Morgunblaðið - 24.04.1986, Page 54

Morgunblaðið - 24.04.1986, Page 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986 Þjóðvamar- og land- varnarmenn Islands eftir Gísla Kristjánsson Það hefur verið staðið í stríði við sjómenn, sem mér finnst mega kalla með nokkrum rétti landvamarmenn íslands, þó með fullri virðingu fyrir hveijum vinnuhóp og starfandi hönd. Já, staðið í stríði árlega svo vik- um skiptir varðandi kaup og Igör. ^ Vissulega bera margir sjómenn allmikið úr býtum en vinnan er hörð og vægðarlaus. Aflamaðurinn, skipstjórinn, telur það skyldu sína að slá ekki slöku við og skipshöfnin er vinnufús og allir sjá sinn hag í miklum afla, bregða sér ekki við sárar hendur og skerandi þreytu. Dylst íslensku þjóðinni hversu mikilsvert starf sjómannsins er án þess þó að vanmeta nokkurt starf sem vel er af hendi leyst og með trúmennsku? En er það ekki tiltölu- lega lítill hópur sem færir þjóðinni vart undir 70% tekna, áður 90% og yfír. Er hann þess ekki verður að vel sé til hans hugsað og maklega? _ Hugsað til þess að barátta við afl ^ hafs og storma hefur í tfmans rás hrifíð úr hópi þeirra vart minna hlutfallslega en ógurlegustu styij- aldir stórþjóða. Og hvenær lýkur starfí íslenska sjómannsins? Aldrei meðan hann hefur nokkurt þrek og ef til vill ekki einu sinni þá heldur borgar hann, og erfíð störf leysir hann af gamaili verklagni. Hermað- urinn sem komst lífs af úr blóðugum hildarleik kann að vera leystur frá herþjónustu af einni eða annarri orsök, særður, aldraður eða hvort w tveggja. Ég játa að ég hef enga þekkingu á reglum sem eftir er farið meðal styijaldarþjóða og lofa að minnast ekki á það framar. Ég var hins vegar að hugleiða ævilg'ör sjómannsins íslenska sem ég leyfði mér f upphafí að nefna landvamar- mann fslensku þjóðarinnar. Ég er ekki að vorkenna kempunum, þær eru kjaminn, blóminn úr þjóðinni, að öðrum ólöstuðum. Mér dettur í hug að nú þegar verði athugað af Alþirigi og ríkisstjómum með hvaða hætti helst verði komið á sáttum við hinn, að mfnu mati, mikilsverð- asta starfshóp þjóðarinnar. Krón- una viljum við hljóta og sem allra flestar vegna þess hve hún er vesöl og smá. Tíundi hvers mánaðar er mér tilhlökkun, þá fæ ég, iðjulaus maðurinn, útborgaðar þúsundir króna og kaupi tóbaksdós þó hækk- að hafí í verði mörg hundmð pró- sent á fáum mánuðum. Svo mér hefur dottið í hug að maður megi ekki iáta eftir sér að fá sér ögn í vörina sem er langur og ljótur vani fyrir mér í 70 ár. ‘Var á sjónum milli 30 og 40 ár og fannst það hressa. Ég vildi nú alveg hætta, smækka nú aðeins skammtinn sem ég læt í vörina hveiju sinni. Ásetn- ing vill þó oft skorta og trausta staðfestu líkt og Svíann sem ásetti sér að hætta áfengisdrykkju og bætti við: „Trur jág (held ég)“. Sleppum öllu spaugi, en hugleið- um alvarlegri málefni sem sífellt ríkja í hug mér varðandi íslenska sjómenn sem oss ber að búa svo að, að til sóma sé. Kuldi og vosbúð, slys og allskyns hættur fylgja starfi þeirra sem þó hefur farið fækkandi svo undrum sætir fyrir lofsvert starf Slysavamafélags íslands, kvenna og karla í tug þúsunda tali og, segja má, þjóðinni allri. Dregið hefur, guði sé lof, úr hinum ógurlegu tjón- um og töpum skipshafna og skipa. Var ægilegt fyrir ogeftir 1920. Mér dettur í hug að manni, sem hefur verið sjómaður í 35 ár, standi til boða starf í landi óski hann þess, annars sé hann sjálfráður. Þetta sé stutt óhaggandi lagaboði. Sjómönn- um sé tryggð vinna hveijum við sitt hæfi og skylt sé hverri ríkis- stjóm að sjá um að svo megi verða. Mér, undirrituðum, eru kunnar skoðanir sjómanna og tilfinningar, þeir þrá hafíð og nærveru þess og það er þeim