Morgunblaðið - 24.04.1986, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 1986
55
Minning:
Kristín D. Napier
Fædd 24. apríl 1937
Dáin 15. marz 1986
Okkur langar til að minnast
frænku okkar og vinkonu, sem látin
er í Bandaríkjunum langt um aldur
fram.
Stína, eins og hún var alltaf
kölluð hér heima á íslandi, var
fædd í Hafnarfirði, dóttir hjónanna
Margrétar Sigurjónsdóttur og
Hilmars Þorbjörnssonar sem lengst
af bjuggu á Lækjargötu 10, en þau
eru bæði látin. Stína átti einn bróð-
ur, Agúst, og er hann búsettur í
Bandaríkjunum.
Ung að árum fór hún í sumarfrí
til Bandaríkjanna með ömmu sinni
og afa, en dvölin þar varð lengri
en upphaflega var ætlað, því þar
kynntist hún eftirlifandi eiginmanni
sínum, Lee. þau eignuðust fimm
böm, sem öll eru á lífi. Þau heita
Sherry, David, Mark, John og Mie-
hael. Eitt bamabarn átti Stína,
Nichole, og var hún sólargeisli
ömmu sinnar.
Árið 1962 fluttust Stína og Lee
hingað heim vegna veikinda móður
hennar og bjuggu hér í rúmt ár og
er Mark fæddur hér.
Árið 1976 kom Stína ásamt
Ágústi bróður sínum í heimsókn.
Hittumst við þá öll frændsystkinin
á afmælisdegi ömmu okkar og
höfum við hitzt árlega síðan. Stína
kom eins oft og hún gat til að vera
með okkur. Þessar samverustundir
eru okkur ógleymanlegar og erfitt
að sætta sig við að þær verði ekki
fleiri.
Síðla sumars 1978 veiktist hún
af þeim sjúkdómi, sem leiddi hana
til dauða. Þann 18. marz átti hún
farseðil heim og var tilhlökkunin
mikil að hitta hana, en enginn
ræður sínum næturstað.
Elsku Lee, böm, tengdasonur og
bamabarn, við sendum ykkur okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
rir hönd „frænkuklúbbsins",
gústa, Gunnhildur og Lea.
Þótt við höfum borið Kristínu til
grafar mun hún samt lifa í hjörtum
okkar. Pjölskylda hennar, Lee og
bömin Sherry, David, Mark, John
og Michael eru vottur um ást henn-
ar og umhyggju. Guð gefi þeim
styrk í sorg þeirra.
Það verður erfitt að fylla í skarðið
þegar kallað verður á okkur til að
kynna ættjörðina. Það var sama
hver bað, hvort það var Norður-
landakynning á Sænska safninu,
Alþjóðahátíð í Fíladelfíu, íslend-
ingafagnaður eða þorrablót, alltaf
var hún í fararbroddi með pönnu-
kökupönnuna eða gjaldkerakass-
ann, eða skreyting á íslenska her-
berginu í Sænska safninu fyrir jólin.
Alltaf var Kristín jafn glettin, kát
og hjálpsöm.
Hún átti svo mikið að gefa okkur
öllum. Kvenfélögin í bæjarfélaginu
munu sakna orku hennar og lífs-
gleði. Klúbbur erlendra kvenna naut
starfskrafta Kristínar í 7 ár. Þær
þakka samveruna. Kvenfélag kirkj-
unnar hefur notið vináttu hennar
og nærvera í 17 ár, og senda vinar-
kveðjur.
íslendingaféiagið í Delaware
Valley átti Kristínu sem vin og sem
meðlim frá stofnun. Það verður
erfitt að halda sautjánda júni-
fagnað án hennar. Við vitum að
hún er með okkur og þjáist ekki
lengur. Guð hefur tekið hana til sín
í eilífa sælu.
Við munum sakna þess að sitja
ekki yfír kaffíbolla í eldhúsinu hjá
henni sem átti svo yndislegt heimili
og það var alltaf svo gott að koma
þangað.
