Morgunblaðið - 24.04.1986, Page 79

Morgunblaðið - 24.04.1986, Page 79
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 1986 79 England vann íhörkuleik Frá Bob Hennessy, fréttamanni MorgunbMMns á Englsndi. ENGLENDINGAR sigruftu Skota með tveimur mörkum gegn einu í spennandi landsleik á Wembley f gœrkvöldi. Terry Butcher og Glen Hoddle gerftu mörk Eng- lendinga og Creame Souness mark Skota. Leikurinn var grófur og átaka- mikill og Bobby Robson sagfti ó eftir að „fjandsamlegt andrúmsloft hafi ríkt á vellinum". Fyrirliðarnir Ray Wilkins og Souness slógust hressilega í síftari hálfleik áður en dómaranum franska tókst að skakka leikinn, Steve Nichol lenti í slagsmólum án þess að fá bókun, en þeir Watson og Nicholas voru báðir bókaðir fyrir gróf brot. Fyrsta markið kom á 27. mínútu. Hoddle átti þá háa sendingu fyrir mark Skota, Hodge nóði að skalla boltann aftur fyrir markið af fjœr- stöng, og Butcher skoraði með föstum skalla af stuttu færi. Skóla- bókarmark. A þrítugustu og níundu mínútu skoraði Hoddle svo einfalt mark. Sansom átti þó fast skot af 30 metra færi sem Rough í skoska markinu varði, en gat aöeins slegið knöttinn upp í loftið og Hoddle skallaði í opið mark af eins metra færi. Skotarnir náöu ekki aö jafna fyrr en í síðari hálfleik. Þá var Charlie Nicholas kominn í færi inn í víta- teig, þegar Watson brá honum. Souness skoraði örugglega úr víta- spyrnunni með þrumuskoti. Sigur Englendinga var sann- gjarn, þótt Skotar hafi sótt nokkuð meira í síðari háifleik. Sóknarleikur Englendinganna var mun beittari og leikur þeirra í heild agaðri og heilsteyptari. Mikil forföll voru í báðum liöum, sérstaklega hjá Skotunum. Liöin voru þannig skip- uð: England:Shilton, Stevens, Wetson, Butcher, Sansom, Hoddle, Hodge, Wilkins, Francis, Hately, Waddle. Skotland: Rough, Gough, McLeish, Miller, Malpas, Souness, Nichol, Aitken, Bannon, Speedie, Nicholas. Úrslit landsleikja í gær: N-írland — Marokkó 2:1 NORÐUR-ÍRAR báru sigurorð af Marokko I Belfast í gnrkvöldl meft tveimur mörkum gegn einu. Colin Clarke og Jimmy Quinn gerðu mörfc franna f öruggum sigri. Marokku leikur æm kunn- ugt er meö Englendingum f riftli f Mexfkó. Belgía — Búlgaría 2:0 BELGÍA vann öruggan sigur á Búlgaríu á Haysel-leikvanginum f Brussel í gærkvöldi meö tveimur mörkum gegn engu. Filip Desmet skoraði fyrra mark- ið með góðu skoti úr þröngu færi undir lok fyrri hálfleiks og Vanden- bergh hið síðara eftir leikhlé. Bæði liðin leika i Mexíkó eftir mánuð og var að sögn fréttaskeyta mikill getumunur á þeim — Belgarnir voru áberandi betri á öllum sviðum knattspyrnunnar. írland — Uruguay 1:1 ÍRLAND og Uruguay gerftu jafn- tefli 1:1 f landsleik f Dublin f gærkvöldi. Ruben Paz náði forystu fyrir Uruguay eftir 22 mín. en Gerry Daly jafnaði úr vítaspyrnu 17 mín- útum síðar. írar tefldu fram hálf- gerðu b-liði í leiknum en áttu þá allskostar við suður-ameríska liðið. Landslið írlands leikur tvo lands- leiki hérlendis í lok næsta mánað- ar. Rúmenía — Sovét 2:1 SOVÉTMENN töpuftu öðrum leik sínum f röft þegar Rúmenar sigr- uftu þá 2:1 f Rúmenfu. Engir leik- menn frá Steaua Bukarest voru f llfti Rúmenfu, vegna undlrbún- ings fyrir úrslitaleik Evrópu- keppninnar, og þaft gerir sigur þeirra enn athygliverftari. Hagi skorafti fyrsta markift úr aukaspymu, Rodionov jafnaði fyrir Sovótmenn, en Camatru gerfti út um leikinn þegar tfu mfn- útur voru til leiksloka. Um 150 skráðir/ Víðavangshlaup ÍR ALLT ÚTLIT er fyrir metþátttöku í 71. víftavangs- hlaupi ÍR, sem haldið verftur f dag. Hlaupift hefur aldrei fallið niftur frá árinu 1916 er þvf var hleypt af stokkunum og aðeins tvisvar verift fœrt af sumardeginum fyrsta, sem var vegna vefturs. ( gær höfðu rúmlega 140 manns tilkynnt þátttöku og búist er við að fleiri bætist í hópinn í dag, því tekið verður á móti þátttökutilkynningum i porti Miðbæjarbarnaskólans milli kl. 13 og 13.30 í dag. Flestir hafa keppendur verið 94, en það var í fyrra. Hlaupið hefst í Hljómskálagarðinum kl. 14 og lýkur í Tjarnargötu stuttu seinna, er keppendur hafa lokið 4 km hlaupi, sem liggur m.a. út í Vatnsmýri. Skokkarar mæta í auknum mæli í þetta sögufræga hlaup og munu t.d. 22 starfsmenn löntæknistofnunar hlaupa galvaskir. Um 15 starfsmenn sjónvarpsins ætla einnig aö hlaupa, sömuleiðis tugur lögreglu- manna og hópurtrimmara af Keflavíkurflugvelli. Auk þessa verða allir beztu millilengda- og lang- hlauparar landsins með í hlaupinu og gæti orðið hörkukeppni um sigur í hlaupinu, sem er mjög eftir- sóttur í hugum keppnishlaupara. Undanfarin tvö ár hefur Sigurður Pétur Sigmundssonm, FH, sigrað í hlaupinu og enda þótt ekki sé hægt að bóka neinum sigur fyrirfram, þar sem margir hlauparar eru nokkuð jafnir að getu, er hann sigurstranglegur í dag. ®*0u«W' i hlaupinu er keppt um níu veglega bikara, sem allir eru gefnir af Morgunblaöinu, utan einn, sem Július Hafstein, formaður Iþróttabandalags Reykja- víkur, gaf. Einnig fá fyrstu þrír menn í mörgum keppnisflokkum verðlaunapeninga. • Við upphaf Víðavangshlaups ÍR f fyrra. Þá luku 94 keppendur hlaupi, sem var met. í gœr höfðu nær 150 skráft sig til þátttöku aft þessu sinni og allt útlit fyrir aö keppendur verfti f fyrsta sinn yfir hundrað. MorgunbMið/AP Glen Hoddle fagnar eftir að hafa skorað annaft mark Englendinga í gærkvöldi. VERSLUN FYRIR DÖMUR Um leið og við bjóðum gleðilegt sumar tökum við uppgott úrval af sumarfatnaði frá

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.