Morgunblaðið - 24.04.1986, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986
Hver er borga ágæt-
ust um veröld víða?
New York. AP.
Hver er borga ágætust um
veröld víða? Það veltur á ýmsu.
Melbourne í Ástralíu getur
státað af hæstu eggjaverði,
sem er um 1,64 dollarar (um
68 kr. ísl.) kílóið. Læknar eru
flestir í Brussel, einn á hveija
139 íbúa. í Moskvu eiga al-
menningsbókasöfnin flestar
bækur, alls 49.991.000 eintök.
„Svarið fer eftir því, hver
spyr,“ sagði John Tepper Marlin,
einn af höfundum bókarinnar
„Hvað fá borgir heims í eink-
unn?“ sem Free Press-forlagið
gefur út.
„Ef maður er á höttunum eftir
góðri vinnu eru borgimar þeim
mun vænlegri sem þær eru
stærri," sagði Marlin. „Vilji
maður leita fyrir sér í bifreiðaiðn-
aðinum er Detroit e.t.v. borg
borga. Þegar maður sest í helgan
stein lítur maður e.t.v. fremur í
aðrar áttir.“
Marlin og samstarfsmenn hans
báru saman um 80 málaflokka í
105 borgum og sönkuðu að sér
upplýsingum um borgimar og
stjóm þeirra. Þar getur að líta
ótal fróðleiksmola.
M.a. kemur í ljós, að í Was-
hington eru 173 símar á hveija
100 íbúa, en í Mexíkó aðeins tveir
á jafnmarga íbúa. Heimilistækja-
kostnaður er mestur í Bogota í
Kólumbíu (3.944 dollarar eða um
162.000 ísl. kr.), en lægstur í
Istanbul í Tyrklandi (1.168 doll:
arar eða um 48.000 ísl. kr.). í
borginni St. Louis em flest
manndráp framin á ári hverju,
um 58,5 á hveija 100.000 íbúa,
en í Marseille í Frakklandi „að-
eins“ 0,2 á jafnmarga íbúa.
Meðalhitinn er hæstur í Bankok
í Thailandi (28,3 gráður C), en
lægstur í Winnipeg í Kanada (2,5
gráður C). í Helsinki í Finnlandi
er hæst hlutfall kvenna, 55,5%.
Á Bombay í Indlandi eru karlar
56,4%. íbúar Ziirich hafa hæstar
meðaltekjur, 466 dollara (ríflega
19.100 ísl. kr.) á viku. í Tianjin
í Kína er annað upp á teningnum,
því að þar eru meðaltekjur íbú-
anna 8,76 dollarar (um 360 ísl
kr.) á viku. Hlutfall hjónaskilnaða
er hæst í Dallas í Bandaríkjunum,
8,4 skilnaðir á hveija 1.000 íbúa.
I Rio de Janeiro í Brazilíu er
hlutfallið hins vegar 0,2 skilnaðir
á sama íbúaíjölda.
Suður—Afríka:
Isnjómokstri á vori hinna síðu nærbuxna
Frændum okkar á Norðurlöndum þykir sem vorið hafi yfirgefið þá. Fólki brá heldur í brún um
helgina, því að þá kyngdi niður snjó bæði í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Urðu menn að taka
fram vetrarfatnaðinn, að föðurlandinu meðtöldu, og moka bíla sína upp úr sköflunum. Og ekki
var betra, að fresta þurfti fjöldamörgum mikilvægum knattspyrnuleikjum. Á myndinni sjáum við
hvar hún Annika Glimrén í Norrköping í Austur—Gotlandi í Svíþjóð er að hefja moksturinn á „vori
hinn síðu nærbuxna “, eins og Svíar kalla þetta fyrirbæri.
200 húsnæðisleysingj-
ar voru handteknir
Handtökur
í S—Kóreu
Seoul, Suður—Kóreu. AP.
NÍU menn hafa verið handteknir
og öðrum níu stefnt fyrir rétt
vegna þátttöku í mótmælum
gegn stjórnvöldum í Suður—
Kóreu.
