Morgunblaðið - 14.05.1986, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR14. MAÍ1986
Séð yfir byggingarsvæðið. Myndin var tekin af þaki Húss verslunarinnar. Morgunblaðia/Bjami
Áttatíu búðir og bfla-
stæði á þremur hæðum
28.300 m2 verslunarmiðstöð þýtur upp í Nýja miðbænum
Frá vinstri: Magnús Bjarnason byggingarstjóri Hagkaups, Ragnar Atli Guðmundsson framkvæmdastjóri bygg-
ingarinnar fyrir Hagkaup, Kristján Stefánsson verkefnisstjóri fyrir Byggðaverk og Guðjón Davíðsson yfirverk-
stjóri á staðnum. Borgarleikhúsið nýja er lengst til vinstri á myndinni.
Það þarf einn og einn fermetra af þakstáli á húsið.
Þegar ekið er austur eftir
Miklubraut milli Kringlumýrar-
brautar og Háaleitisbrautar blas-
ir við á hægri hönd í nýja mið-
bænum, rétt austan Húss versl-
unarinnar, mikil og sérlega löng
bygging, sem hefur risið með
undraverðum hraða siðan i júni
á síðastliðnu ári. Hér er að risa
stærsta verslunarmiðstöð lands-
ins undir einu þaki; stórhýsi, sem
á að hýsa upp undir 80 verslanir
auk þjónustufyrirtækja og
þriggja veitingastaða; stórhýsi,
sem að sögn verktaka er er eitt
hið stærsta hérlendis, aðeins
kerskálarnir i álverinu munu
vera stærri; stórhýsi, sem mun
kosta um 1,2 milljarða fullbyggt,
eða jafnt og 400—500 miðlungs-
blokkaribúðir. Það væri ekki úr
vegi, að fræðast örlitið nánar um
svo viðamikið verk.
Verktaki við verslunarmiðstöðina
er Byggðaverk hf. í Hafnarfirði.
Fyrirtækið er ekki gamalt — var
stofnað árið 1980 — en byggir þó
á gömlum grunni, þar sem það var
stofnað upp úr byggingarfyrirtæk-
inu Sigurður og Július hf. sem hafði
starfað frá 1968 og hafði töluverða
reynslu í byggingu stórra húsa, svo
sem skóla og verslunarhúsa.
Byggðaverk hefur m.a. reist mjólk-
urstöðina á Bitruhálsi og mun skila
henni af sér nú í maí, fyrirtækið
mun einnig afhenda Verslunar-
mannafélagi Reykjavíkur 60 íbúða
blokk í byijun maí og hefur bygging
hennar tekið 1 V2 ár. Þá má nefna,
að Byggðaverk hefur unnið við
byggingu B-álmu Borgarspítalans
og stórmarkaðs SÍS (Miklagarðs)
við Sundin. Að sögn forráðamanna
fyrirtækisins er það meðal allra
umsvifamestu verktaka í bygging-
ariðnaði hérlendis. Forstjóri
Byggðaverks er Sigurður Sigur-
jónsson og tæknilegur fram-
kvæmdastjóri er Kristján Stefáns-
son.
Ensk hönnun löguð að
aðstæðum
Að sögn Ragnars Atla Guð-
mundssonar framkvæmdastjóra
byggingarframkvæmdanna fyrir
Hagkaup, sem hefur forgöngu um
bygginguna, vár fyrst leitað til
enskra arkitekta, sem hafa sérhæft
sig í hönnun verslunarmiðstöðva.
Síðan voru hugmyndir þeirra lagað-
ar að aðstæðum hérlendis. Ragnar
Atli sagði, að gerð hafi verið ná-
kvæm úttekt á fjölda, tegund og
eðli verslana í miðborginni og höfð
hliðsjón af því, þegar ákveðið var,
hverskonar verslanir ættu að vera
í nýju miðstöðinni.
