Morgunblaðið - 24.04.1986, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986
Landkynning í Minneapolis í Bandaríkjunum árið 1982 á „Scandinavia Today“.
„Gamlir Fóstbræður" á æfingu.
Karlakórinn Fóstbræður
heldur upp á 70 ára
afmæli sitt í ár. Af
því tilefni heldur kór-
inn tónleika í dag, sumardaginn
fyrsta, og aðra á nk. laugardag.
Báðir hefjast þeir kl. 15.00. Tón-
leikarnir verða með nokkuð nýst-
árlegu sniði vegna tímamótanna
en þeim er ætlað að sýna í hnot-
skurn þá margvíslegu tónlista-
riðkun, sem kórmenn hafa lagt
stund á. Auk hins starfandi kórs
kemur fram kór gamalla Fóst-
bræðra, sem starfar af mikilli
grósku. Fjórtán Fóstbræður láta
til sín heyra, en þeir komu fyrst
fram á sjónarsviðið árið 1963, og
siðast en ekki síst koma Átta Fóst-
bræður fram, sem er tvöfaldur
kvartett innan raða kórsins og
sungið hefur á samkomum kórsins
og á ýmsum skemmtunum og árs-
hátíðum i Reykjavík sl. tvö ár.
Óhætt er að segja að það sé söng-
gleðin sem dragi þá Fóstbræður
saman þrátt fyrir að sumir telji
karlakóra úrelt fyrirbæri. Þeir félag-
ar voru hinsvegar ekkert á þeim
buxunum að gefast upp þó að karla-
kórum á landinu hafí fækkað um
helming á síðustu 20 til 30 árum,
er blaðamaður ræddi við þá í vikunni.
„Við syngjum áfram sem karlakór
en það kemur vel til greina að breyta
um stíl, t.d. að klæða dægurlögin í
karlakórabúning. Ef fólk vill heyra
slíkar útsetningar, munum við auð-
vitað verða við þeim óskum. Það lifir
ekkert félag til lengdar ef það nýtur
engra vinsælda," sagði Skúli Möller,
formaður kórsins. Guðni Guðmunds-
son, formaður gamalla Fóstbræðra,
sagði að ekki væri á stefnuskránni
hjá þeim bræðrum að fara að kyrja
dægurlögin. „Við hyggjumst syngja
áfram gömlu, góðu tröllakarlakóra-
verkin hvað sem tautar og raular,"
sagði Guðni.
Karlakór KFUM
Séra Friðrik Friðriksson kom heim
frá Norðurlöndunum með KFUM í
farangrinum en kórstarf var algengt
í því starfí hjá frændum vorum.
Óformlega hófst kórstarfíð árið
1911, en í nóvember 1916 leituðu
nokkrir söngfélagar úr karlakór
KFUM til Jóns Halldórssonar banka-
ritara hjá Landsbanka Islands til að
taka að sér stjóm kórsins og var
hann þá formlega stofnaður sem
Karlakór KFUM og söng undir því
nafni allt til ársins 1936. Stofnendur
teljast þrír, þeir Haliur Þorleifsson,
Vigfús Guðbrandsson og Jón Guð-
Karlakórinn
Fóstbræður 7 0 ára
Afmælistónleikar í dag o g laugardag
l. .1
r J
j *
Núverandi „gamlir“ og „nýir“ kórmeðlimir á samæfingu fyrir afmælistónleikana.
mundsson. Árið 1936 þóttu tengslin
orðin lítil á milli karlakórsins og
KFUM og var því brugðið á það ráð
að gefa kómum nýtt nafn. Fóst-
bræðraheitið var ekki langt undan
þar sem stjómandinn, Jón Halldórs-
son og bróðir hans, Pétur, sem var
kórmeðlimur, höfðu starfað í kvartett
nokkrum árum áður sem hét því
sama nafni.
Um 1.500 styrktarmeðlimir
Kórinn vann sér smám saman
fastan sess í tónlistarlífínu. Fyrst
kom kórinn opinberlega fram í janúar
1917 á afmælishátíð KFUM og
stuttu síðar á afmælisfagnaði hjá
Hvítabandinu. Tókust þeir með mikl-
um ágætum svo ákveðið var að efna
til sjálfstæðra tónleika í lok mars
sama ár. Upp frá því hafa samsöngv-
Fyrsti söngstjóri
Jón Halldórsson.
Fóstbræðra,
Kórfélagar að koma sér upp húsnæði við Langholtsveg, sem tilbúið var árið 1972.
Þrír fyrstu stjómendur Fóst-
bræðra í spéspegli Halldórs Pét-
urssonar — gamals Fóstbróður.
ar verið haldnir svo til á hveiju ári
allt til þessa dags — svokallaðir
styrktartónleikar fyrir þá 1.500
styrktarmeðlimi úti í bæ sem með
framlögum sínum styrkja starf kórs-
ins á ári hveiju. „Við gætum ekki
starfað án þeirra," sagði Skúli. Á
árunum 1917-25 var sungið í Báru-
búð sem þá var og hét, frá 1925-28
í Nýja bíói, síðan í Gamla bíói, þá í
Austurbæjarbíói og nú síðustu árin
í Háskólabíói. Söngstjóm Jóns, sem
upphaflega átti að vera eitt ár, varð
nokkrum árum lengri, eða alls 34
ár. Hann lét af stjórn kórsins árið
1950, þá sextugur að aldri. Söng-
stjórar síðan þá hafa verið þeir Jón
Þórarinsson, Garðar Cortes, Jón Ás-
geirsson, Ragnar Bjömsson núver-
andi stjómandi kórsins og Jónas
Ingimundarson núverandi stjómandi
gamaila Fóstbræðra.