Alls hafa 62 menn verið hand-
teknir fyrir að mótmæla stjómar-
farinu í Suður—Kóreu en að undan-
fömu hefur komið til harðra átaka
milli mótmælenda og lögreglu. Kór-
eski lýðræðisflokkurinn, helsti
stjómarandstöðuflokkurinn í
landinu, krefst aukins lýðræðis í
S—Kóreu og vinnur nú að því að
fá 10 milljónir til að styðja þá kröfu
með undirskrift sinni.
Jóhannesarborg. AP.
UM 200 blökkumenn voru hand-
teknir i búðum heimilislausra í
Lawaaikamp, nærri strandborg-
inni George, í gær. Að sögn
lögreglunnar voru mennirnir
teknir höndum vegna rannsókn-
ar á óeirðum í nágrenninu síð-
ustu daga.
Aðgerðimar minna á innreið hers
og lögreglu í Lamontville, borgar-
hverfí svartra utan við Durban, í
síðustu viku. Húsnæðisleysingjum
er gefíð að sök að standa á bak við
óeirðir, m.a. í George, sem var
kjördæmi P. W. Botha, forseta
Suður-Afríku, er hann sat á þingi.
Alls voru 55 menn handteknir í
Lamontville, en lögregla og her-
menn hafa gert þar húsleit í hveiju
húsi síðustu daga. Hinum hand-
teknu hefur verið gefíð ýmislegt að
sök, allt frá ólöglegum vopnaburði
upp í morð.
Um 700 her- og lögreglumenn
héldu innreið í Lamontville aðfara-
nótt miðvikudagsins í síðustu viku
að beiðni hverfísráðsins þar. Að
sögn yfírvalda var óskað eftir að-
gerðum til að stöðva óeirðir, sem
verið höfðu nær linnulausar í hverf-
inu.
Að sögn lögreglu særðust þrír
blökkumenn alvarlega er jarð-
sprengjur spmngu á þremur stöðum
í landinu á mánudagskvöld. Lög-
reglan segir skæruliða Afríska þjóð-
arráðsins bera ábyrgð á sprenging-
unum, en talsmenn þess í Lusaka
f Zambíu vísuðu þeirri fullyrðingu
á bug í gær.
Lögreglan umkringdi Alexandra,
borgarhverfí blakkra í jaðri Jóhann-
esarborgar, vegna óeirða þar annan
daginn í röð. íbúar í hverfínu sögðu
átta menn hafa beðið bana í aðgerð-
um lögreglunnar. Lögreglan heldur
því hins vegar fram að einn maður
hafí beðið bana. Hann hefði fundizt
í húsi sínu, sem brennt hafði verið
til grunna.
Stjómin afnam passalögin form-
lega í gær. Lögin voru sett fyrir
um fjörutíu árum og takmörkuðu
þau mjög ferðafrelsi blökkumanna
í Suður-Afríku. Nýjar reglur, sem
settar verða, munu þó þýða að litlar
sem engar breytingar verða á hög-
um blakkra og verður því svo fyrir
komið að auðvelt verður að meina
flutning milli hverfa.
Sjálfsmorð unglinga
í Japan í örum vexti
Tókýó, Japan. AP.
SJÁLFSMORÐ vinsællar dægur-
lagasöngkonu fyrir tveimur vik-
um hefur komið af stað öldu
sjálfsmorða meðal japanskra
ungmenna. Hefur 31 ungmenni
svipt sig lífi á undanförnum
tveimur vikum, að sögn japan-
skra fjölmiðla.
Kvikmyndaleikslj órinn
Otto Preminger látinn
New York. AP.
KVIKMYNDALEIKSTJÓRINN Otto Preminger lést í New York
í fyrrinótt 79 ára að aldri. Banamein hans var krabbamein.
Preminger var fæddur í Vínar- í umgengni og sögðu leikarar sem
borg í Austurríki 5. desember
1906. Hann var lögfræðingur að
mennt og fluttist til Bandaríkj-
anna árið 1935, þar sem hann hóf
þegar að leikstýra kvikmyndum.
