Morgunblaðið - 24.04.1986, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986
AP/Símamynd
Loftskip flytja aftur farþega
í gær var farið f fyrsta farþegaflug á loftskipi frá þvf 1937. Flogið
var á loftskipi, sem brezka verksmiðjan Airship Industries hefur
framleitt og ber það heitið Skyship 500. Loftskipið mun fljúga útsýn-
isflug með farþega yfir Lundúnaborg fram til 15. júnf og seldist
upp í ferðirnar á tveimur dögum. Daglega berast um 3.000 fyrir-
spumir um sæti, sem uppseld em.
Er öld loftskipanna
að renna upp á ný
6?
Símamynd/V erdens Gang
Morten Rönneberg i keppni fyrir nokkrum árum. Nú situr hann f
gæsluvarðhaldi eftir að hafa verið handtekinn með eiturlyf.
Watford, Engiandi. AP.
FYRSTA loftskipið til farþega-
flutninga frá því Hindenburg
brann til kaldra kola árið 1937
leið í gær upp í loftin biá yfir
Watford, rétt fyrir norðan Lond-
on.
Fimm farþegar auk tveggja skip-
verja voru um borð í fyrstu ferðinni,
Danmörk:
Stj órnarandstaðan vill gjör-
breyta vamarmálastefnunni
Gæti stefnt aðild Dana að Atlantshafsbandalaginu í hættu segja forsvarsmenn stjórnarinnar
Kaupmannahöfn. AP.
Stjórnarandstaða vinstri-
manna í Danmörku hefur á
prjónunum að leggja fram til-
lögur f varnarmálum, sem
gætu, ef samþykktar, valdið
mikilli óvissu um áframhald-
andi þátttöku Dana í Atlants-
hafsbandalaginu. Er það inn-
takið í þeim, að vopnabúnaður
danska hersins verði minnkað-
ur þannig að herinn geti aðeins
varist en ekki snúið vörn i sókn.
Ef vinstriflokkamir í Dan-
mörku komast til valda og fara
eftir sínum eigin tillögum mun
verða fækkað verulega í sjóhem-
um, flugherinn skorinn niður og
vamir Danmerkur byggðar að
mestu á varaliði í landhemum.
Hans Engell, vamarmálaráðherra
úr íhaldsflokknum, hefur margoft
bent á, að með vömum aí þessu
tagi væri verið að grafa undan
samstarfí Atlantshafsbandalags-
ríkjanna en þar væri það megin-
stefnan, að allir bæru jafna
ábyrgð, að eitt ríki kæmi öðru til
hjáipar ef með þyrfti.
Þeir, sem styðja tillögumar,
segja, að vegna framfara í raf-
eindatækni sé eftirlitsbúnaður
orðinn svo fullkominn og flug-
skeytin svo nákvæm, að unnt sé
að fæla hugsaniegan ijandmann
frá árás án þess að hóta kjam-
orkustríði. Hervamir, sem væru
eingöngu í vamarskyni, svonefnd
„sóknarlaus vöm“, myndu því
hækka „kjamorkuþröskuldinn".
Þá er átt við, að átök með venju-
legum vopnum gætu orðið meiri
en ella án þess að annar stríðsaðil-
inn freistaðist til að beita kjam-
orkuvopnum.
Til að hrinda þessum hug-
myndum í framkvæmd yrðu dönsk
stjómvöld að gera nýja samninga
við Bandaríkjamenn og Breta til
að tryggja, að herlið bandamanna,
sem kæmi til Danmerkur á hættu-
tímum, væri ekki búið sóknar-
vopnum.
í viðtali við Svend Auken, vara-
formann jafnaðarmannaflokksins,
í blaði hersins, „Forsvaret i dag“,
tengir hann þessar tillögur hug-
myndinni um kjamorkuvopna-
laust svæði á Norðurlöndum.
Gagnrýnendur hennar hafa hins
vegar löngum bent á, að Sovét-
menn séu með mesta kjamorku-
vopnabúr í heimi við bæjardymar,
á Kolaskaga, og séu augljóslega
ekkert á fömm þaðan með vopnin.
