Morgunblaðið - 24.04.1986, Side 51

Morgunblaðið - 24.04.1986, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986 51 Ég ætla mér ekki að skrá niður lífshlaup míns kæra frænda, heldur eru þessar línur smáþakklætisvott- ur fyrir að hafa átt samleið með góðum dreng. Ég sendi þér, Ólöf, börnum þín- um, tengdabömum og bamabörn- um, mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Grétar Hjartarson Það er undarleg tilfinning að eiga þess ekki oftar kost að hitta Pál Björnsson. Ég var aðeins átta ára þegar hann kvæntist Ólöfu móður- systur minni og æ síðan hef ég haft skýra mynd af honum í hugan- um. Hann var prúðmannlegur í fasi og drengilegur í framgöngu, skemmtinn í vinahóp og lagði gott til manna og málefna. Bamgóður var hann og vildi leysa vanda þeirra, sem til hans leituðu. Hann var snyrtimenni og bjó vel að sínu og sínum. Maður útivistar og hneigður til ferðalaga um landið með fjöl- skyldu sinni. Einkum vom honum Þórsmerkurferðir kærar, svo að honum þótti ekki sumar sumar nema hann gæti notið þar fjallalofts frjálsrar náttúm. Ahugamál hans vom bundin landi og þjóð. Þess vegna hafði hann einkum gaman af lestri ferða- bóka og ævisagna. Hann hafði sterkar stjórnmálaskoðanir og lét sig einkum málefni sjávarútvegsins skipta. Hann hafði yfir sér hógvært og þó festulegt yfirbragð eins og oft einkennir þá, sem hafa verið sjómenn frá blautu bamsbeini. Páll Bjömsson fæddist í Ána- naustum hin 27. febrúar 1918, sonur hjónanna Björn Jónssonar skipstjóra og Önnu Pálsdóttur. Hann vandist ungur sjómennsku með föður sínum og var m.a. með honum á línuveiðaranum Sigríði. Hann brautskráðist frá Stýri- mannaskólanum 1941 og varð þá stýrimaður á ms. Þórði Sveinssyni og síðar fyrst á Geir eldra en síðan á nýsköpunartogaranum Geir frá 1942 til 1960. Næsta áratug var hann stýrimaður og skipstjóri á ýmsum togurum Bæjarútgerðar Reylrjavíkur, unz hann gerðist hafnsögumaður í Reykjavík 1960 og gegndi hann því starfi til dauða- dags 15. apríl sl. Páll Bjömsson lét félagsmál mjög til sín taka. Hann var formaður Starfsmannafélags Reykjavíkur- hafnar 1968—1971. Hann var mjög ötull í starfí Fulltrúaráðs sjálfstæð- isfélaganna í Reykjavík og í stjóm Landsmálafélagsins Varðar 1955 til 1958 og 1973 til 1977. Hinn 31. ágúst 1946 kvæntist hann Ólöfu menntaskólakennara, dóttur Benedikts Sveinssonar al- þingismanns og Guðrúnar Péturs- dóttur úr Engey. Þau Páll og Ólöf áttu tvær dætur, Önnu meinatækni og Ragnhildi kennara. Þá gekk Páll Guðrúnu Guðjónsdóttur kennara, dóttur Ólafar frá fyrra hjónabandi, í föðurstaðs. Barnabömin eru átta. Páll og Ólöf vom samhent og samrýnd, vinmörg og höfðingjar heim að sækja og áttu fallegt heim- ili í Sporðagmnni 12, en þangað fluttust þau á 10 ára brúðkaupsdegi sínum. Þaðan á ég góðar minningar og finn, þegar ég læt hugann reika til baka, að þeim hjónum hefur tekist, svo að fátítt er, að halda trúnaði og trausti bama sinna og bamabama. Það kalla ég að vera gæfumaður. Nú verður Páll Bjömsson til moldar borinn á morgun. Missirinn er mikill og skilnaðurinn sár. Við Rúna og fjölskylda