Morgunblaðið - 22.04.1986, Page 24

Morgunblaðið - 22.04.1986, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL1986 Einar Agústs- son sendiherra Fæddur 23. sept. 1922 Dáinn 12. apríl 1986 Þegar ég hóf afskipti _af stjóm- málum 1961, var Einar Ágústsson sá ungur framsóknarmaður sem við litum mjög til. Forustuhæfileikar hans duldust ekki, né góðar gáfur og drengskapur. Hann varð snemma átrúnaðargoð ungra fram- sóknarmanna í Reykjavík. Svo fór og, að Einar Ágústsson reis fljótt til metorða. Hann varð borgarfulltrúi 1962 og þingmaður Reykvíkinga sumarið 1963. Einar sat á Alþingi til ársins 1979, ætíð mikilsmetinn og virtur. Einar var varaformaður Fram- sóknarflokksins 1967—1980 og tók þá mikinn þátt í flokkstarfí. Hann var ráðagóður og hafði ríkar tilfinn- ingar fyrir hugsjon samvinnu- og félagshyggju manna. Einar Ágústs- son var af sunnlenskum bændum kominn og starfaði eftir lögfræði- nám m.a. á vegum samvinnuhreyf- ingarinnar. Einar Ágústsson var utanríkis- ráðherra í ríkisstjóm Ólafs Jóhann- essonar 1971—1974 og í ríkisstjóm Geirs Hallgrímssonar 1974—1978. Á þeim sjö ámm, sem Einar gegndi starfi utanríkisráðherra, vom mörg mikilvæg mál á hans borði. Má þar nefna útfærslu fiskveiðilögsögunn- ar, fyrst í 50 sjómílur og síðan í 200 sjómílur. Einar Ágústsson átti, að sjálfsögðu, stóran þátt í þeim miklu sigmm, sem með útfærslunni unnust. I ársbyrjun 1980 varð Einar sendiherra íslands í Danmörku og gegndi því starfi til æviloka. Sem utanríkisráðherra og síðan sendiherra var Einar Ágústsson, ásamt sinni 'ágætu eiginkonu Þór- unni Sigurðardóttur, landi sínu til sóma. Með Einari Ágústssyni er geng- inn einn af bestu sonum þessa lands. Hann þekkti lífsbaráttuna og kjör fólksins bæði í dreifbýli og þéttbýli. Hann unni Island og því sem íslenskt er. Með þekkingu, rökfestu og hógværð vann hann hvers manns hylli. Ég er þakklátur fyrir þau ár, sem ég fékk að starfa með Einari Ágústssyni. Við framsóknarmenn kveðjum Einar Ágústsson með söknuði en þakklæti fyrir mikil og góð störf í þágu flokks og þjóðar. Við vottum eiginkonu hans, bömum og fjöl- skyldu einlæga samúð. Steingrímur Hermannsson Þó dagsins skundum skeið skjótt fram að nóttu, brátt hennar líður leið aðljósrióttu. Þessar hendingar í kvöldljóði skálds á fyrri öld er leit dagsljósið og átti fyrstu bernsku í Rangárþingi eins og Einar Ágústsson frá Hall- geirsey, minna oss á, hve stutt er bilið milli blíðu og éls, sem ítrekað tilefni áréttar við oss næsta oft og endranær hart aðgöngu. Einnig það, að Til hafs sól hraðar sér/ hallar út degi/eitt skeiðrúm endast hér/lífsins á vegi. Ævidagur drengsins, sem átti fyrstu sporin í Holtum, kom fyrir löngu að kvöldi, en hin fornu sannindi um skamman tíma manns á jörð eru ávallt ný og Ijóðið sígilt um skinið þar yfir, sem leið mannsins liggur, ýmist við leift- ur og skýjað loft, unz hallar út degi. Það er að vísu tíðum, að litim- ir verða daufir og aftanroðinn fölur í langri bið eftir þeirri nóttu, sem gefur manninum færi einnar eyktar að ljósri óttu hinna miklu og eilífu skila. En hitt þó oftar, er vér sjáum við