Gamlir og nýir meðlimir
Hinn starfandi karlakór Fóst-
bræðra telur nú 38 kórmeðlimi. Þeir
æfa tvisvar í viku, á mánudögum og
miðvikudögum, og em á aldrinum
19 ára til 63 ára. „Við auglýsuir. á
hveiju ári eftir söngmönnum og fáum
yfirleitt góðar viðtökur. Það kemur
auðvitað fyrir að menn koma hingað
sem ekki geta haldið lagi, en það
kemur fljótt í ljós því haldin em sér-
stök inntökupróf. Svo hafa líka
komið hingað menn, sem hreinlega
hafa uppgötvað sönghæfileika sína
hjá okkur, t.d. Sigurður Bjömsson,
sem byijaði í 1. bassa hjá Fóst-
bræðmm en er nú tenór-söngvari,
Þorgeir Andrésson, sem er að hefja
störf við ópemna í Hamborg og
Erlingur Vigfússon, sem nú syngur
við Kölnarópemna. Reyndar var
vafamál á sínum tíma hvort taka
ætti Erling inn í kórinn. Hann þótti
mjög óframfærinn í byijun þótt
annað ætti eftir að koma í ljós síð-
ar,“ sagði Skúli. Þá voru Kristinn
Hallsson og bróðir hans Ásgeir svo
til fæddir inn í karlakórinn, þar sem
faðir þeirra, Hallur Þorleifsson, var
einn af stofnendunum.
Gamlir Fóstbræður starfa af
grósku — æfa einu sinni í mánuði.
Þeir em ekki gamlir í eiginlegri
merkingu heldur reyndir, að eigin
sögn. Inntökuskilyrðið í þann hópinn
er minnst fjögurra ára starf með
hinum virku Fóstbræðmm, en félag-
ar í „gamla" hópnum eru allt frá
þrítugu upp í rúmlega nírætt. Aldurs-
forsetinn er Magnús Guðbrandsson.
Fjórtán Fóstbræður
Árið 1963 urðu hinir vinsælu
Fjórtán Fóstbræður til er Svavar
Gests hljómsveitarstjóri og dagskrár-
gerðarmaður útvarpsins fór þess á
leit við kórinn að hann legði til hóp
söngmanna til þess að koma fram í
skemmtiþáttum Svavars í útvarpinu.
Útvarpsþættimir „Sunnudagskvöld
með Svavari Gests" urðu 16 talsins
og vöktu athygli áheyrenda. I fyrstu
tvö til þijú skiptin var hópurinn
kynntur sem „nokkrir félagar úr
Fóstbræðmm", en eftir það „Fjórtán
Fóstbræður" að tillögu Svavars. Alls
hafa 20 söngmenn tekið þátt í starfí
„Fjórtán Fóstbræðra" frá upphafi.
Hópur þessi varð eftirsóttur
skemmtikraftur. Nýjar lagasyrpur
vom æfðar og hópurinn kom víða
fram á samkomum og skemmtunum
auk þess sem hann gaf út nokkrar
hljómplötur. Tekjur mnnu til félags-
heimiiissjóðs Fóstbræðra fram til
ársins 1975, en þá má segja að lyki
12 ára samfelldu starfí og umsvifum
„Fjórtán Fóstbræðra. Þó hyggjast
„Fjórtán Fóstbræður“ koma fram nú
í Háskólabíói í kvöld og á laugardag
í tilefni 70 ára afmælis kórsins þó
liðin séu 23 ár frá því þeir fyrst
komu saman í þáttum Svavars. Fjór-
tán Fóstbræður breyttu nokkuð kar-
lakórssöng hér á landi með því að
taka til flutnings vinsæla dægurtón-
list í nýstárlegum útsetningum og
með hljóðfæraundirleik. Utsetjari,
leiðbeinandi og stjómandi þeirra
hefur alla tíð verið Magnús Ingimars-
son.
Fóstbræðrakonur
Árið 1965 datt nokkmm eiginkon-
um kórfélaga það snjallræði í hug
að færa kómum gjöf á 50 ára afmæli
hans ári síðar. Þetta var upphafið
að sameiningu Fóstbræðrakvenna,
sem frá þeim tíma hafa staðið dyggi-
lega við bakið á eiginmönnum sínum
í kórstarfinu með kökubösumm, flóa-
mörkuðum, tískusýningum, kaffísöl-
um og öðmm tilfallandi uppákomum.
„Ef kórinn krefst þess að fá karlana
þeirra lánaða tvisvar í viku, eiga þær
ekki annarra kosta völ en að starfa
við hlið okkar,“ sagði formaðurinn,
en eiginkonumar vildu með þessu
auka hagsæld karla sinna. Fljótlega
varð konunum ljóst að aðstoða þyrfti
karlpeninginn við að komast í eigið
húsnæði með starfsemi sína, Þær