kært og minnisstætt, engu síður en unglingunum fyrsta hrifíngin, skotið, sem aldrei varð meira, en gleymist seint eða aldrei. Gamli sjómaðurinn margur fer hijúfri, þreyttri hendi um fleytuna sem bar hann ungan og frískan hlakkandi um hafíð sem hann minnist ævinlega og gieymir seint eða aldrei. Sérfræðingar varðandi líkama mannsins telja að við 25—30 ára aldur nái hann fullu þreki en síðan fari það þverrandi. Fimmtugur hafí hann 55% þols sem hann hafði sem mest. Heilbrigður og bráðþroska 16 ára unglingur byijar oft að starfa við fiskveiðar. Ég, undirritaður, var á ellefta ári er ég byijaði ásamt bróð- ur mínum og við rerum 13 vor, sumur og haust. Síðar tók við all- löng dvöl á vélbátum eystra og í Vestmannaeyjum og síðar stutt dvöl á togara og kunni ég ekki að búa mig eins og við átti og því sí- fellt klofblautur sem endaði með að ég fékk liðagigt. Fór í land og heim og batnaði brátt fyrir að- hlynningu móður minnar sem lengi ævi sinnar þjáðist af liðagigt, kvala- fullri, varð þó 95 ára. Beitti hún sig ótrúlegri hörku í sárustu þján- ingunum sem dvínuðu er aldur færðist yfír. Kynni mín af sjómönn- um og störfum þeirra hafa orðið nokkur. Þátttaka í almennum störf- um þjóðarinnar er ungu fólki þrosk- Gísli Kristjánsson andi og gott faramesti síðar á æviferli. Þegar sjómaður fær loks maklegt frí frá langvarandi og allþreytandi starfí ætti að koma í hans rúm hraustur unglingur sem nyti leið- beininga hinna eldri skipsfélaga og ef að líkum lætur er hann hinn liðtækasti eftir 5—6 mánuði. Á þann hátt á að endumýja skips- hafnir endalaust. Hinn ungi, efni- legi kynnist mikilsverðasta starfí þjóðarinnar. Margar miður æskileg- ar freistingar kunna að verða á leið hans á sjónum, en hvemig hann snýst við þeim fer eftir hans stað- festu og mannkostum. En voru þær freistingar ekki líka fyrir á göturáp- inu og síst æskilegri? Mennimir í mjúku hægindastól- unum em að sögn örlátir á krónur við sjálfa sig, já, svo að alþjóð ofbýður. Hví skyldi skera við nögl hagsbætur ýmiss konar til handa landvamarmönnum íslands, meðal annars að gefa þeim kost á starfí í landi þeim er það vilja þiggja, þegar staðið hafa í 35 ár eða lengur við erfíð störf á sjó? Er ekki sjálfsagt að vanda valið við landsvamamennina og með skynsamlegum ráðum koma í veg fyrir að þeim sé ofboðið, jafnvel geri það sjálfír af ást á hafinu, starfí sínu og ættjörð. Jú, val þessa starfshóps á að vanda og búa að honum eftir því sem best má. Eftir erfítt starf á sjó í 35 ár og oft lengur hafa þessir menn ef til vill hlotið skrokkskjóður sem baga þá og valda mönnum miklum óþægind- um þó að þeir standi áfram við störf, bíti á jaxl og þoli kvölina. En bakið bilar, einnig fætur og fleira þjáir. Því ætti sjómaðurinn að eiga völ á vinnu í landi meðan enn er eftir allgott vinnuþol. Sé seint að þessu horfíð eru líkumar minni til starfsins í landi fyrir sjó- mann fimmtugan eða rúmlega það. Allri þjóðinni ber að hugleiða ástand og ástæður hins aldraða sjó- manns, hlutast til um að sem best sé við hann breytt, eftir áratuga baráttu hans við storm og stórsjó. Vesælar íslenskar krónur em ekki allt sem sækjast skal eftir, heldur sem lengst fýrir hinn vinnufúsa að geta litið með öryggi á möguleika til að vinna fyrir daglegum þörfum fyrir mannsæmandi laun. Engum ber meira lof en íslensk- um dugnaðarsjómanni. Hann er í fremstu röð landvamarmanna og þjóðarinnar allrar eins og hún legg- ur sig, þó virða beri og fjölda nyt- samra starfa sem unnin eru og vinna þarf. En aflabrögðin eru enn sem komið er undirstaðan. Heilsu- hraustir menn og konur eiga ekki að njóta ellilífeyris. Þau kjósa ekki að hætta að