Morgunblaðið - 14.05.1986, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 14.05.1986, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 1986 49 Sex lið ætla sér sigur í ár — keppnin í fýrstu deild hefst á laugardaginn • Fyrirliðar allra liðanna í fyrstu deild vœru ekki árennilegt knattspyrnulið ef þeir lékju saman. Efri röð frá vinstri: Ómar Jóhannesson, ÍBV, Benedikt Guðmundsson, UBK, Þorgrímur Þráinsson, Val, með íslandsbikarinn, Sigurður Lárusson, ÍA, og Valþór Sigþórsson, ÍBK. Fremri röð frá vinstri: Guðjón Guðmundsson, Víði, Guðmundur Steinsson, Fram, Viðar Halldórsson, FH, Gunnar Gíslason KR, og Nói Björnsson, Þór. EF MARKA má þær upplýsingar sem fram komu á blaðamanna- fundi sem forráðamenn allra fyrstu deildar liðanna í knatt- spyrnu héldu í gær þá mun deild- in skiptast í tvö horn í sumar. Annarsvegar verða sex lið sem stefna á sigur f deildinni, og hins- vegar fjögur lið sem hafa á stefnuskránni að halda sæti sfnu. Á fundinum kom fram að Vals- menn, Framarar, Skagamenn, Keflvíkingar, Þórsarar og KR-ingar hafa sett stefnuna á sigur í deild- inni, en nýliðarnir Breiðablik og ÍBV, ásamt FH og Víði, gera sig ánægða með að ná öruggi sæti þegar upp verður staðið. Þessi markmið koma alveg heim og saman við spá forráðamanna, þjálfara og fyrirliða allra liðanna um úrslit Islandsmótsins, sem birt var á fundinum. Þesskonar spá, eða skoðanakönnun, er orðin ár- viss viðburður fyrir mótið, og það hefur ekki brugðist að það lið sem spáð er sigri stendur uppi í móts- lok sem sigurvegari. I ár er spáin á þessa leið: (Mest var hægt að fá 290 stig.) 1. Fram 270 2. Valur 235 3. Þór216 4. -5. ÍA 195 4.-5. KR195 6. ÍBK164 7. FH 102 8. ÍBV81 9. UBK78 10. Víðir 59 Þau sex lið sem sett hafa stefn- una á titilinn eru þarna í sex efstu sætunum. Fram er langefst, en litlu munar á UBK og ÍBV í barátt- unni um að halda sætinu í deild- inni. Keppnin í fyrstu deild hefst klukkan 14.30 á laugardaginn með fimm leikjum. Svo skemmtilega vill til að fjögur efstu liðin í spánni leika saman — Akurnesingar fá Fram í heimsókn upp á Skaga og Valsmenn bregða sér til Akureyrar og leika við Þór. Þá leika saman UBK og ÍBK, KR og ÍBV, Víðir og FH. Allt leikir sem geta farið á báöa vegu. Útlit er fyrir aö allir ieikimir á laugardaginn fari fram á grasi nema leikurinn á Akureyri. KR-ing- ar munu leika sinn heimaleik í vesturbænum, því Laugardalsvöll- urinn stendur ekki til boða vegna slæms ásigkomulags, og þeir vilja heldur leika á grasinu viö Kapla- skjól en á Valbjarnarvellinum í Laugardal, þó KR hafi ætlað að hvíla sinn völl alveg frá fyrstudeild- arkeppninni í sumar vegna stúku- byggingar. Almenn bjartsýni um knatt- spyrnuna í sumar ríkti á fundinum. Flest liðin telja sig koma til leiks vel undirbúin, og búast við jafnri og harðri baráttu. Nokkur liðanna hafa misst frá sér góða leikmenn, og knattspyrnan í heild mun sakna leikmanna eins og Guömundar Þorbjörnssonar, Ómars Torfason- ar, Sævars Jónssonar, Péturs Arnþórssonar, Jóns Erlings Ragn- arssonar, Gríms Sæmundsen og Óskars Gunnarssonar, svo nokkrir séu nefndir af þeim sem stóðu framarlega á síðasta sumri. En á móti kemur að í ár er óvenju mikið af góðum ungum strákum að koma inn í liðin, eins og sést hefur í æfingaleikjum vorsins. íslandsmeistaramótið í riffil- og skammbyssuskotfimi: Carl og Gissur í sérflokki — Carl vann fjóra titla en Gissur tvo SKOTSAMBAND fslands stóð fyrír íslandsmelstaramóti f riffil- og skammbyssuskotfimi dagana 10. og ll.maíogvar mótiðhaldið f Baldurshaga. Mótstjórar voru Axel Sölvason og Marteinn Magnúson. Dómarar voru Axel Sölvason, Sverrír Magnússon og Magnús Sigurðsson. Keppendur voru 20 í þremur greinum. Fyrra daginn hófst keppni fyrir hádegi á skammbyssu- keppni, standard pistol. Þar var skotið 60 skotum alls, í þremur hrinum. Hver hrina skiptist svo í fjórar 5 skota kafla. í fyrstu hrin- unni fá keppendur 150 sek. til að skjóta hverjum 5 skota kafla. í annarri hrinu fá þeir 20 sek. á hver 5 skot og í lokahrinunni fá þeir 10 sek. til aö skjóta hverjum 5 skot- um. Þetta er nýleg keppnisgrein hérlendis og eru miklar fram farir hjá okkar skotmönnum. Urslit urðu þannig: samt. 1. Carl J. Eirfkss. 186 186 16S S37 2. Hannes Haraldss. 168 178 17S S19 3. Bjöm Birgiss. 183 168 167 S18 Eftir hádegi var keppt í riffilskot- fimi, s.k. enskri keppni. Er þar skotið 60 skotum úr liggjandi stöðu og hefur keppandi 120 mín. til þess. Gissur Skarphéðinsson náði 596 stigum, þ.e. 56 tíur og 4 níur. Er þessi glæsilegi árangur Gissurar jöfnun á íslandsmeti sem Carl J. Eiríksson setti, 1973. Annars urðu úrslit þannig: 1. Gissur Skarphéðínsson 596 (Þrjú stig f ólympfumat.) 2. Carf J. Elrfksson 689 3. Kriatmundur Skarphéöinsson 674 Morgunblaöið/Júlfus • Frá keppnl með staðlaðri skambyssu. frá vlnstrí: Bjöm Halldórsson, Eiríkur Björnsson, Hannes Haraldsson, Bjöm Birgis, Ingi Guð- brandsson, Björn Birgisson og Carl J. Eirfksson. Seinni daginn var keppt í riffil- skotfimi, s.k. þríþraut. Er þar skot- ið 120 alls, úr þremur stöðum. Er þaö liggjandi staða, standandi staöa og hné staða. Veitt eru verðlaun fyrir árangur úr einstök- um stöðum svo og heildarárangur. Úrslit urðu þannig: I.Carl J. Eirfkss. 391 331 364 1086 2. Glssur Skarphéðinss. 396 286 341 1023 3. Bjöm Haildórss. 370 234 332 936 4. Hans Christensen 367 276 285 927

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.