Morgunblaðið - 24.04.1986, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 24.04.1986, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986 Tungl- diskar Skjótt skipast veður í henni veröld. í október 1957 skaust fyrsta gervitunglið á braut um- hverfís jörðu; Spútnikinn marg- frægi. Ég man þá stund vel er ég ók ásamt föður mínum inní sveitina heima. Yfír háum fjöllunum gnæfði svartur himinninn skrýddur glamp- andi stjömunum. Póbedan nemur staðar og við stígum út og þá siglir yfír Fannardalsjökul ný stjama gerð af mannahöndum. I dag hring- sóla yfír 4000 spútnikar um jörðu og fýrir skömmu las ég í blaði minnar heimasveitar Austurlandi á Neskaupstað að þrír athafnamenn þar eystra þeir Kári Hilmarsson rafeindavirki, Óskar Axelsson raf- eindavirki og Þórður Ó. Guðmunds- son raféindatæknifræðingur hefðu fest kaup á „tungldiski" er sogaði til sín allt að 12 rásir frá evrópskum gervihnetti. Segja sjónarvottar mér að til þessa gervihnattar sjáist oft á tíðum miklu betur en íslenska sjónvarpsins. Samkvæmt hinum kúnstugu reglugerðarákvæðum nýju útvarpslaganna mega þeir fé- lagar senda ótextað efni til allt að 36 notenda. Skilst mér að þeir hafí í hyggju að senda í framtíðinni efni frá fleiri sjónvarpshnöttum um þráð til sveitunga minna. Ný sjónvarps- stöð er sum sé í burðarliðnum á Norðfírði. Ný viÖhorf Mér fínnst ástæða til að vekja hér athygli á þessu framtaki hinna austfírsku athafnamanna, því ég tel að það lýsti býsna vel þeirri fjöl- miðlabyltingu er nú sækir að ís- landsströndum. Þannig er háttað á Austfjörðum að þeir liggja vel við Qarskiptum frá Evrópu. Er lítill vandi með sæmilegu loftneti að fanga allar helstu útvarpsstöðvar Evrópu svo sem Radio Luxem- bourg, BBC og jafnvel ýmsar sjó- ræningjastöðvar. Norðfírðingar voru þannig í fjarskiptalegu tilliti löngum í mun nánara sambandi við meginland Evrópu en til dæmis íbú- ar Stór-Reykjavíkursvæðisins. Hins vegar áttu menn gjaman í hinu mesta basli eystra með Útvarp Reykjavík. Ný loftnet Fjölmiðlabyltingin er þannig máski ekki eins gagnger og menn láta í veðri vaka. Hið eina sem hefír breyst er tæknin. Þannig geta nú íbúar í þröngum firði sem er varðað- ur af hæsta fjallvegi íslands, horft á Qölmargar evrópskar sjónvarps- stöðvar, í krafti disks er spannar 1 og V2 metra í þvermál. Fyrir nokkr- um áratugum hengdi þetta sama fólk víra á milli húsa og þá hljómuðu fjölmargar evrópskar útvarpsstöðv- ar í viðtækinu. Ég minnist þess ekki að nokkur maður hafí minnst á það einu orði að íslensk tunga væri í hættu á Austfjörðum þótt þar hljómuðu úr viðtækjum stund- um daga og nætur erlendar þjóð- tungur. Miklu fremur þráði fólkið að heyra ástkæra ylhýra málið sitt í gegnum suðið og gnýinn og rússn- eskuna er smaug alltaf við og við í eyrun. Er ekki annars gleðilegt til þess að hugsa lesendur góðir að fólk er býr í þröngum fírði, njóti ekki síður nálægðar við nafla §öl- miðlaheimsins en hinir er búa innan borgarmarka og að þeir sjái með berum augum það sem þeir hafa áður hlerað? Ólafur M. Jóhannesson ÚT V ARP/SJÓNVARP gefur þeim hjónum sjónina á ný en um leið sviptir hann þau sjálfsblekkingu þeirri sem gert hefur þeim lífíð bærilegt og viðbrögð þeirra verða á annan veg en menn ætluðu. Leikendur eru Helgi Skúlason, Þóra Friðriks- dóttir, Sigurður Karlsson, Tinna Gunnlaugsdóttir, Róbert Amfinnsson, Lilja Þórisdóttir, Pálmi