vinna, þeim leiðist idju- leysið. Líklega ákvað Bismark þessi aldurstakmörk fyrir 100 árum þegar hann sá fyrir fótum sér velt- ast vesalings menn sem vantaði á hendur og fætur. Sé vinnu að fá vill enginn heilsuhraust manneskja híma auðum höndum og eiga ólifað fyölda ára. Iðjuleysið lamar hana og færir yfír hana elli og leiðindi. Nær væri að hækka ellilífeyri og miða við 70 ár. Aldur manna hækkar. Geta almannatryggingar, sem er raunar ríkið, staðið skil á greiðslum er tímar líða? Fólkið á nú betri ævikjör en áður og heilsan mun betri. Að hætta störfum býður að líkindum ellinni heim. Höfundur var áður sjómaður og útgerðarmaður. ITALSKA RIVIERAN BEINT FLUCmedTERRU RIVIERU-FERÐIR OKKAR HEFJAST: 26. maí 16. júní 7. júlí 28. júlí 18. ágúst 8. september 3 vikur 3 vikur 3 vikur 3 vikur 3 vikur 3 vikur BERID SAMAN OKKAR VERÐ OG ANNARRA FRÁ KR. 23.000.- í 3 VIKUR \ Hvaö segja þeir sem tókur sér far með Terru 1985 Pietra Ligure er á þeim hluta Rivierunnarsem heltir „Riviera Delle Palme“, eftir pálmunum æm eru þar ríkjandi gróður. Pietra er gamall bær frá þvf um 1300, en tiltölulega nýr æm ferðamannastaöur og hefur þvf enn þá varð- veltt sórkenni sfn æm ftalskur lifandl bær, en býöur þó upp á allt þaö æm feröamaöur f sumarleyfi vlll hafa, ómengaöan sjó, að- stööu til fþrótta, góö veltinga- og kaffihús og um fram allt Iff og fjör. Alassio er þar á Rivierunni æm kallast „Rlvlera dei Fiori“ eöa Blómarivieran. Þar eru ræktaöar nellikur, róslr og ótal aðrar teg- undir af blómum á hundruöm hektara. Alass- lo er gamalgróinn feröamannastaöur meö al- þjóölegum blæ. Þangað hafa vaniö komur sfnar frá þvf snemma á öldinni Bretar og Svf- ar, enda ströndln f Alassio f elnu orðl ægt f rá- bær. í Alassio er skemmtanalff fjölbreyttara og úrval sölubúöa melra en vföast hvar ann- ars staðar á ströndinnl. Éin skoðunarferðin er til Genova, sem er stærsta hafnarborg ftalíu með 800.000 fbúa og skoöum iðandi mannllf þessarar gömlu og fögru stór- borgar. Þar er m.a. miðstöð skemmtiferöa- sklpaslgllnga margra þjóða um Miöjaröarhaf- ið. I Genova fæddist einn frægasti sonur Ítalíu Kristófer Kólumbus. Aðeins er um hálf tfma ferð (lest til Genova ef menn vilja skoða nánar listasöfn, óperu, leikhús, stórverslanir og hiö fjölbreytta næturíff sem þar er aö finna. La Spezia FERÐASKRIFSTOFAN 'erra Fáið lánaða hjá okkur VHS—myndbandsspólu! LAUGAVEGI 28, 101 REYKJAvÍK Hln elna sanna Rivlera? I Encyclopedia Brlt- tanlca stendur: „Rlviera, Mlöjaröarhafs- strandlengjan milli Cannes f Frakklandl og La Spezla á Itallu." Þar höfum viö þaö. Pletra Ligure og Alassio, eru á miöri Rivierunni. Þannig gefst fólki kostur á að skoða alla Rivieruna I hæfi- legum dagsferðum. Einum degi verjum við I þaö aö skoöa Nlce og Cannes f Frakklandl. Annan dag gefum viö okkur tlma til aö skoöa Monaco og endum I Monte Carío um kvöldið. Einnig ökum við Rivieruna til austurs og endum I þeim rómuðu stööum, Portofino eöa Plsa. Vió viljum þakka feróaskrifstofunni Terru fyrirþrjár dýrólegar vikur á Pietra Ligure s.l. sumar. Viö höfum báöar feröast mikiö, en okkur kom á óvart hve þessistaöur haföi uppá margt aö bjóöa. Sérstaklega fannst okkur skemmtilegt og óvenju- legt aö þurfa ekki annaö en stfga út úr hótelinu og vera þá strax komnar í hringiöu hins sanna Italska mannllfs. Þarna mátti njóta feguröar, friöar og fjör- ugs mannlffs allt eftir þvf hvaö okkur datt í hug hverju sinni. Vonumst svo sannarlega til aö fá aö njóta aftur sem allra fyrst Itölsku rivierunnar. Guörún Helgadóttir og Guörún Ólöf Þór STAÐFESTINGARGJALD MÁ AÐ SJÁLFSÖGÐU GREIÐA MEÐ V!SA EÐA EURO.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.