Morgunblaðið - 24.04.1986, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986
33
Áfengisvarnaráð:
Nokkur minnisatriði
um áfengisvarnir
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá Áfengisvamar-
áði:
1. Ef frumvarp þetta verður að
lögum er orðin grundvallarbreyting
á áfengismálastefnu íslendinga.
Stofnun áfengiseinkasölu árið 1922
fól í sér að reynt skyldi að koma í
veg fyrir að nokkur hefði persónu-
legan hagnað af drykkju annarra
manna og að eðlilegt væri að sá
sem yrði fyrir mestu fjárhagstjóni
vegna áfengisdrykkju í landinu, þ.e.
sameiginlegur sjóður þegnanna,
fengi það fé sem menn drykkju
fyrir til að standa straum af ein-
hveiju af þeim kostnaði. Sama
stefna hefur og verið uppi annars
staðar á Norðurlöndum nema í
Danmörku enda áfengisneysla þar
langtum meiri en í nokkru hinna
landanna.
2. í Bandaríkjunum er þægilegra
en annars staðar að rannsaka hvort
hagkvæmt sé fyrir heilbrigði þjóða
og velferð að hafa ríkiseinkasölu á
áfengi því að í sumum ríkjunum er
slíkt fyrirkomulag en öðrum ekki.
Niðurstöðumar eru ótvíræðar. Rík-
iseinkasala dregur úr neyslu. Sjá
meðfylgjandi fréttatilkynningu. Af
henni sést hve miklu máli skiptir
að einkahagsmunir tengist sem
minnst framleiðslu og sölu áfengis.
3. Breytingar þær sem í frum-
varpinu felast ganga þvert á þá
stefnu Alþjóðaheilbrigðisstofnunar-
innar að hver þjóð minnki áfengis-
neyslu um fjórðung til aldamóta.
Um það efni segir dr. Tómas Helga-
son prófessor í Morgunblaðinu 9.
þ.m.: „Verði þessi lagafrumvörp
samþykkt, verður enn erfiðara um
vamir gegn vímuefnum, þar eð
fyöldi þeirra sem hafa vinnu og
persónulegan hagnað af áfengis-
framleiðslu og sölu mun aukast."
Og enn segir prófessor Tómas í
sömu grein: „Einstaklingar eða
fyrirtæki í einkaeign mega ekki
hafa fjárhagslegan ávinning af
framleiðslu, innflutningi eða sölu
áfengis eða annarra vímuefna."
4. Oeðilegt virðist að stjómvöld
hlutist til um að framboð á áfengi
sé aukið ef þau ætla að verða við
tilmælum Alþjóðaheilbrigðisstofn-
unarinnar.
5. Hingað til hafa íslendingar
flutt út nauðsynjar, mat til að ala
fólk, ull til að klæða það og á síð-
ustu ámm hefur verið lögð sérstök
áhersla á útflutning hugvits. Það
er í hrópandi mótsögn við þær
hefðir að efna til iðnaðar sem stefnir
að því að flytja út slævandi vímu-
efni.
6. Áfengi er hátollavara og
áfengisgerð mikill samkeppnisiðn-
aður. Líklegt er að erfítt reynist
að ná þeirri hlutdeild í sölu erlendis
að máli skipti fyrir afkomu þjóðar-
búsins. Megnið af framleiðslunni
yrði því að selja innanlands.
7. Mikið er nú rætt um mikilvægi
fræðslu um skaðsemi áfengis og
annarra vímuefna. Mjög mun það
neikvætt fyrir áhrif slíkrar fræðslu
ef jafnframt eflingu hennar skal
stuðlað að því að koma á laggimr
nýrri framleiðslu slíkra efna í
landinu.
8. Frumvarp þetta er nýtt af
nálinni. Vart mun ástæða til að
jafnveigamiklar breytingar og í
því felast verði gerðar án ýtarlegrar
umfjöllunar hæfustu manna.
Ekki ætti að vera svo brýnt að
gera einkaaðiljum kleift að heija
áfengisgerð eða blöndun á íslandi
að ekki megi leitast við að sjá fyrir
hveijar afleiðingar slíkt kann að
hafa.
Áf’engis'varnaráð
Neskaupstaður:
Framboðslisti
Framsóknarflokks
Á fundi Framsóknarfélags
Norðfjarðar mánudaginn 14.
apríl sl. var framboðslisti Fram-
sóknarflokksins við bæjarstjórn-
arkosningarnar í Neskaupstað
31. maí 1986 einróma samþykkt-
ur. Framboðslistann skipa:
1. Gísli Sighvatsson skólastjóri
2. Þórarinn V. Guðnason verslun-
armaður
3. María Kjartansdóttir húsmóðir
4. Anna Bjömsdóttir verslunar-
maður
5. Guðmundur Ármannsson
húsasmiður
6. María Bjarnadóttir fóstra
7. Hörður Erlendsson vélstjóri
8. Þóra V. Jónsdóttir hjúkmnar-
kona
9. Sigríður Wium húsmóðir
10. Jón Ingi Kristjánsson sjómað-
ur
11. Guðmundur Skúlason vélvirkí
12. Steinunn Gísladóttir nemi
13. Guðmundur Sveinsson skipa-
afgreiðslumaður
14. Halldóra Hákonardóttir
verkakona
15. Álfhildur Sigurðardóttir
hjúkmnarkona
16. Vilhjálmur Skúlason húsa-
smiður
17. Hallbjörg Björnsdóttir húsa-
smiður
18. Jón Ölversson skipstjóri
I Gódan daginn!
"M
MA'
^v nrj
TONIC KR. 58.890
.Meöétíœmúr.auOWe.nurlaum
. m
KRISTJfln SIGGGIRSSOn HF.
LAUGAVEG113, REYKJAVÍK, SÍMI 25870
Vantl þig eldhóilnnréttlngu, innréttlngn i baðið, hreinlaetiatseki, blöndnnartseki, flisar eða
kannskl þetta allt. Littu þá vlð hjá okkur. Vlð komurn, tökum mál og gemm tilboð þér að kostnaðarlausu.
Opið virka daga frá 9— 19, laugardaga frá 13— 17.