Morgunblaðið - 24.04.1986, Blaðsíða 17
Skaftártunga:
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986
17
Félagsheimilið
Tungusel vígt
Hnausum í Meðallandi.
NÝTT félagsheimili í Skaftár-
tungu í Vestur-Skaftafellssýslu
var vígt á sunnudaginn. Félags-
heimilið heitir Tungusel og var
fjölmenni við athöfnina.
Félagsheimilið er tæpir 300 fer-
metrar að stærð og stendur húsið
í landi Hemru við Tungufljót, en
Sigvaldi Jóhannesson, fyrrum bóndi
í Hemru, gaf þijá hektara lands til
félagsheimilis.
Valur Oddsteinsson, oddviti
Skaftártungumanna, setti vígsluat-
höfnina, en veizlustjóri var Sveinn
gaf 25 þúsund krónur, Björg og
Guðjón frá Hemru og böm þeirra
gáfu 50 þúsund krónur, kirkjukór
Grafarkirkju gaf fánastöng og fána,
Kaupfélag Vestur-Skaftfellinga gaf
borð og stóla í fundarherbergi
hreppsins, byggingarfélagið Klakk-
ur gaf steinker á ganga hússins,
synir Kristínar og Vigfúsar á Ljóta-
stöðum gáfu málverk af Jóni Ein-
arssyni á Hemru og Vigfúsi Gunn-
arssyni, Flögu, en félagsheimilið
stendur á milli bæja, þar sem þessir
tveir sveitarhöfðingjar bjuggu. Loks
Hluti gesta við vígslu Tungusels.
Gunnarsson bóndi, Flögu. Séra
Sighvatur Emilsson flutti vígslu-
ræðu og kona hans, Anna Einars-
dóttir, stjómaði söng kirkjukórsins
milli atriða. Ragnheiður Júlíusdóttir
kynnti niðurstöður nefndar, sem
valdi húsinu nafn, en auk hennar
sátu sr. Sigutjón Einarsson, Kirkju-
bæjarklaustri, og Vilhjálmur Eyj-
ólfsson, Hnausum, í nefndinni. Hús-
ið heitir sem fyrr segir Tungusel.
Margar ræður vom fluttar undir
borðum og félagsheimilinu færðar
gjafir.
Brottfluttir Skaftártungumenn
gáfu píanó, Samvinnubankinn í Vík
gaf ræðustól, Búnaðarbankinn í Vík
skal nefnt að eigendur verzlunar-
innar Nýlands í Vík gáfu vömúttekt
fyrir efninu í vígsluveizluna. Fleiri
smærri gjafir bárast og mikið af
blómum og mörg skeyti.
Húsið kostar röskar tíu milljónir
króna og em innifaldar í þeim út-
reikningi 4.400 vinnustundir í sjálf-
boðavinnu og 311 lömb, sem bænd-
ur gáfu, einnig bámst peningagjafir
meðan húsið var í smíðum og em
slíkar gjafir að berast enn. Húsið
er hannað af Sigurði Jakobssjmi,
tæknifræðingi frá Skaftafeili í
Öræfum.
Villyálmur
Kopavogur:
Hátíðahöld við Digranes
HATIÐAHÖLD sumardaginn
fyrsta í Kópavogi hefjast með
skrúðgöngu frá Menntaskóla
Kópavogs kl. 13.30. Skátar og
Hornaflokkur Kópavogs fara
fyrir göngunni. Gengið verður
um Álfhólsveg að íþróttahúsinu
Digranesi þar sem dagskrá hefst
kl. 14.00.
í upphafi leikur Skólahljómsveit
Kópavogs og ávarp verður flutt.
Síðan verður ýmislegt til skemmt-
unar, danssýning, skemmtiatriði
fyrir börn þar sem þekktar persónur
koma við sögu og fleira. Þá verða
leikir og keppni þar sem ýmsir
bæjarbúar bregða á leik. Að lokum
stendur Hestamannafélagið Gustur
fyrir hestasýningu fyrir utan húsið
og yngstu bæjarbúum er boðið á
bak.
Trúður mun taka þátt í hátíða-
höldunum frá upphafi til enda.
Tungusel
Morgunblaðið/Vilhjálmur
KRÍSUVÍKURSAMTÖKIN
FUNDARB0Ð
Krísuvíkursamtökin boða til framhaldsstofnfundar
á Hótel Sögu, Súlnasal
fimmtudaginn 24. apríl smnardaginn fyrsta, kl. 17-19
Fundarefni:
1. Kynning samtakanna
2. Skráning nýrra félaga
3. Byijunarframkvæmdir
Heildarmarkmið samtakanna eru:
að hjálpa ungum vímuefnaneytendum
til heilbrigðrar lífsstefnu
að stuðla að fyrirbyggjandi aðgerðum
í landinu
að veita aðstandendum stuðning
oguppfræðslu
Undirbúningsneftidin
Öryggi í öndvegi
Viðurkenndir og fallegir
Allt í bílinn .
mawst
Síðumúla 7-9, ® 82722