Morgunblaðið - 24.04.1986, Side 68
68
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986
Stefanía
Mónakó-
prinsessa
rokksöngkona
Stefanía prinsessa af Mónakó
hefur reynt fyrir sér á ýmsum
sviðum þótt hún sé aðeins 21 árs
gömul. Hún hefur verið ljósmynda-
fyrirsæta, baðfatahönnuður og nú
síðast rokksöngkona. Hún er á ferð
um Evrópulönd til þess að kynna
lagið sem hún syngur, það heitir
„Hurricane". Nýlega kom hún fram
í vinsælum vestur-þýzkum sjón-
varpsþætti, söng lagið og þótti
standa sig vel. Hún segist vera afar
þreytt á þeirri neikvæðu mynd sem
fjölmiðlar hafa dregið upp af henni,
hún sé ósköp venjuleg ung kona
sem sé að fínna út hvað hún vilji
gera í framtíðinni.
Sungið af innlifun
fclk í <2i
fréttum
GÓÐIR FARÞEGAR ...
Atján flugfreyjur og flug-
þjónar útskrifuðust í síð-
ustu viku eftir að hafa tekið þátt
í níu vikna kvöldnámskeiði hjá
Flugleiðum í vetur. Var myndin
hér á síðunni tekin fyrir framan
Hótel Loftleiðir af hópnum daginn
sem hann útskrifaðist. Flug-
freyju- og flugþjónanámskeið
Flugleiða stóð frá 11. febrúar til
16. apríl og var kennt öll kvöld
frá mánudegi til föstudags. Blm.
Mbl. hafði samband við Erlu
Agústsdóttur sem var einn af
kennurunum á námskeiðinu og
var hún spurð hvemig námi þessu
væri háttað. „Þetta er bæði bók-
legt og verklegt nám,“ sagði Erla.
„Krafíst er góðrar almennrar
menntunar fyrir þessi námskeið,
en þó ekki endilega stúdentsprófs.
Þá verða þeir sem ætla sér í þetta
að hafa góða tungumálakunnáttu.
Við gerum kröfu til að þeir sem
koma á þessi námskeið kunni
ensku til hlítar auk eins Norður-
landamáls, og eins verða umsækj-
endur að tala annaðhvort frönsku
eðaþýsku."
- Hvað um verklega námið?
Það er töluvert verklegt nám á
þessum námskeiðum og nokkuð
af því fer fram í flugvélunum. Þá
er farið út á Keflavíkurflugvöll
og nemendumir æfa sig í að opna
dyr og glugga og fara út úr flug-
vélinni af vængnum. Þá æfa
nemendumir sig einnig í að ganga
um í eldhúsi og farþegarými.
Einnig er þeim kennt á neyðarút-
búnað. Þá taka þeir einnig þátt í
slökkviæfingum og hvemig á að
blása upp og nota björgunar-
bátana svo eitthvað sé nefnt."
— Þau eru eftirsótt þessi nám-
skeið, er það ekki?
„Jú, þó við höfum ekki auglýst
18 flugfreyjur og flugþjónar
útskrifast hjá Flugleiðum
að skemmta sér ekki of mikið
kvöldið sem þau fengu skírteinin,
því þau þurftu að mæta í flugið
eldsnemma morguninn eftir,“
sagði Erla.
námskeiðið í vetur var ekki nema
brot af umsækjendunum sem
komst á það.“
- En fengu allir vinnu sem
útskrifuðust núna?
„Já, þau em öll farin að vinna
og byrjuðu meira að segja fiest
daginn eftir að námskeiðinu lauk.
Eg var einmitt að segja við þau
Flugfreyjurnar og flugþjónarnir sem útskrifuðust hjá Flugleiðum í síðustu viku. Aftari röð f.v.: Ingileif Jóhannesdóttir, Kristín Sverris-
dóttir, Jóhanna Eiríksdóttir. Ragnhildur Thorlácius, Ágúst Hafberg, Berglind Oddsdóttir og Harpa Árnadóttir. Fremri röð f.v.: Anna
Margrét Jónsdóttir, Ann Lönnblad, Rannveig G. Einarsdóttir, Valfríður Möller, Guðrún J. Olsen, Sigrún Magnúsdóttir, Helga Aradótt-
ir, Hildur S. Ámundadóttir, Svanhildur Gestsdóttir, Ásgeir K. Ólafsson og Auður Smith.