lýsandi vorloftið og oss tekur sárt, því að enn er bjart og drjúgt virtist eftir á lífsins vegi. Slíkar hugsanir sækja að oss nú, þó að því sé fjarri, að hér væri aðeins tyllt tjaldinu á Landeyjasandi. Drengurinn, sem þeim fæddist Ágústi Einarssyni kaupfélagsstjóra í Hallgeirsey og konu hans Helgu kennara Jónasdóttur á haustjafn- dægrum 1922, átti þar bamshug- ans þroska og gleði við þau skugga- skil, er móðirin dó á ungu vori frá 5 ára dreng. Ljós bemskuminningin um móðurina og hinn sorgfulla missi var falleg og hljóð, helgidóm- ur í einrúmi ævinlegrar geymdar. Til bernskudaganna í Hallgeirsey, þar sem víðátta landsins liggur til meginkraftar og fegurðar eldfjalls og ísa, en ómælishaf úti fyrir sönd- unum, má einnig rekja víðsýni Einars Ágústssonar og fegurðar- skyn, sem hann efldi við mikinn bóklestur allt frá æsku. Skaphöfn hans mun hafa mótazt til hinnar fijálslyndu gerðar og ríkrar félags- hyggju við þá miklu mannaferð, sem lá til Hallgeirseyjar og kaup- félagsstjórans, síðar að Hvolsvelli, er þeir feðgar fluttust þangað með kaupfélaginu. Þau voru og einkenni félagshyggjumannsins við dreng- lund og frábæra greiðasemi og skilning á hvers manns vanda, að hann var einarður og stefnufastur, er því var að skipta og skyldan krafði skjótra ákvarðana og um viðurhlutamikii mál. Átti hann þar skammt að sækja í frændgarð á báða vegu, en almælt að trúlyndi og festa séu rík einkenni Rangæ- inga. Starfsdagur Einars Ágústssonar var fjölþættur og, að loknu laga- námi við æ vaxandi ábyrgð og trún- að innan Samvinnuhreyfingarinnar og fyrir Framsóknarflokkinn, m.a. í borgarstjóm Reykjavíkur, á Al- þingi og í hinni vandleystu stöðu utanríkisráðherra í 2 kjörtímabil. Hveijum vanda tók hann af yfirveg- un og festu hins orðfáa hygginda- manns og allri vegsemd með sæmd- arhæfi hógværðarinnar. Þessum eiginleikum hans kynntist ég nokk- uð í félagsmála- og flokksstarfi fyrr á árum, en nánast og til fyllstu aðdáunar og þakka sl. 3 ár, er ég hef verið starfsmaður hans í Kaup- mannahöfn. Hann skipaði embætti sendiherra íslands í Danmörku rúm 6 ár. Hvergi er umferð íslendinga meiri á erlendri grund en hér á landi, og þá einkum í Kaupmanna- höfn og nágrenni, fjöldi búsettra landa mikill og námsmanna. Segir þar lítt af, að því er tekur til sendi- ráðsins, en hljótt um á flesta grein sem og aðra hluti, er taka til utan- ríkisþjónustunnar. Auk þessa heyra svo 3 þjóðlönd önnur starfsvett- vangi sendiherrans í Kaupmanna- höfn, Ítalía, Tyrkland og ísrael. Umsvif hins mikla ábyrgðarstarfs eru hafín yfir alla orðræðu, en að vikið af ítrekaðri áminningu við- fangsefnanna í nákominni starfs- reynslu. Auk allrar hjálpsemi og gestrisni sendiherrans og konu hans, frú Þórunnar Sigurðardóttur, seint og snemma, er það annað sem hér skal minnzt, enda full kunnugt fjölda íslendinga í Höfn og sízt nokkur starfsleynd yfir, er til svo margra tekur, en það eru þau störf sendiherrans, sem bundin eru Húsi Jóns Sigurðssonar við Austurvegg fyrir hönd Alþingis, sem fékk húsið að gjöf fyrir 20 árum. Erillinn vegna daglegs rekstrar hússins og við- halds er