Morgunblaðið - 14.05.1986, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR14. MAÍ1986
Blaðflettari og
ýmislegt fleira
Aheiðum uppi má stundum
sjá blóm á stangli. Þau vaxa
upp við sérstaklega erfíðar að-
stæður en blómstra samt fallega
og gleðja vegfarandann.
Þessi mynd kom upp í huga
minn þegar ég hitti að máii unga,
hreyfíhamlaða Breiðholtsstúlku,
Margréti Eddu Stefánsdóttur.
Hvað ertu gömul, Margrét
Edda?
— Eg er tíu ára.
í hvað skóla ertu?
— Tíu ára bekk í Hlíðaskóla.
Það er langt að fara úr Breið-
holtinu í Hlíðaskóla. Hvernig
ferðu á milli?
— Ég er sótt og keyrð á milli
í sérstökum bíl.
Ertu lengi í skólanum á hveij-
um degi?
— Eg byija klukkan níu á
morgnana og er búin klukkan
þijú á daginn.
Hvað laerirðu í skólanum?
— Það er margt. Við lesum,
reiknum, smíðum og allt eins og
venjulega er gert í skólum. I
Hlíðaskóla fæ ég líka iðjuþjálfun,
sjúkraþjálfun og talþjálfun. Svo
fer ég í sund þrisvar í viku. Einu
sinni í skólanum og tvisvar í viku
í Sjálfsbjargarlaugina og þá fer
mamma með mér.
Hefurðu einhver sérstök hjálp-
artæki í skólanum?
— Já, núna hef ég rafmagns-
hjólastólinn minn með mér í skól-
ann og það er gott. Nú get ég
farið út í frímínútur og verið með
í röðinni og farið út í bakarí með
hinum krökkunum. Þegar ég les
nota ég blaðaflettara. Til að skrifa
nota ég ritvél með sérstakri gata-
plötu ofan á. Þá plötu nota ég líka
þegar ég vinn við tölvuna.
Setur kennarinn þá verkefnin
þín í tölvuna og þú leysir þau þar?
— Já, og ég get líka teiknað
með tölvunni.
Finnst þér gaman í skólanum?
— Já, mjöggaman.
Hvað er það skemmtilegasta
sem þú gerir heima?
Skrifað á ritvél. Takið eftir gataplötunni sem sett er ofan á
lyklaborðið á ritvélinni.
— Að passa Dag.
Hver er Dagur?
— Hann er frændi minn.
Hvað er hann gamall?
— Hann er tveggja ára. Ég
passa hann stundum.
Ferðu með hann út að leika?
— Já, ég fer með hann út á
gæsluvöll.
Hvemig ferðu með hann?
— Ég læt hann standa aftan á
hjólastólnum mínum og keyri með
hann.
En þarftu þá ekki að fara yfír
götur?
— Jú, en ég horfí til beggja
Á síðustu barnasíðu var eld-
spýtnaþraut. Hérna fáið þið
lausnina á henni. Voruð þið ekki
ÖU búin að leysa þrautina?
I lofti fljúga ...
ÆT
Ibyrjun sumars eru það ekki bara hjólin sem dregin eru upp úr
kjöllurum og út úr geymslum. Hópar fugla koma til landsins. í frétt-
um er gjaman sagt frá því að nú sé lóan komin eða að krían hafí
nú sést í fyrsta sinn á þessu sumri.
Eftir að fuglamir eru
komnir til landsins hefst
mikill annatími hjá þeim
við hreiðurgerð. Það fer
líka tími í það hjá þeim að
Iiggja á eggjunum og biða
þess að ungamir skríði úr
þeim.
Finnst ykkur ekki gam-
an að fara niður að Tjöm
og sjá þegar allt er fullt
af ungum?
Þar sem við erum farin
að tala um fugla er ekki úr
vegi að kanna hvað þú
kannt af fuglanöfnum. Hér
er stafaþraut. í þrautinni
eru falin átta fuglanöfíi.
Finndu nöftiin og settu
hring utan um þau. Nöfn-
unum er raðað á alla vegu, ... , ..
... , , . 6 ’ Finndu átta fuglanofn. Þau eru falin
bemt og á ská, upp og f stafaþrautinni. Þeim er raðaö á aila
mður- vegu.
B t ö d h \j R L P U V
'o F N n '0 L U N D X L
1 \j P ti b N 6 E B D S
(fr 5 R 3 r n N O £ U B
K\ F D (S A T I A. D 5 T
D K s T H 3 L 0 A? P D
<7 3 T A n F T 6 E F t>
»• o u T ’A 3 T L V h T
p N R 5 R 1 I E o L u
u E> F N D W T L P Gr h
K fJ P 3 A K b \J ö U
L\ R M ’l P V 3 L Þ E F
'6 1 R F É Cx N Ú L FL 'LL
T K 2 ÍL L J S T N R I
hliða og athuga hvort það eru
bílar þar.
