Morgunblaðið - 14.05.1986, Side 1

Morgunblaðið - 14.05.1986, Side 1
64 SIÐUR B STOFNAÐ1913 104. tbl. 72. árg.___________________________________MIÐ VIKUD AGU R14. MAI1986_____________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Italir vísa líbýskum sendiráðsmanni úr landi: Hegðun mannsins í ósamræmi við starf Verdens Gang/Símamynd Arne Treholt ræðir við veijendur sina Arne Haugestad (t.v.) og Alf Nordhus eftir að hann dró til baka áfrýjun á máli sínu til hæstaréttar. Treholt dregur áfrýjun sína til baka: Dómsvaldið sakað um fordóma í bréfi Osló. Frá Jan Grik Laure, fréttaritara ARNE Treholt dró I gær tíl baka áfrýjun á máli sínu til hæstarétt- ar og er þvi allt útlit fyrir að máli hans sé lokið. Treholt gerði þetta I bréfi þrungnu tUfínning- um þar sem Hann sakaði norska fjölmiðla, stjómvöld og dóms- valdið um að hafa dæmt sig fyrirfram. Lasse Qvigstad ríkissaksóknari varð við beiðni Treholts og er því lokið vitnaleiðslum, sem hófust í máli Treholts fyrir tveimur vikum. Treholt, fyrrum blaðafulltrúi norska utanríkisráðuneytisins, var dæmdur f tuttugu ára fangeisi og til að greiða eina milljón n.kr. í undirrétti fyrir að afhenda útsend- urum Sovétmanna og Iraka hemað- arleyndarmál, sem vörðuðu bæði Atlantshafsbandalagið og Noreg. Treholt sagði í áðumefndu bréfi að allt frá því hann var handtekinn 1984 hefði hann fundið fyrir því hvílíkan metnað yfirvöld hefðu lagt í mál hans. „Meðferð málsins fyrir undirrétti staðfesti þetta og sú tilfinning styrktist að fordómar saksóknara, stjómvalda og fjölmiðla hefðu fylgt mér inn í réttarsalina," skrifaði Treholt. Ame Haugestad, annar veijenda Treholts, las bréfið upp í hæstarétti. Treholt fékk mál sitt tekið upp fyrir hæstarétti eftir margra mán- aða undirbúning og langa baráttu. Áður en mál hans yrði tekið fyrir vildi Treholt að hæstiréttur tæki afstöðu til tveggja atriða. í fyrsta lagi að hæstiréttur ákvæði hvort Treholt gæti tekið mál sitt aftur upp fyrir lögmannarétti. í öðm lagi hvort tveir sérfræðingar, sem bám vitni fyrir lögmannarétti, Thore Boye sendiherra og Bjöm Eggi herforingi, skyldu dæmdir óhæfir til að bera vitni þar sem þær bæm kala í garð Treholts. Treholt tapaði báðum þessum atriðum. Þegar dómurinn gengur eftir á Morgunblaðsins. Treholt þess kost að fara fram á að málið verði tekið fyrir á ný í lögmannarétti. En Treholt ætlar ekki að notfæra sér þennan mögu- leika strax. Hann segir að réttar- samfélagið og norskt samfélag sé honum enn of fjandsamlegt. Hæstiréttur kveður úr um það ( dag hvort Treholt eigi að greiða kostnað af undirbúningi undir rekstur málsins fyrir hæstarétti og málarekstri undanfamar tvær vik- ur. Sá kostnaður er talinn nema um 200.000 n.kr. Róm. AP. ITÖLSK yflrvöld ákváðu £ gær að reka líbýskan sendi- ráðsmann, Mustafa Mo- hamed Alarkresh að nafni, úr landi vegna þess að at- hafnir hans væru ekki £ samræmi við starf bans. Alarkresh er ellefti líbýski sendiráðsmaðurinn, sem ítalir reka úr landi eftir að aðildarríki Evrópubandalagsins ákváðu að grípa til aðgerða gegn Líbýu með því að fækka í starfsliði við sendi- ráð þeirra. Líbýumenn ráku á mánudag 36 stjómarerindreka og starfslið úr sendiráðum sjö aðildarríkja Evrópubandalagsins úr landi. Þ. á m. vora 25 ítalir. Starfsmenn ítalska utanríkis- ráðuneytisins sögðu að ekkert samband væri á milli aðgerðar Líbýumanna á mánudag og brott- rekstrar Alarkresh. I ítölsku dagblaði stóð að hann hefði orðið uppvís að