Morgunblaðið - 24.04.1986, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986
Málskemmdir með
kenningaskæklum
eftir Arnór Hannibalsson
I apríl 1979 gaf menntamála-
ráðuneytið út skýrslu um starfsemi
skólarannsóknadeildar árin
1967—1978. Ritið heitir: „Endur-
skoðun námsefnis á grunnskóla-
stigi." Formáli þess er undirritaður
af ráðherra með meðundirskrift
ráðuneytisstjóra. í riti þessu segir
frá því (bls. 8) að svo vildi til að
fjórir starfsmenn skólarannsókna-
deildar lentu á námskeiði í Gránna
í Svíþjóð og nutu þar leiðbeininga
Bandaríkjamannsins Benjamíns S.
Blooms. Það var sumarið 1971.
Síðan segir að flokkunarkerfi Blo-
oms fyrir námsmarkmið hafi haft
„veruleg áhrif á starf deildarinnar
næstu ár og má segja að námskrár-
gerð og samning námsefnis hafí
framan af grundvallast á þessum
forsendum". Þá er frá því skýrt,
að marklýsingar móðurmálsnáms
og námskrá fyrir móðurmál (og í
þrem öðrum greinum, þ.á m. krist-
infræði!) hafi verið samdar á þess-
um grunni.
Um vélmenni
Benjamín Bloom aðhyllist þá
hugmynd (sem er ekki ný) að
maðurinn er vél. Umhverfíð orkar
á vél þesa og veldur því að inni í
henni gerist eitthvað sem iýkur með
viðbragði. Viðbragð er hreyfing sem
vöðvar annast, t.d. í handleggjum
eða fótleggjum eða þá tungan.
Umhverfið er orsök viðbragða en
viðbrögðin eru afleiðingar. Kennsla
er einnig vélvirkjun. Kennsluum-
hverfi er orsök, sem veldur náms-
árangri. Námsárangur er fólginn í
því, að ný viðbrögð myndast. Hann
er einnig nefndur atferlisbreyting,
því að viðbrögð mynda keðju. Eitt
viðbragð veldur öðru. Hegðun kenn-
arans er atferlismótandi atferli.
Bloom heldur því fram, að með
aðferðum hans sé hægt að skipu-
leggja námsárangur fyrirfram, og
að hver sem er geti lært hvað sem
er. Til eru þeir sem halda að jafn
árangur í námi sé hið sama og
jafnrétti til náms. Bloom hefur ekki
getað staðið við stóru orðin, enda
er það firra að stefna að sama
árangri allra og halda að það sé
jafnrétti. Jafnrétti til náms felst í
því að allir hafi sömu upphafsað-
stöðu og að hver fái að ná þeim
árangri sem hann getur.
Bloom heldur því fram, að kerfi
hans haldi engum gildum fram,
öðrum en þeim að æskilegt sé að
nemendur nái árangri. Kerfí hans
sé hlutlaust gagnvart gildum. Þetta
er ekki svo. Þegar því er haldið
fram, að móta megi hvern mann
að viid, hlýtur að vakna sú spurning
hver eigi að móta hvem og til
hvers. B.F. Skinner talar um at-
ferlismótunartækni. Ef slík tækni
væri tiltæk, yrði henni beitt í þágu
einhverra gilda. Enda er það gert
miskunnarlaust af þeim sem að-
hyllast þessa hugmyndafræði.
Sovétríkin löggiltu skilyrðinga-
fræði af ofannefndu tagi árið 1950.
Þar er ekki verið að fara í launkofa
með tilganginn. Hann er að skilyrða
viðbrögð manna þannig að þeir finni
hjá sér ómótstæðilega þörf að hugsa
og haga sér í samræmi við vilja
Kommúnistaflokksins, þ.e. Leið-
togans. I lýðræðisþjóðfélagi verður
slíku ekki haldið fram, þótt hug-
myndin sé hin sama. I staðinn er
því haldið fram að þetta sé vísinda-
leg atferlismótun og síðan er því
stundum bætt við að hún sé í þágu
framfara síbreytilegs þjóðfélags.
Hugrnyndaf ræði
Hugmyndafræðingar þessarar
stefnu hafa ekki hátt um hugsjónir
sínar. Engu að síður em þær Ijósar.
Þeir byggja á þeirri þröngu kreddu,
að öll vísindi, öll fræði, séu fólgin
í uppgötvun orsakasamhengis.
