Morgunblaðið - 22.04.1986, Side 15
Krísuvíkursamtökin:
Markmiðið er að hjálpa vímuefnaneyt-
endum til heilbrigðrar lífsstefnu
Á síðustu árum hefur farið
fram mikil umræða um stöðugt
vaxandi fíkniefnaneyslu barna
og unglinga. Öllum er ljóst að
hér er um mjög alvarlega hluti
að ræða. í allri umræðunni um
efnalega velferð okkar og fjár-
hagslega afkomu frá degi til
dags hefur okkur þó ekki
gleymst að mannslífin eru dýrari
hveiju dollaragríni og lífsham-
ingjan meira virði en háar stöður
og einbýlishús. Hver unglingur,
sem deyr vegna efnanotkunar
vímugjafa er óafturkræf fórn, —
skaði sem enginn megnar að
bæta. í ljósi þeirra harmleikja
verður umræðan um efnahags-
lega afkomu fánýtt hjal.
Stundum deila menn um það
hver eigi sökina. Það er í sjálfu sér
skynsamlegt að kanna orsakir
vandans og vinna þannig að fyrir-
byggjandi aðgerðum. En það er
jafn óskynsamlegt að eyða tíma og
orku í að finna sökudólga til að láta
bera okkar eigið samviskubit í stað
þess að beita öllum kröftum til þess
að vinna að raunhæfum úrbótum.
Krísuvíkursamtökin eru stofnuð
til þess að sameina krafta þeirra
mörgu aðila sem vissulega hafa
brennandi áhuga á að sinna þessum
málum en hafa ennþá ekki séð leiðir
til þess. Það er síður en svo tilgang-
ur þeirra að koma í staðinn fyrir
einhveija aðra aðila eða kasta rýrð
á þá sem sinnt hafa þessum málum.
Aðstandendur samtakanna bera
mikla virðingu fyrir því starfi sem
unnið hefur verið og er verið að
vinna að þessum máium. Hitt var
svo ljóst að í Krísuvík stóð hálfgert
hús og lá undir skemmdum. Sam-
tökin eru stofnuð um það að ljúka
byggingu þess og gera það nothæft.
Þetta er mikið hús og vel teiknað
og það væri slys að láta það grotna
niður engum að gagni vegna þess
að frumkvæðið skorti til að koma
því upp.
En hvað á svo að fara fram í
þessu húsi? kann einhver að spyija.
Það er ef til vill ekki tímabært að
svara þeirri spumingu mjög ýtar-
lega meðan meðlimir samtakanna
eru ekki einu sinni byijaðir að
skipta um rúðumar sem brotnuðu
á þessum tíma sem húsið stóð autt
og yfirgefið. Þó er hægt að nefna
nokkur atriði sem aðilar eru sam-
mála um að stefna að. í stefnuskrá
samtakanna sem formaður þeirra,
sr. Birgir Ásgeirsson, lagði fram í
janúar sl. segir m.a.:
„Meðferðin byggist á því að
hjálpa unglingunum að komast yfir
neysluvandamál sín með sérstakri
dagskrá, sem m.a. felur í sér eftir-
talin atriði:
I. a) fræðslu um vímuefnamál
b) hópmeðferð
c) andlega uppbyggingu og
sálgæslu
II. a) dagleg heimilisstörf
b) sérstök vinnuverkefni utan-
húss og innan
III. a) afmarkað skólastarf
b) líkamleg þjálfun og heilsu-
rækt.
Stefnt er að því að hver skjól-
stæðingur Krísuvíkurheimilisins
hljóti sérstaka greiningu og mat vel
menntaðs og þjálfaðs starfsfólks.
Meðferðin í heild mun byggjast
á þekktum leiðum þar að lútandi,
en mun þó mótast mest af því
kerfi, sem beitt hefur verið með
bestum árangri meðal þeirra, sem
glíma við vímuefnasjúkdóminn,
alkóhólisma. Dagskrá og heimilis-
hald verður byggt á kristnum við-
horfum, án þess að bindast sér-
stakri kirkjudeild í því efni.
Auk þess að hafa meðferðar-
heimili í Krísuvíkurskóla er ætlunin
að standa þar fyrir ýmiss konar
námskeiðahaldi t.d. fyrir aðstand-
endur, ungt fólk almennt, starfs-
hópa og einstaklinga, sem láta sig
varða þetta málefni.
Heildarmarkmið samtakanna er
síðan að:
— Hjálpa ungum vímuefnaneyt-
endum til heilbrigðrar lífsstefnu.
— Stuðla að fyrirbyggjandi- að-
gerðum í landinu.
— Veita aðstandendum stuðning
og uppfræðslu."
Við þetta er fáu að bæta á þessu
stigi málsins. Ýmsar hugmyndir eru
uppi um menntun starfsfólks, því
að hún er að mati stofnenda sam-
takanna mjög mikilvægur þáttur í
því að vel takist til. Leitað verður
eftir fyrirmyndum erlendis frá eftir
því sem þurfa þykir og allar leiðir
athugaðar sem til greina koma og
skilað geta árangri. En til að byija
með verður aðalverkefni samtak-
anna samt að koma húsinu upp.
Þangað til því er lokið gerist fátt
í meðferðarmálunum.
Nú á næstunni verður haldinn
almennur stofnfundur samtakanna
opinn öllum þeim sem vilja vera
með. Hugmyndin er sú að stofna
24 manna framkvæmdaráð, sem
síðan kjósi sér 5 manna stjórn.
Stjóm samtakanna er nú þannig
skipuð:
Séra Birgir Ásgeirsson, formað-
ur, Ragnar Ingi Aðalsteinsson, rit-
ari, Finnbogi Albertsson, gjaldkeri,
Ragnar Lámsson, meðstjórnandi
Snorri Welding, meðstjómandi.
Krísuvíkursamtökin óska eftir
sem allra bestu samstarfi við alla
þá aðila sem unnið hafa og em að
vinna að þessum málum í einhverri
mynd. Þau óska eftir samstarfí við
alla þá sem vilja leggja góðu mál-
efni lið, og þau fara fram á að þeir
sem ekki leggja fram aðstoð í ein-
hverri mynd hugsi hlýtt til þess
starfs sem þarna á að fara fram.
Munum að mannslíf verður aldrei
metið til Qár. Þegar Krísuvíkursam-
tökunum hefur tekist að bjarga
einum ráðvilltum unglingi úr greip-
um vímuefnadauðans og koma
honum til heilbrigðs lífs þá er að
fullu endurgoldið það sem undir var
lagt.
Mannslíf em svo dýr.
Samtökin verða með símatíma
milli kl. 17 og 19 dag hvem. Síminn
er 621005.
Laugum í Dalasýslu, 18. mars
1986.
F.h. Krísuvíkursamtakanna,
Rangar Ingi Aðalsteinsson.
• r
yfcgjj
Salix húsgögn - Húsgögn í anda unga fólksins
FEmlNGAR
TILBOD VIDJU
20% ÚTBORQUh
12 MÁMAÐA QREIÐ5LUKJÖR
iJfanT\rf*
°9 9ó^9rSösla§
HÚSGAGNAVERSLUNIN
VIÐJA
Smiðjuvegi 2 Kópavogi
sími 44444
þar sem
góðu kaupin
gerast.
■MORGUNBLAÐIÐ.ÞRIÐJUDAGIÍR 22.AÞRÍL 1986
15