Morgunblaðið - 14.05.1986, Síða 23

Morgunblaðið - 14.05.1986, Síða 23
38011/ M .fcf STIÍöÁnfJJffV'CíIM .(1T(TA líSfHítífiflOM MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 1986 £5? 23 p ÍÁMSKEIÐ A 1 ] MS.DOS STÝRIKERFI ] EINKATÖLVA Stefnuræða Gro Harlem Brundtland: Gripið til fjölþættra spamaðarráðstafana Samstarfið við NATO grundvöllur stefnunnar í utanríkis- og öryggismálum Osló. AP. HIN nýja minnihlutastjórn Verkamannaflokksins í Noregi kynnti í gær stefnuskrá sína. Samkvæmt henni verður gripið til margháttaðra aðgerða til þess að bregðast við „alvarlegustu efnahagskreppu í Noregi um árabil“. Gro Harlem Brundtland forsætis- ráðherra hét því í stefnuræðu sinni í Stórþinginu, að hún mundi „leita náins samstarfs" við borgaraflokk- ana í því skyni að koma fram spam- aðarráðstöfunum til að mæta fyrir- séðum methalla á viðskiptum við útlönd og fjárlögum vegna olíuverð- fallsins. Gro Harlem Brundtland ítrekaði, að staðið yrði við allar skuldbinding- ar Noregs við Atlantshafsbandalag- ið, og dró þannig úr ótta um, að vinstrisinnar innan flokks hennar kjmnu að þvinga fram stefnubreyt- ingu í þá átt að losa um böndin við NATO. „Stjómin mun gjundvalla stefnu sína í utanríkis- og öryggismálum á samstarfinu innan NATO og samstöðu með Vestur-Evrópuríkj- unum og Bandaríkjunum,“ sagði hún. í stefnuræðu forsætisráðherrans komu ekki fram neinar tillögur, sem líklegar þóttu til að gera minni- hlutastjóminni erfítt fyrir í þinginu. Gunnar Berge fjármálaráðherra og Gro Harlem Brundtland forsætis- ráðherra á fundi með fréttamönniun á sunnudagskvöld, eftir að tilkynnt hafði verið um gengisfellingu norsku krónunnar. Johan Buttedal, talsmaður þing- flokks Miðflokksins, sagði í viðtali við norska sjónvarpið, að stefnu- ræðan „kallaði á samstarf á breið- um grundvelli í Stórþinginu". En Carl I. Hagen, leiðtogi Fram- faraflokksins, sagði í sjónvarpinu, að hann ætti ekki von á því, „að Norskur lax rotnar í Bandaríkjunum stjómin eigi sérlega langa lífdaga fyrir höndum". Brandtland-stjómin felldi gengi norsku krónunnar um 12% sl. sunnudag og hét því að fylgja strangri aðhaldsstefnu í ijármálum og peningamálum til þess að mæta tekjutapi ríkisins vegna olíuverð- fallsins. Gro Harlem Brandtland gaf í skyn í stefnuræðu sinni í gær, að hún væri fús að ganga til samstarfs við OPEC, samtök olíuframleiðslu- ríkjanna, í því skyni að stuðla að stöðugu olíuverði. Innan þeirra fyrirtækja er nota einkatölvur er nauðsyn að hafa starfsmenn með þekkingu á innviðum og búnaði tölvukerfisins. Tilgangur MS. DOS- námskeiðanna er að gera starfsmenn sem hafa umsjón með einkatölvum sjálfstæða í meðferð búnaðarins. Þátttakendum er veitt innsýn í uppbyggingu stýrikerfa og hvernig þau starfa. Farið er yfir allar skipanir stýrikerfisins og hjálparforrit þess. Kennd verður tenging jaðartækja við stýrikerfi og vél og rætt um öryggisatriði og daglegan rekstur. Tími og staöur: 26.-29. mal kl. 13.30-17.30 Ánanaustum 15 Leiðbeinandi: Björn Guðmundsson, kerfisfræðingur. Stiórnunarfélaa islands Ánanaustum 15 Sími: 6210 66 London. AP. GENGI bandarísks dals hækkaði gagnvart öðrum helstu gjald- miðlum á Evrópumarkaði í gær eftir að hafa komist upp úr mestu lægð gagnvart japanska jeninu frá stríðslokum. Gull féll í verði. Gjaldeyrissalar sögðu, að dalur- inn hefði sigið nokkuð fýrst í stað, en stigið í lotum, þegar evrópskir og bandarískir spákaupmenn hefðu rokið til og ætlað að notfæra sér lækkunina. í London féll breska pundið niður í 1,5342 dali (1,5470). Dalurinn kostaði á Evrópumarkaði í gær 2,1750 vestuf-þýsk mörk (2,1730), 1,8012 svissneska franka (1,8000), 6,9250 franska franka (6,9115), 2,4477 hollensk gyllini. (2,4450), 1.492,25 ítalskar lírar (1.492,50) og 1,3782 kanadíska dali (sama). í Tókýó kostaði dalurinn 160,95 jen (160,20). Gullverð lækkaði sfðdegis og var 342,00 dalir únsan (345,25), er markaðurinn í London lokaði. í Ziirich kostaði gullið 344,00 dali ogíHongKong 344,47 dali. GENGI GJALDMIÐLA Osló. Frá fréttaritara Morffunblaóains, ÚTFLUTNINGUR Norðmanna á eldislaxi til Bandaríkjanna hefur verið stöðvaður um tíma. Er stöðvunin til komin vegna ótta við geislavirkni í laxinum eftir kjamorkuslysið í Chemobyl í Sovét- ríkjunum. Geislavirkni hefur fundist í sex af sautján löxum sem sýni vora tekin úr, en hún reyndist langt undir hættumörkum. Bandarísk yfírvöld munu sjálf láta framkvæma athuganir á fískin- um, áður en leyft verður að selja hann á markaði í Bandaríkjunum, enda er Noregur í hópi þeirra 11 ríkja, sem yfirvöld telja nauðsjmlegt að rannsaka framleiðsluvörar frá. Fyrirtækið Skárfísh í Noregi er Jan Erik Laure. stærsti útflytjandi á eldislaxi til Bandaríkjanna. Fyrirtækið seldi þangað 35-40 tonn vikulega og hefur útflutningurin minnkað um 30% eftir kjamorkuslysið. „Ef OPEC-ríkin geta komið sér saman um ráðstafanir til þess að halda olíuverðinu stöðugu og á sanngjömum grandvelli, mun norska stjómin ekki láta sinn hlut eftir liggja," sagði hún. bað e* a®ei«s ein lei$ <„ . Sa vwda vegi eklt" " *

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.