Þessi kredda leiðir af sér aðra: Það
á ekki að beina nemendum að skiln-
ingi á siðum, venjum, hefðum og
viðhorfum þjóðfélagsins, sem þeir
búa í. í skólum eiga menn að fást
við að „uppgötva einstök orsaka-
sambönd". Kennslu í sögu á að
leggja niður. Hilda Taba, spámaður
Blooms, segir í bók sem hún hefur
ritað um námskrárþróun * 1 að skóli
eigi að vinna gegn sveitamennsku
þeirri sem alið er á innan þröngra
vébanda ijölskyldunnar, enda rækti
hún þjóðleg, trúarleg og siðgæðis-
leg verðmæti. Skólinn á að leiða
menn inn í þjóðleysismenningu.
Nátengdar þessu eru þær hug-
myndir Bloom-sinna á íslandi, að
það eigi að leggja niður stafsetn-
ingu (sem á sér sögulegar forsend-
ur), kenna hvorki málfræði né mál-
sögu og lesa einungis nútímabók-
menntir í skólum. Þetta er afsakað
með því að mál er atferli og að
taka beri mið af málatferli nemand-
ans við móðurmálskennslu.
Mál(véla)atferli
Forsendur fyrir núgildandi nám-
skrá í íslenzku eru raktar í bók
Baldurs Ragnarssonar Móðurmál
(Iðunn, 1977). Þar er á því tönnlast,
að mál er atferli. Því beri að miða
móðurmálsnám við daglega mál-
notkun. Bókmenntakennslu á að
miða við málatferli nemenda.
Leggja á niður málfræði að mestu,
því að hún tryggir ekki málfæmi.
Höfundur vitnar í B.F. Skinner og
hefur eftir honum að málnotkun sé
andsvar við áreiti. Höfðað er til
bókar Skinners, Málatferli. I þeirri
bók rembist Skinner við að sýna
fram á, að menn læra að tala með
því að fá jákvæða umbun fyrir að
tala „rétt“ en neikvæða umbun fyrir
að taia „rangt“. Út frá þessari
máltökusálfræði hyggst Skinner
sýna fram á, að hina innri byggingu
máisins (formgerð) megi rekja til
þess hvemig við læmm að tala.
Þetta er þvílík firra, að jafnvel
hörðustu Skinner-sinnar hylja augu
sín og snúa sér undan, þegar á
þetta deleríum hans er minnzt. En
hér á íslandi er þessi þvæla gerð
að grundveili og forsendu alls móð-
urmálsnáms. Höfundar námskrár í
móðurmáii fella niður gmnnþætti
móðurmálsnámsins með góðri sam-
vizku, þvi að Skinner segir, að
skilningur á þeim komi með því að
kennarinn skilyrði nemendur „rétt“.
Baldur Ragnarsson hnykkir á
skinnerisma sínum með því að vitna
í hinn fræga heimspeking, Lúðvík
Wittgenstein. Baldur segir hann
hafa skrifað að „mál er hluti mann-
legs atferlis eða lífsforms". En
þettta er rangþýtt. Það sem Witt-
genstein sagði var þetta: „Das
Sprechen (auðkennt af L.W.) der
Sprache ein Teil ist einer Tátigkeit,
oder einer Lebensform": „Það að
tala mál er tegund athafna eða lífs-
forms." Hann segir þetta í beinu
framhaldi af fullyrðingu um, hversu
margbreytileg sé notkun tákna,
orða og setninga.2
Arnór Hannibalsson
„Það var svo í samræmi
við alla huginy ndaf ræði
námsskrárinnar, að
menntamálaráðuneytið
gaf út auglýsing-u sem
afnam upprunastaf-
setningu íslenzks máls,
enda krafðist hún erf-
iðra atferla af nemend-
um og skipti ekki máli
fyrir atferlistjáningu
þeirra.“
„Vísindaleg“ námskrá
Á þessum „vísindalega" grunni
eru byggðar Marklýsingar móður-
málsnáms fyrir grunnskóla, gefn-
ar út af menntamálaráðuneyti í
maí 1973. Þær hefjast á blóðhráum
þýðingum úr tveim bókum Benjam-
íns Blooms og fleiri. (Önnur heitir
Taxonomy of Educational Objec-
tives.) Þar er raðað upp sjö hugtök-
um (sem skiptast í undirhugtök):
1. kunnátta, 2. skilningur, 3. grein-
ing, 4. beiting, 5. mat, 6. viðhorf,
7. þátttaka. Ekki er skýrt frá hvern-
ig þessi hugtök eru leidd af „at-
ferlismótun", en tekið fram að þau
„kalla á mörg atferli". Út af þessum
markmiðum eru svo leidd einstök
markmið móðurmálskennslu. Ekki
er skýrt frá með hvaða vísindalegri
aðferð það er gert. Hreinræktaður
atferlissinni hefði reynt að gera það
með tilraunum á rottum. En vandi
er að vita, hvemig slík tilraun ætti
að iíta út. Þessvegna er þetta gert
fríhendis.
