Morgunblaðið - 24.04.1986, Síða 20

Morgunblaðið - 24.04.1986, Síða 20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986 + „Megi eitthvað gott gróa í spor- um ykkar hvar sem þau liggja“ Skólaslitaathöfnin var fjölsótt. Ssw V Grétar Unnsteinsson skólastjóri sýnir fjármálaráðherra gróðurhús skólans. Tveir nemendur úr 20 ára hópnum voru mættir við skólaslitin, Ragnheiður Guðmundsdóttir og Einar Þorgilsson. Með þeim á myndinni er Bjami Helgason úr hópi 40 ára nemenda. - 29 nemendur útskrifaðir frá Garð- yrkjuskóla ríkisins að Reykjum í Ölfusi. Selfossi. GARÐYRKJUSKÓLA ríkisins á Reykjum í Ölfusi var slitið laugardag- inn 5. apríl sl. Alls luku 29 nemendur bóklegu námi frá skólanum. Aðsókn að skólanum hefur farið vaxandi ár frá ári og nú liggja fyrir rúmlega 50 umsóknir um skólavist næstu tvö árin, en nemendur stunda bóklegt nám í tvo vetur og skila síðan skýrsiu yfir starfsnám við garðyrkjustöð. í upphafí skólaslitaathafnarinnar í Garðyrkjuskólanum minntist Grét- ar Unnsteinsson skólastjóri látinna starfsmanna skólans og bauð vel- komna gesti sem m.a. voru land- búnaðarráðherra, fjármálaráðherra og alþingismenn Suðurlandskjör- dæmis, auk 20 ára nema við skól- ann. Grétar skólastjóri fór nokkrum orðum um starfsemi skólans og það sem framundan er í starfi hans. Hann benti á að brýna nauðsyn beri til að endumýja og auka húsa- kost skólans. Lokið er vinnu við nýtt skipulag af landi Reykja sem mun auðvelda mjög alla uppbyggingu. Meðal þess sem stefnt er að er plöntun 10 þúsund tijáplantna í skógarreit skólans eins og gert hefur verið sl. 4 ár og unnið verður að því að klæða allt land skólans og skapa gott útivistarsvæði austur með hlíðinni fýrir ofan skólann. Samþykktur hefur verið nýr námsvísir fyrir skólann og þakkaði skólastjóri öllum þeim sem unnu að honum. Sérstök starfsskrá fyrir verklegt nám verður tilbúin fyrir vorið. Tilraunastarfsemi við Garðyrkju- skólann hefur alltaf verið mikil og leitað í því efni nýrra leiða. Grétar skólastjóri sagði að það hefði verið stórt spor í rétta átt þegar skólinn fékk á íjárlögum 1 milljón til til- rauna og 250 þúsund til tækja- kaupa. Uppi era áætlanir um að reisa 800m2 tilraunagróðurhús auk úrbóta á öðra skólahúsnæði fyrir 1989 þegar skólinn verður 50 ára. Tölvunotkun í ræktun fer sífellt vaxandi og nú í vetur gekkst skólinn fyrir tölvunámskeiði fyrir starfsfólk og kennara skólans og leitað hefur verið tilboða í tölvubúnað fyrii: skól- ann. Þetta sagði Grétar að væri einn liðurinn í því ásamt öðra að gera skólann aða miðstöð íslenskrar garðyrkju. „Stefnan er að bjóða upp á lifandi starfsemi með rætur hjá atvinnulífinu, garðyrkjumönnunum sjálfum," sagði Grétar. Félagslíf nemenda við skólann var blómlegt og gáfu nemendur m.a. út skólablaðið Smára þar sem sagt er frá félagslífinu og aðstöðu til þess. Þar er m.a. getið um sið sem fylgt er um jólaleyt.ið, þegar kennarar fara í skógarrreit skólans, velja jólatré sem þeir merkja með borða og síðan fara nemendur í hóp og leita uppi tréð, höggva og bera heim í hús. Aðsókn að Garðyrkjuskólanum bendir til þess að ungt fólk hafi trú á ræktunarmöguleikum á ís- landi, en nú liggja fyrir 50—60 Nemendur skólans, sem fengu viðurkenningar. F.v.: Steinunn Ingibjörg Stefánsdóttir, Ragna Bærings Sigursteinsdóttir, Helga Aðalgeirsdóttir, Indriði Þór Traustason, Ásdís Lilja Ragnarsdóttir, Ólafur Þóroddsson, Þórgunnur Eysteinsdóttir, Jóhann Svanur ísleifsson með son sinn Hjalta, Kristin Péturs- dóttir og Gísli Guðmundsson. Einnig fengu verðlaun Ari Eggertsson og Héðinn Björnsson. umsóknir um nám 1986—1988. Meðalaldur nemenda fer hækkandi og er nú 23 ár. Um helmingur nemenda era stúlkur og fer hlut- deild þeirra í garðyrkjunámi vax- andi. 29 nemendur luku bóklegu námi frá skólanum, 1 með ágætisein- kunn, 17 með fyrstu einkunn og 11 með aðra einkunn. Til viðbótar bóklegu námi þurfa nemendur að skila verklegu námi hjá garðyrkju- stöð og ítarlegri greinargerð þar um til skólans. Alls era það um Frá skólaslitaathöfninni, Grétar Unnsteinsson i ræðustól. Skólastjóri afhendir nemanda verðlaun. 80—90 garðyrkjumeistarar sem hafa tekið við nemendum í verklegt nám og þakkaði skólastjóri þeirra framlag. Hæstu einkunn við skólann hlaut Helga Aðalgeirsdóttir, 9,7 frá garð- plöntubraut. 11 nemendum vora afhentar bókagjafir frá skólanum og aðilum tengdum garðyrkju. Helga Aðalgeirsdóttir hlaut við- urkenningu frá minningarsjóði um Unnstein Ólafsson, fyrram skóla- meistara, skrautritað viðurkenning- arskjal og peningaupphæð. Við afhendingu viðurkenninganna skýrði skólastjóri frá því að fyrir- tækið Entek í Hveragerði hefði ákveðið að veita námsstyrk til nemenda við skólann og að 20 ára nemendur hefðu fært skólanum peningagjöf. í lok máls síns beindi skólastjóri orðum sínum til nemenda og sagði •m.a.: „Byggið ætíð ofan á þann grann sem þið hafíð lagt hér í námi. Fylgið hugarfari hins drenglynda, sjálfstæða manns sem lætur gott af sér leiða. Ég vil að sól og sumar fylgi ykkur og að eitthvað gott megi gróa í sporam ykkar hvar sem þau liggja." — Sig. Jóns.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.