Morgunblaðið - 24.04.1986, Side 18
18_________________MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986
jmn
Hagsmunir íbúanna |
eða hreppsnefnd- j
armeirihlutans
Megi mannlíf á Álftanesi þróast í sátt við náttúruna og vilja meiri-
hluta hreppsbúa.
eftir Önnu Ólafsdóttur
Björnsson
Grein nokkur, afskaplega löng,
eftir Andreas Bergmann, birtist á
síðum Morgunblaðsins fimmtudag-
inn 10. apríl sl. Hún fjallaði um þær
kosningar er í vændum eru í einum
af fjölmörgum hreppum landsins.
Einnig um innansveitarmál en þó
fyrst og fremst um hugmyndir
greinarhöfundar um sveitunga sína.
Þó ekki sé heppilegt að hlaupa með
innansveitarmál í 750 manna hreppi
fyrir alþjóð, hefur grein þessi vakið
furðu nógu margra til að nauðsyn-
legt er að veita þeim nákvæmari
og kreddulausari upplýsingar en
voru í grein Andreasar, þó í örstuttu
máli verði.
Hagsmunasamtökin —
íbúasamtök
í fyrsta lagi er rétt að taka fram
að Andreas Bergmann skilur ekki
eða vill ekki skilja hvers eðlis
Hagsmunasamtök Bessastaða-
hrepps eru. Hann leitar til Morgun-
blaðsins með þennan misskilning
sinn og fær hann hér með leiðrétt-
an, svo og aðrir er kunna að hafa
öðlast hlutdeild í þeim misskilningi.
Hagsmunasamtök Bessastaða-
hrepps eru samtök fólks sem telur
að nauðsynlegt og rétt sé að fjalla
um mál sveitarfélags án þess að
blanda hefðbundinni flokkapólitík
þar inni í. Einn af hornsteinum
þessara samtaka eru eindregin ósk
um hlutlæga umræðu um sveitar-
„íþróttahúsið hefði
aldrei orðið að því kosn-
ingamáli sem það nú er
orðið ef hreppsnefnd-
armeirihlutinn hefði
ekki hunsað mótmæli
skólanefndar og
hreppsbúa um máls-
meðferð hans og fellt
tillögu um sveitarfund
um máiið.“
stjómarmál sem byggist á því sem
brennur heitast á Álftnesingum og
á sér ekki samsvörun í landsmála-
pólitík. Hitaveitumál, dagvistunar-
og skólamál má þar nefna. Þess
vegna em félagar samtakanna úr
röðum allra flokka, einnig Sjálf-
stæðisflokksins, og auk þess fólk
sem ekki hefur verið kennt við
stómmálaflokka. Pólitískt framboð
eins flokks eignar honum ekki sjálf-
krafa alla þá er aðhyllast stefnu
hans í þjóðmálum. Það sést best á
því að af þeim þrem oddvitum
hreppsins úr röðum sjálfstæðis-
manna, sem Andreas nefnir sem
dæmi um farsæla stjómendur
flokksins, er einn félagi í Hags-
munasamtökum Bessastaðahrepps,
annar hefur ákveðið að taka ekki
sæti á lista sjálfstæðismanna í
þessum kosningum og einungis sá
þriðji er frambjóðandi flokksins í
komandi sveitarstjómarkosningum.
Hreppsnef ndarmeiri-
hluti hunsar vilja íbúa
og skólanefndar
I öðm lagi eyðir Andreas miklu
rým: í eitt þeirra mála er sett hafa
svip sinn á umræður innan Bessa-
staðahrepps að undanförnu:
ákvörðun meirihluta núverandi
hreppsnefndar um að semja um
byggingu íþróttahúss sem hún býð-
ur út aðeins sex vikum áður en
kjörtímabili hennar lýkur. Margt er
missagt í grein Andreasar um þetta
mál og mikið verk að eltast við allar
þær rangfærslur sem þar er að
finna. Það mun þó verða gert og
leiðrétt á öðmm vettvangi, innan
hrepps, eins og eðlilegt má teljast.
Hvergi er þó tekið á kjama máls-
ins, að meirihluti kjósenda í hreppn-
um skrifaði undir þá hóglátu bón
að ákvörðun í málinu yrði frestað
fram yfir kosningar, þannig að frá-
farandi hreppsnefnd sem í síðustu
kosningum var sjálfkjörin bindi ekki
hendur næstu hreppsnefndar með
því að leggja nær allt framkvæmd-
afé hreppsins í eitt verkefni, verk-
efni, sem í nýlegri könnun reyndist
númer fimm á óskalista hreppsbúa.
Við hvað var hreppsnefndin hrædd?
Að næsta hreppsnefnd kæmist að
því að fjármögnun framkvæmdanna
væri vafasöm? Sennilega, því að það
er hún. Hagsmunum hverra þjónar
þessi málsmeðferð?
Málefnalegri umræður
nauðsynlegar
Iþróttahúsið hefði aldrei orðið að
pví kosningamáli sem það nú er
orðið ef hreppsnefndarmeirihlutinn
hefði ekki hunsað mótmæli skóla-
nefndar og hreppsbúa um málsmeð-
ferð og fellt tillögu um sveitarfund
um málið.
Grein Andreasar dæmir sig sjálf
að öðru leyti. Gífuryrði og undarleg-
ar ásakanir bera áreiðanleika grein-
arhöfundar það vitni sem hann kýs
sjálfur.
Vonandi verður kosningabarátt-
an í Bessastaðahreppi málefnalegri
en grein Andreasar gefur til kynna,
rekin á heimavelli ef kostur er,
ekki út um allt land. Vera kann þó
að nauðsynlegt muni að fjalla frekar
um þetta mál í fjölmiðlunum, það
kann að vera lærdómsríkt fyrir
fleiri sveitarstjórnir að sjá að ekki
er hægt að þagga niður í þverpóli-
tískum íbúasamtökum með fúkyrð-
um eða valdaboði.
Höfundur er sagnfræðingur, sem
starfar sem blaðamaður.
275
Jukkur45cim £|’
Jukkur55cm
Jukkur75cm -495,
Aðrar jukkur seidar meo
20% afslætti.
3kaktusar í pakkakj^Z^l
r/
Okkar áriega vorútsala er hafm.
Nú seljum við allar
pottaplöntur á útsölu.
Missið ekki af þessu
einstakatækifæn.
Hérfástgóðarplontur
á góðu verði.
interftora
Blómum
viðaverold
Gróðurhúsinu
ipnpy
við Sigtún: Símar 36770-686340
lSára