Arkitekt byggingarinnar er
Hrafnkell Thorlacius. Verkfræði-
þjónustu annast Verkfræðistofa
Sigurðar Thoroddsen hf., eftirlit er
á vegum Fjarhitunar og byggingar-
stjóm fyrir Hagkaup annast Verk-
fræðiþjónusta Magnúsar Bjama-
sonar.
Verslunarmiðstöðin var boðin út
í apríl 1985 og fól verkefnið í sér
að reisa húsið og fullgera það utan.
Byggðaverk átti lægsta tilboðið af
fjórum og var það sama og kostnað-
aráætlun hönnuða. Síðan hefur
verið gerður viðbótarsamningur
milli Hagkaups og Byggðaverks um
að Byggðaverk sjái um múrverk og
tréverk innanhúss.
Húsið er alls um 28.300 m 2 og
154.000 m 3. Heildarlengd þess er
um 230 m. Lesendum til glöggvun-
ar skal þess getið, að það er svipað-
ur vegur og frá Morgunblaðshúsinu
í Aðalstræti og út að Lækjartorgi.
Á undan áætlun
Byggðaverk hóf framkvæmdir
við verslunarmiðstöðina f júní 1985,
en sumarið áður hafði ístak hf.
grafið fyrir hluta hússins og skipt
um jarðveg í bílastæðum og Suður-
verk hf. gróf endanlega fyrir húsinu
vorið 1985.
Þriðjungur hússins, um 55.000
m 3 , varð fokheldur um miðjan
desember sl. og hefur verkinu miðað
vel, verið að jafnaði hálfum mánuði
á undan áætlun allan framkvæmda-
tímann. Áætlað er, að allt húsið
verði fokhelt í júlí nk., ári eftir að
Byggðaverk hóf framkvæmdimar.
Húsið á að verða fullfrágengið utan
1. nóvember í ár og verslunareig-
endur fá húshluta sinn afhentan í
mars á næsta ári. Verslunarmið-
stöðin verður síðan opnuð með við-
höfn 13. ágúst næsta sumar. Nú
vinna um 80 manns við bygging-
una, en gert er ráð fyrir að þeir
verði um 130 þegar flest verður í
sumar. Yfirverkstjóri á staðnum er
Guðjón Davíðsson byggingarmeist-
ari.
Eins konar
Lego-bygging
En hvemig er hægt að vinna svo
mikið verk á jafnskömmum tíma?
„Forsendan fyrir því, hve verkið
vinnst hratt, er að mikið em notaðar
forsteyptar og forsmíðaðar eining-
ar,“ segir Kristján Stefánsson, sem
er verkefnisstjóri Byggðaverks við
bygginguna. „Með því er allur
uppsláttur í lágmarki og við það
sparast mikill tími. Svo hefur sam-
starf verktaka og verkkaupanda
verið með miklum ágætum, annars
hefði verkið ekki gengið svona vel.“
Stigahús og burðarveggir em
steypt á staðnum en að öðm leyti
em húshlutar að mestu forsteyptir
og forsmíðaðir, bæði heima og er-
lendis, og síðan er þeim raðað
saman. Minnir einna helst á Lego-
kubba.
Burðarsúlur em forsteyptar á
staðnum en burðarveggi _ hefur
Byggðaverk steypt uppi á Ártúns-
höfða. Burðarbitar em forsteyptir
og forspenntir hjá Páli Friðrikssyni
í Kópavogi, loftaplötur koma frá
Danmörku, einingar til klæðningar
utanhúss em steyptar hjá Loftorku
í Borgamesi og límtré í þök kemur
frá Límtré hf. á Flúðum. Forsmíð-
aðar þakeiningar em frá Noregi og
stálklæðning á þökin kemur frá
Garðastáli. Trésmiðja Byggðaverks
og Gluggasmiðjan smíða gluggana
en gler er frá Samverki á Hellu.
Byggingin verður einangmð að
utan með steinull frá Steinullar-
verksmiðjunni á Sauðárkróki.
