Morgunblaðið - 20.04.1986, Síða 18
.
Huldustríð
Waldheims
með flugvél til nágrennis Mitrovica,
um 320 km norður af þessum þorp-
um, einni viku áður.
Vecemje Novosti segir að stríðs-
glæpnefnd SÞ hafi haft Waldheim
grunaðan um stríðsglæpi og birti
því til sönnunar ljósrit af skjali, sem
það kvað geymt í aðalstöðvum
nefndarinnar í New York. Þar er
nafn hans nr. 724 á lista með nöfn-
um 790 manna, sem voru grunaðir
um stríðsglæpi og taldir viðriðnir
„morð og aftökur gísla" frá apríl
1944 til maí 1945.
Þegar athuga átti skjölin í New
York fyrir skömmu voru flest þeirra
horfín. Aðeins virðist hafa fundizt
ágrip af einu skjali, sem er saknað.
Júgóslavneska stríðsglæpa-
nefndin sagði 1947: „Waldheim
lautinant er gamall nazisti, sem f
frumskjölum var talinn bera ábyrgð
á gíslatökum og stóð í sambandi
við V-menn. Hann er nú í Austur-
ríki, frjáls maður og gegnir starfi
ritara í utanríkisráðuneytinu."
Karl Gruber utanríkisráðherra
skipaði Waldheim einkaritara sinn
1946. Þá var póiitísk fortíð hans
rannsökuð vegna þess að kærur
bárust frá mönnum, sem héldu
nöfnum sínum leyndum. Hann
þurfti ekkert að óttast, því hann
hafði verið hreinsaður þegar honum
var sleppt úr fangabúðum Banda-
ríkjamanna. Aðildin að SA var
skýrð með því að hún hefði ein-
göngu stafað af áhuga hans á
íþróttum.
Fjórveldin hersátu Austurríki
eftir stríðið. Hörgull var á hæfum
embættismönnum og fortíð þeirra
var ekki gaumgæfílega rannsökuð.
Auk þess bentu fáanleg gögn til
þess að fjölskylda Waldheims hefði
orðið að þjást vegna andstöðu við
innlimun Austurríkis í Þýzkaland
1938.
SPÁÐ SIGRI
Árið 1971 hafði Waldheim að
baki langan og virðulegan feril í
alþjóðamálum og engum datt í hug
að spyija um fortíð hans þegar
hann var valinn framkvæmdastjóri
SÞ með stuðningi risaveldanna, en
gegn vilja Breta og Kínverja.
Waldheim hafði barizt í Rúss-
landi, en Rússar höfðu verið ánægð-
ir með afstöðu hans þegar hann var
utanríkisráðherra á dögum inn-
rásarinnar í Tékkóslóvakíu 1968.
Þeir höfðu aðgang að öllum skjölum
Júgóslava eftir stríðið og Banda-
ríkjamenn slepptu honum úr haidi.
Vissu Rússar og Bandaríkjamenn
um fortíð hans? Töldu þeir sig hafa
hann í vasanum?
Stjóm Titos í Júgóslavíu sæmdi
Waldheim orðu (eins og stjóm
Pavelics í Króatíu í stríðinu). Þó er
hann sakaður um glæpi í júgóslavn-
eskum skjölum. Sjá Júgóslavar sér
ekki fært að sakfella hann?
Waldheim hefur enga skýringu
gefíð á því hvers vegna hann hélt
störfum sínum á Balkanskaga
leyndum svo lengi. Sannanimar
gegn honum eru vægast sagt veiga-
litlar og byggðar á líkum. Ekki
hefur tekizt að leiða fram nokkur
vitni til að rökstyðja ásakanirnar.
Ekki er sannað að hann sé morð-
ingi, en hann hefur logið, eða í það
minnsta þagað yfír sumu.
Þrátt fyrir ásakanimar er Wald-
heim enn spáð sigri í forsetakosn-
ingunum. Eldri kynslóðin hefur
slegið skjaldborg um „Austurríkis-
manninn sem heimurinn treystir"
og hann hefur ferðazt um landið
undir kjörorðinu „Þeir fordæma
ekki aðeins mig —" þeir fordæma
heila kynslóð." Með „þeim“ er átt
við gyðinga og heimsráð þeirra, sem
hóf rannsóknina á ferli hans. Nú
búa 7.000 gyðinga í Austurríki og
þeir óttast um sinn hag.