Dæmi má taka úr kennslu 6 ára
bama.
„Nemandi hlustar á einföld fyrir-
mæli, spumingar, leiðbeiningar og
skýringar eftir því sem aðstæður
leyfa.“ Þetta er atferli sem sjötta
hugtak kallar á: viðhorf.
„N. getur hlustað eftir hljóðum
í umhverfi sínu í því skyni að greina
þau að sem flest." Þetta er atferli
sem þriðja hugtak kallar á: greining
heildar í hluta.
Þannig er námsefnið klippt niður
í smábúta og hvetjum bút vísað
undir hugtak, og þannig er haldið
áfram allttil 15. aldursárs.
Marklýsingar þessar vom gefnar
út árið 1976 í örlítið breyttu formi
sem móðurmálsnámskrá gmnn-
skóla, og öðlaðist hún gildi það
haust með auglýsingu ráðuneytis
undirritaðri af ráðherra. Þar með
er öllum kennurum gert skylt að
fara eftir námskránni og ríkisvaldið
lýsir yfir trú á þær forsendur sem
hún byggir á. Það var svo í sam-
ræmi við alla hugmyndafræði nám-
skrárinnar, að menntamálaráðu-
neytið gaf út auglýsingu sem afnam
uppmnastafsetningu íslenzks máls,
enda krafðist hún erfiðra atferla
af nemendum og skipti ekki máli
fyrir atferlistjáningu þeirra.
Áhrif
Námskrá sú, sem enn er í gildi
fyrir móðurmálsnám í gmnnskóla,
er byggð á röngum forsendum. Það
er blátt áfram ekki satt, að maður-
inn sé vél. Það er ekki satt, að
málkerfi sé setningaframleiðsluvél.
(Undarlegt, að námskrárhöfundar
vitna hvergi í Chomsky!) Það er
heldur ekki satt að veröldin og
mannlífið sé flókin orsakasam-
bandavél, og að skóli sé orsaka-
tengslavél. Allt tal námskrárhöf-
unda um „atferli" er óljóst og á
því verður ekkert byggt. Tækni-
hyggjubylgja reið yfir Bandaríkin
um og eftir árið 1950. Gmnnskóla-
lagagreifarnir sóttu hana svo
(margir hverjir) til Svíþjóðar.
Árangurinn hefur orðið sá, að
þeir kennarar sem taka mið af nám-
skránni dúlla við einhverja „atferlis-
mótun", í stað þess að efla tök
nemenda á móðurmálinu. Málkennd
manna hrakar. Þessi málatferlis-
uppákoma dynur yfír einmitt á þeim
tíma, þegar þjóðfélagsbreytingar
ættu að knýja skólann til að auka
og bæta móðurmálskennsluna. 1
því efni þarf að byija upp á nýtt á
öðmm gmnni.
Höfundur erdósent í heimspeki ‘
við Háskóla íslands.
Neðanmáls:
1. Hilda Taba: Currículum Develop-
ment. New York 1962, bls. 73.
2. L. Wittgenstein: Philosophieal
vestigations, Oxf. 1953, bls. 11. -. ■
Birgir Viðar Halldórsson:
Keppir í sex
röllum erlendis
ENGINN islenskur rallökumaður hefur keppt jafnoft erlendis og
Birgir Viðar Halldórsson. Eftir árs fjarveru frá rallakstri eftir
sviplegt fráfall Hafsteins Haukssonar fór Birgir á fulla ferð að
nýju og hefur á rúmu ári keppt með fjórum ökumönnum í fjórum
löndum. í lok apríl keppir hann í Englandi ásamt Hafsteini
Aðalsteinssyni á Ford Escort RS og flýgur svo beint þaðan til
Belgiu þar sem hann keppir með Ásgeiri Sigurðssyni á Opel
Ascona. Birgir hyggst keppa i AMK SEX keppnum á erlendri
grund á keppnistimabilinu. Morgunblaðið spjallaði við hann um
komandi tímabil.
Birgir eyddi samtals þremur
mánuðum í þær rallkeppnir sem
hann fór í hér heima og erlendis
á sl. ári. í ár hefur hann þegar
keppt með breskum ökumanni í
Englandi og ætlar til nokkurra
landa, með hinum ýmsu ökumönn-
um. Auk þess hefur hann komist
í samband við Peugeot Talbot í
Englandi sem mun leigja honum
bíl á góðum kjörum ef þörf er á.
