Morgunblaðið - 24.04.1986, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 24.04.1986, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 1986 27 lega löglegt, og kvað Hermann það að sjálfsögðu vera. Einnig spurði hann, hve trygg þessi verðbréf væru. Sagðist Hermann halda, að þau væru jafntrygg og verðbréf á öðrum verðbréfasölum. Þess skal getið, að við dymar stóð á stóru málmskilti: VERÐBRÉFAMARK- AÐURINN, og undir Hermann Björgvinsson. Við yfirheyrslur sagði Hermann, að maðurinn hafí komið í Verð- bréfamarkaðinn og boðizt til að lána sér peninga. Trúverðug saga það. Maðurinn fer beint úr símanum á fund manns, sem svaraði í símann, þegar hann hringdi í Verðbréfa- markaðinn. Hann kemur þangað að beiðni Hermanns til að ræða þá þjónustu, sem Verðbréfamarkaður- inn bauð. Allir, sem þekkja þennan mannm, vita að hann mundi frekar svelta en koma nálægt ólöglegum við- skiptum. Þessi maður er nú ákærð- ur. Hermann er búinn að fara illa með íjölmarga kunningja sína, en ég ætla ekki að gerast dómari í máli hans. - Þegar ég hitti Hermann, eftir að hann var laus úr gæzluvarðhaldi, skildist mér á honum, að eina von hans væri að allir yrðu ákærðir. En þar sem ekki væri hægt að dæma 130 manns, reiknaði hann með að málið yrði látið niður falla gegn þeim, og þá fengi hann vægan dóm. Samkvæmt heimildum dagblað- anna hafði maður nokkur komið tvisvar í Seðlabankann til að vekja athygli á okurlánastarfsemi þarna. Honum hafði verið sagt, að Seðlabankinn hefði ekkert með slík mál að gera og verið vísað annað. Vafalaust er það rétt, að engin grein sé um það í bankalögum. En ef til vill hefðu önnur viðbrögð Seðlabankans forðað ýmsu af þessu fólki frá því að flækjast í þetta furðulega mál. Höfundur er verkfræðingur. Siðferðisvandi íslenskra vísindamanna á vorum dögum - Nú er nýrrar ráðstefnu þörf eftirKarl * Arnason Vísindafélag íslendinga hélt nýverið ráðstefnu um „vanda ís- lenskrar tungu á vorum dögum". Við eðlilegar aðstæður hefði það orðið hlutskipti heimspekideildar Háskólans að standa fyrir slíkri ráðstefnu. Af slíku gat að sjálf- sögðu ekki orðið þar sem heim- spekideildin er nú sem alkunna er í siðferðilegri og fræðilegri sóttkví. Hér nægir að minna á Hæstaréttardóminn sem ómerkti orð deildarinnar. í þeim orðum skipuðu starfsmenn deildarinnar ekki aðeins „orðum og setningum óeðlilega" heldur voru einnig í þeim sóðalegar aðdróttanir. Þessi „fræðimennska" heimspekideild- armanna hefur leitt til þess að heimspekideildin er það síðasta sem mönnum kemur í hug þegar rætt er um að leysa vanda ís- lenskrar tungu. Að nena deildina í því sambandi jafngildir því að nefna snöru í hengds manns húsi. Þetta ráðstefnuhald Vísindafé- lagsins þýðir fullkomna játningu Vísindafélagsins í því að heim- spekideildin sé algerlega ófær um að Ieysa þetta verkefni . Hér ber að taka það fram að enda þótt þessir starfsmenn heimspekideild- arinnar hafí eðlilega hlotið nú þegar sinn verðskuldaða aðhlát- ursstað í sögunni vegna þessa máls þá er það óneitanlega harms- efni að svo skuli komið fyrir deild í æðstu menntastofnun þjóðarinn- ar. En heimspekideildin er ekki ein um niðurlæginguna. I þessu máli hefur háskólaráð sett mikið niður, komið sér niður á svo lág plan að ekki er tóm til að skýra það mál í bili. Er siðferðisþrek háskólaráðsmanna virkilega þeirrar gerðar að þeir beri slíkt blygðunarlaust? En hversu vegna hélt Vísinda- félagið þesa ráðstefnu einmitt nú? Varla hefði vandi íslenskrar tungu, nema þá kannski í heim- spekideild, vaxið svo í sumar að ekki hefði mátt bíða til haustsins. Hér er komið að kjama