Morgunblaðið - 15.06.1986, Page 12
9
j?2 B MQRGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15,jýNÍ 1986
Tugþraut á tölvu
Krakkar í tölvusumarbúðum
á V armalandi í Borgarfirði heimsóttir
Vinkonurnar Inga Þirðardóttlr, Regína Óskarsdóttir,
Kristín Gísladóttir og Anna Bjork Jónsdóttir gáfu sér
varla tima til að setjast niður fyrir myndatöku.
TÖLVUBYLTINGIN hefur haft margar breytingar
í för með sér. Atvinnulífíð ber þess glöggt merki,
því fyrirtæki og stofnanir eru nú sem óðast að
tölvuvæðast. En það eru ekki aðeins þeir fullorðnu
sem taka þátt í þessari byltingu. Böm og unglingar
virðast ekki síður ætla að tileinka sér tölvutæknina.
A markaðnum eru til margskonar tölvur og tölvu-
leikir sem höfða sérstaklega til þeirra og boðið er
upp á sérstök námskeið fyrir böm og unglinga sem
vilja nota tölvumar sínar til annars en tölvuleikja.
í fyrrasumar hóf Tölvuskólinn Framsýn rekstur
tölvusumarbúða á Varmalandi í Borgarfírði og
verður starfseminni haldið áfram nú í sumar. A
dögunum hófst fyrsta námskeið sumarsins. Blaða-
maður og ljósmyndari Morgunblaðsins dvöldu þar
eina dagstund til þess að fylgjast með því sem þar
fer fram.
rátt fyrir rigningu og
rok var mikið um að
vera á Varmalandi
þennan föstudag.
Þetta var síðasti dagur námskeiðs-
ins og mikið stóð til, því eftir hádegi
átti að keppa í íþróttum. Það var
að koma hádegi og krakkamir sem
höfðu verið úti voru að tínast inn
fyrir matinn. Inni í tölvuherberginu
sat hópur af bömum sem vom að
læra um spjaldskrárvinnslu. Þau
skráðu hjá sér nöfn félaganna í
sumarbúðunum, heimilisföng þeirra
og fleira. Þetta voru líflegir krakkar
og spurningum rigndi yfír Eirík
Þorbjömsson kennara og Ejrúnu
Jónsdóttur aðstoðarmann. Auk
þeirra starfa við sumarbúðimar
Hrönn Jónsdóttir íþróttakennari,
sem reyndar var aðeins þessa fyrstu
viku, Bjarki Viðarsson aðstoðar-
maður, tvær konur í eldhúsi og tveir
húsverðir.
Tölvukennsla og íþróttir
En hvað eru tölvusumarbúðir?
Eiríkur Þorbjömsson, einn af
eigendum Tölvuskólans Framsýnar
og forstöðumaður sumarbúðanna,
Guðjón Stefánraon laerir forritun. Honnm til aðstoðar er
Biríkur Þorbjörnsson kennari.
tölvubúnaður af ýmsum gerðum og
er ekki lögð áhersla á einstakar
tölvutegundir. Hugbúnaður er einn-
ig kynntur og hvemig tölvur eru
notaðar við ritvinnslu og bókhald.
Bömin læra líka að búa til forrit
sem þau geta notað á sínar eigin
tölvur. Öll bömin fá möppu með
námsefni sem kennslan byggist á.
Iþróttakennarinn sér um að veita
unglingunum sem fjölbreyttasta
þjálfun í íþróttum og leikjum. Mest
áhersla er þó lögð á fótbolta, hand-
bolta og fíjálsar íþróttir auk sunds-
ins, en einnig er farið í ýmsa leiki.
Varmaland ákjósan-
legur staður
„Þegar okkur datt í hug að stofna
sumarbúðimar byijuðum við á því
að leita að húsnæði," sagði Eiríkur.
„Ekki reyndist hlaupið að því að fá
hentugt húsnæði. En að lokum
fengum við inni hér á Varmalandi.
Eg tel okkur hafa verið mjög
heppin að komast að á þessum stað.
Hér er friðsælt og fallegt og við
emm langt frá allri umferð. Að-
staða hér er öll mjög góð. Við notum
tvær kennslustofur og helminginn
af heimavist grunnskólans, eða átta
herbergi. íþróttavöllurinn er á flöt-
-hlMlhíltiiiiffíiiiiiiiii
var beðinn að lýsa dæmigerðum
degi í sumarbúðunum.
„Bömin vakna klukkan átta á
morgnana og borða morgunverð,"
sagði hann. „Eftir það er farið í
sund og er dvalið í sundlauginni í
klukkutíma á hveijum morgni.
íþróttakennarinn sér um sund-
kennslu og þjálfun. Síðan er hópn-
um skipt í tvennt og fer annar hóp-
urinn út f íþróttir og leiki, en hinn
er inni við í tölvukennslu. Eftir
hádegi skipta hópamir svo um stað.
Milli klukkan 5 og 7 er ftjáls tfmi.
Þá fara margir aftur í sund, en
aðrir sitja í tómstundaherberginu
þar sem þeir geta lesið, spilað, teflt
eða leikið sér með tölvur. Þetta er
eini tíminn sem bömin fá að fara
f töl vuleiki.
Herbergisfélagarnlr Lúð-
vik og Stef&n Júlxussynir,
Ólafur Björa Svanbergs-
son, Ólafur Haukur Atla-
son og Bjarki Bragason.
Á kvöldin sjá bömin sjálf um
kvöldvökur. Þá eru sýnd leikrit,
farið í leiki, sagðar sögur og horft
á myndbönd svo eitthvað sé nefnt.“
Eiríkur sagði að tölvukennslan
byggðist á því að kynna fyrir ungl-
ingunum hvað tölvur em og al-
menna notkun þeirra, forritun og
notkun tilbúinna notendaforrita. I
kennslustofunni er fullkominn
Allur hópurinn Mma«
kominn inni í tölvuher-
berginu. Fyrir aftan
standa þau Bjarki Viðars-
son, Hrönn Jónsdóttir,
Eirikur Þorbjörasson og
Eyrún Jónsdóttir, kennar-
ar og aðstodarmenn.