Morgunblaðið - 24.04.1986, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 24.04.1986, Blaðsíða 63
63 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986 Hvammstangi: Framboðslisti frjálslyndra samhæft og markvisst til að skjót- um árangri yrði náð. Svörin voru: „Nei, þetta kostar yfirvinnu, þetta er óheppilegt, ég held að þetta sé best eins og þetta er. Viit þú fekki bara setjast niður og gera þetta sjálfur?" Það skal þó tekið fram, að í einstaka tilvikum mætti ég reyndar skilningi og hlaut jákvæðar undir- tektir. Ahuga á því að knýja lög- gjafann til þess að endurskoða starfsramma stofnunarinnar, kynntist ég, þar er lykillinn að lausn vandans. Ahuga á að taka upp nýja starfshætti, breyta launakerfinu og byija að gera faglegar og siðferði- legar kröfur til starfsmannanna. Hið síðasta þarfnast skýringa. Þegar ég byijaði hjá LHG heyrði ég baktal um yfirstjórnina hjá nánast öllum starfsmönnum er ég hitti, þegar v/s og gæsluvél ræðast við er síður skipst á faglegum upplýs- ingum en kjaftasögum úr stofnun- inni. Sundraðir föllum vér! Ég var oft sakaður um að vilja koma á heraga og fyrir að halda fram hermennsku-sjónarmiðum. Ekkert er fjær mér en það og þótti mér skoplegt, er sumir starfsmenn LHG báru sig og starfsemina saman við eitthvað þessháttar. En samt virtist fáum öðrum en mér það fjarstæðukennt. Heragi á aðeins við, þar sem verið er að búa menn undir ómennskar kröfur stríðs en engin þjálfun dugar fyllilega til að svara þeim. Slíkur agi er óskiljanlegur og tilgangslaus fyrir aðra en þá, sem búið hafa við hann í þjálfun og búa í löndum, þar sem frelsi hefur kostað fórnir. Hins vegar mætti gera lágmarks- kröfur til starfsmanna LHG eins og gerðar eru til annarra, sem gæta laga og réttar. Hlutverk Landhelg-is- gæslunnar Gegnir LHG því hlutverki í samræmi við lög um hana? Alls ekki. Ein helsta ástæðan fyrir því er, að sá starfsrammi, sem henni er ætlað að vinna innan, þarfnast endurskoðunar í ljósi breyttra tíma. Hér hefur löggjafinn, Alþingi, sofið á verðinum. Það hefur leyft stofnuninni að staðna. Mál er að gera annað tveggja: — Að leggja LHG niður. Ég fæ ekki annað séð, að á meðan engar faglegar eða siðferðilegar kröfur eru gerðar til starfsmanna hennar og á meðan ekki er þannig búið að þeim, að þeir geti uppfyllt slíkar kröfur, sé frekari rekstur LHG einungis sóun á fjármunum skatt- borgarans, móðgun við hann og stríði gegn heilbrigðri skynsemi. — Að endurskoða gildandi lög um LHG. í þeirri uppbyggingu sem þá væri óhjákvæmileg, að gera það eitt af hlutverkum LHG að mennta og þjálfa menn í m.a. sjómennsku- og siglingafræðum, björgun og meginþorra þjóóarinnar daglega! Auglýsinga- síminn er224 80 eldvörnum, stjórnun skips og áhafn- ar og öðru því er lýtur að því að reka skip farsællega. Yrði þetta gert í samvinnu við menntastofnan- ir sjómanna og fylgdu rannsóknir og þróun innan þeirra sviða, er þessu tengjast, þessu uppeldishlut- verki. Takmarkaður verði sá tími er menn eru ráðnir við stofnunina en á móti kæmi að menntun þeirra og þjálfun geri þá eftirsótta sem starfskrafta innan sjávarútvegs og tengdra greina til skipulags-, stjórnunar- og eftirlitsstarfa. Settur