Morgunblaðið - 24.04.1986, Blaðsíða 77
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986
77
Spánn:
Real Madrid
meistari
- Hugo Sanchez markahæstur með 22 mörk
Frá Tryggva Hiibner, fréttaritara Morgunblaðsins á Spáni.
REAL Madrid og Barcelona töp-
uðu bæði í síðustu umferð í 1.
deildinni á Spáni um helgina. Það
kom þó ekki að sök þar sem Real
Madrid hafði tryggt sór meistara-
titilinn fyrir nokkrum vikum og
Barcelona var öruggt með annað
sætið.
Real Sociedad sigraði Real
Madrid, 5:3, á heimavelli sínum
og skoraði Hugo Sanchez tvö af
mörkum Real Madrid í fyrri hálfleik
og fór síöan af leikvelli þar sem
þessi leikur skipti ekki máli. Real
Sociedad tók svo öll völd á vellin-
um í seinni hálfleik og skoraði fimm
mörk. Þau gerðu Barkero (2), Sal-
quero, Mujika og Uralde. Þriðja
mark Real Madrid gerði Juanido.
Espanol sigraði Barcelona einn-
ig með 5 mörkum gegn þremur.
Vestur-Þjóðverjinn Bernd Schust-
er átti mjög góðan leik og skoraði
tvö mörk fyrir Barcelona. Pineta
gerði þriðja mark liðsins. Mörk
Espanol gerðu Peneda (2), Mar-
quez (2) og Petrasa eitt.
Hercules tapaði síðasta leik sín-
um í deildinni gegn Santander, án
Péturs Péturssonar, 4:1 á útivelli.
Leikurinn þótti lélegur, enda
Hercules fallið fyrir síðustu umferð
ásamt Valencia og Celta.
Mexikaninn, Hugo Sanchez,
varð markahæstur í 1. deild annað
árið í röö, gerði 22 mörk.
Lokastaðan í deildinni var þessi:
Real Madrid 34 26 4 4 83-33 56
Barcelona 34 18 9 7 61-36 45
Athletic de Bilbao 34 17 9 8 44-31 43
Zaragoza 34 15 12 7 51-34 42
Atletico de Madrid 34 17 8 9 53-38 42
Gijon
Real Sociedad
Betis
Seuilla
Valladolid
Espanol
Santander
Las Palmas
Osasuna
Cadiz
34 13 15 6 37—27 41
34 17 5 12 64-51 39
34 11 13 10 40—40 35
34 12 10 12 39-34 34
34 13 6 15 54-48 32
34 11 9 1 4 43—40 31
34 10 11 13 34-34 31
34 9 9 16 37-65 27
34 9 9 16 24-33 27
34 9 8 17 30-58 26
Gerpla á
afmæli
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ Gerpla í Kópa-
vogi verður 15 ára á morgun og
í tilefni afmælisins ætlar félagið
að gangast fyrir afmælishátíð þar
sem verður meðal annars farið i
skrúðgöngu, grillaðar verða pyls-
ur og afmælisterta verður á
staðnum. Skrúðganga hefst við
Kópavogskirkju klukkan 18 á
morgun.
Valencia
Hercules
Celta
34
34
34
9 17 38-62 25
6 20 35-62 22
4 25 32-72 14
K SKOKKBRAUT
„Heilbrigt líf — hagurallra":
Öllum landsmönnum boðið til
hollrar hreyfingar í júnf
Akureyri.
í TILEFNI af heilbrigðisári Al-
þjóðaheilbrigðismálastofnunar-
innar og átaki heilbrigðisráðu-
neytisins hér á landi gegn hreyf-
ingarleysi hefur trimmnefnd ISÍ
ákveðið að ganga fram fyrir
skjöldu og freista þess að sam-
eina starf frjálsra félagasamtaka
um að bjóða öllum landsmönnum
til hollrar hreyfingar dagana 20.,
21. og 22. júnf nk. undir kjörorð-
unum „Heilbrigt Iff — hagur
allra“.
Föstudagurinn 20. júní veröur
tileinkaður leikfimiiðkun og mun
Fimleikasamband íslands annast
allan undirbúning á því sérsviði.
Laugardagurinn 21. júní verður
síðan dagur sundsins í umsjón
Sundsambands íslands hvað varð-
ar faglegan undirbúning. Sunnu-
dagurinn 22. júní verður svo dagur
gönguferða, skokks og útivistar.
Allir geta fengið sér hressandi
gönguferð í tilefni dagsins eða
tekið þátt í skokki ákveöna vega-
lengd eftir getu, leiðbeinendur
munu verða til aðstoðar á vegum
Frjálsíþróttasambands íslands.
Göngudagur fjölskyldunnar
sem UMFÍ hefur gengist fyrir ár-
lega fellur á þennan dag og ung-
mennafélögin um land allt drífa I fjölbreytt
fólk til fjalla. Þá munu Ferðafélag nágrenni
íslands og Útivist bjóða upp á | gjalds.
úrval skoðunarferða í
Reykjavíkur án endur-
Tennishús í
Reykjavík
- langþráður draumur að rætast?
ÞAÐ HEFUR lengi verið draumur
tennisleikara á íslandi að eignast
hús yfir tennisvelli þannig að
hægt yrði að iðka fþróttina allan
ársins hring. Vegna óblíðrar veðr-
áttu hefur vertfð tennisleikara
verið stutt og nær eingöngu
bundin við sumarið og jafnvel þá
einnig verið heldur ótrygg.
Þegar árið 1932 byrjuðu tennis-
leikarar að viðra hugmyndir um
byggingu „tennisskýlis" þar sem
æft væri bæði sumar og vetur, en
á þeim tíma voru nokkrir tennis-
Sveinn og Bragi
til Suður-Kóreu
SVEINN Björnsson, forseti ÍSÍ,
og Bragi Kristjánsson, ritari
Ólympíunefndar, eru nú staddir f
Seoul f Suður— Kóreu þar sem
Ólympfuleikarnir 1988 fara f ram.