Danska blaðið Information
skýrði frá því í vikunni, að hemað-
arsérfræðingar úr austri og vestri
hefðu á fundi í Stokkhólmi um
fyrri helgi rætt hugmyndina um
„sóknarlausa vöm“. Bar það m.a.
á góma, að komið yrði upp svo-
kölluðum vamarsvæðum, búnum
jarðsprengjum, rafeindatækjum
og marksæknum skeytum, sem
gætu heft framrás hers í stríði.
Gæfist þá þjóðinni, sem á væri
ráðist, tóm til að kveðja menn til
vopna og gera aðrar nauðsynlegar
ráðstafanir. Sumir stuðnings-
menn dönsku tillögunnar um
„sóknarlausa vörn“ eru hlynntir
þessum varnarsvæðum og vilja
koma þeim upp syðst á Jótlandi
til að halda aftur af heijum Var-
sjárbandalagsins eftir að þeir
hefðu lagt undir sig Vestur-
Þýskaland. Vilja þeir ennfremur
koma upp eldflaugastöðvum á
jörðu og leggja herskipum og
eftirlitsskipum, sem búin eru slík-
um vopnum.
Poul Schliiter, forsætisráð-
herra, hefur varað stjómarand-
stöðuna við að reyna koma þess-
um tillögum í gegn á þingi. „Við
munum ekki taka því með þegj-
andi þögninni ef þingið samþykkir
ályktun, sem stefnir í hættu aðild
okkar að Atlantshafsbandalag-
inu,“ sagði hann í viðtali og Uffe
Ellemann-Jensen, utanríkisráð-
herra, hefur gefið í skyn, að
stjómin muni heldur boða til
kosninga en taka við slíkri sam-
þykkt.
sem var farin yfir London, en til
stendur að fara fjórar útsýnisferðir
daglega yfir borgina fram til miðs
júní. Verður gjaldið fyrir farþegann
um 6.300 ísl. kr. og er nú þegar
allt upppantað.
Flugmálaráðherrann breski,
Michael Spicer, hefur fagnað þess-
ari fyrstu siglingu loftskipsins, sem
heitir „Skyship 500-02", og sagði
hann, að það gæti komið að miklu
gagni fyrir herinn, t.d. við eftirlit
og ljósmyndun, auk venjulegs áætl-
unarflugs. Það er fýrirtækið Airship
Industries, sem smíðað hefur loft-
skipið.
Dagar loftskipanna liðu undir lok
á fjórða áratugnum og kom þar
tvennt til, samkeppnin við flugvél-
amar og tvö mikil slys. Það fyrra
varð árið 1931 þegar breska loft-
skipið Rioi hrapaði til jarðar í
Beauvais í Frakklandi og 48 manns
biðu bana og það síðara þegar
þýska loftskipið Hindenburg brann
í New Jersey í Bandaríkjununi. Þá
fórust 33 menn.
Skyship 500-02 er smíðað í
Cardington í Bedfordskíri eins og
Rioi og framleiðendumir segja, að
nú sé öryggið annað en áður var.
Nú sé belgurinn fylltur helíum, sem
ekki geti brunnið eins og vetnið í
Hindenburg.
Airship Industries hefur í hyggju
að smíða annað skip, Skyship 600,
og taka upp reglulegar áætlunar-
ferðir til Parísar með 12 farþega.
Á ferðin að standa í 2 V2 tíma, litlu
lengur en það tekur flugvél að fara
þessa leið, en ferðin yrði miklu
þægilegri fyrir farþegana, sem
gætu notið útsýnisins yfir mat og
drykk.
Helsti kostur loftskipanna er sá,
að þau geta verið lengi á lofti án
mikils kostnaðar. Af þessum sökum
hafa þau vakið athygli breskra
hemaðaryfirvalda.
„Eiturlyfin voru á góðri
leið með að drepa mig“
— segir Morten Rönneberg, sem lengi
var skærasta tennisstjarna Norðmanna
Ösló. Frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunblaðsins.
