Morgunblaðið - 24.04.1986, Page 58

Morgunblaðið - 24.04.1986, Page 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986 Stjörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guómundsson „Kæri stjömuspekingur. Ég er vesæll Krabbi sem stend mig að því hvað eftir annað að afneita Krabbanum í mér. Ég laðast að ioftsmerkjum, einkum Voginni, þótt þessi merki stingi mig með sínum endalausu hugsjónum og „lógísku" tilfinn- ingum. Getur þú sagt mér hvemig ég er saman sett (m.t.t. stjamanna) og hvort það er misskilningur hjá mér að Vogin sé mér heppilegust. Með fyrir- fram þökk. Krabbi: 29.06.63 kl. 8.30 að morgni." Svar: Það er alls ekki skrítið að þú skulir laðast að loftsmerkjunum (Tvíbura, Vog og Vatnsbera). Þú sjálf hefur flórar plánetur í þessum merkjum. Tungl í Vog, Merkúr og Venus í Tvibura og Satúmus í Vatnsbera. Auk þeirra hefur þú Sól í Krabba, Mars f Meyju, Júpfte og Mið- himin í Hrút og Ljón Rfsandi. Þú ert því samsett úr Krabba, Vog, Tvíbura, Meyju, Hrút og Ljóni. Tveir heimar Það er í raun ekki svo undarlegt að þú skulir afneita Krabban- um, Hann er eina vatnsmerkið í korti þínu. Vatnið, sem stend- ur fyrir tilfinningar og sálar- orku, er í eðli sfnu gjörólíkt loftinu, sem byggir á hugsun og rökum. Vandamál þitt er það að vera stödd með fætuma í tveim heimum. Þú vilt skil- greina umhverfi þitt og færa tilfinningamálin niður á skiljan- legt og rökrétt plan. Síðan kemur blessaður Krabbinn með alla tilfinningasemina sem engin rök ná yfir. Aðdáun Þú dáist líkast til að vinum þín- um í Voginni sem geta auðveld- lega leyst tilfinningamál þín. „Fyrst hann kemur svona fram við þig, þá skalt þú bara svara í sömu mynt. Vertu bara róleg, hringdu í hann og segðu að sambandinu sé lokið. Bíddu sfð- an og sjáðu til hvað hann gerir. Ef hann er með eitthvað stress, skaltu bara blása á hann.“ Eitthvað á þessa leið gæti Vogin sagt, og Krabbinn sem kraumar af ólgandi tilfinning- um, horfir á aðdáunaraugum. Afneitun Lausn manna sem standa frammi fyrir mótsagnakennd- umþáttum í persónuleika sínum er oft sú að reyna að afneita öðrum þættinum. Afleiðingin er alltaf einhvers konar óánægja, því ekki er hægt að láta sem sterk persónueinkenni séu ekki til. Þó strúturinn stingi hausnum í sandinn þegar hann sér bfl nálgast hverfur bfllinn ekki. Það að reyna að afneita því að þú hafir sterkar tilfinn- ingar gerir þér litið gagn. Þér finnst einfaldlega sem eitthvað mikilvægt vanti í líf þitt og verður að einhveiju leyti ófull- nægð. Vogin góð Það að þú hafír Vog og Tvíbura í korti þínu táknar að þessi merki eiga vel við þig. Vogin hentar þér því ágætlega. Hins vegar verður Vogarvinur þinn að hafa vatn í korti sínu, eða sterkt Tungl. Annars er hætt við að tilfínningar þínar þomi upp og þú tapir lífsorku. Sólin stendur fyrir lífsorku okkar og til að viðhalda henni verðum við að dvelja í umhverfi sem hentar okkur og umgangast fólk sem getur gefið það sem þarf. Þú þarft að umgangast félagslynt og hugmyndaríkt fólk (loft) en lífsorku þinnar vegna þarft þú öryggi, tilfínn- ingalega hlýju og það að tilfinn- ingar þínar og næmi séu virt og metin að verðleikum. !TT!!i!!!!i!i!!!!i!!!!!!!!!!i!!!!!iH!!r!tlllll|iu1*H‘i!11m“H“i| :::::::::: ::::: . *.!! " * ~ * X-9 i /tynifanqe/s/ l|[ HaS/Cou)-- par ttmjan er. 