Morgunblaðið - 24.04.1986, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986
5
Reynt að gera
eftirKjartan
Lárusson
Hr. ritstjóri.
Starfsfólki Ferðaskrifstofu ríkis-
ins var illa brugðið er það sá Morg-
unblaðið í morgun með risafyrir-
sögn af dómsúrskurði í máli farþega
gegn FRÍ.
Ekki vill undirritaður á nokkum
hátt reyna að ritstýra þessum
mikilvæga fjölmiðli, sem stærsta
blað þjóðarinnar er. Hafði þó talið
að ritstjórn þess myndi hafa meiri
hliðsjón af einni meginsiðareglu
Blaðamannafélags íslands, sem er
að leitast við að skaða engan í
umfjöllun sinni um menn og mál-
efni.
Á síðastliðnu vori bauð FRÍ ellilíf-
eyrisþegum 2ja vikna ferð til Fær-
eyja og Noregs með Norrænu ásamt
gistingu í fyrsta flokks hótelum og
fæði þar að hluta, auk skoðunar-
ferða um Noreg. Verðið var kr.
20.000.
Viðtökur voru ágætar og í um-
rædda ferð fóru um 15 farþegar.
Viðkomandi farþegi kvartaði frá
upphafi ferðar og var allt gert til
að gera henni til hæfis, eins og
reyndar öllum þeim tugþúsundum
farþega, íslenskum sem erlendum,
sem á einhvem hátt hafa ferðast á
vegum FRÍ.
Fljótlega eftir heimkomu krafðist
viðkomandi farþegi 50% endur-
greiðslu af kostnaði ferðarinnar,
eðaum kr. 10.000.
FRÍ taldi sig ekki þá, né nokkum
tímann hafa boðið „svikna vöru“
og engar hliðstæðar kvartanir hafa
borist frá öðmm ellilífeyrisþegum
sem tóku þessu ferðatilboði okkar.
Noregshluti ferðarinnar var á
vegum færeysks aðila sem FRI
hefur aðeins reynt af góðu. Sá aðili
telur sig ekki hafa reynt vandamál
í málfarssamskiptum milli íslend-
inga og Færeyinga og hefur hann
ítrekað að um frambærilega farar-
stjóm hafí verið að ræða, þrátt fyrir
að leiðsögumaður og bílstjóri hafí
verið færeyskur.
Vegna umræddrar kvörtunar var
reynt að ná sambandi við alla aðra
farþega í ferðinni til að leita álits
á réttmæti umræddrar kvörtunar.
í heild fengum við þakklát viðbrögð
farþega, en ákváðum eigi að síður
Morgunblaðið/Árai Sœberg
Eins og sjá má eru glerþræðimir mun fyrirferðarminni en gömlu
koparþræðirnar, gamla kerfið geturflutt 3.000 talrásir en nýja
kerfið 24.000.
Ný tækni hjá Pósti og síma:
Glerþræðir í
stað kopars
Póst og símamálastofnunin
hefur tekið nýja tækni í þjónustu
sína. Á þriðjudaginn fóru í fyrsta
sinn fram sendingar á tveim litl-
um glerþráðum milli Landsíma-
hússins og símstöðvarinnar í
Múlahverfi. í sumar er fyrir-
hugað að leysa gömlu kopar-
þræðina alveg af hólmi milli sím-
stöðvanna.
„Þetta er fyrsta kerfíð af mörg-
um sem við eigum eftir að setja
upp á þessu ári,“ sagði Jón Kr.
Valdimarsson deildartæknifræðing-
ur Pósts og síma. „Við munum
einnig leggja þetta kerfí frá Reykja-
vík til Hvolsvallar á þessu ári.
Flutningsgeta glerþráðanna er mun
meiri en koparþráðanna gömlu. Með
tveimur glerþráðum er hægt að
flytja 2.000 talrásir með núverandi
tækjabúnaði, en hægt er að auka
það í 8.000 með nýjum tækjakosti,"
Á strengnum sem sýndur er á
meðfylgjandi mynd er hægt að
flytja 24 þúsund talrásir eða 48
sjónvarpsrásir. „Miklu máli skiptir
einnig að með nýju glerþráðunum
er hægt að flytja boð 60 kílómetra
vegalengd, en magnara þarf á
1500-2000 metra millibili á gömlu
koparþræðina," sagði Jón.