„Skipulag framkvæmda þarf að
vera óaðfinnanlegt til þess að
samhæfa alla þá aðila, sem vinna
einingar í húsið. Og það er eins
gott, að hlutamir falli hver að öðr-
um, þegar þeir koma úr svona
mörgum og dreifðum stöðum,"
sagði Kristján. Til þess að koma
öllum þessum mörgu og miklu ein-
ingum á sinn stað, em að jafnaði
notaðir fimm eða sex kranar og er
einn þeirra með öflugri tækjum
sinnar tegundar hérlendis — getur
lyft allt að 40 tonnum. Daginn sem
Morgunblaðið var að kynna sér
framkvæmdimar var verið að
leggja forsteyptar lofteiningar á
milli burðarbita og varð þá vel ljós
sá tímaspamaður sem verður, mið-
að við að þurft hefði að slá undir
allt loftið. Gekk verkið bæði fljótt
og vel.
Steypubílar frá BM Vallá vom
að koma og fara, því að steypa er
lögð ofan á lofteiningamar. „Þei.ta
er hluti af stífingu hússins gegn
jarðskjálftum," sagði Kristján. Það
á greinilega ekki að hrynja þó eitt-
hvað skjálfi jörðin.
Nafnið ræður hæð
turnsins
Sérstaka athygli vakti eins konar
tum á norðurenda hússins og virtist
ekki vera kominn í fulla hæð. „Já,
það á sér skýringu," sagði Ragnar
Atli Guðmundsson. „Það er nefni-
lega ekki hægt að ákvarða hæðina
endanlega fyrr en húsið hefur feng-
ið nafn. Þó að Hagkaup standi fyrir
byggingaframkvæmdunum hefur
húsið ranglega verið kallað Hag-
kaupshúsið en Hagkaup er ekki
nema eitt fyrirtæki af mörgum
tugum sem hér verða til húsa. Á
tuminum á að standa framtíðamafn
hússins og upp á hæðina skiptir
miklu máli hvort það heitir t.d.
Borg eða Pálmalundur. “
Matvara á 3.900 m2
Verslanimar f húsinu verða 76
auk tveggja verslana Hagkaups í
norðurenda hússins og verða þær
langstærstar, 3.900 m 2 matvöm-
verslun á fyrstu hæð og 3.700 m 2
verslunarrými á annarri hæð fyrir
fatnað og fleira. Þess má geta, að
32 afgreiðslukassar verða fyrir
matvömna eina, en í húsnæði
Hagkaups í Skeifunni em 22 kassar
fyrir alla starfsemina. Á þriðju hæð
í norðurenda verða svo skrifstofur
og ýmiss konar þjónustufyrirtæki
sem nú á að fara að selja út, svo
sem ferðaskrifstofa, fasteignasala,
ljósmyndastofa og tannlæknastofur
svo eitthvað sé nefnt.
Að norðurendanum undanskild-
um verðúr húsið á tveim hæðum.
Eftir því, úr suðurenda að Hag-
kaupshlutanum, liggja göngugötur
á hvorri hæð og er hvor gata um
150 m á lengd og 9 m breið þar
sem hún er mjóst. Þess má geta,
að Laugavegurinn er sums staðar
12 m breiður og þarf að anna bæði
bílum og fótgangandi. Búðar-
gluggamir em svo á milli súlna
báðum megin göngugatnanna. Alls
verða 76 búðir við götumar og eins
og að líkum lætur, verður hægt að
kaupa þama flest það sem menn
geta látið sér detta í hug.
Þegar er búið að selja um 80%
verslunarrýmisins og er það sam-
kvæmt áætlun.
Gosbrunnur og garða-
gróður
Í húsinu verða fjögur torg, hið
stærsta 800 m 2. Þar verður gos-
brannur og tjöm og gróður verður
á torgunum og meðfram götunum.
T.d. verða keypt 4—5 m há tré frá
HoIIandi. í 20 m hæð yfir stóra
torginu, á þaki hússins, verður
glerhvelfing. Húsið opnast svo til
suðurs, beint út á torg eitt mikið,
sem liggur á milli verslunarmið-
stöðvarinnar og Borgarleikhússins
nýja.
Til þess að greiða fyrir umferð-