okkar hugsum til þeirra í dag og tökum þátt í söknuði þeirra. En þar er huggun harmi gegn að minningamar lifa frá löngu æviskeiði með góðum dreng. Halldór Blöndal Páll Bjömsson, hafnsögumaður í Reykjavík, Iést í Landakotsspítala eftir stutta sjúkdómslegu, nýlega 68 ára gamall. Páll fæddist í Reykjavík, sonur Bjöms Jónssonar skipstjóra frá Ánanaustum og konu hans, Önnu Pálsdóttur. Kona Páls er Ólöf Bene- diktsdóttir og áttu þau 2 dætur, en Ólöf átti eina dóttur frá fyrra hjóna- bandi, sem Páll tók sem sína eigin dóttur. Okkur hjónum langar nú að leið- arlokum að þakka langa vináttu og gott sambýli, sem staðið hefur í hartnær 30 ár. Það má segja að við Páll höfum gengið æviveginn saman að stærstum hluta, þannig að eftir þessi löngu kynni vill myndast einhvers konar tómarúm. Þessi kynni hófust árið 1939 með því að sex ungir sjómannssynir, allir úr vesturbænum, hittust við setningu Stýrimannaskólans það ár og hafa þessi kynni haldist öll þessi ár, sem okkur hafa fundist vera einn af þessum föstu og góðu liðum í tilverunni. Það myndast nokkurs konar þörf fyrir að hittast og halda vináttunni við þegar kynni he§ast þetta snemma á lífsleiðinni. Seinna byggðum við, ég og Margrét kona mín, hús í sambýli við Pál og Ólöfu og höfum eins og fyrr er sagt búið þar í 30 ár. Einnig unnum við Páll saman síðustu 25 árin hjá Reykja- víkurhöfn. Páll var hlédrægur maður og ekki allra, en að vera með honum í fámennum hópi var þægilegt og gott, grunnt á kímninni og gaman- yrðum. Páll var einstakur heimilisfaðir og bamgóður með afbrigðum, og ræktaði sinn garð vel í þess orðs fyllstu merkingu. Þegar Páll var kominn út í garð að taka til og hreinsa þá var vorið ekki langt undan, og snyrtimennskan svo af bar hvar sem Páll gekk um. Fyrir þessi löngu og góðu kynni langar mig og Margréti konu minni að færa þakkir að leiðarlokum, og senda Ólöfu, hans traustu og mikil- hæfu konu og dætrunum þremur innilegar samúðarkveðjur. Hafi Páll þökk fyrir löng og góð kynni. Margrét og Jóhann Páll var bamfæddur Reykvíking- ur, leit dagsins ljós að Ánanaustum, sonur hjónanna Bjöms Jónssonar skipstjóra og konu hans Önnu Páls- dóttur. Lífshlaup Páls hefst í byijun árs mikilla viðburða í sögu okkar ástkæra lands elds og ísa; Kötlugos, frostavetur, lok fyrri heimsstyijald- ar, fullveldi íslands og spænska veikin. Þá bætist Páll í hóp bama þessara heiðurshjóna, og víst er um það, að frá foreldrahúsum fékk hann það veganesti að standa vel undir nafni, því snemma lagði hann hönd á plóginn að byggja upp og laga traustar stoðir að því sem fæðingarbær hans er í dag. Hann helgaði líf sitt sjómennsku, komst þar til æðstu metorða. Hætti skip- stjóm 1959 og gerðist hafnsögu- maður. Allt hans líf tengdist sjó- mennsku, störf sem hann vann af öryggi og festu þess manns, sem tileinkaði sér það allt sitt líf, að enginn er svo lítill, að hann geti ekki kennt manni eitthvað. Ég sem þessar línur rita, átti því láni að fagna að kynnast Páli Bjömssyni og tel mér það til tekna í mínu lífs- hlaupi, að hafa verið samskipa honum á togurum, fyrst á