Morgunblaðið - 22.04.1986, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 22.04.1986, Qupperneq 17
 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL1986 17 Rætur hryðju- verkanna eftir Óla Tynes Þeir Ögmundur Jónasson, frétta- maður, og Ólafur Ragnar Grímsson, alheimsþingmaður, kalla ekki allt ömmu sína þegar þeir þurfa að hagræða staðreyndum. Ummæli þeirra um rætur hryðjuverka í Kastljósi á þriðjudagskvöld voru þó óvenju gróf, jafnvel með tilliti til þess hverjir í hlut áttu. Ögmundur hélt því fram að fjöldamorðingjarnir í Shattila- búðunum í Líbanon hefðu notið verndar Israela við ódæði sitt, „I skjóli ísraelshers," sagði hann. Ól- afur bætti svo um betur og sagði að „svokölluð hryðjuverk,“ eins og hann orðaði það, mætti rekja til þessara og annarra grimmdarverka Israela. Sannleikurinn er sá að í Shattila voru það arabar sem myrtu araba og ísraelar komu þar hvergi nærri fyrr en herdeild frá þeim stöðvaði ódæðisverkin. Þessi atburður vakti meiri skelfingu og óhug í Israel en hjá nokkrum öðrum, nema auðvitað aðstandendum fórnarlambanna. Israelar eru enda flestum þjóðum viðkvæmari fyrir fjöldamorðum á saklausu fólki. Geysileg umræða varð um þenn- an hörmungaratburð í Israel og opinber rannsókn fór fram til að kanna hvort einhver sök lægi þar í landi. Niðurstaða rannsóknar- nefndarinnar leiddi meðal annars til þess að vamarmálaráðherrann varð að segja af sér og allmörgum foringjum í hemum var vikið úr starfi. Ekki vegna þess að þeir hefðu átt þar hlut að máli, heldur vegna þess að þótt enginn hefði getað séð fyrir slíkt voðaverk hefðu þeir átt að vera betur á verði. Að halda því fram að rætur hryðjuverka megi rekja til Shattila og „annarra grimmdarverka" Isra- ela er því hrein fölsun. Jafnvel Arafat vildi frekar kenna Banda- ríkjamönnum um Shattila og voru þeir þó enn fjær en ísraelar. I þessu sama Kastljósi var Har- aldur Ólafsson, lektor, þungorður í garð Bandaríkjanna fyrir loftárás- irnar á Líbýu. Haraldur er raunar ekki einn um það, en hinsvegar eru ekki allir jafn sannfærðir um friðar- vilja austurblokkarinnar og hann virðist vera. Þegar þátttakendur vom að reyna að giska á framhaldið og hugsanlegar hliðarverkanir, kom Haraldur inná hvort hemaðarað- gerðir af þessu tagi ættu kannski að vera pólitískt stjórntæki. Hvort það yrði ef til vill viðtekin leið til að skipta um ríkisstjómir, að fara gegn þeim með vopnavaldi. Harald- ur var, skiljanlega, hneykslaður á þessum möguleika og sagði með Óli Tynes „ Að halda því fram að rætur hryðjuverkanna megi rekjatil Shattila og „annarra grimmdar- verka“ Israeia, er því hrein fölsun.“ nokkmm þjósti að þetta væri átj- ándu aldar aðferðir. Það er nú ekki allskostar rétt. Tuttugasta öldin var löngu gengin í garð þegar Sovétríkjunum mislík- aði stjórnarfarið í Ungveijalandi og mddust þangað inn með skriðdreka sína. Tuttugasta öldin var löngu gengin í garð þegar Sovétríkjunum mislíkaði stjórnarfarið í Tékkóslóv- akíu og mddust þangað inn með skriðdreka sína. Tuttugasta öldin var löngu gengin í garð þegar Sovétríkjunum mislíkaði stjóm- málaþróun í Póllandi og vom komin með skriðdreka sína að landamær- unum þegar Jamselski tókst að sannfæra þau um að hann hefði nægan friðarvilja til að beija niður Samstöðu. Og tuttugasta öldin var löngu gengin í garð þegar Sovét- ríkjunum mislíkaði stjómarfarið í Afganistan og mddust þar inn með skriðdreka sína. Enn þann dag í dag hamast Sovétríkin við að drepa og hrekja úr landi, svo milljónum skiptir, þá sem ekki aðhyllast heimsfriðarstefnu þeirra þar í landi. Þessi „stjórnsýsla" er því ekki frá átjándu öld. Hún er talsvert ástunduð í dag. En kannske Haraldi finnist hin friðelskandi Sovétríki eiga einkarétt á þessari aðferð. Það skal viðurkennt að þau hafa af henni mesta reynslu. Höfundur er blaðamaður. Styrkið og fegrið líkamann Dömur og herrar. Ný 4 vikna námskeið hefjast 28. apríl Hinir vinsælu herratímar í hádeginu. Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt megrandi æfingum. Sértím- ar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eda meira. Sértímar fyrir eldri dömur og þær sem eru slæmar í baki eda þjást at vödvabólgum. Vigtun — mæling — sturtur — gufuböð — kaffi og hinir vinsælu sólaríumlampar. Innritun og upplýsingar alla virka daga frá kl. 13—22 í síma 83295. Júdódeild Ármanns Ármúla 32. BODY FORMING Ný snyrtilína fyrir líkamann frá TBiodroqa Body Forming byggir upp, styrkir, mýkir og veitir afslöppun. Body Forming snyrtilínan samanstendur af: Nuddkrem fyrir appelsínuhúð og þurra bletti. Skrúbbkrem til að mýkja stíflaða fitukirtla, fílapensla og hreinsa upp dauð- ar húðfrumur. Styrkingarkúr fyrir bringu, brjóst og háls. Sápa fljótandi í sturtu eða í afslapp- andi karbaö. Dekraðu við sjálfa þig og veittu þér Body | Vinsamlegast sendið mér í póstkröfu Biodroaa Body Forming sett á tilboðsverði Forming-tilboðssettið frá Biodroga strax kr. 860,00... stk. + póstkröfugjald. ídag. Bankastræti 3, . Póstnr: s,aður: sími13635. 1 Póstsendum. | Tilboðið gildir til 15. marz 1986 Sjónvaivsgreiúur og útvarpsloftnet á gúúu heilúsúluverúi! LANDSSAMBAND ÍSL.RAFVERKJAKA SÖLUUMBOÐ, HÓLATORGI 2, SÍMI-.166 94 Kr
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.