Þótt Kristín hafí búið í Bandaríkj-
unum í yfír 30 ár, þá var hún alltaf
fslendingur og hugurinn heima á
íslandi. Æskuárin í Lækjargötunni
í Hafnarfírði vora henni mikils virði.
Nú er hún elsku Stína okkar
komin heim. Guð geymi hana.
Vinkonur í Bandaríkjunum.
Sveitatónlist
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Fíladelfíu:
„The Singing Harris Family er
nú í heimsókn á íslandi í fyrsta sinn.
Fjölskyldan hefur ferðast víða um
heim og sungið bandaríska sveita-
tónlist (country-westem og blue-
grass) í yfír tuttugu og þijú ár. Þau
syngja og Ieika á ij'ölda hljóðfæra.
The Singing Harris Family held-
í Fíladelfíu
ur söngsamkomur í Fíladelfíu,
Keflavik, föstudagskvöldið 25. apríl
kl. 20.30. í Fíladelfíu, Reykjavík,
laugardagskvöldið 26. aprfl kl.
20.30. í Hvítasunnukirkjunni,
Völvufelli 11, sunnudaginn 27.
apríl kl. 16.30 og í Ffladelfíu,
Reykjavík, á sunnudagskvöld kl.
20.00.
Aðgangur að söngsamkomunum
er ókeypis og öllum heimill. Tekinn
verða samskot fyrir kostnaði."
Vélsmiðjur og söludeildir
okkar í Reykjavík og
Garðabæ verða lokaðar
vegna sumarleyf a f östudag-
inn 25. apríl.
= HÉÐINN =
SUMARHUS
SUMARHUS
ÞYSKALANDI
TIROL
SVARTAHAFSSTROHD
BÚLQARÍU
■■
-•
fmmnZza
ELENITE HOLIDAY VILLAGE.
er nýr sumardvalarstaður í sólarparadísinni við
Svartahafið. Dvalið í nýjum glæsilegum studio
íbúðum við ströndina.
Fjöldi úrvals skemmti- og matstaða er í boði ásamt
yndislegu veðurfari.
FLUG OG BILL
:VÍÐS VEGARJg'
UM EVRÓPU^^
/
FRÍIÐ
MEÐ
FERDAÍÍSiVAL
Lindargötu 14, 101 ReyKjavIk w slmi: (91 )-14480
■.. ■ ■ ■" " 1 " .. ....
MARKAÐS
SETNING
Ferðamanna-
þjonustu
Senn llður að þeim tima árs sem feröamanna-
straumurinn til landsins er sem mestur. Til aö
aðstoða þá sem að þessum málum starfa, ætlar
Stjórnunarfélagið að halda námskeió sem gerir
grein fyrir markaðssetningu feröaþjónustu á
Islenskum markaöi.
Námskeið þetta er ætlað öllum sem starfa við
sölu- og markaðsmál innan ferðamálafyrirtækja
s. s. hótela, ferðaskrifstofa, veitingastaða og
farþegaflutninga. Einnig þeim sem starfa innan
héraðssamtaka eða opinberra stofnana sem
hafa með ferðamál að gera.
EFNI:
- HVAÐ ER MARKAÐSSÓKN?
- FERÐAVENJUR
- VERÐLAGNING
- SALA
- ALMENNINGSTENGSL-AUGLÝSINGAR O.FL.
- ÁÆTLANAGERÐ
LEIÐBEINENDUR: Bjarni Sigtryggsson, viðskipta-
fræðingur frá Norska Markaósháskólanum I Osló
og Feróamáladeild Héraðsháskólans I Lille-
hammer. Björn Lárusson, markaösfræðingur hjá
Skrifstofuvélum hf. Nam viö Héraösskólann I
Lillehammer markaðs- og skipulagsmál
ferðamála.
irfélag
UTFLUTNINGS OG
MARKAÐSSKÓU ÍSLANDS
Ánanaustúm 1F> • 101 Reykiatfk91-621063-Tlx2085