gamla Geir, síðar á nýsköpunartogaranum Geir, og þá Jóni Baldvinssyni, hann sem stýrimaður og ég sem mat- sveinn. Þar kynntist ég mannkost- um hans í lífi og starfí, því ekkert tengir menn betur saman í lífs- baráttunni en skip og áhöfn, glíman við Ægi spyr ekki hver ert þú, heldur komdu ef þú þorir. Sjó- mennska er fómfúsasta starf sem lífsstarf, sem hægt er að vinna þessari þjóð til framdráttar, og er Páll þar í heiðurssæti góðra minn- inga minna um hann. Páll var snyrtimenni fram í fíngurgóma. Við áttum gott samstarf um góða umgengni þar sem við vorum sam- an, hann var hrókur alls fagnaðar á gleðistundum, lagði þeim lið sem minnimáttar voru, beinskeyttur og ákveðinn, talaði tæpitungulaust ef honum líkaði ekki hlutimir, hrein- skilinn til orðs og æðis. Páll kvæntist 31. ágúst 1946 sæmdarkonunni Ólöfu Benedikts- dóttur menntaskólakennara, sem bjó honum yndislegt heimili, og stóð við bakið á honum í blíðu og stríðu. Það er aldrei þakkað sem skyldi að vera góð sjómannskona. Ég bið guð að styrkja Ólöfu, böm, alla niðja og aðra er kynntust Páli. Það er skarð fyrir skildi, sannur heiðurs- maður hrifínn burtu svo skyndilega. Þakka samfylgdina, blessuð sé minning hans. Steingrímur Nikulásson Minning: SigurðurB. Arnmunds son, Akranesi Fæddur 27. desember 1925 Dáinn 17. apríl 1986 í dag verður til moldar borinn vinur minn og frændi, Sigurður Bjartmar Arnmundsson frá Akra- nesj. Áður en yfír lauk hafði hann háð vonlausa baráttu í 5 ár við sjaldgæf- an og banvænan sjúkdóm. Baráttu sína háði Sigurður frændi minn með þvílíkum hetjuskap að með ólíkind- um máteljast. Eins og svo margir hafa gert áður, sem elska lífíð og vilja lifa, sýndi Sigurður frændi minn það og sannaði á sjálfum sér, að í ógnar- átökum andspænis dauðanum öðl- aðist lífíð nýjan og óskiljanlegan kraft. Jafnvel þótt glíman sé von- laus er hún samt það eina sem skiptir máli og það er eins og menn sættist á hlutskipti sitt er nær dregur endalokum. Sigurður Arnmundsson var móð- urbróður minn, einn fímm systkina og barna þeirra Arnmundar Gísla- sonar og Ingiríðar Sigurðardóttur frá Akranesi, sem bæði eru látin fyrir nokkrum árum. Sigurður var eins og systur hans fjórar fæddur og uppalinn á Akranesi og bjó þar til dauðadags. Sjálfur er ég fæddur á Akranesi og uppalinn í faðmi fjölda frændfólks og vina. Ég tel það mína gæfu. Ég er nefnilega þeirrar skoðunar að mannlífíð í hæfílegu fámenni sé persónulegra og skemmtilegra. Þar eru menn eða voru a.m.k. mátulega jarðbundnir til þess að geta heilsast hressilega á götuhomum og rætt af viti um undirstöðu þjóðarbúsins. í athafna- plássum eru böm og unglingar í nauðsynlegri nálægð við atvinnulíf- ið til þess að skilja þýðingu þess og Iæra að meta afrakstur erfiðis- vinnu. Sú hagfræði hefur reynst mörgum notadijúg, enda er hún einföld og rökrétt. Auk frændseminnar við Sigurð, naut ég þess, þrátt fyrir nokkum aldursmun, að vera vinnufélagi hans á Akranesi nokkum veginn frá því ég man fyrst eftir mér. Faðir minn heitinn, Halldór Back- man, byggingameistari, og Sigurð- ur vom nefnilega vinnufélagar