Morgunblaðið - 14.05.1986, Page 38

Morgunblaðið - 14.05.1986, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR14. MAÍ1986 STÚDENTA- STJARNAN 14karata gull hálsmen eða prjónn Jón Sigmundsson, skartgripaverslun hf., Laugavegi 5, sími 13383. Valhúsgögn Ný sending af Barrock sófasettum og leðursófasettum. KrabbameinsfélagiÖ NÁMSKEIÐ í REYKBINDINDI Vegna mikillar eftirspurnar hefur Krabbameins- félagiö ákveðið að efna til sumarnámskeiðs í reykbindindi. Námskeiðið hefst með undirbún- ingsfundi 9. júni. Hópurinn hættir að reykja 23. júni. Uppbygging námskeiðsins verður sem hér segir: • Myndun reyklausra svæða. • Atferlisgreining. • Fræðslufyrirlestrar. • F ræðslumyndir og gamanmyndir um reykingar. • Persónuleikakönnun. • Ráð til að hamla gegn offitu. • Ráðtilaðdragaúrlöngunum. • Gestafyrirlestraro.fi. Verð kr. 1.200 fyrir einstakling en kr. 1.800 fyr- ir hjón. Upplýsingar og skráning í síma 621414 á skrif- stofutíma. Svartur leðurjakki fyrir karlmenn. Kvenjakki úr bláu leðri. Morgunbiaðið/Bjami Sambandið kynnir nýjan leðurfatnað SKINNASAUMASTOFA iðnað- ardeildar Sambandsins hefur hafið kynningu á skinn- og mokkafatnaði innanlands. Að- eins 10—15% þeirrar framleiðslu hafa selst hérlendis að staðaldri en megnið hefur verið flutt út og stendur til að sækja á innan- landsmarkað. Mikil áhersla hef- ur verið lögð á vöruþróun undan- farna mánuði og ár. Fyrir skömmu hélt iðnaðardeildin tískusýningu á Skálafelli Hótels Esju fyrir kaupmenn og fjöl- miðla og voru sýndar þar helstu nýjungar deildarinnar í fata- saumi úr skinnum. Það nýjasta í framleiðslunni er fataleður og úr því eru saumaðir jakkar, vesti, pils og buxur. í þenn- an fatnað er notað íslenskt lambs- skinn og að sögn forráðamanna skinnaiðnaðar á staðnum stenst leðrið fyllilega samanburð við inn- flutt kálfsleður, bæði hvað varðar styrkleika og mýkt. Leðrið fæst í ýmsum litum og enn er verið gera tilraunir með liti. Önnur nýjung er svokallaður nappapels og svipar til mokka- skinns að öðru leyti en því, að leður- hlið skinnsins er ekki með rú- skinnsáferð, heldur leðuráferð. Þá má nefna svokallað j'ungle- skinn", frumskógamunstur, með ójafnri áferð og hefur notið vin- sælda í Bandaríkjunum. Svo eru það mokkaskinnin, sem lengst af hafa verið aðalframleiðsla skinnaiðnaðar Sambandsins. Mörg ný snið koma nú fram á mokkafatn- aði. Islenskt sauðskinn er notað í alla framleiðsluna. Hönnuii fat-'nna er að mesti: í höndum umboðsaðila f Noregi og Svfþjóð. Kaupmaður í hópi sýningargesta sagði, að verð leðurfatnaðarins væri lágt og stæðist jafnvel saman- burð við verð leðurklæða frá Afgan- istan og Tyrklandi, sem teldist afar hagstætt. Hjá skinnaiðnaðardeildinni eru nú sútuð 70% þeirra skinna sem fullunnin eru hérlendis. Skinna- saumastofan framleiddi árið 1983 rúmlega 6.000 flíkur en á þessu ári er ætlunin að sauma upp undir 11.000 flíkur. Aðalfundur Sambands íslenskra kaupskipaútgerða: Farmgjöld hafa ekki hækkað frá júní 1985 — Verkfallsaðgerðir stefna atvinnu í hættu, segir í ályktun AÐALFUNDUR Sambands íslenskra kaupskipaútgerða var haldinn á miðvikudag og í ályktun fundarins segir að verkfallsaðgerðir á kaupskipum stefni atvinnu þeirra er vinna við sjóflutninga I hættu. Þá lýsir fundurinn furðu á „órökstuddum staðhæfingum" um að flutningagjöld skipafélaganna hafi hækkað að undanförnu. Ályktunin fer hér á eftir í heild: „Enn á ný hamla vinnudeilur útgerð íslenskra kaupskipa. Þær útflutningsvörur þjóðarbúsins, sem fluttar hafa verið á erlenda markaði af íslenskum skipafélögum, bíða nú flutnings og mörkuðum erlendis er teflt í tvísýnu. Aðalfundur Sambands íslenskra Kaupskipaútgerða lýsir áhyggjum sínum vegna þessarar stöðu og telur, að ef yfirstandandi vinnu- stöðvun verði Iangvinn, auki það enn hættuna á því, að stærri hluti flutninga til landsins og frá flytjist í hendur erlendra aðila. Verkfalls- aðgerðir skipstjóra og undirmanna á kaupskipum stefna því atvinnuör- yggi þeirra fjölmörgu Islendinga sem að sjóflutningum standa í mikla tvísýnu. Við ríkjandi aðstæður hafa skipa- félögin talið sér skylt að framfylgja þeirri launastefnu sem þjóðarsátt hefurtekistum. Aðalfundur Sambands íslenskra Kaupskipaútgerða lýsir einnig yfir undrun sinni á órökstuddum stað- hæfíngum fjölmiðla og ýmissa annarra aðila, að flutningsgjöld hafi hækkað að undanfömu. Skipafélögin hafa ætíð borið hækkanir á flutningsgjöldum undir verðlagsyfírvöld og hafa þau hækk- aðfrájúní 1985. Islensku kaupskipaútgerðimar hafa á liðnum árum leitað allra leiða til að auka hagkvæmni í flutningum til landsins og frá. Dæmi eru um verulegar lækkanir á flutnings- gjöldum á ýmsum vömtegundum og hagræðing í útgerð hefur skilað sér til neytenda undanfarin ár með lægri flutningskostnaði. Islensk kaupskipaútgerð mun áfram kappkosta að auka hag- kvæmni í flutningum til landsins og frá og leggja lóð sitt á vogar- skál lægra verðlags og bættra kjara. Á það skal bent að afkoma kaupskipaútgerða hér á landi hefur verið slök undanfarin ár og með hliðsjón af því eiga ásakanir um há flutningsgjöld ekki við rök að styðjast."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.