gransamlegu athæfí nærri eldflaugastöð Atlantshafs- bandalagsins á Sikiley. Moammar Khadafy, Líbýuleið- togi, sagði í ræðu, sem birt var í gær, að Líbýumenn væra þess umkomnir að gera harða hríð að ítölum og í síðustu viku hótaði Khadafy að gera árás á ítölsku eyna Lampedusa ef strandgæslu- stöð Bandaríkjamanna yrði ekki fluttþaðan. Bettino Craxi, forsætisráð- herra Ítalíu, hefúr sagt að Líbýu- mönnum verði svarað í sömu mynt, ef þeir reyni að gera árás. Eþíópía: Hald lagt á farm frá Band Aid London. AP. BAND Aid-hjálparsamtökin kröfðust þess í gær að stjórn Eþíópíu skilaði 51 tonni af lyfjum og öðrum hjálpargögnum, sem hún gerði upptæk, og sögðust ætla að bíða með að láta 900.000 dali, sem renna áttu til aðstoðar nauðstaddra, af hendi rakna þar til svo hefði verið gert. Bemard Doherty, talsmaður Band Aid, sagði, að í farminum hefðu verið teppi, lyf og læknistæki, sem fara áttu til sveltandi og deyj- andi fólks í Erítreu. Þar beijast uppreisnarmenn fyrir sjálfstæði gegn marxistastjóminni í Addis Abbaba. Farmurinn var gerður upptækur með vopnavaldi í hafnarborginni Asab. Með naumindum tókst að afstýra harmleik í Chemobyl: Lítil sem engin geisla- virkni frá orkuverinu Mosk vu/ Róm/Stokkhólmi. AP. VESTRÆNIR sendierindrekar greindu frá því í gær að sovésk yfir- völd hefðu sagt þeim að lítil sem engin geislavirkni væri nú úr kjarnorkuverinu í Chemobyl, en nýjar fregnir hafa leitt í ljós að með naumindum hafí tekist að koma í veg fyrir stórslys í verinu í síðustu viku. Tilkynnt var í fréttatímanum Vremya í sovéska sjónvarpinu að Mikhail Gorbachev myndi í kvöld ávarpa þjóðina. Leiðtogi Sovétrikj- anna hefúr ekkert sagt opinberlega um slysið 26. apríl. í opinberri tilkynningu, sem gefin var út á mánudag, sagði, að sex manns hefðu látist og 35 væru alvarlega sjúkir. Ekki var ljóst hvort þessir sex vora til viðbótar tveimur fómarlömbum slyssins, sem Sovét- menn greindu frá í upphafi. Ivan Yemelyanov, varastjómandi fyrir- tækis, sem teiknaði kjamaofnana í Chemobyl, sagði, að alls væru fóm- ariömb slyssins nú orðin sex. í Prövdu, málgagni sovéska Kommúnistafiokksins, birtist viðtal við virtan eðlisfræðing, Yevgeny Velikhov að nafni. Hann sagði að neyðarástand hefði skollið á um tfu dögum eftir slysið. Vísindamenn óttuðust að Iqamaofninn myndi brenna sér leið gegnum efstu jarð- lög og niður í vatnsból er björgunar- menn reyndu að slökkva eldinn með þvi að hlaða sandi, blýi og öðrum eftiurn ofan á oftiinn. „Tækist okkur að halda ofninum ofan jarðar eða myndi hann falla niður úr jarðskorpunni? Aldrei hefúr nokkur maður á jarðríki staðið frammi fyrir svo erfiðum aðstæðum og hver mistök hefðu haft harmleik í för með sér,“ sagði Velikhov. Sagði hann að verkamenn hefðu bægt hættunni frá með því að bora göt á oftiinn til að hleypa út hita. Vinstrimenn og umhverfísvemd- arsinnar á Ítalíu eru nú mjög áfram um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort loka skuli þremur kjarnorku- verum, sem nú eru í gangi á Ítalíu. Birgitta Dahl, orkumálaráðherra Svíþjóðar, segir, að verið geti að sænska stjómin loki kjamorkuver- um í Svíþjóð fyrir 2010. AP/Símamynd Bandarískir ferðamenn á kvikmyndahátíðinni í Cannes i Frakklandi fóru fram á það á veitingastað að mælt yrði hvort maturinn væri geislavirkur. Hér sést hvar mælt er hvort salat sé geislavirkt. Þetta atvik hefur mjög verið haft i flimtingum á frönsku ríveríunni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.