Nú er komið sumar. Hvað gerir
þú á sumrin þegar enginn skóli er?
— í fyrra fór ég í Reykjadal
og var þar í meira en mánuð. Ég
fór út á bát og það var gaman.
Ég hef líka farið til Danmerkur.
Hjálparðu eitthvað meira til
heima en að passa Dag?
— Ég æfí mig að þvo upp og
get svo kannski hjáipað til við það.
Hlustarðu mikið á útvarp eða
horfírðu á sjónvarp?
— Mér fínnst gaman að léttum
lögum í útvarpinu. Ég horfi líka
á sjónvarpið. Mest er gaman að
bamaefninu. Svo les ég bækur.
Ég þakka Margréti Eddu fyrir
spjallið. Það var gaman að kynn-
ast henni og sjá hversu dugleg
hún er og áhugasöm um marga
hluti.
Margrét Edda við blaðflettarann sem hún notar þegar hún les
bœkur.
Myndagátan 3
Síðasta myndagátan var af blýanti. Rétt svar hafði m.a. Harpa
Rún Gunnarsdóttir á Eskifirði. Ég þakka ykkur fyrir að senda
svör við myndagátunni. Færri sendu svör við þessari myndagátu
en hinni fyrstu. Var þetta of erfitt?
Nú fáum við nýja mynd. Nú er bara að reyna sig við þetta.
Ef þú hefur svar þá sendu það. Heimilisfangið er:
Barnasíða Morgunblaðsins
Aðalstræti 6,
101 Reykjavík.
Gaman væri að heyra frá ykkur um hvað þið viljið fá á þessa
síðu. Það er alltaf gaman að fá bréf.
Slysalaust sumar
Þegar ég bjó í Kaupmanna-
höfn fyrir rúmlega þrettán
árum tók ég upp á því að hjóla
og keypti á uppboði hjá lögregl-
unní þar í landi þann farkost sem
ég nota enn þann dag f dag. Þá
var hjólið auðsjáanlega búið að
vera í notkun í langan tíma og
mig minnir að ég hafi fengið það
fyrir tíu krónur danskar, segir
Margrét Lísa Steingrímsdóttir
sem hjólar daglega til og frá
vinnu og í þær útréttjngar sem
hún þarf að annast. Ég var um
tíma búsett í Hollandi og þar hjól-
ar fólk mikið enda flatlendið alls-
ráðandi. Eftirað heim kom hef ég
haldið uppteknum hætti, en tek
mér frí á veturna þegar vindur,
myrkur og slabb ná yfirhöndinni.
Fyrst var ég að þrjóskast við að
hætta þegar dimmdi og hvessti
en þegar ég var keyrö niður síð-
astliðið haust var ákveðið aö
leggja hjólinu fram á vor. Fyrir
utan þetta tilvik hef ég annars
verið mjög heppin í umferðinni,
en get ekki að því gert að vera
uggandi um son minn sem er tíu
ára og má samkvæmt lögum fara
hjólandi út á götur borgarinnar.
Það er því miður ekki tekið
nógu mikið tiliit til hjólareiða-
manna hér á landi og þó svo að
úrbætur hafi verið gerðar og nú
megi hjóla á gangstígum er það
ekki alltaf hægt. Stundum finnst
mér það svo augljóst að þeir hjóli
lítið sem sjá um gatnagerðar-
framkvæmdir því til dæmis þegar
bætt er ofan á götur borgarinnar
er ekki malbikað út í kantana.
Hemill
Hnakkur Lás
Viðvörunarstöng
Handhemill
Bjalla
Stýri
Glitauga Framöxull
Keðja Grind Framlukt
Keðjuhlíf Fótstig Gaffall
Endurskinsmerki Ró
Á myndinni af hjólinu eru merkt heiti nokkurra hluta þess.
Þetta þýðir að þegar vikið er út
í kant fyrir bifreið er hæðarmun-
urinn orðinn það mikill að hætta
er á að „pedallinn" festist og
viðkomandi detti í götuna. Það
er ýmislegt sem hjólreiðamaður-
inn verður að vera á verði gagn-
vart, bílhurðum er hrundið upp á
ólíklegustu tímum, bílstjórar
bakka bílum sínum út án þess
að gæta nógu vel aö sér, og svo
mætti lengitelja.
Þegar Margrét er í lokin spurð
hvort það sé ekkert á dagskránni
í náinni framtíð að verða sér úti
um bíl segir hún þá hugsun vera
víðsfjarri sér og sínum. Fyrir það
fyrsta hef ég ekki efni á því í bili
og svo hjóla bæði eiginmaður
minn og sonur mikið og hafa
gaman af. Auk þess kostar það
lítið meira en líkamsorkuna að
reka reiöhjól.