Morgunblaðið - 24.04.1986, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986
15
lögðu á sig mikla vinnu og m.a. lögðu
þær 160.000 krónur í byggingarsjóð
haustið 1967.
Eigið húsnæði
Árið 1966 tók fyrsti söngstjóri
kórsins, Jón Halldórsson, fyrstu
skóflustunguna að nýju húsnæði
kórsins, Fóstbræðraheimilinu við
Langholtsveg. 22. apríl 1972 varsíð-
an húsnæðið formlega tekið í notkun.
Þar hefur öll starfsemi kórsins farið
fram allt til þessa dags.
Ferðalög
Fóstbræður hafa ekki setið auðum
höndum — þeir hafa lagt mikið upp
úr ferðalögum, bæði innan- og utan-
lands. Skemmst er að minnast ferðar
þeirra til Bandaríkjanna árið 1982
þar sem þeir sungu á sýningunni
„Scandinavia Today“. „Það hefur
sjaldan verið meiri glímuskjálfti í
mönnum en einmitt þá þegar við
sungum í Kennedy Center. Ferðin
var þó ógleymanleg þó hún hafi verið
okkur dýr,“ sagði Skúli. Fóstbræður
segjast vera að kanna möguleika á
söngferðalagi til Þýskalands næsta
sumar. í byijun maí ætla þeir félagar
í söngferðalag til Norðurlands í til-
efni afmælisins, en tiltölulega stutt
er síðan þeir sungu á Austur- og
Vesturlandi.
Fóstbræður héldu í sína fyrstu
utanlandsferð árið 1926, til Noregs.
Síðan þá hafa þeir m.a. sungið í
Þýskalandi, Hollandi, Belgíu, Frakk-
landi, Danmörku, Finnlandi, Sovét-
ríkjunum og tekið þátt í alþjóðlegri
þjóðlagasöngkeppni í Wales. Fóst-
bræður hafa alla tíð verið duglegir
að ferðast innanlands enda slík
ferðalög eitt af meginmarkmiðum
kórsins, að sögn Skúla.
Fjölbreyttir tónleikar
Á afmælistónleikunum í kvöld og
laugardag kennir margra grasa, eins
og fram kom hér að framan. Auk
aðalkórsins, gamalla Fóstbræðra,
Fjórtán Fóstbræðra og Átta Fóst-
bræðra koma fram hljóðfæraleikar-
amir Alfreð Alfreðsson, Ámi Schev-
ing, Grettir Bjömsson, Jónas Ingi-
mundarson, Jónas Þórir Jónasson,
Kristján Stephensen, Magnús Ingi-
marsson, Sigurður Markússon,
Kjartan Óskarsson og Joseph Ogni-
beni.
Texti: Jóhanna Ingvarsdóttir
Karlakórinn Fóstbræður árið 1966 á 50 ára afmæli sínu,
Eiginkonur kórfélaga styðja dyggilega við bakið á körlum sínum með ýmis konar uppákomum í fjáröfl-
unarskyni.
Nýtt — Nýtt
Sumarvörurnar eru komnar;
pils, peysur, blússur.
Glugginn
Laugavegi 40
Kúnsthúsinu S. 12854
r > Þl FFI D
Vestur-þýsk
fullkomnun
Grossag á að baki 120 ára sögu í
framleiðslu. í dag væri Grossag ekki
til nema vegna þess að gæðin hafa
alltaf verið sett á oddinn. Svo er enn.
Hringlaga vöfflujám. Nýtísku
vöfflujárn en vöfflurnar þessar
gömlu og góðu. Stillitakki fyrir
Ijósar eða dökkar vöfflur. Teflon-
húð á plötum.
Hraðsuðukanna. Eldsnögg að
ná upp suðu. Hefuralla eiginleika
venjulegs hraðsuðuketils og fjöl-
marga aðra. Ekki aöeins til að
sjóða vatn heldur líka egg o.m.fl.
Sléttur botn — auðveld brif.
Eggjasuðutæki. Bráðsnjöll nýj-
ung. Hvemig viltu hafa eggið?
Linsoðið, harðsoðið eða einhvers
staðar þar á milli?
Mínútugrill sem býður upp á ótal
möguleika. I því má sjóða, baka,
steikja og hita upp auk þess að
grilla. Stillanlegur hiti á hvorri
plötu fyrir sig. Sannkallað
„mini“-eldhús.
Sjón er sögu ríkarí
Þjónusta íhelstu raftækjaverslunum
og kaupfélögum
l'sívS'
NÁMSKEIÐISOLUTÆKNII
Leiðbeinandi: Haukur Haraldsson,
markaðsstjóri
Námskeið Stjórnunarfélags íslands í sölutækni byggir á þróuð-
um aðferðum nútíma sölutækni. Fjallað er um söluhræðslu,
markaðsumhverfi og aðstæður, söluaðferðir, áætlanagerð og
skipulagningu, notkun dreifibréfa og fleira.
Námskeiðið er ætlað öllum þeim er fást við sölumennsku og
skipulagningu á sölukerfum.
■ Ánanaustum 15 • Sími: 6210 66
Stjórnunarfélag
íslands
OCTAVO 28.04