Morgunblaðið - 24.04.1986, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 24.04.1986, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986 Ingólfur Guðbrandsson í hópi starfsfólks Útsýnar í nýendurbættum húsakynnum ferðaskrifstofunnar í Austurstræti 17. Morgunbiaðia/Ámi Sæberg „Skiptir neytandann mestu hvar hann fær best kjör og þjónustuu Rætt viö Ingólf Guðbrandsson í tilefni þess að Útsýn færir út kvíarnar FERÐASKRIFSTOFAN Útsýn er að færa út kvíamar um þessar mundir. Afgreiðslusalurinn á 2. hæð í Austurstræti 17 hefur verið stækkaður og nærri öll hæðin tekin undir afgreiðslu og sölu hópferða og einstaklings- ferða. Afgreiðslan á jarðhæðinni er óbreytt, en til viðbótar hefur ferðaskrifstofan tekið í notkun hluta af 3. og 4. hæð hússins. Verið er að stækka innan- landsdeild Útsýnar og em áform um móttöku fjölda erlendra gesta á næstu áram. Ein stærsta ráðstefnan, sem haldin verður á íslandi í sumar, fer fram í lok ágústmánaðar fyrir tilstilli IBM í Þýskalandi með þátttöku um 800 gesta í tveim hópum og hefur Útsýn veg og vanda af móttöku þeirra og undirbúningi ráðstefnunnar. Þá hefur American Express, umsvifamesti þjónustuaðili heimsins á sviði ferðamála, gert áætlun um Islandsferðir, sem auglýstar verða I kynningar- bæklingum fyrirtækisins um víða veröld. Morgunblaðið hafði tal af Ingólfi Guðbrandssyni forstjóra IJtsýnar og spurði hann nánar um starfsemi ferðaskrifstofunn- ar. „í sumar liggnr straum- urinn suður á bóginn“ — Hvert ætla íslendingar að ferðast í sumar? „Straumurinn liggur suður á bóginn. Áhuginn er langmestur á sólarlöndunum og pantanir þangað í yfirgnæfandi meirihluta," segir Ingólfur. „Spánn er langvinsælast- ur en Portúgal og Ítalía koma næst á eftir. Það er greinilegt að sumar- húsaaldan er gengin yfir. Auðvitað er fróðlegt að kynnast nágranna- löndunum og skal það síst lastað. Sumarleyfí á Suður-Englandi er t.d. mjög skemmtilegt og getur tengst æfingu í enskri tungu eða ótal öðrum erindum og áhugamálum. íslendingar eru enn að læra að ferðast. Þeir hafa verið of ginn- keyptir fyrir áróðri ákveðinna hags- munaaðila, en í ferðaviðskiptum hlýtur hver og einn að hugsa um eigin hag en ekki velja ferð eftir geðþótta eða til að þóknast ein- hveijum samtökum." — Hvers vegna eru sólarlönd svona miklu vinsælli en aðrir staðir? „Vegna veðurfarsins. Ekkert getur komið í staðinn fyrir gott veður í sumarleyfinu og okkur ís- lendingum er meiri þörf á því en nokkrum öðrum, þrátt fyrir tiltölu- lega gott árferði hér undanfarin tvö ár. Þá hefur verðlagið sitt að segja. Þeir, sem hafa reynsluna, vita að matur, drykkur og hvers konar skemmtan, sem er óaðskiljanlegur hluti sumarleyfisins, er þrisvar til fjórum sinnum dýrari á Norðurlönd- um og í Vestur-Evrópu en t.d. í Portúgal og á Spáni. Annars er áberandi hve fólk einblínir á sjálft fargjaldið en gerir sér litla grein fyrir heildarkostnaði af ferðalagi. Við undrumst, að fólk skuli jafnvel stofna lífí sínu í hættu og liggja úti næturlangt til þess að komast yfír farseðil til Kaupmanna- hafnar fyrir 8.000 krónur þegar menn eiga þess kost að kaupa helm- ingi lengri flugferð til Miðjarðar- hafslanda fyrir 10.000 krónur. Hvað skyldi þetta fólk reikna sér í tímakaup f þeirri fímmtán tíma nætur- og helgidagavinnu sem fór í að bíða eftir farseðlinum? Það má líka fullyrða, að