mikil kvöð á manni í hárri ábyrgðarstöðu á víðum vettvangi. En hér var hvergi undan skorazt og öll erindi, hve smá og hvers- dagsleg sem þau virtust, leyst skjótt og farsællega. Var hér auðsénn félagsþroski Einars Ágústssonar, sem hann hefur rækt svo vel allt frá bemsku — ásamt með rangæsku festunni, er á greiðasta leið, en gijóti nokkru stráða, að fyrirdæmi Jóns Sigurðssonar Eigi víkja. Það er ekki á færi nema félagshyggju- manna að beita slíkri aðferð, en margreynd er hún að hollasta ráði gegn hvers konar lítilmótleik og ásælni í mannlegum skiptum, eins og í frelsisbaráttu Hafnar-íslend- inga undir merki Jóns Sigurðssonar á liðinni öld. Vildi sendiherrann á alla grein sæmd hússins sem mesta í umgengni og félagsveru — í heiðri nafns þess og minningageymd — og uppskar sem betur fer, nokkur laun erfiðis síns í þeirri samvinnu og friðsemd, sem á hefur verið og aukizt fyrir áhrif hans og stjóm. Dapurt er geð vort svo fjölda margra landa í Höfn þessar síðustu vikur vetrar. Hugsunin er háð þeirri sorg vorri, að dagur trúlynds dreng- skaparmanns og mikils vinar kom svo „skjótt fram að nóttu“. En hjálp vor kemur frá Drottni í þeirri hugg- un huggunarinnar, að „brátt hennar líður leið að ljósri óttu“. — í þeirri birtu vors og fegurðar í víðemi himneskrar sýnar sjáum vér för hans greiðast áeilífum lífsins vegi. Ágúst Sigurðsson Skyr.dilegt fráfall Einars Ágústs- sonar, sendiherra, eftir skammvinn veikindi, kom yfir vini hans og kunningja í Danmörku eins og þmma. Við höfðum áttað okkur á, að hann væri senn á fömm frá Danmörku til að taka við öðm starfi. En fáir — og líklega heldur ekki hann sjálfur — vissu hve hann var alvarlega veikur. Eftir að hafa verið utanríkisráð- herra í mörg ár vom það mikil viðbrigði fyrir Einar að verða embættismaður. En hann var fljótur að tjleinka sér fræðin og nafn hans bætist nú með sóma í hóp þeirra ólíku afbragðsmanna, sem hafa verið fulltrúar íslands í Danmörku: Sigurður Nordal, Stefán Jóh. Stef- ánsson, Gunnar Thoroddsen, Sig- urður Bjamason og Agnar Kl. Jóns- son. Þau sjö ár sem Einar var sendi- herra í Kauptnannahöfn vom ekki tími stórviðburða í samskiptum landanna. Það var hin hljóðláta önn hversdagsins sem var meginvið- fangsefnið. Og þó — hann var þátt- takandi í því þegar lokapunkturinn var settur við handritamálið. Af tilviljun vomm við báðir þá um kvöldið staddir í sænska sendiráð- inu í Kaupmannahöfn. I einni ágætra ræða hans — en ræður hans vom snjallar, því að honum lá alltaf eitthvað á hjarta — rifjaði hann upp þessa löngu deilu og benti á þýðingu þessa máls fyrir vináttu Dana og Islendinga. Við fyrstu kynni fannst sumum hann fálátur. En í danska utan- ríkisráðuneytinu, meðal danskra stjómmálaanna og á opinbemm vettvangi, skildist mönnum fljótt hve hann var heilsteyptur og sterk- ur persónuleiki þótt hann virtist fálátur og kannski eilítið feiminn hið ytra. Hann var af íslenzkum bændaættum kominn og það duldist ekki. Það var ekki við hans hæfi að skrafa og blaðra eins og Dönum er gjamt að gera. Sjaldan heyrði maður hann hlæja hjartanlega. Hann horfði og hann hugsaði