Morgunblaðið - 24.04.1986, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986
Z1
Jón Helgason landbúnaðarráðherra tekur fyrstu skóflustunguna að nýjum tilraunagróðurhúsum við
Garðyrkjuskóla rikisins.
Fyrsta skóflustunga tekin að
nýjum tilraunagróðurhúsum
Seifossi.
JÓN HELGASON landbúnaðarráðherra tók fyrstu skóflustungn að
tveimur tilraunagróðurhúsum við Garðyrkjuskóla ríkisins að lokinni
skólaslitaathöfn 5. apríl sl. Um er að ræða tvö 400 m2gróðurhús sem
verða tengd með tengigangi. Vandað verður til húsanna og þau
tæknivædd, m.a. með tölvuvökvunarkerfi. Áætlað er að Ijúka fram-
kvæmdum við húsin á næsta ári.
í máli Grétars Unnsteinssonar
skólastjóra fyrir athöfnina kom
fram að taka þyrfti fast á tilrauna-
málum við skólann til að fylgjast
mætti með nýjungum í garðyrkju.
Á þessu ári hefur skólinn 3 millj-
ónir til framkvæmda og 2 millj. til
viðhalds. Grétar sagði að með því
að tvöfalda þessar upphæðir á
næstu þremur árum mætti Ijúka
framkvæmdum við uppbyggingu á
aðstöðu við skólann.
Bjarni Helgason garðyrkjumaður
sagði að langþráður draumur um
aukna tilraunastarfsemi væri að
rætast m.a. með þessum nýju hús-
um og kvaðst vona að hinn góði
undirbúningur við skólann varðandi
tilraunastarf skilaði sér áfram. „Við
viljum ekki styrki eins og kollegar
okkar erlendis en tilraunastarfið
styrkir okkur,“ sagði Bjami og
bætti við: „allt sem vel er gert hér
er stéttinni til góðs.“
í ávarpi sagði Jón Helgason m.a.
að íslenskum landbúnaði væri mikil
þörf á aukinni fjölbreytni f fram-
leiðslu sem byggði á þekkingu.
Miklu skipti að geta fengið holla
fæðu úr hreinum íslenskum jarð-
vegi.
Fyrirhugað er að Garðyrkjuskól-
inn í samstarfi við Skógrækt ríkis-
ins taki að sér ræktun og uppeldi
fræs sem safnað var í Alaska á sl.
sumri.
Þegar landbúnaðarráðherra
hafði tekið fyrstu skóflustunguna
sýndi Grétar Unnsteinsson gestum
gróðurhús og tilraunastarf við skól-
ann.
Sig. Jóns.
Jóhann Svanur ísleifsson nem-
andi (í ræðustól).
Notum sól-
skinið til upp-
byggingar í
framtíðinni
Selfossi.
VIÐ skólaslit Garðyrkjuskólans
talaði Jóhann Svanur Isleifsson
fyrir hönd nemenda. Hann fór
nokkrum orðum um veruna í skól-
anum og afhenti skólastjóra gjöf
frá nemendum.
„Þá er þessu lokið," sagði Jó-
hann. „Við höfum upplifað skin og
skúri hér í skólanum. Skúrina
geymum við en notum sólskinið til
uppbyggingar í framtíðinni."
Sig. Jóns.
Langar mest í lands-
lagsarkitektúr
Selfossi.
HELGA Aðalgeirsdóttir hlaut
hæstu einkunn frá Garðyrkju-
skóla ríkisins, 9,7, sem er hæsta
einkunn sem nemandi hefur
fengið frá skólanum.
Helga stundaði nám á garð-
plöntubraut og er á förum til
Drammen í Noregi á garðyrkjuskóla
í 3 mánuði. Hún sagðist fá það
metið til verklegs náms en þegar
heim kæmi kvaðst hún taka til við
verklega þáttinn í náminu. Að því
loknu stefnir hún á nám í land-
búnaðarhákólanum í Ási í Noregi.
„Mig langar þar mest í landslags-
arkitektúr," sagði Helga.
„Ég hef alltaf unnið við garð-
yrkju frá 15 ára aldri og fékk áhug-
ann af því að vinna við þessi störf.
Garðplöntufræðin og landslagsarki-
tektúr eiga vel saman og mér finnst
hinn skapandi þáttur spennandi,"
sagði Helga.
Helga sagði að varðandi námið
væri aðalverkefnið erfiðast en hún
vann ritgerð um lystigarðinn á
Akureyri þar sem hún hefur unnið
við garðyrkjustörf í mörg sumur.
Sigf. Jóns.
Helga Aðalgeirsdóttir dúx skól-
ans með verðlaun sín og viður-
kenningar frá skólanum.
Skíðaskálinn
niEiMLtin Hveradölum
Heilsið sumri og njótið veitinga í topp
umhverfi. Það er mikið talað um okkar
lofsamlega kalda borð. Haukur Morthens
og félagar skemmta.
G00DYEAR
ó hagstceðu verði
Hvort sem er í þurru færi eða blautu
í lausamöl eða á malbiki
á hálku eða í snjó eru:
MÝKT, GRIPFESTA OG GÓÐ ENDING
aðalsmerki Goodyear-hjólbarðans
LEIÐANDI í VERÖLD TÆKNIÞRÓUNNAR HJÓLBARÐA