Morgunblaðið - 22.04.1986, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 22.04.1986, Blaðsíða 62
62 MQRGUN8LAÐIP, ÞRIÐJUDAGUR22. APRÍW986 Ferðafélag Islands: Fyrirlestur um mann- gerða hella á Suðurlandi SÍÐASTA kvöldvaka vetrarins verður í kvöld í Risinu, Hverfis- götu 105, og hefst stundvíslega kl. 20.30. Hallgerður Gísladóttir og Ámi Hjartarson Qalla um manngerða hella á Suðurlandi í máli og mynd- um. Þessir hellar eru sandsteins- hellar sem hafa verið grafnir inn í hóla við bæi víða á Suðurlandi. Sumir þeirra eru mjög gamlir og er í sumum tilfellum um að ræða elstu hús á íslandi. Víða sjást veggjaristur og minjar frá ýmsum tímabilum. Talið er að Einar Bened- iktsson skáld hafi fengið Jóhannes Kjarval til þess að draga upp myndir af hellunum og ristum í þeim, en þessar myndir eru nýlega komnar í leitimar. Margar mynd- anna eru úr heili við bæinn Ás í Holtum. í þessum helli vom haldin manntalsþing og í sóknarlýsingum frá 1840 er talað um að í honum sé merkilegt letur. Varahlutir í litla bíla og stóra Ef HÁBERG á hlutinn þá er verðiö hagstœtt! G F SKEIFUNNI 5A, SIMI: 91-8 47 88 Birgðir í lágmarki sölugreining—arðsemiseftirlit ALVIS VÖRUKERH Afkoma verslunar- og iðnfyrirtækja er að miklu leyti undir þv( komin hvernig til tekst með stjórnun vörubirgða. I ALVlS vörukerfinu er að finna margar einingar sem hjálpa fyrirtækjum að halda birgðum.í lágmarki án þess að til vöruskorts komi. Auk þess eru einingar til að annast daglega vinnslu svo sem birgðabókhald, afgreiðslu og vörumóttöku. Markmlð: Tilgangur námskeiðs- ins er að kenna á allar einingar ALVlS vörukerfisins þannig að starfsmenn geti nýtt sér kosti þess til fulls. Efnl: Kennd er notkun eftirlarandi eininga: - Birgðabókhald - Sölukerfi - Sölugreining - Arðsemiseftirlit - Pantanatillögur - Tollskýrslugerð - Verðlagning Þátttakendur: Starfsmenn fyrirtækja, sem hafa tekið ALVÍS vörukerfið í notkun eða hyggjast gera það. Leiðbeinandi: Eyjólfur Isfeld, viðskiptafræðingur frá Háskóla Islands. Starfar nú sem innkaupastjóri hjá Pennanum sf. Tími: 5., 6., 7. og 9. mal kl. 13.30-17.30Í Stjórnunarféldg fslands Ánanaustum 15 - Sfmi: 6210 66 Dæmigerð mynd af veðurblíðunni á Ströndum. Strandir: Morgunblaðið/Baldur Rafn Sigurðsson Mesta veðurblíða á öldinni Hólmavík. EINSTAKA veðurblíða hefur verið hér á Ströndum eftir áramót- in. Eldri menn hér um slóðir muna vart annað eins og telja að þessi vetur sem senn muni halda á braut, sé einn af betri vetrum á þess- ariöld. Snjór hefur þó legið yfir, aðeins þunnt lag hveiju sinni, en bömin hafa kunnað það vel að meta. Akstursleiðir hafa verið greiðfærar hér f nágrenninu og um allan Stein- grímsflörð. Eigendur torfærubif- reiða hefðu þó viljað fá ögn meiri snjó til að reyna bifreiðir sínar og sýna sig og sjá aðra. Einn þeirra tók sig til og ók norður í Ámes- hrepp, en vegurinn þangað er yfir- leitt lokaður á þessum tíma árs. Hann sagði eftir þá ferð, að líkleg- ast hefði hann eins getað farið á fólksbifreiðinni sinni. Ferðin hefði þá að öllum líkindum tekið lengri tíma og hann hefði þurft að moka. Vegagerðarmenn hefðu einnig óskað sér meiri snjó. Þeim leiðist aðgerðarleysi eins og svo mörgum. Þeir tóku því fegins hendi Qárveit- ingu til byggingar verkstæðis og geymsluhúsnæðis. Vel hefur gengið að byggja hús þetta og bætir það mjög úr aðstöðu vegagerðarinnar hér um slóðir. En nú þegar frost er að fara úr jörðu þá fara vegimir illa. Hvörf hafa myndast hér og þar í vegina. Á nokkrum stöðum hafa vegimir farið í sundur og leðjuelgurinn er mikill. Þetta ástand þekkir lands- byggðarfólk mjög vel og er því ekkert að kvarta þótt seint gangi að aka á milli staða og þótt bflarnir verði ataðir aur og drallu. Þótt hávaðinn frá hljóðkútslausum bfl- unum stöðvi allar samræður inn í þeim og eins þar sem þeir hafa átt leið um. í vetur hefur og verið mikil flug- umferð. Vinir og ættingjar hafa komið sunnan úr Reykjavík í kaffi og kökur. í veðurblíðunni hefur verið ákjósanlegt fyrir minni vélar að fara á milli Hólmavíkur og höf- uðborgarinnar. Ferðin hefur tekið um 70 mínútur. Ávallt hafa far- þegar séð eitthvað nýtt og skemmti- legt, þannig að ferðimar hafa gefið af sér reynslu í flugi, lærdóm í landafræði og jafnframt orðið ánægjulegri þeim mun oftar sem farið hefur verið. Baldur Sig. Ráðstefna um garðávexti haldin í dag BÚNAÐARFÉLAG íslands og Stéttarsamband bænda gangast fyrir ráðstefnu um flokkun, mat, verslun og meðferð garðávaxta á Hótel Sögu í dag, þriðjudaginn 22. apríl. Ráðstefnan hefst klukkan 9.30 og lýkur klukkan 17. Ingi Tryggva- son formaður Stéttarsambandsins setur hana og síðan verða flutt nokkur framsöguerindi og umræður á milli. Askriftarsíminn er 83033 Einstök gæðavara fyrir þá sem eru að hugsa um línurnar dc — minna en 5% fituinnihald! ■'••.'• _ Breyttí G§ÐI yfeðanm zjegnaL SANITAS TÓMATSÓSA VELJUM ÍSLENSKT Sanitas Sanitas
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.