frá upphafi við sjósókn, húsbyggingar, í bæjarvinnunni og ýmsu öðm sem til féll. Auk þess áttu þeir sameigin- lega það áhugamál og börðust fyrir því ótæpilega að koma á sósíalisma á íslandi eða a.m.k. á Akranesi. Þeir ásamt mörgum góðum konum og körlum mynduðu sem sagt kjarnann í gömlu kommaklíkunni á Akranesi við „Rauðatorgið" svo- kallaða. Sjálfur naut ég þeirra for- réttinda að búa í „Kreml". Af þessu má sjá að jarðvegur var fijór á þessum ámm og uppvaxtarskilyrði hagstæð fyrir ungling. Á þessum ámm naut ég þess vegna Sigurðar sem góðs félaga og leiðbeinanda. Að loknu skólanámi á vorin var sumarvinnan mikið tilhlökkunar- efni, enda bauð hún uppá samfélag við marga stórgáfaða menn sem fylltu þennan vinnuflokk í kringum föður minn. Sigurður frændi minn er mér mjög minnisstæður. Hann var glæsilegur maður á velli og tals- verður íþróttamaður á yngri ámm. Hann var mikill öðlingur í lund. Hann var góðum gáfum gæddur og geðprúður svo af bar. Hann var einkar hugmyndaríkur og er þá komið að þeim þætti í fari hans sem mér er hvað minnisstæðastur. Frá því að ég fyrst man eftir mér, var það nefnilega líf og yndi Sigurðar að spekúlera í gjörvöllu umhverfí sínu, smáu sem stóm. Sem slíkur hafði hann óskaplegt aðdráttarafl. Að áliti Sigurðar var nauðsynlegt að finna rök fyrir öllum hlutum og þegar þeir nú lögðu saman, Sigurður, Ámi Ingimundar- son, faðir minn og nokkrir aðrir, varð torfundin sú gáta að ekki i fyndist á henni viðunandi lausn a.m.k. til bráðabirgða. Eftir að hóp- ur þessi leystist upp fyrir þá sök að margir félaganna fluttu til Reykjavíkur upp úr 1960, fylgdi þessi nautn af vangaveltunum og samræðulistinni öllum þessum mönnum og fylgir enn. Þetta var mjög áberandi í fari föður míns alveg til hins síðasta, öllum til mikillar ánægju. Sigurður var uppfínningamaður af guðsnáð. Hann hafði ótrúlega lagni og hæfileika til að skilja lög- mál tækninnar og færa sér þau í nyt. Alveg til hins síðasta vann hann að lausn flókins dæmis á sviði orkufræði og hafði m.a. fengið dá- góðar undirtektir við hugmyndum sínum erlendis: Eins og dæmin hafa margsann- að, er auðvelt að ná býsna langt í þessu þjóðfélagi á metnaðargirnd- inni einni saman. Með þeim hætti ná menn að vísu oft hærra og lengra en þeir raunverulega ráða við. Vil- mundur Jónsson landlæknir orðar þetta á þann veg einhvers staðar, að „þeir sem geta vilja ekki en þeir sem vilja geta ekki“. Þetta langlífa og neikvæða atferlislögmál íslend- inga hefur verið þjóðinni mjög kostnaðarsamt í gegnum tíðina. En því er ég að minna á þessi atriði, að Sigurður frændi minn var ekki metnaðargjam maður fyrir sína hönd en mjög góðum gáfum gæddur. Hann fyllti því flokk þeirra hógværu og lítillátu. Hann verður áreiðanlega seint sakaður um að hafa skarað eld að eigin köku. Miðað við þekkingu hans og hæfíleika hef ég þess vegna alltaf verið þeirrar skoðunar að hann væri á rangri hillu í þeirri merkingu að þekking hans og hæfileikar hafa aldrei notið sín að neinu ráði. Með langskólanámi og viðeigandi próf- skírteinum er ég nefnilega viss um að hann hefði