málsins. Vísindafélagið er eina stofnunin sem þessir háskólamenn ráða og enn hefur ekki verið dæmd sið- ferðilega úr leik. Á ráðstefnunni kom markmiðið með ráðstefnunni skýrara í ljós en fram kom í nafni hennar. Hún átti m.a. að bjarga heimspekideildinni úr siðferðilegri úlfakreppu, endurvekja traust almennings í deildinni. I því skyni voru meðal annarra starfsmenn heimspekideildar látnir koma fram sveipaðir fræðimannaljóma yísindafélagsins. Þar á meðal var Ólafur Halldórsson handritafræð- ingur, einn þeirra starfsmanna heimspekideildar sem dæmdur var í Hæstarétti í nóvember sl. og hann talaði þar meira að segja um „heilagra manna sögur"! veit formaður Vísindafélagsins virki- lega ekki að Ólafur Halldórsson „Er ekki betra að vera maður fyrst og vís- indamaður svo? Þegar hneykslunin á getu- leysi framhaldsskóla- nema er runnin af Vís- indaf élagsmönnum ætti þeir að sjá sóma sinn í því að koma á annarri ráðstefnu Vís- indafélagsins. Ráð- stefnu um siðferðis- vanda íslenskra vís- indamanna á vörum dögum. “ er nákvæmlega sami maðurin hvort sem hann talar í nafni heim- spekideildar eða Vísindafélagsins? telur formaður Vísindafélagsins það vera í samræmi við lög og tilgang félagsins að maður dæmd- ur fyrir trúnaðarbrot í vísindalegu starfí sé látinn tala í nafni félags- ins? Ætlar formaður Vísindafé- lagsins kannski að leiða félagið undir höggið í veikri von um að bjarga þeim dæmdu? Kjósi for- maðurinn þögnina sem svar eins og hinn umkomulausi og aumkun- arverði háskólarektor þá er hann að láta Vísindafélagið játast undir ábyrgð á afbroti Olafs og dæma félagið þar með siðferðilega úr leik. Á þessari ráðstefnu Vísindafé- lagsins játast undir ábyrgð á afbroti Ólafs og dæma félagið þar með siðferðilega úr leik. Á þessari ráðstefnu Vísindafé- lagsins sagði Þórhallur Guttorms- son að „Margir nemendur koma inn í framhaldsskólana illa tal- andi, illa læsir og illa skrifandi." Þeir „skipa orðum og setningum óeðlilega" sagði þessi vísindamað- ur (sjá Mbl. 17. apríl). Vegna þessara orða skal hann spurður að eftirfarandi. Telur hann ekki að sá maður sé betur kominn sem er siðferðisvera, þótt hann bresti kunnáttu til að tjá sig, heldur en sá sem er hálærður en getur þó ekki tjáð sig öðruvísi en svo að orð hans bijóti í bága við lög? Er ekki betra að vera maður fyrst og vísindamaður svo? Þegar hneykslunin á getuleysi fram- haldsskólanema er runnin af Vís- indafélagsmönnum ætti þeir að sjá sóma sinn í því að koma á annarri ráðstefnu Vísindafélags- ins. Ráðstefnu um siðferðis- vanda islenskra vísindamanna á vörum dögum. Félagar í vís- indafélagi ættu að geta viður- kennt fleiri staðreyndir en kunn- áttuleysi ungmenna í íslensku. Vísindafélagið ætti þó strax að senda þá félagsmenn sína sem dæmdir hafa verið brotlegir í siðferðilega endurhæfíngu. Höfundur er glerslípunarmeist- ari. Pegar þú greiöir meö tékka, fyrir vöru eða veitta þjónustu, og sýnir Bankakortiö þitt, jafngildir þaö ábyrgöarskírteini frá viöskiptabankanum eða spari- sjóönum þínum, sem ábyrgist innstæöu tékkans aö ákveöinni hámarksupphæð og tryggir þannig viötakandanum innlausn hans. Viöskiptineiga sér þannig staö aö um leið og þú afhendir tékkann, sýniröu Bankakortiö og viðtakandinn skráir númer kortsins á hann. Þannig er Bankakortiö þitt tákn um trausta viöskiptahætti. Hafðu Bankakortið því ávallt handbært. Bankakortið - nauðsynlegt í nútímaviðskiptum Samvinnubankinn, Útvegsbankinn, Alþýöubankinn, Búnaðarbankinn, Landsbankinn, Verzlunarbankinn og Sparisjóöirnir. AUK hf X? 1/RÍA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.