'fh/J tr rötlauf, t” ■' reynir sarrUaðf/ty}*if DYRAGLENS TTT" iiii LJOSKA TOMMI OG JENNI llliÍÍÍÍÍÍIg :::::::::::::::::::: FERDINAND — SMAFOLK ÍM GOINé TO ASK THE TEACHER IF I CAN BE MARV IN THE CHRI5TMA5 PLAV THI5 YEAK... Ég ætla að spyrja kenna- rann hvort ég fái að leika Maríu í jólaleiknum í ár ... WHV UJOULP I CAN ^ GABRIELTALR ’ROBABLY T0V0U7V0U EARTHE5E NEVER LI5TEN 5AME 'T(-7r----" SANPAL5.. Hún er búin að bidja mig- um það, herra. Ég held að ég verði stórkostleg í hlut- verkinu. Hún bað mig í gærmorgun. Ég er hrifin af kaflanum þar sem Gabríel talar við mig. Af hveiju skyldi gabríel tala við þig, þú hlustar aldrei. Ég gæti líklega notað þessa sömu sand- ala... BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Kvikmyndaleikarinn Omar Sharif er, eins og margir vita, mjög góður spilari. Hér er spil sem Sharif spilaði í rúbertubrids fyrir nokkrum árum. Norður ♦ KD76 ¥ÁK53 ♦ 93 ♦ G76 Suður ♦ 92 VDG1096 ♦ D8 ♦ ÁK104 Eftir pass austurs í fyrstu hendi vakti Sharif á einu hjarta á spil suðurs og norður stökk beint í §ögur. Vestur spilaði út spaða og austur drap kóng blinds með ás. Tók síðan tígulkóng og skipti yfir í lítíð lauf. Hvemig myndir þú spila? Spilið er í sjálfu sér ekki mjög flókið. Spumingin snýst um það hvort eigi að svína fyrir lauf- drottningu eða taka ás og kóng og vonast til að drottningin detti önnur í vestur. Að öðru jöfnu gefur svíningin að sjálfsögðu mun betri vinningsvon, en Sharif valdi þó að toppa laufið, og var fljótur að því. Hvers vegna? Vegna þess að austur hafði sýnt spaðaás og ÁK í tígli. Með laufdrotninguna til viðbótar hefði hann örugglega ekki pass- að í upphafi! Norður ♦ KD76 VÁK53 ♦ 93 ♦ G76 Vestur ♦ G853 W QO ♦ G10542 ♦ D9 Suður ♦ 92 VDG1096 ♦ D8 ♦ ÁK104 Austur ♦ Á104 ▼ 74 ♦ ÁK76 ♦ 8532 SKAK Umsjón Margeir Pétursson Sovéska meistaramótið er nú hafið í Kiev. Þessi staða kom upp á mótinu í viðureign alþjóðlegu meistaranna Lemer (Odessa) og Judasin, (Leningrad). Hvítur á leik. 17. Rxe6l— Dxe6 (Ekki 17. - Dxg3T', 18. Hd8 - mát). 18. Hfel — 0-0 (Það var skárra að gefa drottninguna, en að láta þjarma að svarta kónginum með 18. - Da6, 19. Dxg7 - Hg8, 20. Ba4+ og vinnur), 19. Hxe6 — Bxe6, 20. Re4 og svartur gafst upp fáum leikjum síðar. Aðeins einn af landsliðsmönn- um Sovétmanna teflir á mótinu, það er Alexander Beljavsky. Hann hefur þó ekki byijað vel og Jurij Balashov leiðir mótið eftir fimm umferðir, hefur hlotið fjóra vinn- inga. Næstur er Lemer með 3 'h vinning og biðskák og þriðji Gav- rikov með 3 vinninga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.