Morgunblaðið - 24.04.1986, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986
23
Fjölmennum á íslenskar kvikmyndir
Vorið er komið og ekki nema rétt
rúm vika í sumardaginn fyrsta
þegar þessi pistill er settur á blað
um miðjan aprílmánuð. Nokkurra
daga kuldakast breytir þar engu
um, vorið er allt í kringum okkur.
Það minnir á sig með ýmsu móti.
Farfuglarnir eru að koma til lands-
ins og grásleppuvertíðin hafrn eða
að hefjast. Að baki er mildur vetur
hér í borginni og á móts við hækk-
andi sól ganga menn bjartsýnir á
lífið ogtilveruna.
Góður kunningi bauð upp á kaffi
og með því heima hjá sér, miðviku-
dagskvöld í aprílmánuði. Hann
hringdi til mín kvöldið áður og sagði
tilefnið allnokkuð. Hann hefur verið
í dansskóla undanfama vetur og
var einmitt þetta miðvikudagskvöld
að ljúka prófi. Ég var kominn
klukkan átta. Við horfðum á sjón-
varpsfréttir af vaxandi spennu á
milli Bandaríkjanna og Líbýu og
vígbúnaði á Miðjarðarhafinu. Það
var komið fram í miðjan fréttatím-
ann þegar hann slökkti á tækinu,
fréttimar voru flestar á einn veg,
af fólki í einhvers konar vandræð-
um, sálarháska ef ekki einhveiju
enn verra. Við tókum upp létt hjal
um daginn og veginn, vortískuna,
sumarið og Fats Domínó á Broad-
way. Við klámðum úr heilum kaffí-
brúsa og átum næstum heila tertu.
Kunningi minn fór í nýpressaðar
buxur og lakkskó, bar á sig ilmvatn
og hárkrem. Tók síðan nokkur
dansspor á gangstéttinni fyrir utan
heimili sitt í veðurblíðunni á svörtu
lakkskónum og þá var mér ljóst að
dansinn átti hug hans allan, enda
hef ég fengið það staðfest að hann
hafi náð mikilli leikni í samkvæmis-
dönsum og spáir það góðu. Hann
er maður um þrítugt og hefur ekki
fest ráð sitt enn sem komið er, býr
einn með tveim páfagaukum og
þrem kanaríeyjafuglum.
Það er á margan hátt sem menn
halda upp á vorið. Sumir hefja alls-
heijarhreingemingar á heimilum
eða gera hreint í görðum við heim-
ili sín, huga að hríslum og bera
áburð á tún. Aðrir hafa áhuga á
fatatískunni, vortískuni og velja oft
á vorin ljósa liti er minna á birtuna
og sumarið. í fatakaupshugleiðing-
um er einmitt maður sem ég þekki
og ég spjallaði við á fömum vegi
nýlega. Hann fær sér ávallt einhver
föt á vorin, oftast stakan jakka og
buxur, skyrtu og létta sumarblússu.
— Ég get ómögulega látið sjá
mig í dökkum sparifötum með
hækkandi sól. Ég minni eiginlega
á sjóskrímsli i slíkum fatnaði. Ég
ætla að láta það eftir mér að kaupa
ljós sumarföt fyrir sumardaginn
fyrsta og ég veit að konan verður
hrifin. Hún segir að ég yngist um
fimmtán ár við það eitt að fara úr
dökku fötunum yfir í ljós.
Sýningarsalir borgarinnar hafa
boðið upp' á íjölbreytta myndlist
fyrir þá fjölmörgu sem áhuga hafa
á myndlist og láta sig ekki vanta
þegar myndlistarmenn em með sýn-
ingar. Gísli Sigurðsson og Valtýr
Pétursson sýndu nýlega á Kjarvals-
stöðum og nú stendur yfir sýning
á verkum Sigurðar Þóris Sigurðs-
sonar í Gallerí íslensk list að Vestur-
götu 17. Ég átti leið þar um fyrir
hádegi um daginn, það var þriðja
dag sýningarinnar. Hafði fengið í
pósti boðsmiða og hugðist ná tali
af Sigurði sem var þá ekki við og
í fyrstu hélt ég að ég væri að vill-
ast. Sýningarsalurinn er inn af
húsakynnum ferðaskrifstofunnar
Flugferðir — Sólarflug og þar sat
við borð framkvæmdastjórinn,
Eyþór Hafberg, ásamt skrifstof-
ustúlku og hann bauð mér vinsam-
lega að skoða sýninguna. Þama var
sýningarskrá og gestabók og þegar
ég hafði krotað nafn mitt í gesta-
bókina var ekkert því til fyrirstöðu
að skoða þessa sjöttu einkasýningu
Sigurðar Þóris hér í borginni á tíu
ámm.
