Morgunblaðið - 22.04.1986, Side 51

Morgunblaðið - 22.04.1986, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL1986 51 þessar tvær dætur sínar. Þótt íbúðin væri ekki stór er hjartarúmið þess meira. í Skólagerði 13 hafa margir gist og fengið góðan bita. Aldrei var svo margt að ekki væri hægt að bæta við í gistingu og að pláss væri við matarborðið. Mín ótjúfanlega vinátta við Dagbjart og Emu varð þegar ég kynntist núverandi eiginkonu minni, sem þau reyndust svo vel. Alltaf tilbúin að greiða fyrir öllu til þess að við gætum hist, ég austur á landi en hún í Reykjavík, enda litu þau á Auðun son Boggu sem hálfgerðan fósturson og reyndust honum mjög vel. Þegar Dagbjartur og Erna tilkynntu komu sína á Egilsstaði var kátt á okkar heimili. Dagbjartur var að koma, skemmti- legasti maðurinn sem börnin þekktu. Dagbjartur var meiriháttar í öll- um veislum og samkvæmum, og var hrókur alls fagnaðar, skemmti- legur, sagði _vel frá og húmoristi hinn mesti. Ég tel að hann hefði orðið góður leikari ef hann hefði tileinkað sér það starf. Þetta lá allt svolétt fyrir honum. Arið 1978 fórum við saman í Miðjarðarhafsferð með ferðahópn- um Eddu. Það voru um áttatíu manns. Myndaðist þá góður kunn- ingjahópur sem farið hefur víða í ýmis ferðalög bæði innanlands og utan. í þessum hóp varð Dagbjartur einn af vinsælustu mönnum fyrir skemmtilegheit og drengskap og veit ég að hans er saknað og hópur- inn er ekki sá sami á eftir sem áður. Það var fylgst með veikindum þessa góða drengs og margar hlýjar kveðjur bárust honum og til Emu frá ferðafélögum. Eitt sinn fórum við nokkur hjón um Fljótsdalshérað, komum við að samkomuhúsi. Hópurinn fór út til að athuga hvort skemmtilegt væri þama inni á dansleiknum. Konun- um þótti þetta ekki álitlegt og karlamir eitthvað óákveðnir þangað til Dagbjartur kemur til okkar karlanna og segir að stelpumar langi að fara inn. Þá svara þeir: Úr því að stelpumar langar að fara þá förum við inn. Fór hann þá til kvennanna og segir að strákana langi að fara inn og svara þær því til, úr því að strákana langar að fara inn, þá skyldu þær fara. Þetta tók Dagbjartur upp hjá sjálfum sér til að leysa málin. Þetta er eitt dæmi af mörgum hvað hann var skemmtilegur að koma ýmsum málum fram á skemmtilegan hátt. Þegar inn var komið leysti Dag- bjartur og vinur okkar, Jóhann, hljómsveitina af og spiluðu lengi fram eftir nóttu. Var okkur öllum í hópnum boðið á sveitaheimili upp á góðgerðir. Sögðu húsbændur að svo skemmtilegt fólk hefðu þau ekki hitt áður í sinni fjörutíu ára búskapartíð. Við hjónin eigum margar góðar minningar með hjónunum í Skála- gerði 13, sem skuggi fellur aldrei á. Þær minningar er ekki hægt að festa á blað. Erna á um sárt að binda. Góður lífsförunautur er horf- inn til hæsta höfuðsmiðs sem öllu ræður og verður tekið vel á móti honum til æðra lífs. Ema var við sjúkrabeð mannsins síns öilum stundum, sem hún átti frí frá störfum og hlúði að honum eftir bestu getu og fylgdist með að hann skorti ekkert, sem mannlegt vald gat gert. Hún virtist svo sterk í þjáningum sínum en ég veit að .það voru ekki allir dagar sólskins- dagar. Hún var viðstödd andlát Dæja ásamt yngri dótturinni, Emu Dagbjörtu. Ema mín, við hjónin vottum þér, bömum þínum, barnabörnum, Ágústu og Guðlaugi, okkar dýpstu samúðarkveðjur og biðjum hann sem öllu ræður að gefa ykkur styrk í sorg ykkar. Bogga og Björgvin t Sambýlismaður minn og faðir okkar, SIGURBJÖRN ÁRNASON frá Landakoti, Sandgerði, lést í Borgarspítalanum þann 17. apríl. Útförin veröur auglýst síðar. Kornelia Jóhannsdóttir, Arndis Sigurbjörnsdóttir, Sigrún Sigurbjörnsdóttir, Valdlmar Sigurbjörnsson. t Eiginkona min, móðirokkar, tengdamóöir, amma og langamma, HALLFRÍÐUR FRIÐRIKA JÓHANNESDÓTTIR, andaðist á Hrafnistu, Reykjavík, hinn 30. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Kristmar Ólafsson, Kristfríður Kristmars, Eyjólfur Ágústsson, Haraldur Niels Kristmarsson, Anna Jóna Kristjánsdóttir, börn og barnabörn. t Eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SKÚLI MAGNÚSSON, kennari, Meistaravöllum 13, andaðist í Landspítalanum 15. þ.m. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 25. apríl kl. 15.00. Þorbjörg Pálsdóttir, Magnús Skúlason, Skúli Skúlason, Margrét Skúladóttir, Halldór Ármannsson, Páll Skúlason, Auður Birgisdóttir, Þórgunnur Skúladóttir, Hörður Halldórsson og barnabörn. t Þökkum auösýnda samúð við andlát og útför móður okkar, GEIRRÚNAR ÍVARSDÓTTUR. Dætur hinnar látnu og fjölskyldur þeirra. Eiginmaður minn, t ERIK SÖDRIN, lést 16. april. Sigrún Eyjólfsdóttir Södrin, Östersund, Svíþjóð. Birting afmælis- og minningargreina Morgvnblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Megin- regla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrit- uð og með góðu línubili. MINNI FYRIRHÖFN - MEIRI YFIRSÝN Yfir60% af seldum afgreiðslukössum á íslandi á síðasta ári voru af gerðinni OMRON. OMRON afgreiðslukassarnirfást í yfir 15 mismunandi gerðum, allt frá einföldum kössum upp í fullkomnar tölvutengdar afgreiðslusamstæður. Þeir eru því sniðnir fyrir hvers konar verslunar- rekstur, eru búnir sjálfvirkri tölvuútskrift, veita möguleika á stækkun og stuðla að meiri yfirsýn og markvissari rekstri. Þess vegna finnurðu OMRON afgreiðslukassa í íslenskum sjoppum, bakaríum, sérverslunum, stórmörkuðum, veitingahúsum, sundlaugum - já, víðar en nokkra aðra afgreiðslukassa. SKRIFSTOFUVÉLAR H.F. OMRON AFGREIÐSLUKASSAR VERÐ FRÁ KR. 19.900.- Hverfisgötu 33 - Sími 91 -20560 Helstu söluaðilar: Bókaversl. JónasarTómassonar Isafirði • Bókaversl. Þórarins Stefánssonar Húsavík • Bókval Akureyri • E.Th. Mathiesen Hafnarfirði • Fjölritun s.f. Egilsstöðum • Kaupfél. Ámesinga h.f. Selfossi • Kjarni Vestmannaeyjum • Penninn Hallarmúla

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.