Fyrsta mynd hans, „Under your
spell" kom fyrir sjónir almennings
árið eftireða 1936.
Preminger var umdeildur og fór
eigin leiðir í verkum sínum. Hann
gat sér orð fyrir að taka fyrir
forboðin efni í þeim kvikmyndum
sem hann leikstýrði og voru
nokkrar myndir hans bannaðar
um tíma í sumum borgum Banda-
ríkjanna. Preminger þótti erfíður
undir hans stjóm unnu, að ill-
mögulegt væri að vinna með
honum sökum mislyndis.
Meðal mynda Premingers má
nefna: „Forever Amber" (1947),
„Carmen Jones" (1954), „Ana-
tomy of a Murder" (1959), „Exod-
us“ (1960), „Advise and Consent"
(1961), „The Cardinal" (1963),
„Hurry Sundown" (1967) og
„Skiddoo" (1968). Síðustu myndir
hans þóttu ekki vel heppnaðar og
nutu lítilla vinsælda. Auk þess að
leikstýra kvikmyndum leikstýrði
Preminger einnig leikritum á
Broadway á fímmta áratuginum.
Otto Preminger
„Eg vil líkjast söngkonunni
Yukiko Okada,“ sagði 16 áragömul
stúlka við systur sína áður en hún
fleygði sér fram af 13. hæð bygg-
ingar í Tókýó í síðustu viku, að
því er japönsk blöð herma. Einn og
sama daginn sviptu fímm unglingar
sig lífí og 20 af þessum 31 hafa
beitt þeirri aðferð að fleygja sér
fram af byggingum.
Flestir unglingamir skildu eftir
bréf, þar sem ástæður sjálfsmorðs-
ins voru útskýrðar. Flestar voru
ástæðumar vonleysi og svartsýni á
framtíðina, skortur á sjálfstrausti
og ósætti við foreldra.
Á síðasta ári svptu 557 unglingar
undir 18 ára aldri sig lífí í Japan.
Þá hafði sjálfsmorðstíðnin minnkað
um nær helming frá árinu 1979,
þegar 919 unglingar frömdu sjálfs-
morð. Á þessu ári nemur aukningin
hins vegar 20%, en 213 unglingar
hafa tekið líf sitt til þessa.
Árið 1982 var Japan sjötta í
röðinni af ríkjum heims hvað sjálfs-
morð unglinga snertir, en 10,6 af
hveijum 100 þúsund unglingum þar
frömdu sjálfsmorð. Ástralía var í
fyrsta sæti með 20,5, Finnland í
öðm sæti með 17,9 og Ungveija-
land í þriðja sæti með 17,7.
Gefa út endurminn-
ingar Shcharanskys
New York. AP.
SOVESKI andófsmaðurinn
Anatoly Shcharansky hefur gert
samkomulag við Random House-
útgáfufyrirtækið um útgáfu
endurminningabókar eftir hann,
að þvi er umboðsmaður hans
sagði á þriðjudag.
Ekki hefur verið gengið frá fjár-
málahlið útgáfunnar, en útgáfu-
stjórinn, Marvin Josephson, kvað
fyrirtækið mundu gefa út fréttatil-
kynningu, þegar málið væri í höfn.
Shcharansky, sem sat í níu ár í
fangabúðum í Sovétríkjunum áður
en__honum var leyft að fara tíl
Vesturlanda í febrúarmánuði sl.,
býr nú í Israel. Hann fer til Banda-
ríkjanna í næsta mánuði og hittir
Ronald Reagan Bandaríkjaforseta
að máli.
Josephson sagði, að Shcharansky
ætlaði „að halda áfram baráttu
sinni fyrir að fá brottfararleyfí
handa þeim hundruðum þúsunda
gyðinga, sem vilja fara frá Sovét-
ríkjunum, og eftir því sem ég veit
best ætlar hann hvorki að spara
tíma né peninga til að vinna að
framgangi þessa máls“.