Hann hefur breytt um stefnu í
list sinni og fæst nú mest við
mannslíkamann á mjmdfletinum í
stað mynda af vinnu fólksins og
brauðstriti. Ég hafði ekki verið lengi
í salnum þegar ég kom auga á stór-
an ljósbrúnan hund í bakherbergi
inn af sýningarsalnum. Hann kom
fram í dyragættina með leðuról um
hálsinn, ekki óvingjamlegur en
horfði rannsakandi augnaráði fram
í salinn eins og hann væri að hug-
leiða hvort ástæða væri til að at-
huga sýningargesti nánar. Auk mín
vom í salnum tveir Reykvíkingar,
karl og kona, og karlmaður nokkur
dökkur á lit, kannski frá einhveiju
arabalandanna, gæti hafa verið frá
Líbýu. Mér datt svona í hug hvort
Sigurður Þórir hefði ráðið hundinn
sem öryggisvörð á þessum síðustu
og verstu tímum þegar búast má
við öllu, jafnvel hér á þessu eylandi
norður í höfum. Ég hafði annars
gaman af sýningnni og ánægju af
að skoða verk Sigurðar.
Þessa dagana er verið að sýna
nýja íslenska kvikmynd í Stjömu-
bíói, „Eins og skepnan deyr“, leik-
stjóm og handrit eftir Hilmar
Oddsson. Nú em það í sjálfu sér
engin tíðindi að íslensk kvikmynd
sé fmmsýnd í kvikmyndahúsum
borgarinnar, það er að verða nokk-
uð vís atburður. Eitthvað virðist þó
aðsókn vera dræm. Þannig var hálf-
tómt kvikmyndahúsið á sýningu
klukkan fímm í miðri viku en ekki
annað að sjá að áhorfendur hefðu
skemmt sér ágætlega. Það ber að
styðja þessa ungu listgrein eins og
mögulegt er, t.d. með því að fjöl-
menna þegar nýjar íslenskar kvik-
myndir em sýndar í kvikmyndahús-
unum...
Viðgerðir og viðhald
Húseigendur
Með hækkandi sól fer í hönd tími viðhalds
og viðgerða. Meistarafélag húsasmiða vill
benda þeim sem hugsa til framkvæmda á
nokkur góð ráð. Leitið til þeirra sem
reynslu hafa og bera ábyrgð á sínu verki.
Gerið skriflegan samning um það sem
vinna á og hvernig það á að greiðast.
Varðandi kaupgreiðslur þá koma þrjár
aðferðir helst til greina. í fyrsta lagi tíma-
vinna, þá þurfa aðilar að gera sér grein
fyrir því hvað útseldur tími kostar. I öðru
lagi þá er til mælingataxti sem hefur fast
verð á flestu því sem kemur fyrir í viðgerð-
ar- og viðhaldsvinnu. I þriðja lagi tilboðs-
vinna; þá þarf að tilgreina það vel og skrifa
niður hvað vinna á.
Meistarafélag húsasmiða veitir fúslega
allar upplýsingar í síma 36977 frá mánu-
degi til föstudags á millikl. 13 og 15.
Meistaraf élag húsasmiða.
2 þættir á spólu
Þættir nr. 49/50 koma á bensínstöðvar OLÍS á Stór-Reykja-
víkursvæðinu — Keflavík og Akureyri í dag. Einnig á útvaldar
myndbandaleigur á landsbyggðinni.
Dreifing á landsbyggðinni,
Tefli hf., Síðumúla 23,
sími 686250.
\