áður en hann talaði. í nánum vinahóp var oft bjart bros í augum hans. Aðrir verða til að meta hlut hans í íslenzkum stjómmálum. En frá einum íslandsvini í Danmörku skal frá því sagt, við andlát hans, að á erlendri gmnd var hann Islandi góður sonur og Danmörku traustur vinur. Bent A. Koch Það em forréttindi þeirra, sem fást við fréttaskrif, að kynnast æði mörgum á víð og dreif um þjóð- félagið. Oft em það svipul kynni í önn og erli dagsins, en aðstæður breytast og leiða menn saman á ýmsum vettvangi,sem ekki verður alltaf séð fyrir. Það mun hafa verið á árinu 1966 eða þar um bil, sem ég kynntist Einari Ágústssyni fyrst. Hann var þá fulltrúi Framsóknarflokksins í borgarstjóm Reykjavíkur, en ég skrifaði borgarstjómarfréttir í Al- þýðublaðið og stæddist einhver skipti inn í borgarstjórn, sem vara- maður. Eftirtakanlegir þóttu mér þá strax þeir þættir í fari og fram- komu Einars Ágústssonar, sem ég átti þó eftir að kynnast betur síðar, prúðmennska og festa. Mér em þessar fundarsetur eftirminnilegar, einkum kannski vegna þess hve lítið skemmtilegir þessir fundir oftast vom. Þar þurftu ýmsir að halda býsna langar ræður og ekki alltaf um mikið efni. Einar Ágústsson var þó ekki einn þeirra. Hann flutti sitt mál af festu og einurð, talaði ekki langt mál, en framsetning ræðunn- ar hnitmiðuð, skýr og skilmerkileg. Þetta er minnisstætt. Þess _var ekki langt að bíða, að Einari Ágústssyni væm falin önnur og meiri trúnaðarstörf. Hann tók við embætti utanríkisráðherra á árinu 1971, en sæti hafði hann átt á Alþingi síðan 1963. Ráðherra- embættinu gegndi hann til ársins 1978 á sögulegum umbrotatímum í landhelgisbaráttu íslendinga. Það fór ekki hjá því, að fréttamaður við sjónvarpið hefði töluverð samskipti við utanríkisráðherra landsins þessi árin. Enn er það varðveitt í minn- ingunni hve þau samskipti öll vom snurðulaus af Einars hálfu. Hve vel hann tók ásókn og kvabbi hvort sem var í ráðuneyti eða heima að kveldi, og hvort sem var innanlands eða utan. Ævinlega kurteis og hlýr á hveiju sem gekk, en baráttumaður þegar það átti við og hélt þá sínum hlut fyrir hveijum sem var. í land- helgisstríðunum mæddi eðlilega mjög á utanríkisráðherra. Þar var Einar Ágústsson réttur maður á réttum stað og stundu. Oftar en einu sinni hlýddi ég á hann flytja mál íslensku þjóðarinnar á þingi Sameinuðu þjðanna og í Norður- landaráði. Allt var það okkur til sæmdar í hvívetna. Enn lágu leiðir okkar saman á Alþingi um skeið. Þar áttu báðir sæti í íslandsdeild Norðurlanda- ráðs. Svo sem oft gerist baksviðs í stjómmálum greindi fulltrúa stjóm- ar og stjómarandstöðu nokkuð á um verkaskiptingu innan ráðsins. Var þar úr vöndu að ráða og lausn ekki í sjónmáli. Einar Ágústsson hjó á þann hnút. Þá sannreyndi ég að hann var drengskaparmaður. Eftir að Einar Ágústsson tók við starfí sendiherra Islands í Kaup- mannahöfn stijáluðust fundir. Þó var það svo, að ef stundarkorn var aflögu í Norðurlandaráðsstússi í Höfn sætti ég færis að reka nefíð í gættina á skrifstofu hans við Dantes Plads — síðast nú í vetur. Hann tók slíkum töfum ævinlega af eðlislægri