Vaxandi gremju hefur gætt í
Austurríki í garð gyðinga og yfír-
leitt allra útlendinga, sem em sak-
aðir um afskiptasemi. Enn eitt víg-
orð stuðningsmanna Waldheims er
„Við Austurríkismenn kjósum þann
sem við viljum" og í því felst ábend-
ing til útlendinga um að bianda sér
ekki í austurrísk innanríkismál. En
ásakanimar gegn Waldheim hafa
skaðað hann og jafnvel stuðnings-
menn hans virðast farnir að efast
um að heppilegt sé fyrir þjóðina að
hann verði forseti.
GH
HUSGOGN DUGGUVOGI 2 - Simi 34190 - REYKJAVÍK
Rýmingarsala á húsgagnaáklæði,
kögri, leðurbútum og leóurafklippum í poka.
Morgunblaðið/Sigrún
Anna Katrin Ottesen við þrekhjól
sjúkraþjálfunarstofunnar.
Selkórinn
heldur árlega
vortónleika
Árlegir vortónleikar Selkórs-
ins á Selljarnarnesi verða haldn-
ir i félagsheimilinu á Seltjarnar-
nesi annað kvöld, mánudag, kl.
20.30 og nk. laugardag, 26. apríl,
kl. 15.00. Selkórinn er blandaður
kór karla og kvenna og er stjórn-
andi hans Helgi R. Einarsson.
Á efnisskrá verða bæði innlend
og erlend lög og tónverk. Einsöngv-
arar með kómum verða Þórður
Búason og Helgi R. Einarsson.
Undirleikari á tónleikunum verður
Guðni Þ. Guðmundsson.
Árlegur dansleikur kórsins verð-
ur einnig nk. laugardag í félags-
heimiiinu á Seltjamamesi. Hljóm-
sveitin Damos leikur fyrir dansi og
kórfélagar bregða á ieik. Húsið
verðuropnað kl. 21.00.
Sjúkraþjálfunar-
stofa í Hveragerði
Hveragerði, 17. apríl.
NYLEGA var opnuð sjúkraþjálf-
unarstöð í Hveragerði og hlaut
hún nafnið Sjúkraþjálfun Suður-
lands. Eigandi stöðvarinnar er
Anna Katrín Ottesen sjúkraþjálf-
ari.
Stofan er til húsa í björtum og
góðum húsakynnum í sundlaugar-
byggingunni í Laugaskarði og er
hún búin góðum tækjum. Aðspurð
um þetta framtak hafði Anna Katr-
ín þetta að segja: „Um langt árabil
hefur verið brýn og vaxandi þörf á
sjúkraþjálfun til fyrirbyggjandi
meðferðar á ýmsum stigum sjúk-
leika sem unnt er að halda niðri
og bægja frá. Ekki síður er hér
komin aðstaða fyrir víðtæka endur-
hæfíngu m.a. eftir slys og aðgerðir.
Mikill kostur er að hafa aðstöðu til
æfínga í sundlauginni.
Ég tel mikla þörf fyrir þessa
starfsemi í Hveragerði og öll nær-
liggjandi byggðarlög og vona ég
að ég geti veitt góða þjónustu,"
sagði Anna að lokum.
Anna Katrín er Hvergerðingur,
ein af mörum bömum þeirra heið-
urshjóna Geirlaugar og Oddgeirs
Ottesen. Hún iauk námi sem sjúkra-
þjálfari frá Háskóla íslands árið
1988 og hefur lengi unnið við
endurhæfingarstörf á Heilsuhæli
NLFÍ.
Aðsókn að stofunni hefur verið
mjög mikil frá byrjun. Hreppsfélög
Hveragerðis og Ölfuss eiga sund-
laugina í Laugaskarði og hafði þessi
hluti hússins staðið ónotaður í
nokkum tíma, er gott til þess að
vita að hann er kominn í not fyrir
þetta ágæta fyrirtæki og að enn
fleiri sæki heilsubót í Laugaskarð,
sem um iangan aldur hefur verið
stolt okkar Hvergerðinga. Sigrún
fFrá Grunnskólum
Reykjavíkur
Innritun sex ára barna (þ.e. barna sem
fædd eru á árinu 1980) fer fram í skólum
borgarinnar mánudaginn 21. og lýkur
þriðjudaginn 22. apríi n.k., kl. 15—17
báða dagana.
Það er mjög áríðandi að foreldrar láti
innrita börnin á þessum tilgreinda tíma
eigi þau að stunda forskólanám næsta
vetur.
Skóiastjórar
UNGLINGAHÚSGÖGN
TIL FERMINGARG JAF A
Fjölbreyttasta úrval sem völ er á
SENDUM UM ALLT LAND
OPEÐ LAUGARDAGA
KL. 10-16
Húsgagnaverslun, Reykjavíkurvogi 68, Hafnarfirði, s. 54343.