almenningur gagnrýnir þetta sölufyrirkomulag og þá mismunun í fargjöldum, að ein stétt eða starfsmannahópur skuli eiga kost á hagstæðari far- gjöldum en aðrir. Við erum öll þátt- takendur í þjóðfélaginu og eigum að njóta sömu kjara og sama réttar. Gagnrýnin beinist fyrst og fremst að flugfélögunum, sem mismuna viðskiptavinum sínum að þessu leyti á óverjandi hátt. Ef áfram verður haldið á þessari braut er fullvíst, AF INNLENDUM VETTVANGI - eftir HELGA BJARNASON Sláturhús á Patreksf irði selt: Sjóðir landbúnaðarins lögðu milljónir í húsið KAUPFÉLAG Vestur-Barð- strendinga á Patreksfirði hefur selt húsið Aðalstræti 100 á Pat- reksfirði til Matvælavinnslunnar hf. Sala á þessari eign væri ekki í frásögur færandi nema hvað umrætt hús er sláturhús sem sjóðir landbúnaðarins hafa lagt mikla fjármuni í. Húsið hefur nú verið tekið undir rækjuvinnslu og var siðasta lambinu slátrað þar í haust. Eftir sitja bændurair sláturhúslausir og peningarnir sem sjóðir þeirra lögðu í húsið eru komnir í sjávarútveginn. „Þvingaðir út í bygginguna" Sláturhúsið á Patreksfírði var aðallega byggt á árunum 1979-80. Áætlanir miðuðust við slátrun 12- 16 þúsund ijár. Mikill samdráttur hefur hins vegar orðið í sauð^'ár- búskap á svæðinu vegna þess að sveitir fóru í eyði og vegna niður- skurðar vegna riðuveiki. Síðasta haust var slátrað innan við 2.500 íjár í húsinu. Hafí rekstrargrund- völlur hússins nokkum tímann verið fyrir hendi, sem margir efast reynd- ar um, er hann ekki lengur fyrir hendi þegar verkefnin eru orðin þettá'lítil. Það hefur einnig orðið til að auka við vandamálin að slát- urhúsinu gekk illa að innheimta þau lán óg styrki úr sjóðum landbúnað- arins sem gert var ráð fyrir að kæmu til byggingarinnar, þannig að bygging hússins var fjármögnuð með dýrum skammtímalánum sem virðast hafa orðið þessu litla kaup- félagi ofviða. Vandamál sláturhússins hafa stöðugt verið á borðum ráðamanna og undanfarin ár hafa þau komið reglulega fram í ljölmiðlum. Morg- unblaðið ræddi meðal annars við Jens H. Valdimarsson kaupfélags- stjóra í júlí 1983 og birtust viðtöi við hann í blaðinu. Þá sagði hann meðal annars, þegar hann var spurður um ástæður þess að fyrir- tækið réðist í þessa fjárfestingu: „Við vorum þvingaðir til að fara út í þessa sláturhúsbyggingu. Slátur- húsanefnd gerði áætiun fyrir landið og skipulagði hvar sláturhús ættu að vera og hvar ékki og varla var hægt fyrir okkur að skorast undan því að taka þátt í þessari upp- byggingu." . Nauðungaruppboði frestað Fyrri hluta síðasta árs var svo komið að komið var að nauðungar- uppboði á sláturhúsinu að kröfu Stofnlánadeildar landbúnaðarins, ásamt sláturhúsinu á Breiðdalsvík og kom þá fram í Morgunblaðinu að skuldir húsanna við Stofnlána- deild voru samtals um 20 milljónir kr., þar af 5-6 milljónir í vanskilum. Jafnframt kom fram að sláturhúsið á Patreksfírði hafði greitt eitthvað af lánum sínum fyrsta árið, en síðan ekki söguna meir. Uppboði var frestað þar sem eigendur hússins sögðust vera að koma málunum í lag. Síðan var samið um að vanskil- um sláturhússins í Stofnlánadeild- inni yrði breytt í fast lán en aldrei var gengið frá skuldbreytingunni þannig að vanskilin standa enn að verulegu leyti. Sláturhúsið selt I mars 1985 var stofnað fyrir- tækið Matvælavinnslan hf. á Pat- reksfirði. Tilgangur félagsins var að reka rækjuvinnslu og aðra mat- vælaframleiðslu. Félagið tók slátur- húsið á leigu í fyrra og hóf rækju- vinnslu. í haust var síðan slátrað í húsinu. Þann 1. desember síðastlið- inn seldi Kaupfélagið síðan Mat- vælavinnslunni hf. sláturhúsið ásamt innréttingum, áhöldum, vél- um og tækjum. Kaupverðið var staðgreitt, væntanlega með yfír- töku skulda að verulegu leyti. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins var þessi sala ákaflega viðkvæm heimafyrir og fram undir þetta hafa forráðamenn Kaupfé- lagsins ekki viljað viðurkenna að búið væri að selja sláturhúsið. Morgunblaðið fékk það hins vegar staðfest á sýsluskrifstofunni á Pat- reksfírði að samkvæmt veðmála- bókum hefði kaupfélagið afsalað Matvælaiðjunni þessari eign með afsali dagsettu þann 1. desember síðastliðinn. Morgunblaðið hefúr einnig undir höndum ljósrit af afsal- inu. Ekki er ólíklegt að þessi leynd yfír sölunni stafí að einhveiju leyti af því að ekki er búið að ganga frá málum við Stofnlánadeild land- búnaðarins og óvissu varðandi endurkröfurétt Framleiðnisjóðs landbúnaðarins á fjárframlögum sínum. Milljónir úr Framleiðnisjóði Á árunum 1976-85 hefur Fram- leiðnisjóður landbúnaðarins lagt fram tæpar 7 milljónir til slátur- hússins. Framreiknað með bygg- ingavísitölu samsvara þessi framlög 13-14 milljónum kr. í dag. Það hefur lengi verið regla hjá Fram- leiðnisjóði að greiða Va af stofn- kostnaði við sláturhús. Framlögin hafa farið eftir tekjum sjóðsins hveiju sinni og voru þau yfírleitt greidd eftir á og þá á upphaflega kostnaðarverðið, óverðtryggt. Svo var með sláturhúsið á Patreksfírði en sjóðurinn lauk við greiðslu á þriðjungi stofnkostnaðar þess í árs- lok 1983. Það gerðist hins vegar að í lok ársins 1984 sendi Jón Helgason landbúnaðarráðherra stjóm sjóðs- ins beiðni um að í gegn um sjóðinn mættu fara peningar sem sam- komulag hafði orðið um í ríkis- stjóminni að færi til ákveðinna slát- urhúsa, þar á meðal 5 milljónir til Patreksfjarðar. Þessir peningar voru til viðbótar þeim fjármunum sem Framleiðnisjóður hafði lagt til sláturhússins samkvæmt sínum venjulegu úthlutunarreglum. Stjóm sjóðsins féllst á að láta þessa pen- inga fara í gegn um sjóðinn með því skilyrði að hluti upphæðarinnar yrði notaður til að gera upp við bændur og afgangurinn greiddur í sambandi við skil við Stofnlánadeild landbúnaðarins. Vora greiddar 3,8 milljónir í árslok 1984, en afgang- urinn, 1,2 milljónir, var greiddur til Stofnlánadeildarinnar síðastliðið sumar. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins var þetta aukaframlag til sláturhússins á Patreksfirði veitt fyrir atbeina ýmissa stjómmála- manna, einkum Steingrím Her- mannssonar forsætisráðherra, for- manns Framsóknarflokksins og þingmanns Vestfjarða. Erfítt er að átta sig á af hveiju menn vildu endilega láta þetta fé fara í gegn um Framleiðnisjóð í stað þess að veita beina styrki úr ríkissjóði. Ekki er þó ólíklegt að tilgangurinn hafí verið sá að láta minna bera á styrkj- unum. Eiga sjóðir landbúnað- arins endurkröfurétt? Eftir að ljóst var orðið að slátur- húsið á Patreksfirði var ekki lengur sláturhús fóra að vakna spumingar um það hvort Framleiðnisjóður ætti ekki endurkröfurétt á þessum fram- lögum sínum. Jóhannes Torfason formaður stjómar Framleiðnisjóðs
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.