Morgunblaðið - 14.05.1986, Síða 39

Morgunblaðið - 14.05.1986, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 1986 39 25. landsþing JC-hreyfingar- innar hefst í Reykjavík á morgun Þátttakendur verða 3—400 25. landsþinp JC-hreyfingarinnar á íslandi verður haldið á Hótel Sögn í Reykjavík 15.-19. mai nk. Það er JC Reykjavík sem stendur fyrir þinghaldinu að þessu sinni. Auk venjulegra þingstarfa, þar sem stefna hreyfíngarinnar er mörkuð og ný stjóm kjörin, eru á dagsrkanni 8 námskeið þar sem hin ýmsu verkefni eru tekin fyrir. Leiðbeinendur leggja þar JC-fólki lið og má þar nefna námskeið í samskiptum við fjölmiðia, markaðs- setningu, stofnun iðnfyrirtækis o.fl. Þá fer fram á þinginu úrslitakeppni í ræðumennsku en undankeppni hefur staðið yfir frá því í haust. Þar keppa til úrslita annars vegar tveir einstaklingar í rökræðueinvígi og hins vegar tvö lið skipuð 5 ræðumönnum sem keppa í mælsku- og rökræðulist. Kjörorð þingsins eru „íslenskan iðnað í öndvegi", og munu dagskrár þeim tengdar setja mjög svip sinn á störf þingþáttakenda. Markmiðið með þeim er að vekja athygli á uppbyggingu nýrra atvinnutæki- færa og búa JC-fólk undir verkefni næsta starfsárs sem tengd verða iðnaði. Mikill fjöldi JC-fólks úr öllum landshlutum hefur skráð sig til þings og verða þátttakendur 3-400. Þingið hefst með setningarathöfii í Súlnasal Hótels Sögu fimmtudag- inn 15. maí en lýkur með lokahófi og verðlaunaafhendingu sunnudag- inn 18. maí. JC-hreyfingin á Islandi hefur nú starfað í 25 ár og nú eru í henni um 1.000 manns á aldrinum 18-40 ára. Starfsemin fer fram í 25 félögum vítt og breitt um landið en einu sinni á ári kemur JC-fólk saman til lands- þings sem segja má að sé uppskeru- hátíð, skóli og skipulag framtíðar- innar. (Fréttatiikynning) Morgunblaðið/Ámi Sæberg Undraland í nýtt húsnæði AUGLÝSINGASTOFAN Undraland er flutt í nýtt húsnæði við Undraland í Mosfellssveit. Stofan hefur meðal annars sérhæft sig í bflaskreytíngum og skiltagerð og á meðfylgjandi mynd má sjá einn af eigendum, Ásgeir Ásgeirsson, vinna við slcreyt- ingu á stórum flutningabfl. Félagsfundur í Geðhjálp Félagsfund'.ir verður haldinn fimmtudaginn 15. maí kl. 20 í fé- lagsmiðstöð Geðhjálpar í Veltu- sundi 3b, við Hallærísplan. Félags- fundur er opinn félagsmönnum sem og öðrum áhugamönnum. Almenn- ar umræður verða um starfsemi Geðhjálpar og kynntar verða leið- beiningar þeim sem taka vakt í opnu húsi. Breytingar á opna húss- tímum í júní, júh' og ágúst verða auglýstar á næstunni. Flokkur mannsins: Framboðslisti á Hvammstanga BÆJARRÁÐ Flokks mannsins á Hvammstanga hefur ákveðið framboð i Hvammstangahreppi í bæjar- og sveitarstjómarkosn- ingum 31. mai 1986. Framboðsiistann skipa eftirtald- in 1. ÁgústF. Sigurðsson, línumaður 2. Laufey M. Jóhannesdóttir, sjúkraliði 3. GústavJ. Daníelsson, línumaður 4. AnnaM. Bragadóttir, húsmóðir 5. Þuríður Þorleifsdóttir, húsmóðir 6. Ingi R. Sigurðsson, verkamaður 7. Linda Finnbogadóttir, húsmóðir 8. ÞóraB. Guðjónsdóttir, húsmóðir 9. Sóley Haraldsdóttir, starfsstúlka 10. Laufey Sigurðardóttir, verkamaður meginþorra þjóóarinnar daglega! síminn er oc £ ÞRMRVIKUR A FLORIDA FYRfft29.750'.- Nei, þettaerekkiprentvilla, ferðaskrifstofan Polarishefurnáð einstökum samningum og gert þetta ótrúlega verð að veruleika. Flogið verðurmeð Flugleiðum tilNew York, þaðan beintá Tampa flugvöllinní grennd viðSt. Petersburg við Mexicoflóann. Margirþekkja Sun Dial hótelið við St. Petersburgströndina, en þar verðurgist í tvær eða þrjár vikur, allt eftiróskum og þörfum hvers ogeins. Hóteleigandinn, Horst Teine, tekurá móti gestunum og talar einstaka orð í íslensku við þá sem ekki eru sleipirí enskunni. Á Sun Dial hótelinu erstjanað við gestina sem búa ígóðum íbúðum meðöllu. íbúðirnareru með velútbúnu eldhúsi, sjónvarpi, smekklegum húsgögnum og öllum þægindum. Og ekki má gleyma sundlauginni íhótelgarðinum. Eftirþriggja vikna ævintýralega dvölá Florida, t.d. með heimsókn í Disney Worldog Epcot Center, er flogið heim og þeirsem þess óska geta dvalið í New York fyrireða eftirdvölina í St. Petersburg, ekk, lónaleg viðbót það. Þetta erótrúlegt-ogódýrt. SamningarferðaskrifstofunnarPolaris hafa gert sumarleyfisferðir til Florida samkeppnisfærar við ferðir til miðjarðarhafslandanna. Enþetta erbara brotafþvísem Polaris geturgertþegarBandaríkin eru annars vegar. Pantið fljótt, því verðið hækkar 15. júní. Allarupplýsingarum ferðirnareru veittará ferðaskrifstofunni Polaris, Bankastræti 8, í símum28622og 15340. Þetta erótrúlegt-og ódýrt! * Verð miðað við 4 í íbúð. POLARIS FLUGLEIÐIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.