Gests- son, Edda Heiðrún Back- mann og Jóhann Sigurðar- son. Leikritið var áður flutt í útvarpi árið 1984. Fimmtudagsleikritið: Brunnur dýrlinganna ■■■■ í kvöld verður O A 00 flutt leikritið Brunnur dýrl- inganna eftir írska leikrita- höfundinn John M. Synge. þýðinguna gerði Geir Kristjánsson. Leikstjóri er Þorsteinn Gunnarsson. Leikurinn gerist í af- skekktu fjallahéraði á Ír- landi fyrir meira en hundr- að árum. Mary og Martin Doul eru blind hjón sem draga fram lífið á ölmusu- gjöfum fólksins í héraðinu. Dag nokkum birtist föru- munkur nokkur sem fólkið hefur tekið í dýrlingatölu vegna þess að honum hefur verið gefínn máttur til að lækna blindu með helgu vatni úr bmnni dýrling- anna sem er á eyju úti fyrir ströndinni. Dýrlingurinn Sumargleði Ríkisútvarpsins ■■■■ Sumargleði -| a 50 Ríkisútvarps- 14— ins verður á dagskrá á rás eitt eftir hádegi í dag. Þá sér Ævar Kjartansson um að útvarpa efni í tali og tónum frá fólki úr öllum landsfjórðungum í tilefni sumarkomunn- ^r, meðal annars frá Isafirði, Egilsstöðum, Akureyri og Selfossi að ógleymdri Skúlagötu 4 í Keykjavík. Þorsteinn Gunnarsson Þóra Friðriksdóttir Helgi Skúlason Grætur með öðru, hlær með hinu: * Arni Tryggvason leikari syngur og segir frá ■■■■ í kvöld er á 00 20 dagskrá út- Ciíá~~~ varpsins á rás eitt þáttur tileinkaður Áma Tryggvasyni leikara, Græt- ur með öðm, hlær með hinu, og er það Stefán Jökulsson sem tók saman efni þáttarins. í fyrravetur hélt Ámi upp á 30 ára afmæli sitt sem skemmti- kraftur með því að efna til miðnæturskemmtana í Austurbæjarbíói. Útvarps- menn hljóðrituðu þar skemmtiefni og munu hlustendur heyra hluta af því í þættinum. Auk þess segir Ámi frá starfí sínu Ámi Tryggvason og syngur — bæði í gamni og alvöm. ÚTVARP FIMMTUDAGUR 24. apríl Sumardagurinn fyrsti 8.00 Sumri heilsað a. Ávarp formanns útvarps- ráðs, Ingu Jónu Þórðardótt- ur. b. Sumarkomuljóð eftir Matthías Jochumsson Herdís Þorvaldsdóttir les. 8.10 Fréttir. Dagskrá. 8.1 B Veðurfregnir 8.20 Vor- og sumarlög sung- in og leikin. 9.00 Fréttir 9.05 Morgunstund barn- anna: „Eyjan hans múmín- pabba" eftirTove Jansson Steinunn Briem þýddi. Kol- brún Pétursdóttir les (8). 9.20 Morguntónleikar. Sinfónía nr. 1 í B-dúr op. 38 „Vorhljómkviöan" eftir Robert Schumann. Nýja Fíl- harmoníusveitin í Lundún- um leikur; Otto Klemperer stjórnar. 10.00 Fréttir 10.10 Veðurfregnir. 10.25 Lesið úr forystugreinum dagblaðanna. 10.35 „Vorsónatan" Fiðlusónata nr. 5 í F-dúr op. 24 eftir Ludwig van Beet- hoven. David Oistrakh leikur á fiðlu og Lev Oborin á píanó. 11.00 Skátaguösþjónusta í Akraneskirkju Prestur: Séra Björn Jóns- son. Orgelleikari: Jón Ólafur Sig- urösson. Hádegistónleikar 12.10 Dagskrá. Tilkynningar 12.20 Fréttir 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 14.00 Miödegissagan: „Skáldallf í Reykjavík" eftir Jón Óskar. Höfundur les aðra bók: „Hernámsára- skáld" (8). 14.30 Sinfóniuhljómsveit ís- lands leikur visnalög eftir islensk tónskáld; Páll P. Pálsson stjórnar. 14.50 Sumargleði Rikisút- varpsins Fólk úr öllum landsfjóröung- um leggur til efni í mæltu máli, söng og hljóðfæraleik. Ævar Kjartansson tengir saman dagskrána. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Tónlist tveggja kyn- slóða Sigurður Einarsson sér um þáttinn. 17.00 Barnaútvarpið Stjórnandi: Kristín Helga- dóttir. 17.40 Listagrip. Þáttur um list- ir og menningarmál. Um- sjón: Sigrún Björnsdóttir. Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá 19.00 Fréttir. 19.15 Ádöfinni Umsjónarmaður Karl Sig- tryggsson. 19.25 Tuskutigrisdýrið Lúkas — 4.og5.þáttur (Tygtigeren Lukas) Finnskur barnamyndaflokk- ur í þrettán þáttum um ævintýri tuskudýrs sem strýkuraöheiman. Þýðandi Jóhanna Jóhanns- dóttir. (Nordvision — Finnska sjón- varpiö) 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Unglingarnir i frumskóg- inum Umsjónarmaður Jón Gúst- afsson. Stjórn upptöku Gunnlaugur Jónasson. 19.40 Tilkynningar. 19.50 Daglegtmál Sigurður G. Tómasson flytur þáttinn. 20.00 Leikrit: „Brunnur dýrl- inganna"' eftir John M. Synge Þýðandi: Geir Kristjánsson. Leikstjóri: Þorsteinn Gunn- arsson. Leikendur: Helgi Skúlason, Þóra Friðriksdóttir, Sigurður Karlsson, Tinna Gunnlaugs- dóttir, Lilja Þórisdóttir, Ró- bert Arnfinnsson, Edda Heiðrún Backman, Jóhann Siguröarson og Pálmi Gestsson. (Áðurútvarpað 1984). (Leikritið verður endurtekið nk. laugardagskvöld kl. 20.25). 21.35 Michael John Clarke syngur Ijóðalög Soffia Guðmundsdóttir leik- urá píanó. (Hljóðritað á Akureyri 1983). SJÓNVARP FÖSTUDAGUR 25. apríl 21.10 Söngvakeppni sjón- varpsstöðva í Evrópu 1986 Lögin í keppninni — Þriðji þáttur írland, Belgía, Vestur- Þýskaland, Kýpur og Aust- urriki. Kynnir Þorgeir Ást- valdsson. 21.25Þingsjá Umsjónarmaður Helgi E. Helgason. 21.40 Kastljós Þáttur um innlend málefni. Umsjónarmaður Einar Örn Stefánsson. 22.15 Ságamli (Der Alte) 5. Konan sem hvarf 22.00 Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veöurfregnir. 22.30 Grætur með öðru, hlær með hinu Árni Tryggvason leikari syngur og segir frá. Stefán Jökulsson tók saman. 23.00 Túlkun ftónlist Rögnvaldur Sigurjónsson sér um þáttinn. 24.00 Fréttir. Dagskrárfok. FIMMTUDAGUR 24. apríl 10.00 Morgunþáttur Þýskur sakamálamynda- flokkur í fimmtán þáttum. Aöalhlutverk: Siegfried Lowitz. Þýðandi Kristrún Þórðar- dóttir. 23.15 Seinni fréttir 23.20 Að losna við lík (Dödspolare) Sænsk bíómynd frá 1985. Leikstjóri Mats Arehn. Aðalhlutverk: Gösta Ekman og Sten Ljunggren. Tveir gamlir vinir eiga sam- an kvöldstund ásamt fleira fólki í íbúö annars þeirra. Að morgni sitja þeir uppi með konulík og vilja allt tll vinna að losna úr þessari óskiljanlegu og afleitu klípu. Þýðandi Margrét Jónsdóttir. 00.50 Dagskrárlok Stjórnendur: Ásgeir Tómas- son og Kristján Sigurjóns- son. 12.00 Hlé 14.00 Spjallog spil Stjórnandi: Ásta R. Jóhann- esdóttir. 15.00 Ótroðnar slóðir Halldór Lárusson og Andri Már Ingólfsson stjórna þætti um kristilega popp- tónlist. 16.00 i gegnum tiðina Þáttur um íslenska dægur- tónlist í umsjá Jóns Ólafs- sonar. 17.00 Gullöldin Vignir Sveinsson kynnir lög frá sjöunda áratugnum. 18.00 Hlé 20.00 Vinsældalisti hlustenda rásartvö Páll Þorsteinsson kynnir tíu vinsælustu lög vikunnar. 21.00 Gestagangur hjá Ragnheiði Daviösdóttur. Gestur hennar er Pétur Einarsson flugmálastjóri. 22.00 Rökkurtónar Stjórnandi: Svavar Gests. 23.00 Þrautakóngur Spurningaleikur i umsjá Jón- atans Garðarssonar og Gunnlaugs Sigfússonar. 24.00 Dagskráriok. Fréttir eru sagöar í þrjár mínútur kl. 11.00, 15.00, 16.00 og 17.00. SVÆÐISÚTVÖRP REYKJAVÍK 17.03—18.00 Svæðisútvarp fyrir Reykjavík og nágrenni — FM 90,1 MHz. AKUREYRI 17.03—18.30 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni — FM 96,5 MHz.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.