Hveragerði
Edenborg opnuð
TÍVOLÍIÐ í Hveragerði, Eden- borgar. Garðurinn hefur verið bætt-
borg, verður opnað í dag, sumar- ur til muna frá því sem var í fyrra.
daginn fyrsta, kl. 14.00 með Umhverfi hefur verið fegrað með
lúðrablæstri og söng. Auk þess steinhellum og gróðri. Veitingahús,
verður um 2.000 blöðrum sleppt sem rúmar 170 manns í sæti, verður
og Mikki mús verður á svæðinu. til staðar og um 60 metrar af skot-
Þetta er aunað bökkum bætast við.
öllum tíl geðs
að bjóða öllum þátttakendum gist-
ingu fyrir tvo í tvær nætur á Eddu-
hóteli ásamt morgunverði, til að
ítreka viðskiptavelvild FRÍ.
Dómurinn telur, að stefnanda
beri ca 30% afsláttur vegna fær-
eysks leiðsögumanns, sem reyndar
var bílstjóri líka, og stíga í skipi.
En þess er þar ekki getið að að
sjálfsögðu er lyfta í skipinu fyrir
farangur og þá farþega sem þess
óska.
Við höfum í dag ákveðið að senda
öllum þátttakendum í þessari ferð
kr. 6.650.- til viðbótar vonandi
ánægjulegri dvöl á Eddu-hóteli sl.
sumar.
Þannig er nú 4 dálka „stórmálið"
á baksíðu Morgunblaðsins í dag.
Við starfsmenn Ferðaskrifstofu
ríkisins hörmum að ekki skyldi
takast að gera einum farþega til
geðs, en fögnum því að skorið hefur
verið úr ágreiningi.
Úrskurðurinn mun fyrst og
fremst brýna okkur til að vanda
ávallt sem fyrr og reyndar enn betur
þjónustuna við viðskiptamenn FRÍ.
Morgunblaðinu óskum við far-
sældar í framtíðarskrifum um menn
og málefni.
Við bendum ritstjórn á, að við
vorum til viðtals í allan gærdag ef
hún hefði talið ástæðu til að leita
afstöðu hins aðilans í „stórfrétt-
inni“.
Við þökkum birtinguna.
Höfundur er forstjóri Ferðaskrif-
stofu ríkisins.
Aths. ritstj.
Mikill fjöldi íslendinga fer í
sumarleyfisferðir til útlanda ár
hvert á vegum ferðaskrifstofa. Á
bréfum, sem dagblöðum berast frá
Íesendum, má sjá, að stundum er
þjónusta einstakra ferðaskrifstofa
ófullnægjandi að mati sumra við-
skiptavina.
Dómur sá, sem Morgunblaðið
sagði frá í gær, mun eftir því sem
blaðið bezt veit, fyrsti dómur, þar
sem ferðaskrifstofa er dæmd til
þess að bæta viðskiptavini upp það
sem miður hefur farið í slíkri ferð.
Þar sem dómur þessi snertir hags-
muni mikils fjölda fólks telur Morg-
unblaðið hann verulega frétt og
staðsetning fréttarinnar í samræmi
við það mat.
Kjartan Lárusson þarf ekki að
upplýsa Morgunblaðið um siðaregl-
ur Blaðamannafélags íslands.
Við fögnum
sumri
grillveislu!
í Mjóddinni á morgun frá kl. 16
þar bjóðum við grillaðar pylsur
og gefum bömunum íspinna og gos.
Skemmtilega gimilegur
í Mjóddinni
Þú færð
hvergi meira
irval af ávöxtum>
og férskuj|Í£
grænmeti!
\Wúrval af grillmat
Xl jl' - steikur og
/V pinnar - nautakjöt
0 \ og svínakjöt
23 Opið til kl. 20
í Mjóddinni á morgun
en til kl. 19 í
ÍÉSfiifjÍAsX Austurstræti.
AUSTURSTR/TT! 17 - MJÓDDINNI