verði ákveðinn lágmarkshæfnis- og gæðastaðall, sem starfsmenn og tæki LHG yrðu að standast í reglu- legum prófum á vegum viður- kenndra og reyndra aðila. Lokaorð Ég efast ekki um, að ýmsum kunni að þykja ég of harðorður. Því er til að svara, að í lýðræðisríki eru opinberar stofnanir til þegn- anna vegna en ekki öfugt. Ég er ekkert að tíunda bakgrunn minn hér, en fullyrði þó, að ég sé fagmaður á mínu sviði, og það kom mér broslega-fyrir, að starfsmenn LHG skyldu með mikilli kokhreysti láta í Ijós, að hér væri eitthvað svipað að gerast, og þegar eggið ætlaði að kenna hænunni að verpa. Kímnigáfu minni sem og þolin- mæði eru takmörk sett og er það fyrir neðan virðingu mína að skipt- ast á skoðunum við menn, sem geta ekki haldið sig við málefnaleg- an grundvöll eða eiga yfirleitt nokkuð saman við þá að sælda. Afskiptum mínum af málefnum LHG lýkur hér með. Ég get staðið við allt það, sem ég hef sagt og skrifað. Verði þessi stofnun látin sofa áfram þyrnirósarsvefni, mun mér þykja skömm að kalla mig ís- lending. Höfundur er sjóliðsforingi frá Noregi. Hann stundarnú lausa- störf svo sem barnakennslu og hirðingu búpenings. FRAMBOÐSLISTI fijálslyndra við sveitarstjórnarkosningarnar í vor hefur verið birtur. Listinn er þannig skipaður. 1. Kristinn Björnsson verslunar- maður. 2. Páll Sigurðsson skrifstofustjóri. 3. Egill Gunnlaugsson dýralæknir. 4. Þorvaldur Böðvarsson verkstjóri. 5. Jóhanna S. Agústsdóttir húsmóðir. 6. Vilhelm Guðbjartsson framkvæmdastjóri. 7. Bjöm Valdemarsson framkvæmdastjóri. 8. Sigurður Sigurðsson lögreglumaður. 9. Elísabet Halldórsdóttir húsmóðir. 10. Karl Sigurgeirsson framkvæmdastjóri. Ofangreindur listi er framboðs- listi fijálslyndra, merktur L í sveit- arstjómarkosningum 1982, til sveitarstjómar á Hvammstanga. Við kosningamar 1982 vom þrír listar í framboði, L-listinn, B-listinn (Framsóknarfl.) og G-listinn (Al- þýðubandalag). Ekki er ljóst hve margir listar verða í framboði nú, en Alþýðu- bandalag og óháðir hafa sameigin- lega haldið prófkjör. Framsóknar- menn ræða við Alþýðuflokksmenn um framboð. Aðkomaaugaá þær öflugu í hópnum: Framúrskarandi skjástöðvar fyrir IBM System/36 og /38 Skjár er þýðingarmeiri eining í tölvukerfi en margur hyggur. Hann er upplýsingamiðill, lokaáfangi á leiðinni frá tölvu til notanda og getur ráðið miklu um það hvernig upplýsingarnar nýtast. Ef skjástöð er ekki valin af kostgæfni getur hún verið veikasti hlekkurinn í keðjunni þegar á reynir. Þess vegna þarf öflugar skjástöðvar fyrir öflugar tölvur á borð við IBM SYSTEM /36 og /38. Val um þrjár: Fremsta röð: IBM 3179: Sú með lit. í fyrsta sinn er unnt að nýta litaskjá við IBM SYSTEM /36 og /38, á ódýran, hagkvæman hátt. Miðröð, IBM 3180: Sú með flest táknin í einu. 15 tommu skjár með 1.920 eða 3.144 táknum. Aftasta röð: IBM 5291: Sú ódýrasta. Góð, ódýr leið til tengingar við IBM SYSTEM /34/36 og /38. Hafðu samband við einhvern af sölumönnum okkar. Þeir veita þér allar frekari upplýsingar um þessar framúrskarandi skjástöðvar. ="=== rLoksins ndU ÍSLENSK ÞEKKING-ALÞJÓÐLEG TÆKNI Skaftahlíð 24 ■ 105 Reykjavík • Simi 27700 ARGUS/SiA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.