Morgunblaðið - 24.04.1986, Síða 76
76
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986
Frakkland:
— mikil spenna á botni deildarinnar þegar ein
umferð er eftir
Frá Bernharði Valssyni, fróttaritara Morgunblaðsins í Frakkiandi.
ÓVÆNTUSTU úrslitin í frönsku
1. deildinni i knattspyrnu um
helgina voru þau að Paris S.G
tapaði fyrir Metz, 3:1, á útivelli.
Þetta var fimmta tap PSG á
keppnistímabilinu. Nantes er nú
aðeins tveimur stigum á eftir PSG
fyrir síðustu umferðina sem fram
fer á morgun, föstudag.
Metz vann mikilvægan sigur á
PSG og á nú góða möguleika á
að tryggja sér UEFA-sæti. Það má
segja að hraði leikmanna Metz
hafi komið PSG á óvart og áttu
þeir í miklum vandræðum með að
stöðva framherjana, Micciche og
Bocande. Þeir sjá um að skora
mörkin og gerði Bocande tvö
þeirra og er hann nú markahæstur
í deildinni, hefur gert 23 mörk.
Það kom nokkuð á óvart að
fyrirliði PSG, Luis Fernandesz,
sem nýlega hefur skrifað undir
samning við Racing, byrjaði sem
varamaður í þessum leik. Hann átti
síðan eftir að koma inná og þá sem
varamarkvörður. Joel Bats mark-
vörður hafði orðið fyrir meiðslum
í fyrri hálfleik og kom Fernandesz
inná fyrir hann. Hann stóð sig
ágætlega i markinu en gat þó ekki
komið í veg fyrir sigur Metz. Eina
mark PSG gerði Alain Couriol, sem
lék nú í fyrsta sinn með liðinu síðan
í nóvember 1984 vegna meiðsla.
Nantes sigraði Auzerre, 2:1, á
heimavelli sínum og skoruðu Moril
og Amisse mörk Nantes en eina
mark Auzerra gerði Garange.
Nantes hefur átt velgengni að
fagna að undanförnu og hefur
nálgast PSG jafnt og þétt. Munur-
inn á liðunum er aðeins tvö stig.
PSG á reyndar eftir að leika við
neðsta lið deildarinnar, Bastia, í
síðustu umferð en Nantes leikur
við Toulon sem er í þriðja neðsta
sæti. Það verður því að teljast
nokkuð víst að PSG verði meistari.
Liðið hefur einnig betra markahlut-
fall.
Bordeaux tryggði sér þriðja
sætið í deildinni með því að vinna
Le Havre, 5:3, á heimavelli sínum.
Bordeaux hefur ekki skorað svona
mikið af mörkum í nær allan vetur.
Landsliðsmaðurinn, Tigana, varð
að yfirgefa völlinn í byrjun seinni
hálfleiks vegna meiðsla.
Önnur úrslit í frönsku 1. deild-
inni á laugardaginn voru þessi:
Toulon — Rennes 1:1
Manakó — Lens 1:2
Toulouse — Brest 2:0
Landsliðið í blaki:
Helmingurinn
er úr Þrótti
Lille — Nice 1:0
Laval — Marseille 1:0
Strasbourg — Sochaux 3:0
Bastia — Nancy 2:2
Paris S.G er efst þegar ein
umferð er eftir með 54 stig. Nant-
es er með 52 stig, Bordeaux í
þriðja sæti með 48 stig og Lens í
fjórða með 42 stig. Mikil spenna
er á botni deildarinnar. Bastia og
Strasbúrg eru þegar fallin í 2.
deild. Síðan eru það sjö lið sem
berjast um þriðja falisætið. Það
eru Toulon, Le Havre, sem hafa
32 stig og Marseille, Nancy, Rann-
es, Brest og Sochaux, sem hafa
33 stig.
• Sex af tólf landsliðsmönnum f blaki sem keppa á Norðurlandamót-
inu eru úr Þrótti. Hér má sjá þá Lárentínus, Samúel, Einar og Leif
en þeir eru allir í landsliðinu nema Samúel sem datt út úr hópnum
þegar endanlegi hópurinn var valinn.
Morgunblaðið/Bjarni
• John Drummond og Marlyn Knipe með tvö forláta golfsett í golf-
skóla Drummonds. Það verður örugglega nóg að gera hjá þeim félög-
um f sumar við að kenna landsmönnum golf.
ISLENSKA blaklandsliðið sem
þátt tekur í Norðurlandamótinu
hér á iandi í næsta mánuði hefur
verið valið. Björgúlfur Jóhanns-
son landsliðsþjálfari valdi endan-
lega hópinn á dögunum en í
upphafi hafði hann 24 leikmenn
sem æfðu en nú hefur hann valið
12 úr þessum hópi sem keppa
munu í mótinu.
Þeir tólf sem urðu fyrir valinu
eru: Páll Svansson, ÍS, Einar Hilm-
arsson, Þrótti, Guðmundur Páls-
son, Þrótti, Haukur Valtýsson, ÍS,
Ástvaldur Arthúrsson, HSK,
Sveinn B. Hreinsson, Þrótti, Jón
Árnason, Þrótti, Lárentínus Helgi
Ágústsson, Þrótti, Þorvarður Sig-
fússon, ÍS, Stefán Jóhannesson,
Víkingi, Leifur Harðarson, Þrótti
sem jafnframt er fyrirliði liðsins,
og Kjartan Busk úr HK.