Þeir félagar sækja þar fund
alþjóða Ólympíunefndarinnar og
þjóðanefndarinnar. Þeir skoða þar
einnig aðstæður og athuga hvern-
ig undirbúnigi fyrir Ólympíuleikana
miðar.
Þeir komu til Seoul eftir 32 tíma
ferðalag á mánudagskvöld og
Víðavangshlaup
Hafnarfjarðar
VÍÐAVANGSHLAUP Hafnarfjarð-
ar verður haldið í dag, sumardag-
inn fyrsta, og hefst það við
Lækjarskóla klukkan 14. Hlaupið
hefur verið haldið reglulega frá
því það fór fyrst f ram, árið 1938.
Skráning þátttakenda fer fram
við Lækjarskólann upp úr klukkan
13. í kvennaflokki er keppt í fjórum
flokkum, 6 ára og yngri, 7-8 ára,
9-12 ára og 13 ára og eldri. í karla-
flokki er keppt í flokkum 6 ára og
yngri, 7-8 ára, 9-13 ára, 14-16 ára
og í flokki 17 ára og eldri.
Veittur verður sérstakur verð-
launagripur sigurvegara í hverjum
keppnisflokki og jafnframt fá fyrstu
3 í mark í hverjum flokki verðlauna-
pening. Loks fá allir þáttakendur í
hlaupinu viðurkenningarskjal, sem
Byggðaverk hefur gefið til hlaups-
ins. Frjálsíþróttadeild FH sér um
framkvæmd hlaupsins. Keppnis-
vegalengdirnar eru frá 600 upp i
1500 metra.
dvelja í Seoul fram að helgi. Ferð
þessi er fjármögnuð að mestu af
alþjóða Ólympíunefndinni.
Bikarkeppni KRA:
Þór vann Magna
10:0
Akureyri.
TVEIR fyrstu leikir bikarkeppni
KRA fóru fram um helgina. Það
voru Þórsarar sem léku gegn
Magna og Vaski og sigruðu ör-
ugglega í báðum viðureignunum.
A laugardag sigraði Þór Magna
10:0 og síðan Vask 4:1 á sunnu-
dag. Mörk Þórs gegn Magna
gerðu: Siguróli Kristjánsson og
Kristján Kristjánsson 3 hvor, Bjarni
Sveinbjörnsson 2 og Sigurbjörn
Viðarsson og Hlynur Birgisson 1
hvor. Gegn Vaski skoruðu Bjarni
Sveinbjörnsson, Siguróli Kristjáns-
son, Jónas Róbertsson og Oskar
Gunnarsson en mark Vasks gerði
Valdimar Lárus Júlíusson.
Næsti leikur mótsins verður á
fimmtudaginn. Vaskur og Magni
eigast þá við kl. 14 á Sanavelli. Á
laugardag keppa svo KA og Vaskur
og á sunnudag KA og Magni. Báðir
leikirnir hefjast kl. 14. Fimmtudag-
inn 1. maí leika svo Þór og KA og
hefst viðureign þeirra kl. 16.
vellir á gamla Melavellinum. í síðari
heimsstyrjöldinni „króuðust"
þessir vellir af vegna búða her-
námsliðsins og lagðist þá iðkun
tennisíþróttainnar niður og hefur
ekki náð sér á strik aftur fyrr en
nú á síðustu árum. Nú eru nokkrir
útivellir á Reykjavíkursvæðinu og
aðstaða er fyrir tennis í fjórum
íþróttahúsum, en tennisleikarar
hafa þó ekki fengið fasta tíma í
þeim og haft mjög takmarkaöan
aðgang að þeim.
Nú hillir þó loksins undir bygg-
ingu húss yfir tennisvöll, en Tenn-
is- og badmintonfélag Reykjavíkur
hyggst reisa íþróttahús, sem í
verður einn tennisvöllur auk
margra badmintonvalla. Ráðgert
er að bygging hússins hefjist nú í
sumar og að húsið verði tilbúið til
notkunar snemma næsta vetur.
Hópur tennismanna innan og utan
félagsins hyggst aöstoða við fjár-
mögnum hússins gegn föstum tím-
um í húsinu. Öllum tennismönnum
og öðrum aðilum, sem áhuga hafa
á að vera með í þessu, er bent á
að hafa samband við Tennis- og
badmintonfélag Reykjavíkur (sími
86622) eða Tennissamtökin (sími
17292) sem allra fyrst, þannig að
Ijóst verði hversu mikill grundvöllur
er fyrir byggingu tennishússins.
Múllersmótið:
Sveit Ármanns
vann svigið
MULLERSMÓTIÐ í svigi og göngu
var haldið um síðustu helgi i Blá-
fjöllum. Þetta er í 20. sinn sem
þetta mót er haldið og að þessu
sinni sigraði sveit Armanns f
sveitakeppninni f svigl en sveitina
skipuðu þeir Einar Úlfarsson,
Tryggvi Þorsteinsson, Árni
Sæmundsson og Hafliði Bárðar-
son. í öðru sæti varð sveit ÍR og
sveit Vfkings varð þriðja.
I 10. km göngu karla urðu þeir
bræður Eiríkur og Guðni Stefáns-
synir jafnir. Matthías Sveinsson
vann í 5 km göngunni og í kvenna-
flokki í þeirri vegaiengd vann Lilja
Þorleifsdóttir. Einar Guðmunds-
son sigraöi í drengjaflokki.
TENTE]
vagnhjól
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8
j^^SÍMI 84670^^
ÖRKIN/SÍA