Morgunblaðið - 24.04.1986, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986
31
Frimann Sveinsson Stella Steinþórsdóttir Eggert Brekkan
Elinborg Eyþórsdótt- Sigurbjörg Eiríks- Jón Kr. Ólafsson
ir dóttir
Magnús Sigurðsson Júlíus Brynjarsson Dagmar Þorbergs-
dóttir
Sjálfstæðismenn í Neskaupstað:
Frímann Sveinsson, Stella
Steinþórsdóttir og Eggert
Brekkan í efstu sætum
ið að elta uppi villur í þessari nýju
útgáfu. Að sjálfsögðu munu fleiri
eða færri villur koma smám saman
í ljós. Er þá nauðsynlegt, að öllum
leiðréttingum sé vel til haga haldið
og þær birtar jafnótt og kostur er
og allar um það er verki lýkur.
Allir eiga leiðrétting orða sinna. í
mínu ungdæmi var bætt við: og
jafnvel presturinn á stólnum. Ég
sé því ekki ástæðu til annars en
útgefendum megi vera það gleðiefni
að leiðrétta allt sem missagt kann
að að hafa verið í fræðunum. Það
er gömul reynsla, að rit sem þessi
verða aldrei villulaus, hversu hátt
sem markið er sett í upphafi. Mér
hefur t.d. borizt til eyma, að víxl
hafi orðið á myndum tveggja
kvenna í III. bindinu. Þar sem ég
veit engin deili á konum þessum,
sleppi ég því að geta um nöfn þeirra.
Hinu tók ég fljótlega eftir, að í III.
bindinu er röng mynd af Einari
heitnum Bjamasyni prófessor, og
átti sá mikli afreksmaður og vel-
gerðarmaður í íslenzkri ættvísi og
jærsónusögu það allra sízt skilið.
Þrátt fyrir eftirgrennslan hefur mér
ekki tekizt að afla mér vitneskju
um, af hveijum myndin er. Ekki
hef ég orðið þess var, að mynd af
Einari komi fram annars staðar í
ritinu.
í Kennaratali á íslandi er saman
komið mikið efni, sem tilvalið væri
að nota við (a.m.k. sögulegar) fé-
lagsfræðirannsóknir. Það mætti
vafalaust gera á því fróðlega úttekt,
úr hvaða umhverfi það fólk er
runnið, sem hefur haft það starf
með höndum á þessari öld og sumir
raunar nokkru fyrr að veita upp-
rennandi þjóðfélagsþegnum nauð-
synlega og tilhlýðilega fræðslu. Með
því að gera grein fyrir börnum
kennara í kennaratalinu kemur
smám saman nægur efniviður til
að gera félagsfræðilega grein fyrir,
hvað verður um það fólk, sem þessi
mótandi hópur, kennarastéttin,
getur af sér og að hvaða leyti börn
kennara, þegar þau komast til
þroska, fara aðrar leiðir en böm
annarra þjóðfélagsstétta, svo sem
bænda, sjómanna, iðnaðarmanna,
ófaglærðra verkamanna, presta,
lögfræðinga og lækna eða annarra
lærðra manna, sem ekki hafa sinnt
kennslustörfum. — En nú er ég víst
bærilega kominn út fyrir minn
verkahring.
Eins og fyrr er Prentsmiðjan
Oddi hf., ein öflugasta prentsmiðja
landsins, útgefandi Kennaratals á
íslandi. Frágangur er allur til sóma
og meginhluti upplagsins bundinn
í smekklegt ogtraustlegt band.
Hafi allir þeir, sem að þessu verki
hafa svo vel staðið, heila þökk fyrir
myndarskapinn. Kennaratal á ís-
landi verður um langan aldur talið
meðal merkustu mannfræðirita á
íslandi.
Höfundur er fyrrverandi þjóð-
skjalavörður.
Neskaupstad.
GENGIÐ hefur verið frá skipan
framboðslista Sjálfstæðisflokks-
ins við bæjarstjórnarkosningarn-
ar í Neskaupstað.
Listinn er þannig skipaður: Frí-
mann Sveinsson matreiðslumaður,
2. Stella Steinþórsdóttir verkakona,
3. Eggert Brekkan yfirlæknir, 4.
Elínborg Eyþórsdóttir skrifstofu-
maður, 5. Sigurbjörg Eiríksdóttir
verzlunarmaður, 6. Jón Kr. Ólafs-
son rafvirki, 7. Magnús Sigurðsson
deildarstjóri, 8. Júlíus Brynjarsson
verzlunarmaður, 9. Dagmar Þor-
bergsdóttir húsmóðir, 10. Helgi
Magnússon vélvirki, 11. Hjörvar
Siguijónsson verkamaður, 12. Tóm-
as Kárason sjómaður, 13. Þóroddur
Gissurarson sjómaður, 14. Herdís
Halldórsdóttir verkakona, 15.
Hrólfur Hraundal verkstjóri, 16.
Stefán Pálmason rafveitustjóri, 17.
Rúnar Jón Amason bankamaður,
18. Reynir Zoéga skrifstofumaður.
Sjálfstæðismenn eiga nú tvo
bæjarfulltrúa; Gylfa Gunnarsson og
Hörð Stefánsson. Hvorugur þeirra
gaf kost á sér áfram og Sigurbjörg
Eiríksdóttir gaf ekki kost á sér í
þriðja sætið áfram.
Sigurbjörg
ALAGER
umbúða —
heftivélar
frá Ji;
JOSEF KIHLBERG
Gerð F-561 fótstigin,
lokunarvélar 561.
Varahlutir
í gerðir F
og B 561 og
F og B 53,54.
Hefti
Einkaumboð á íslandi.
mw
Smiðjuvegi 14C, sími 91-78966.
Volvo 740XfíBMO.-
MED RYDVÖRN
OG8ÁRA
RYDVARNARÁBYRGD
GENGI: 01.04.’86
v L bdiTt
SUÐURLANDSBRAUT 16 SÍMI 35200