálarfræðinni hafði ég að vísu ekki mikið verklegt nám í kennslu en mikla verklega sálarfræði." Hann kveðst alltaf hafa ætlað í sálfræðinám, jafnvel Þrír sýna Myndiist Valtýr Pétursson í Vestursal Kjarvalsstaða stend- ur nú yfir sýning á verkum þriggja ungra manna, sem allir hafa komið fram á sjónvarsviðið áður, og það oftar en einu sinni. Hér er því ekki um algera byijendur að ræða, en hinu verður ekki neitað, að allir eru þeir í mótun, eins og eðlilegt er,. og ekkert nema gott um það að segja. Þessir ungu menn eru Helgi Þorgils Friðjónsson, Daði Guð- bjömsson og Kristinn Guðbrandur Harðarson. Þeir þremenningar eru furðu ólíkir í myndgerð sinni og viðhorfí til myndlistar, en þeir hafa haldið hópinn, og eru gamlir félag- ar, og mér finnst verk þeirra fara vel saman á þessari sýningu, þrátt Kristinn G. Harðarson fyrir mismunandi tækni og viðhorf. Það em feikna mörg verk á þessari sýningu þeirra þremenning- anna, 171 verk í sýningarskrá. Þarna eru málverk, teikningar, skúlptúr, lágmyndir, gouache- og pastelverk. Af þessu má sjá, að listamennimir koma víða við og spanna breitt svið. Flest verkanna eru eftir Daða, síðan kemur Helgi Þorgils, og Kristinn rekur lestina með teikningar, málverk og skúlpt- úr. Af fyrri verkum þessara manna mætti halda, að nýja málverkið væri þama í fyrirrúmi, en svo er ekki. Það er vart, að það sjáist á þessari sýningu. Allir eru þeir pilt- amir að eiga við aðra hluti, og er það sannarlega góðs viti, að ungir menn eru ekki allir í sama farinu. Helgi Þorgils er ef til vill þekktastur af þessum hóp og hefur verið at- hafiiasamur á listabrautinni að undanfömu. Má þar tilfæra, að verk hans hafa nýlega verið til sýnis í þeirri gömlu borg París, og hann hefur sýnt mikið bæði hér heima og fyrir utan landsteinana. Það var því viss eftirvænting fólgin í því að fá að sjá, hvað hann væri að fást við þessa stundina, og nú blasir það við á Kjarvalsstöðum. Ég verð að játa, að ég bjóst við kraftmeiri verkum frá hans hendi en raun ber vitni, en hann stendur augsýnilega á tímamótum og er að byija á nýj- ung, sem virðist ekki fyllilega komin til skila. Þessi verk Helga em iðandi af symbólisma, sem ekki er auðvelt að koma heim og saman, en þetta

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.