Norðurlandamótið verður haldið
í íþróttahúsi Digraness dagana
8,—10. maí og á næstunni mun
Sportvals-
skíðagangan
Sportvalsskíðagangan fer fram
í Bláfjöllum kl. 14.00 í dag,
fimmtudag. Skráning fer fram í
Borgarskálanum kl. 13.00. Keppt
er um 13 farandbikara sem
Sportval gefur. Gengnir eru 5 km
og er gangan ætluð fyrir almenn-
ing jafnt sem vana keppnismenn.
landsliðið æfa vel, eins og það
hefur reyndar gert undanfarna tvo
mánuði, og líklegt verður að liðið
leiki nokkra pressuleiki fram að
Norðurlandamótinu. Fyrsti leikur-
inn er fyrirhugaður á morgun og
hefst hann klukkan 20.15 í Digra-
nesi. Annar leikur verður á sama
stað á laugardaginn og hefst klukk-
an 14.15.
Vormót ISI
íveggbolta
VORMÓT ÍSÍ í veggbolta sem er
opið mót fer fram í Þrekmiðstöð-
inni í Hafnarfirði 4. maí. Þetta er
í fyrsta sinn sem opið mót fer
fram hér á landi í þessari íþrótta-
grein. íþróttasamband Islands
gefur öll verðlaun til keppninnar.
Veggbolti hefur verið stunduð
hér á landi í þrjú ár. Aðstöðuleysi
hér á landi hefur háð íþróttinni,
þar sem aðeins þrír til fjórir salir
eru til hérá landi.
Veggbolti er mjög vinsæl
íþróttagrein víða erlendis eins og
til dæmis í Englandi. Þar hefur
íþróttin vaxið mjög mikið og er nú
um einn völlur á hverja 7.000 íbúa.
Núverandi heimsmeistarar í vegg-
tennis eru frá Pakistan. Japanir
hafa ákveðið að gera þessa
íþróttagrein að þjóðaríþrótt sinni
þar sem áhuginn er mjög mikill.
Þessi íþrótt á mjög vel við Is-
lendinga þar sem þetta er inni-
íþrótt og er mikil áreynsla í stuttan
tíma. Annars er þessi íþrótt ekki
mikið frábrugðin badminton.
í þrekmiðstöðinni eru þrír salir
fyrir veggbolta og að sögn eiganda
stöðvarinnar, Regins Grímssonar,
er mikil ásókn í salina og nánast
fullt alla daga frá morgni til kvölds.
Tveir enskir kenna hjá GR
HINGAÐ til lands er kominn
enskur golfkennari til að kenna
hjá GR og eru þeir þá tveir kenn-
ararnir þar, John Drummond og
Marlyn Knipe.
Knipe kom hingað til lands á
miðvikudaginn í síðustu viku og
byrjaði strax að kenna hjá Drumm-
ond í golfskálanum hjá honum.
Þeir félagar munu síðan taka til
við kennslu úti þegar kylfingar
hefja að leika undir berum himni
og sagði Drummond að hann lok-
aði golfskólanum innandyra eftir
hálfan mánuð.
„Ég þekkti John ekkert. Vinur
minn sagði mér frá honum og óg
hafði samband og þannig byrjaði
þetta allt saman og nú er ég komin
og hér verð ég í sumar og vonandi
lengur," sagði Knipe þegar hann
var spurður að því hvernig staeði
á því að hann hefði komið til ís-
lands.
Knipe er atvinnumaður í golfi
eins og Drummond og hefur verið
það í sex ár. Hann sagðist lítið
hafa séð til íslenskra kylfinga enn
sem komið væri en sér litist vel á
það sem hann hefði séð.
„Við munum ferðast um landið
og kenna golf en það hef ég alltaf
ætlað að gera en ekki komið í verk
þar sem það hefur verið svo mikið
að gera hjá mér,“ sagði Drumm-
ond. „Einnig munum við laga kylfur
fyrir menn en það er einnig hlutur
sem ég hef gert en ekki eins mikið
og þurft hefur þar sem ég hef verið
einn, en nú þegar við erum orðnir
tveir ætti að ganga mun betur."
Það er ekki að efa að mikið
verður að gera hjá þeim félögum
í sumar og þeir klúbbar úti á landi
sem áhuga hafa á að nýta sér
þekkingu þeirra félaga ættu að
hafa samband við þá sem fyrst
því „það hefur verið mikið talað
við mig um að koma út á land og
nú getum við gert eitthvað í því
en örugglega náum við ekki aö
fara á alla þá staði sem við vildum
fara á," sagði Drummond að lok-
um.
Hl-C-ballskák:
íslands-
mótið
hefst
ídag
ÍSLANDSMÓTIÐ f ballskák
hefst á Ingólfsbilliard á
Hverfisgötu 105 í dag klukkan
10 árdegis og verður síðan
framhaldið á morgun klukkan
18 og á laugardaginn klukkan
10 árdegis. Reiknað er með
að mótinu Ijúki um klukkan
19 á laugardag.
Mót þetta kallast Hl-C-ball-
skák, íslandsmótið 1986.
Búist er við jafnri og spenn-
andi keppni og munu 16 meist-
araflokksmenn keppa í mótinu
en núverandi íslandsmeistari
er Kjartan Kári Friðþjófsson.
PSG nær öruggt
með meistaratitilinn