„Mér finnst gaman að fara
nýjar leiðir og kynnast nýjum
mönnum, en ég æði samt ekki í
keppni með hverjum sem er. Það
sem laðar mann erlendis er ekki
síst hinn gífurlegi áhugi, sem á
rallakstri er þar. Hundruð þús-
unda áhorfenda fylgjast með, í
borgum sér maður fólk út í garði,
í gluggum og upp á þökum.
Keppnir hefjast oft í miðju stór-
borga og sérleiðir eru jafnvel í
þéttbýli. Hér heima fylgist fólk,
t.d. meira með gegnum ijölmiðl-
ana.“
„Hugmyndin hjá mér núna er
að fara með Hafsteini og Ásgeiri
og síðan til Tékkóslóvakíu í tvö
röll og til Englands. Þetta er það
sem er ákveðið, síðan er að kanna
aðra möguleika, m.a. leiguna á
Talbot bflnum. Mig langar mikið
í keppni til Arabalanda, það er
Birgir varð að hætta i Ljóma-
rallinu í fyrra af broslegum
aðstæðum. Audi Quattro hans
og Bretans Chris Lord datt út
á Kjalvegi vegna þriggja
sprunginna dekkja, en tvö vara-
dekk voru í bílnum. „Þetta er
allt reynsla," sagði Birgir.
örugglega mikið ævintýri og
upplifun," sagði Birgir.
Hvað þarf til að ná árangri á
erlendri grund?
„Fyrst og fremst góðan öku-
mann. Geysilegan metnað og
menn verða að hafa óbilandi trú
á sjálfum sér, fyrir utan góða
aksturstækni. Keppendur verða
að geta laðað að sér fólk, frétta-
menn og hafa orku og útsjónar-
semi. Síðan þarf að hafa sterkar
taugar og geta þolað álag, ef
eitthvað ber útaf. Það sem ís-
lenska ökumenn skortir er æfíng-
in og reynslan. Hér keppum við
í kannski fimm röllum á ári, en
þeir bestu úti keppa í 20-25 röllum
á ári. Það gefur auga leið að þeir
eru betri. Eg tel okkur eiga 2-3
ökumenn, sem gætu náð langt á
erlendri grund með meiri æfíngu
og myndu rúlla upp þeim sem ber
mest á núna erlendis. Sem að-
stoðarökumaður er ég alltaf að
læra eitthvað nýtt í hverri keppni,
reynslan er lykilatriði og maður
verður aldrei útlærður. Eg lærði
mikið þegar ég keppti hér heima
í fyrra með Bretanum Chris Lord
á Áudi Quattro, m.a. að lesa leið-
arnótur. Með þeim eiga ökumenn
að geta ekið blint eftir leiðbeining-
um aðstoðarökumannsins, ef vel
teksttil."
Er ekki gífurlegur kostnaður
samfara því að keppa erlendis?
„Jú, en ef viljinn er fyrir hendi
er hægt að kljúfa allt. Ég hef líka
góð sambönd og margir aðilar
hjálpa við að gera þetta mögulegt.
Aukinn áhugi auglýsenda hefur
almennt hjálpað rallinu mikið,
bæði hér heima og erlendis. Pen-
ingamir sem hér fást eru margfalt
minni en erlendis, en þar er þetta 4
nánast iðnaður. Verksmiðjumar
nota keppnisbíla í auglýsingaher-
ferðir og milljónir króna flæða í j
hverri keppni."
Talandi um rallið hér heima, i
hveijir verða sterkastir í sumar?
„Það er mikil breidd núna og
margir góðir ökumenn að koma
upp. Þórhallur Kristjánsson nú-
verandi íslandsmeistari er líklegur
til afreka, Jón Ragnarsson og
Hafsteinn Aðalsteinsson hafa
báðir kraftmikla oggóða bíla, sem
gefa möguieika á sigri. Bjami
Sigurgarðarsson tel ég líklegan
íslandsmeistara, óljóst er hvort
hann getur keppt í fyrstu röllun-
um vegna meiðsla á auga. Mig
langar að keppa hér heima og
æðsta takmarmið er að vinna
Ljómarallið.
Hvað fær þig til að keppa í
rallakstri og eyða ómældum
stundum í keppni?
„Þetta er mitt áhugamál, núm-
er eitt, tvö og þijú. Spennan og
hraðinn kitlar taugakerfið og von
um sigur hefur sín áhrif. Það er
fátt sem er eins áhrifaríkt og að
sitja í bíl með ökumanni, sem
hefur fullt vald á aðstæðum, þó
vegurinn sé krókóttur, bíllinn
kraftmikill og hraðinn mikill. Það
er ekki hægt að lýsa tilfínning-
unni, menn verða að kynnast
þessu sjálfír." G.R.