„ÉG VAR undir áhrífum eitur-
lyfja þegar ég vann tvo síðustu
Noregsmeistaratitlana í tennis,"
segir Morten Rönneberg, lengi
fremsti tennisleikarí í Noregi, í
viðtali, sem birtist við hann í gær
í blaðinu Verdens Gang. Rönne-
berg var fyrir skömmu hand-
tekinn með 10 grömm af amf-
etamíni og i viðtalinu segir hann
frá því hvemig eiturlyfin eyði-
lögðu líf hans og íþróttaferíl.
Morten Rönneberg var snemma
efnilegur tennisleikari og sem ungl-
ingur bar hann sigur úr býtum á
mörgum alþjóðlegum mótum. 15
ára gamall var hann sendur til
Bandaríkjanna til að æfa og spila
og bjó þar hjá bandarískri flöl-
skyldu. Í Bandaríkjunum reykti
Rönneberg hass i fyrsta sinn og
þegar hann sneri aftur til Noregs
ári síðar hélt hann áfram hass-
reykingum og fór að fíkta við kóka-
ín.
Rönneberg hefur síðan notað
kókaín og líka þegar hann var að
leika. í fyrstu óx honum ásmegin
af eitrinu en fljótlega fór það að
taka sinn toll af líkamlegri og
andlegri heiisu hans.
„Margar stóru tennisstjamanna
nota kókaín og önnur eiturlyf.
Flestar aðrar en þær sænsku, sem
allt frá byijun komast ekki upp
með neitt múður hjá þjálfurunum,"
segir Rönneberg og bætir því við,
að í kringum tennisstjömumar sé
jafnan fólk, sem lifír á eiturlyQa-
sölu.
Lengi vel tókst Rönneberg að
fela eiturlyíjaneysluna og það þótt
hann væri stundum hálfutan við sig
í keppni. Hann var hræðilega sljór,
sló boltann eitthvað út f buskann
og hnakkreifst við dómara og áhorf-
endur. Á móti á Hawaii-eyjum f
fyrra sprakk svo blaðran. Einn
norsku fararstjóranna komst á
snoðir um kókaínneysluna og
Rönneberg var útilokaður frá tenn-
iskeppni í tvö ár. Reynt var að
hjálpa honum til að sigrast á fíkn-
inni en það kom að engu haidi.
„Fyrst nú, þegar ég var hand-
tekinn, viðurkenndi ég fyrir sjálfum
mér, að ég væri eiturlyflaneytandi.
Eituriyfín voru á góðri leið með að
drepa mig og nú vil ég reyna að
komast á réttan kjöl. Eg vona, að
ég geti aftur tekið til við tennisinn
og orðið jafn góður og áður,“ segir
Rönneberg.
Upplýsingamar um eiturlyfja-
neyslu Rönnebergs hafa komið illa
við forystumenn norska tennissam-
bandsins og verða þeir nú að taka
ýmislegt til endurskoðunar. Ekki
er t.d. ólíklegt, að Rönneberg verði
sviptur konungsbikurunum, sem
hann vann til í Noregsmeistaramót-
unum, enda stríðir það gegn lögum
sambandsins, að maður undir áhrif-
um eiturlyfja verði norskur meist-
ari.
GENGI GJALDMIÐLA
Lundúnum. AP.
LITLAR breytingar urðu á gengi
bandarikjadals í gjaldeyrismörk-
uðum í gær. Hann lækkaði áfram
gagnvart japanska yeninu, féll úr
169,35 yenum í fyrradag niður
167,90 yen. Breska pundið hækk-
aði gagnvart dal. Það kostaði við
lok gjaldeyrismarkaða í gær
1,5260 dali, en kostaði í gær
1,5125 dal.
Gengi annarra helstu gjaldmiðla
heims gagnvart dal var sem hér
segin Innan sviga gengið frá því í
fyrradag. Dalurinn kostaði 2,1925
vestur-þýsk mörk (2,1900), 1,8295
svissneska franka (1,8335), 6,9900
franska franka (6,9875), 2,4740
hollensk gyllini (2,4710), 1.503,50
ítalskar lírur (1.503,00) og 1,3930
kanadíska dali (1,3880).