getað afrekað ýmis- legt fyrir þjóð sína. En nú er ég hins vegar farinn að orða þá hluti sem ég veit að honum hefðu verið þvertumgeð. Fyrir unglingsár mín á Akranesi vil ég færa Sigurði sérstakar þakk- ir. Ég naut hans og eftirlifandi konu hans, Valgerðar Þórólfsdótt- ur, hin síðari ár þegar ég átti erindi upp á Akranes, oftast í tengslum við lögfræðistörf. Gestrisni þeirra og vinátta var alla tíð einstök. Fyrir það færi égþeim báðum þakkir. Við hjónin og íjölskylda mín, systkini mín og móðir, vottum fjöl- skyldu Sigurðar og öllum vinum dýpstu samúð. Sérstakar þakkir færum við Valgerði konu hans fyrir dugnað hennar til síðustu stundar og alúð við umönnun hans. Við þökkum henni og bömum þeirra fyrir sérstaka vináttu og frændsemi alla tíð. Arnmundur Backman Ingibjörg Sigiir- linnadóttir — Minning Fædd 30. mars 1926 Dáin 21. mars 1986 Hinn 21. mars sl. lést vinkona okkar, Ingibjörg Sigurlinnadóttir. Hún var dóttir sæmdarhjónanna Vilhelmínu Ólafsdóttur og Sigur- linna Péturssonar byggingameist- ara, sem bæði eru látin, elst 6 barna. Það hlaut því að koma í hennar hlut að vera stoð og stytta móður sinnar á stóru og erilsömu heimili. Við kynntumst 14 ára gamlar í gagnfræðaskóla og héldum hópinn alla tíð síðan. Eigum við margar góðar minningar frá skólaárunum í gaggó og menntó. Inga var einstakur persónuleiki og vinmörg. Þetta voru skemmti- legir tímar. Það þótti mikill við- burður þegar stúdentar frá MR ár- gangur 1946, fóru til Norðurlanda á 100 ára afmæli skólans. Það má segja að skólaárín hafí verið skemmtileg og stúdentsárin stór- kostleg, og áttu Inga og Steini mikinn þátt í því. Um tíma stundaði Inga nám við Háskóla íslands. Þar kynntist hún lífsförunaut sínum, Steingrími Kristjánssyni, sem þá var að hefja nám í lyfjafræði og er nú lyfsali við Árbæjarapótek. Þau gengu í hjónaband 5. ágúst 1950. Síðan lá leiðin til Kaupmannahafn- ar, þar sem Steingrímur stundaði framhaldsnám. Lífíð blasti við enda voru þau hjón einstaklega samhent í öllu. Vinahópurinn var stór og þau voru með afbrigðum gestrisin. Heimili þeirra stóð öllum opið, hvort sem var í Kaupmannahöfn, Reykja- vík eða Siglufírði, en þar bjuggu þau í átta ár. Inga reyndist fjölskyldu sinni afar vel og voru þau ekki fá frænd- systkin hennar sem nutu góðvildar hennar og skilnings, sum dvöldu hjá þeim hjónum vetrarlangt við Lokað föstudaginn 25. apríl frá 13.00-15.30 vegna jarÖarfararfrú ÞÓRDÍSAR HÓLM. Gullfiskabúðin, Aöalstræti 4, Fischersundi. skólanám. Inga var listræn enda faðir hennar þúsundþjala smiður, sem margir þekkja til. Voru þau feðgin mjög samrýnd. Inga og Steini eignuðust einn son, Kristján, sem varð augasteinn foreldra sinna og eftirlæti, enda efnispiltur. Hann er kvæntur Þór- unni Guðmundsdóttur og eiga þau tveggja ára gamlan son, Steingrím. Síðustu árin átti Inga við van- heilsu að stríða og reyndist Stein- grímur henni einstaklega vel. Að leiðarlokum viljum við þakka Ingu fyrir trygga vináttu og allar góðar stundir. Blessuð sé minning hennar. Saumaklúbburinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.