ljúfmennsku. Síðast hittumst við þá er Norðurlandaráð þingaði í Kaupmannahöfn í byijun mars. Við höfðum gert með okkur það samkomulag, að ég aflaði nokkurra fróðleiksmola um þær rætur er við áttum saman að rekja í Rangárþingi, og hefði með mér á Hafnarslóð við hentugleika. Það verður einhver bið á því að við rekjum þá frændsemi. Kvöldstund í íslendingahópi í Höfn þann sjöunda mars síðastlið- inn var ánægjuleg og eftirminnileg. Þau hjónin Þórunn og Einar settu svip á þá samverustund, sem öllum viðstöddum verður ógleymanleg. Nú þegar Einar Ágústsson er fallinn frá langt fyrir aldur fram sækja þessar minningar á hugann — minningar um einstakt prúð- menni og heiðursmann, sem gott var að starfa með, mann sem vann þjóð sinni vel og af heilindum í hvívetna. Það verður ævinlega bjart yfir minningunni um Einar Ágústs- son. Konu hans Þórunni, börnum og afkomendum sendum við Eygló innilegar samúðarkveðjur. Megi sá er öllu ræður veita þeim styrk á erfiðum stundum. Eiður Guðnason Einar Ágústsson, sendiherra í Kaupmannahöfn, lést á sjúkrahúsi þar í borg aðfaranótt laugardagsins 12. apríl sl. á 64. aldursári. Með Einari er genginn merkur stjómmála- og samvinnumaður sem lætur eftir sig heillarík spor fyrir land og þjóð. Einar fæddist 23. september 1922 að Hallgeirsey í Austur- Landeyjum, Rangárvallasýslu. For- eldrar hans voru Ágúst Einarsson kaupfélagsstjóri þar og kona hans, Helga Jónasdóttir, kennari frá Reynifelli í Rangárvallahreppi. Þremur árum áður en Einar fæddist var stofnað kaupfélag er hafði aðsetur í Hallgeirsey við Landeyjarsand. Bar félagið nafnið Kaupfélag Hallgeirseyjar og náði til flestra heimila í Landeyjum, Þykkvabæ og undir Eyjafjöllum vestanverðum. Hafði það útibú í Þykkvabænum og undir Eyjafjöll- um. Vörum 'var skipað upp við Hallgeirsey og losnuðu menn þá við að bijótast langa leið yfír óbrúuð vötn til Eyrarbakka og Reykjavíkur eins og áður var. Ágúst Einarsson, faðir Einars, fæddist og alinn upp í Miðey í Austur-Landeyjum, einu af stærri og þekktari heimilum sýslunnar. Einar faðir hans hafði verið einn af héraðshöfðingjum Rangæinga og studdi stofnun kaupfélagsins dyggilega. Var Ágúst sonur hans aðstoðarmaður hjá Guðbrandi Magnússyni (síðar forstjóra ÁTVR), fyrsta kaupfélagsstjóran- um. Hann stundaði nám í Sam- vinnuskólanum 1919—1921 og er ráðinn kaupfélagsstjóri 1928, þegar Guðbrandur Magnússon flytur til Reykjavíkur. Kom í hlut Ágústar að flytja aðsetur kaupfélagsins úr Landeyjum að Hvolsvelli árið 1933, en útibú hafði verið sett þar upp 1930. Ekki er ofsagt, að Einar Ágústs- son hafí verið alinn upp á miklu samvinnuheimili, enda var sam- vinnuhugsjónin honum rík í hjarta. Hann elst upp á söguslóðum Njálu, fékk oft að líta sól á sumarvegi og silfurbláan Eyjafjallatind. Umgjörð æskustöðvanna var stórkostleg, fjallasýn óvíða fegurri. í austri gnæfði Eyjaíjallajökull, í norðri Tindfjöllin með blásvörtum feldi og við norður rísa Heklutindar háir. Stórkostlegt landslag, sem Jónas Hallgrímsson lýsir svo skáldlega vel í kvæðinu Gunnarshólmi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.