Morgunblaðið - 24.04.1986, Síða 69
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986
69
Við Valby hafa verið reist tjöld sem notuð eru fyrir þær upptökur er gerast eiga í París. Kostnaðurinn
við þau er um 5 millj. isl.
Gleðilegt sumar
góðir landsmenn
og þú
Það verður sannkölluð sumar-
stemmning í kvöld. Halli í búrinu
rennir yfir vinsælustu lög vetr-
arins.
Féiagi Villi hristir fram svalandi
sumarkokteila.
Sumarsportið veröur i algleym-
ingi á myndbandaskermunum.
Wind-surfing, kappakstur, saf-
arírall o.fl.
Láttu sjá þig þar sem sólin er.
Kreml sólarmegin í Irfinu.
Opið frá 22—01.
Opið föstudag til kl. 03.
★K5IEML*
SANNKÖLLUÐ
KRÁARSTEMMNING
Kvikmynd um Gauguin
- og áhrif Danmerkurdvalar á líf hans
T1 íf franska málarans Pauis
Gauguin, er uppi var 1848-1903,
var æði stormasamt og flæktist
hann víða. Verið er að gera í Dan-
mörku kvikmynd um hann, sem
látin er gerast á 6 ára tímabili, frá
því hann sneri aftur til Parísar frá
sinni fyrstu heimsókn til Tahiti og
þar til hann hélt þangað aftur. Inn
Usöguþráðinn fléttast svo ýmsar
svipmyndir úr lífi listamannsins.
Danski leikstjórinn Henning Carl-
sen hefur um nokkurt skeið haft
áhuga á að gera mynd um Gauguin,
sérstaklega um dvöl hans í Dan-
mörku og áhrif þeirrar dvalar á líf
hans. Listamaðurinn kvæntist 1873
danskri konu, Mette-Sophie Gad að
nafni. Er hann ákvað að helga sig
listinni og sagði upp starfi sínu árið
1883, varð mjög hart í ári hjá fjöl-
skyldunni, því tekjumar voru engar
þar sem honum gekk illa að selja
myndimar. Þau áfréðu þá að leita
á náðir foreldra Mette í Danmörku
og fluttu þangað ásamt bömum
sínum árið 1884. Þar vegnaði þeim
ekki vel, Danir kunnu lítt að meta
myndir hans og litu niður á hann
þar sem honum tókst ekki að fram-
fleyta sér og ijölskyldu sinni, þótt
hann reyndi að stunda frönsku-
kennslu með málaralistinni. Veðrið
fór líka í taugamar á honum og
smám saman á Gauguin að hafa
fyllst hatri á landinu og öllu því sem
danskt var. Hann yfírgaf því Dan-
Donald Sutherland leikur Gauguin, er varð að láta sér nægja að
teikna meðan hann dvaldi í Danmörku, því hann hafði ekki ráð á
að kaupa sér góða liti.
COSPER
— Heyrðu krútt, hér er komin ein eldgömul, sem heldur því fram
að hún sé konan þín.
mörku og fjölskylduna og lifði það
sem eftir var ævinnar í fátækt,
útlagi úr evrópsku samfélagi.
„Oviri“ hefur kvikmyndin verið
kölluð, en það þýðir „Hinn villti" á
máli Tahiti-manna. Upptökur hóf-
ust fyrir hálfu ári og er frumsýning
áætluð í september næstkomandi.
Kostnaður er áætlaður 24 milljónir
danskra króna og hefur víða verið
leitað fanga við öflun ijár. Frakkar
hefa lagt fram 7 milljónir, „Det
danske Filminstitut" 8 millj.,
danska útvarpið 1 millj. og ýmsir
aðilar afganginn. Einn þeirra er
leikarinn Donald Sutherland, er
leikur titilhlutverkið. Hann mun í
fyrstu hafa afþakkað boð um að
leika í myndinni, en er leikstjórinn
sendi honum mynd af Gauguin og
hann sá sjálfur hversu sláandi likir
þeir voru, athugaði hann tilboðið
betur og sló til. Meðal annarra leik-
ara má telja Max von Sydow er
leikur Strindberg, og Danina Jergen
Reenberg, Ghitu Norby og Merete
Voldstedlund.
Það er óhætt að fullyrða að
fjör verði í kvöld, því að hinir
vinsælu Gosar spila og syngja
til kl. 1:00 og til kl. 3:00 föstu-
dagskvöld. Gleðilegt sumar!
OPIÐ: í hádeginu alla daga kl: 11.30 - 15.
á kvöldin sunnudaga - fimmtudaga kl: 18-01.
og á föstudögum og laugardögum kl: 18-03.
TÓNLEIKAR
STRÁKARNIR
strákarnIr
STRAKARNIR
STRÁKARNJR
STRÁKARNIR